Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 21
ERLENT
Borís Jeltsín Rússlandsforseti aftur á sjúkrahús vegna hjartveiki
Vaxandi efasemdir um
getu Jeltsíns til að stj órna
Moskvu. Reuter.
Reuter
ÖRYGGISVÖRÐUR við sjúkrahúsið í Moskvu, þar sem Borís
Jeltsín dvelur, neitar að svara spurning-um blaðamanna um líð-
an forsetans. Jeltsín var fluttur þangað vegna hjartatruflana.
N-kóresk-
ur herfor-
ingi flýr
0 YONG-nam, liðsforingi í her
Norður-Kóreu og ættingi fyrr-
verandi varnarmálaráðherra
landsins, flýði nýlega til Suð-
ur-Kóreu, að sögn ríkisút-
varpsins þar í landi í gær. 0
Jin-u, sem var varnarmálaráð-
herra og talinn næst-voldug-
asti maður N-Kóreu, lést í
febrúar. Hann var náinn vinur
og ráðgjafi Kim Il-sung ein-
ræðisherra, sem lést í fyrra,
og er talið að andlát 0 hafí
verið mikið áfall fyrir son og
arftaka Kims, Kim Jong-il.
Lindfors látin
SÆNSKA leikkonan Viveca
Lindfors lést í fæðingarborg
sinni, Uppsölum, í gær, 74 ára
að aldri. Hún fíuttist ung til
Bandaríkjanna og reyndi fyrst
fyrir sér í kvikmyndum en
varð siðar fræg sviðsleikkona
í New York. Hún var á leik-
ferð í Svíþjóð er hún lést og
var sjálf í hlutverki Augusts
Strindbergs í verki er hún
samdi um listamanninn.
Fjórir látast í
spreng’ingn
FJÓRIR létu lífið er sprenging
varð í verksmiðju í Hvíta-
Rússlandi á miðvikudag. Verk-
smiðjan hafði sérhæft sig í að
eyða fallbyssusprengikúlum
og naut fjárstuðnings frá Bret-
um og Bandaríkjamönnum.
Hvít-Rússar stöðvuðu eyð-
ingu hefðbundinna vopna, sem
framkvæmd er í samræmi við
CFE-samninginn um fækkun
slíkra vopna, í apríl að skipun
Alexanders Lúkasénkós for-
seta. Hann sagði starfið of
kostnaðarsamt en það hófst
þó aftur fyrr í mánuðinum.
Yfirvöld segja að slysið hafi
orðið vegna þess að starfs-
menn hafi brotið gegn fyrir-
mælum og reynt að þurrka
púður úr kúlunum til að gera
það hættulaust.
íraskur flug-
maður æskir
landvistar
ÍRAKI, sem sagður er hafa
verið flugmaður í flugher
Saddams Husseins, flúði til
Kúveits með eiginkonu sína
og barn á miðvikudag. Hann
sótti um landvist af pólitískum
ástæðum, að sögn fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna en fyrst
í stað vísuðu kúveiskir her-
menn fólkinu burt og sögðu
því að snúa aftur heim. Fjöl-
skyldan fór yfír landamærin
við hafnarborgina Umm Qasr.
Kólibrífugl-
• innþræl-
sterkur
BANDARÍSKIR vísindamenn
segja að kólibrífuglinn,
minnsti fugl í heimi, sé geysi-
sterkur miðað við stærð. Þeir
mældu afl fuglsins með flókn-
um tilraunum og var niður-
staðan sú að hann sé nær níu
sinnum sterkari en maðurinn.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
var fluttur á sjúkrahús í gær vegna
endurtekinna hjartatruflana en að
sögn Víktor Íljúshíns, náins að-
stoðarmanns hans, er líðan hans
miklu betri nú en þegar hann fékk
áfallið í júlí sl. Kvað hann lækna
forsetans mundu gefa út tilkynn-
ingu í dag um veikindin en full-
yrti, að engin þörf væri á hjartaað-
gerð. Sagði hann Jeltsín mundu
gegna gegna störfum sínum áfram
en samkvæmt rússnesku stjórnar-
skránni er forsætisráðherrann eða
Víktor Tsjemomyrdín staðgengill
hans. Þetta er annað hjartaáfall
Jeltsíns á fjórum mánuðum og
eykur það enn á efasemdir um að
hann hafi heilsu til að gegna for-
setastarfínu.
Kenna um Banda-
ríkjaferðinni
Interfax-fréttastofan hafði eftir
heimildum, að Jeltsín hefði veikst
í einu sumarhúsa sinna og verið
fluttur þaðan með þyrlu á sjúkra-
hús í Moskvu. Georgí Satarov, einn
aðstoðarmanna hans, sagði, að
ekki væri vitað hve lengi forsetinn
yrði á sjúkrahúsi en Íljúshín sagði,
að Jeltsín þyrfti að hvílast og ná
EISTNESKA þingið lýsti í gær
yfir stuðningi við nýja ríkisstjórn
Tiit Váhis forsætisráðherra. 55
þingmenn greiddu atkvæði með
stjórninni, fimm voru á móti og
nítján sátu hjá.
Síðasta stjórn Váhis varð að
segja af sér í kjölfar þess að í ljós
kom að Edgar Savisaar innanríkis-
ráðherra hafði látið hljóðrita sam-
töl sem hann átti við aðra stjórn-
málamenn. Hafa eistnesk dagblöð
kallað málið „Watergate Eist-
lands“.
Váhi hét því að hann myndi
halda áfram árangursríkri stefnu
sér vel áður en hann tæki aftur til
starfa. Sagði hann, að veikindin
nú væru tengd „andlegu og líkam-
legu álagi vegna ferðarinnar til
Frakklands og Bandaríkjanna".
Kvað hann nauðsynlegt að skipu-
leggja utanferðir forsetans betur í
sinni í efnahagsmáium en efna-
hagsumbæturnar eru taldar hafa
gjörbreytt hagkerfi landsins á ör-
skömmum tíma.
Stjórnin samanstendur líkt og
fyrri stjórn af Samsteypuflokki
Váhis og Bændabandalaginu auk
þess sem Umbótaflokkurinn,
markaðssinnaður flokkur á hægi’i
væng eistneskra stjórnmála, á nú
aðild að henni.
Þá er það stefna Váhis að reyna
að bæta samskiptin við Rússa, er
hafa verið nokkuð stirð að undan-
förnu.
framtíðinni til að hann gæti hvíist
og jafnað sig á tímamismuninum
eftir langar flugferðir.
Vladímír Samarín, rússneskur
hjartasérfræðingur, sagði ekki
ástæðu til að gera of mikið úr veik-
indum Jeltsíns. Ekki væri ástæða
Forseti
kjörinn í
Zanzibar
TILKYNNT var í gær að fram-
bjóðandi stjórnarflokksins í
Tansaníu hefði sigrað naumlega
í forsetakosningum í Zanzibar
á sunnudag. Stjórnarandstaðan
sakaði flokkinn um kosninga-
svik og nokkrir af 140 erlendum
eftirlitsmönnum, sem fylgdust
með kosningunum, létu í Ijós
efasemdir um að rétt hefði ver-
ið talið upp úr kjörkössunum.
Kosningarnar á sunnudag
voru fyrstu fjölflokkakosningar
Zanzibar í 31 ár, eða síðan eyjan
sameinaðist Tanganyika árið
1964 í sambandsríkinu Tansa-
níu, sem byggði stefnu sína á
afrískum sósíalisma undir for-
sæti J. Nyerere. Á myndinni
fagna stuðningsmenn stjórnar-
flokksins úrslitunum.
til að óttast raunverulegt hjarta-
áfall nema ekkert væri að gert.
Veikindin stafa annars af æða-
þrengslum og ónógum súrefnis-
flutningi til hjartavöðvans.
Horfinn að heilsu?
Þegar Jeltsín veiktist í júlí sl.
sagði breskur hjartasérfræðingur,
að nefna mætti fjórar ástæður fyr-
ir veikindunum. Hann hefði of háan
blóðþrýsting, væri of feitur, drykki
of mikið og gegndi erfiðu starfí.
Jeltsín hefur nú fengið tvö áföll á
fjórum mánuðum og það hlýtur að
valda auknum efasemdum um, að
hann hafí heilsu til að bjóða sig
fram til forseta öðru sinni eins og
hann stefnir að.
í ágúst 1991 stökk Jeltsín upp
á skriðdreka og kvað niður valda-
ránstilraunina í Moskvu og þá var
hann hraustur og vel á sig kom-
inn. Nú virðist hann hins vegar
vera farinn að heilsu. Hann er ijóð-
ur í andliti, göngulagið óöruggt og
oft óskýrmæltur. Aðstoðarmenn
hans neita því, að forsetinn eigi
við drykkjuvanda að stríða en aug-
ljóst er, að hann er undir miklú
álagi og ekki alltaf sjálfum sér
samkvæmur.
Morðæði á Sri
Lanka
Hjuggii
og skutu
fólktil
bana
Colombo. Reuter.
SKÆRULIÐAR tamílsku tígr-
anna á Sri Lanka hjuggu til
bana og skutu að minnsta
kosti 23 ibúa í tveimur þorpum
í gær. Óttast er, að tala lát-
inna sé miklu hærri, allt að
100 manns, en þetta var í
fimmta skipti á fimm dögum,
sem þeir fara með morðum um
þorp sinhala en þeir eru í mikl-
um meirihluta í landinu.
íbúar þorpanna voru í fasta
svefni þegar tamílarnir réðust
gegn þeim en talsmenn stjórn-
arinnar í Colombo segja, að
aðgerðirnar beri vott um ör-
væntingu, skæruliðar hafi
misst um fímm hundruð
manna í átökum við stjórnar-
herinn síðustu daga og um
1.500 séu særðir.
Stjórnarherinn sækir nú
fram á Jaffnaskaga þar sem
tamílar búa flestir og er búist
við lokasókn gegn Jaffnaborg
fljótlega.
50.000 fallnir
Tamílar hafa barist fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis í norð-
ur- og austurhluta Sri Lanka
í 12 ár og talið er, að í þeirri
baráttu hafi 50.000 manns
látið lífið.
Sagt er, að leiðtogi tamílsku
tígranna, Velupillai Prabhak-
aran, hafí flúið land en fréttir
eru um, að skæruliðar reyni
að neyða íbúa í Jaffna til að
vopnast og beijast við stjórn-
arherinn.
______________________________ Reuter
Eistland
Þingið styður
nýju stjórnina
Tallin. Reuter.