Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 19

Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 19 _______UR VERIIMU____ Þróunarsamvinnustofnun íslands Sendir skip og útger ðar stj óra til Mozambique FENGUR, skip Þróunarsamvinnu- stofnunar íslands, er að fara til Mozambique eftir áramótin til að vinna að hafrannsóknaverkefni, sem unnið er í samvinnu við dönsku þró- unarstofnunina og Norræna þróun- arsjóðinn, en þessar þijár stofnanir styrkja verkefnið. 14 umsóknir borist, en frestur framlengdur „Okkar framlag til verkefnisins verður að leggja til skip og útgerðar- stjóra,“ segir Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Þróunarsam- vinnustofnunarinnar. „Við auglýstum eftir umsóknum í starf útgerðar- stjóra og 14 umsóknir hafi borist. Við framlengdum hins vegar frestinn vegna þess að við vildum ná til fleiri umsækjenda sem okkur gæti þótt fengur í að fá.“ Hann segir að Norræni þróunar- sjóðurinn, sem muni verða ábyrgur fyrir rekstrinum ásamt Hafrann- sóknastofnun Mozambique, muni Aðalfundi LÍÚ frestað AÐALFUNDI LÍÚ hefur verið frest- að um hálfan mánuð. Fundurinn átti að hefjast í Reykjavík í gær, en hef- ur hann nú verið fluttur til 9. og 10. nóvember. Dagskrá fundarins hafði áður veri kynnt í Morgunblaðinu og verður hún að öllum líkindum óbreytt að öðru leyti en því að fundinum var frestað. Skýringin á frestuninni er óveðrið, sem gengið hefur yfir landið og og hinn hörmulegi atburður er snjóflóð féll á byggðina á Flateyri aðfaranótt fimmtudagsins. ----» ♦ ♦ Ályktun FFSÍ Stuðnmgiir við veiðar á úthöfunum ÍTREKAÐUR var stuðningur við rétt íslenskra fiskiskipa til veiða á Sval- barðasvæðinu og í Smugunni á fundi framkvæmdastjórnar Farmanna- og fiskimannasambands íslands 20. október sl. Ályktunin var send til stjórnvalda vegna yfirstandandi samningaviðræðna við Norðmenn og Rússa vegna veiða íslendinga á al- þjóðlegum hafsvæðum. í ályktuninni var samninganefnd íslands hvött til að gæta ítrustu hagsmuna íslensku þjóðarinnar í við- ræðunum. Þar segir ennfremur: „Fundurinn beinir því sérstaklega til samninganefndarinnar að hún hafni algjörlega öllum hugmyndum um að veita Norðmönnum og Rússum veiði- rétt í íslenskri fiskveiðilögsögu í þess- um samningaviðræðum." ----» ♦ » Lítil síldveiði LÍTIL síldveiði hefur verið undan- farna daga vegna brælu. Alls hefur verið tilkynnt um rúmlega 45.000 tonna afla og eru þá eftir um 84.000 tonn af leyfilegum afla. Mest af afl- anum, tæplega 34.000 tonn hefur farið í bræðslu. hins vegar auglýsa eftir yfírmönnum á skipið og áhöfn til að sigla því suður eftir. Störfin verði auglýst hér á íslandi og jafnvel á öðrum Norður- löndum líka. Inni í því verði tvö föst störf yfirmanna til tveggja ára og líklega þijú störf í viðbót í áhöfninni fyrir siglinguna til Mozambique. Framlag íslands 60-70 milljónir „Framlag íslands til verkefnisins er metið á 60-70 milljónir króna,“ segir Björn. „Þá er reiknað með að við lánum skipið endurgjaldslaust, með afskriftum og að skipið verði seinna meir í eigu Hafrannsókna- stofnunar Mozambique. Norræni þróunarsjóðurinn mun sjá um rekstr- arkostnað, sem er áætlaður um 100 milljónir króna, en framlag Dana, sem er mest fjárfestingar í fiskveið- unum, er áætlað um 500 milljónir króna.“ Björn segir að um sé að ræða rann- sóknir á rækjumiðum á grunnsævi. Mozambique sé nýtt samstarfsland, en Þróunarsamvinnustofnun sé þeg- ar með verkefni í gangi á Græn- höfðaeyjum, Malaví og í Namibíu. Þróunarverkefnin snúist að mestu um fiskirannsóknir og tilraunveiðar á fiski. Helmingur af fjárframlögum íslendinga fari í laun íslenskra starfs- manna sem séu um 20 erlendis, þar af um 10 sjómenn með skipstjórnar- eða vélstjóramenntun.____________ TILB0ÐSVERÐ ÁPRENTURUM Hewlett Packard litaprentarar: DeskJet 340_________kr. 25.900 DeskJet 600_________kr. 27.900 DeskJet 660 C_______kr. 37.900 DeskJet 850 C_______kr. 55.900 DeskJet 1200 C kr. 94.500 DeskJet 1200 C PostScript_________kr. 169.900 DeskJet 1600 C kr. 149.000 Hewlett Packard geislaprentarar: LaserJet 5L__________kr. 54.900 LaserJet 5P kr. 97.000 Tilboótil 1. nóvember! HP DeskJet 600 kr. 22.000, með nýrri tölvu! Tölvu-Pósturinn Hdmarksgæði • Ldgmarksverð GLÆSIBÆ ÁLFHEIMUM, Sl'MI 533 4600 OSIAOG SMIÖRSALANSE Opið virka daga kl. 10 -18, laugardaga kl. 10 -14 og „langa laugardaga" kl. 10 -17. d fteóta ótað íðcetuun! Við höfum opnað glæsilega ostabúð að Skólavörðustíg 8, par sem boðið er upp áfjölbreytt úrval gæðaosta. Dýrindis ostar í miklu úrvali Þú finnur örugglega ost að þinu skapi því úrvalið er ótrúlegt. íslensku ostarnir í allri sinni fjölbreytni eru að sjálfsögðu í hávegum hafðir. Einnig eru á boðstólum vinsælir ostar erlendis frá, t.d. norskur Jarlsberg og geitarostar, franskur rjómaostur og hinn danski Gamli-Óli. Þér er að sjálfsögðu velkomið að bragða á ostunum. Einnig bjóðum við gæsalifur, andalifur, frönsk paté og sósur, sérbakaðar ostakökur og ostabökur, rjómaostaábæti o.fl. Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi Sérþjálfað starfsfólk er þér innan handar, boðið og búið að veita þér allar þær ráðleggingar sem þú þarfnast. Veisluþjónustan - allt sem til þarf Veisluþjónustunni er gert hátt undir höfði hjá okkur enda nýtur hún sívaxandi vinsælda meðal viðskiptavina. Við aðstoðum þig við að ákveða magn og meðlæti til veislunnar, þú færð allt til ostapinnagerðar og hvaðeina sem þú þarft til að gera ostaveisluna vel úr garði. Einnig færðu alls kyns smávöru, gjafavöru, skreytingar, ostaáhöld, uppskriftarbækur, bæklinga o.fl. Ostabökur í hádeginu! Líttu til okkar í hádeginu og gæddu þér á ostabökunum okkar, heilum eða í sneiðum, heitum eða köldum. ÍSLENSKIR \, ámm olttlNAS^ BUÐIN Verið hjartanlega velkomin tostabúðina að Skólavörðustíg 8. Sírninn er: 562 2772.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.