Morgunblaðið - 27.10.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 25
I
I
>
)
r
I
I
I
I
I
I
I
AÐSEIMDAR GREINAR
ísland og Háskóli
Sameinuðu þjóðanna
GREINARHÖFUNDUR ásamt nokkrum fyrrum nemendum Jarð-
hitaskólans á alþjóðlegri jarðhitaráðstefnu í Flórens sl. vor. F.v.:
Klara Bojadgieva (Búlgaría), Antonia Barriosde Luna (E1 Salv-
ador), Ingvar Birgir Friðleifsson, Bai Liping (Kína), Carolina
Grajeda (Guatemala), Beata Kepinska (Pólland) og Meseret Tekl-
emariam (Eþíópía).
Kjörinn vettvang-
ur fyrir markvissa
þróunaraðstoð
HÁSKÓLI Sameinuðu þjóðanna er sú
stofnun SÞ sem ísland hefur tekið
hvað virkastan þátt í. Frá vorinu
1979 hefur árlega komið til landsins
hópur vísinda- • og tæknimanna og
kvenna frá þróunarlöndunum til að
læra hvemig hægt er að finna, beisla
og nýta jarðhita. Nemendumir, sem
flestir em um þritugt og löngu út-
skrifaðir úr venjulegum háskólum,
yfirgefa böm og bú og störf sín heima
fyrir og fara til sex mánaða náms á
íslandi. En hvað er það sem dregur
hæfileikafólk í sérfræðistörfum norð-
ur til íslands og hvers konar stofnun
er þessi Háskóli Sameinuðu þjóðanna?
Hvað er Háskóli Sþ?
Ákveðið var að stofna Háskóla
Sameinuðu þjóðanna árið 1969 að
tillögu U Thant, þáverandi fram-
kvæmdastjóra SÞ. Þetta átti ekki að
verða venjulegur háskóli með nem-
endum, kennumm, fyrirlestrasölum
og rannsóknastofum á einum stað.
Skólinn skyldi hafa aðalskrifstofu á
einum stað en háskóladeildir og nem-
endur út um allan heim. Það átti
ekki að byggja nýjar háskólabygging-
ar heldur óskuðu Sameinuðu þjóðimar
eftir því að aðildarlöndin tengdu sína
bestu háskóla og rannsóknastofnanir
við Háskóla Sameinuðu þjóðanna og
opnuðu þannig miklu fleira fólki í
þróunarlöndunum möguleika á að
komast í úrvalsþjálfun. Skólinn var
formlega stofnaður 1975. Smátt og
smátt myndaðist net stofnana út um
allan heim sem taka nemendur á veg-
um Háskóla Sameinuðu þjóðanna
(HSÞ) í framhaldsnám og þjálfun eft-
ir venjulegt háskólanám. Einnig hefur
HSÞ komið á miklu samstarfi milli
sérfræðinga um víða veröld á ýmsum
sviðum mannlífs á jörðinni.
Verksvið HSÞ á 20 ára starfsferli
er orðið mjög vítt. Stofnanir tefigdar
HSÞ fjalla um hin ólíkustu málefni
svo sem manngildi, aðferðafræði við
lausn árekstra milli þjóða, nýjar stefn-
ur í hagkerfum heimsins, samspil
manns og náttúru, mannfjöldadreif-
ingu og velferð fólks og margvísleg
svið tækni og vísinda. Aðalstöðvar
HSÞ í Tókýó í Japan eru miðstöð
fyrir tæplega 30 samstarfsstofnanir
í öllum heimsálfum.
Jarðhitaskóli HSÞ á íslandi
Strax við stofnun HSÞ árið 1975
var farið að kanna möguleika á að
ísland tæki að sér að reka annað
hvort jarðhitaskóla eða sjávarútvegs-
skóla í nafni HSÞ. Að athuguðu máli
varð jarðhitaskóli fyrir valinu og hóf
hann starfsemi í Reylq'avík árið 1979.
Skólinn hefur frá upphafi verið rekinn
í tengslum við Orkustofnun en jafn-
framt notið starfskrafta Háskóla ís-
lands, hitaveitna og verkfræðistofa.
Háskóli SÞ og íslenska ríkið standa
undir kostnaði af rekstri skólans og
dvöl nemenda hér og hefur hlutur
Islands farið vaxandi og nemur hin
síðari ár um 80% af rekstrarkostn-
aði. Framlag íslands er hluti af okkar
framlagi til þróunaraðstoðar.
Fyrsta skólaárið voru nemendur
aðeins tveir en nú eru þeir orðnis alls
163 auk um 50 sem komið hafa í
skemmri námsferðir. Þetta er litríkur
hópur, karlar og konur frá 29 þróun-
arlöndum. Nú í haust útskrifast 16
nemendur sem koma frá Egypta-
landi, E1 Salvador, Filipseyjum, Indó-
nesíu, Jórdaníu, Kenýa, Kína, Nepal,
Rúmeníu og Úganda.
í Jarðhitaskólanum njóta nemend-
ur áratuga reynslu íslendinga. Þeir
læra það nýjasta í jarðhitaleit, að
meta hve mikið og hve heitt vatn og
gufu hægt er að fá úr jarðhitasvæði
og síðan hvemig hægt er að nýta
jarðhitann. Aðstæður hér eru sérlega
góðar því ólíklegt er að jafnmikla jarð-
hitaþekkingu og jafnflölbreytta nýt-
ingu sé nokkurs staðar að finna á
jafnlitlu svæði og hér á landi. Heim
komnir breiða nemendur skólans út
þekkingu sína og þannig höfum við
Islendingar eignast jarðhita„ræðis-
menn“ í öllum heimsálfum.
í fjölmörgum löndum eru helstu
jarðhitasérfræðingamir skólaðir á ís-
landi. í E1 Salvador, Filipseyjum,
Kenýa og Nikaragúa, sem framleiða
yfir 20% af raforku sinni með jarð-
gufu eru t.d. margir lykilmenn í jarð-
fræði, eðlisfræði, efnafræði, forða-
fræði og verkfræði fyrrum nemendur
Jarðhitaskólans. Þeir eru þegar farnir
að senda sína efnilegustu lærisveina
til Islands til frekara náms. í fjöl-
mennasta ríki heims, Kína, er verið
að endurbyggja eina borgarhitaveit-
una að íslenskri fyrirmynd. Þótt Jarð-
hitaskólinn hafi aldrei kostað gerð
kynningarbæklings eða auglýsingu í
blaði berast miklu fleiri umsóknir en
hægt er að sinna.
Nemendur skólans hafa getið sér
mjög gott orð alþjóðlega. Á rúmlega
þúsund manna alþjóðlegri jarðhita-
ráðstefnu sem haldin var í Flórens á
Ítalíu í maí sl. voru 35 nemendur
skólans og fluttu margir_þeirra erindi
fyrir hönd landa sinna. I þeirra hópi
vom konur frá Búlgaríu, E1 Salvador,
Eþíópíu, Filipseyjum, Guatemala,
Kína og Póllandi. Alls hafa 20 konur
lokið námi við skólann og flestar
þeirra staðið sig afburðavel. Við val
á nemendum er okkur uppálagt af
HSÞ að sækjast sérstaklega eftir
hæfum konum. En því miður reynist
það erfitt því í mörgum þróunarlönd-
um er lítið um að konur læri raunvís-
indi og verkfræði. Þær konur sem
fara í langskólanám velja heldur
læknisfræði, lögfræði, félagsfræði og
tungumál. En þær fáu konur sem á
annað borð læra raungreinar og fara
að vinna að orkumálum em oftast
hörkuduglegar og miklir eldhugar.
Stofnun Sjávarútvegs-
skóla HSÞ undirbúin
Starfsemi Jarðhitaskólans og
árangur hefur vakið mikla athygli
alþjóðlega og innan Háskóla Samein-
uðu þjóðanna. Hugmyndin um sjáv-
arútvegsskóla, hliðstæðan Jarðhita-
skólanum, var í fyrra endurvakin í
höfuðstöðvum HSÞ og þess farið á
leit við íslendinga að þeir könnuðu
möguleika á að reka slíkan skóla.
Utanríkisráðherra tilnefndi starfshóp
í Jarðhitaháskólanum,
segir Ingvar Birgir
Friðleifsson,njóta
nemendur áratuga
reynslu íslendinga.
með fulltrúum fimm ráðuneyta í júní
sl. til að kanna hvort og hvernig ís-
lendingar gætu staðið að sjávarút-
vegsskóla HSÞ og er hópurinn að
ljúka störfum.
Verksvið sjávarútvegsskóla yrði
um margt víðfeðmara en jarðhita-
skóla því þróunarlöndin sem stunda
sjávarútveg em miklu fleiri en þau
sem hafa nýtanlegan jarðhita. Þó er
gert ráð fyrir að byggt yrði á reynsl-
unni af Jarðhitaskólanum og boðið
upp á sérhæft nám á tiltölulega
þröngum námsbrautum. Líklega
yrðu námsbrautir í fiskileit og mati
á fiskistofnum, fiskveiðum og með-
ferð afla um borð, fiskvinnslu og
dreifingu í landi, markaðssetningu
fiskafurða o.s.frv. Ef íslensk stjóm-
völd ákveða að gera Háskóla Samein-
uðu þjóðanna tilboð um stofnun sjáv-
arútvegsskóla hér á landi mun mats-
nefnd á vegum HSÞ fara yfir ís-
lensku tillögumar. Fari allt að óskum
ætti að mega vænta fyrstu nemend-
anna í Sjávarútvegsskóla HSÞ á ís-
landi voriðl997.
Kjörinn vettvangur
fyrir þróunaraðstoð
Háskóli Sameinuðu þjóðanna er á
margan hátt mjög heppileg sam-
starfsstofnun fyrir fámenna þjóð eins
og íslendinga, til að styðja þróunar-
löndin og koma þeim til aukinnar
sjálfsbjargar. HSÞ er lítil og viðráðan-
leg stofnun, ólíkt því sem gerist um
margar alþjóðastofnanir, og reiðir sig
mikið á styrk og hæfni þeirra stofn-
ana sem taka að sér rekstur ein-
stakra háskóladeilda. HSÞ er þannig
kjorinn vettvangur fyrir hluta ís-
lenskrar þróunaraðstoðar. Með sam-
starfi við HSÞ getum við hjálpað fjöl-
mörgum þjóðum að læra hvemig þær
eiga að hjálpa sér sjálfar við nýtingu
auðlinda sinna, hvort heldur fisks í
sjó og vötnum eða hita í iðrum jarðar.
Höfundur er forstöðumaður Jarð-
hitaskóla Háskóla Sameinuðu
þjóðanna.
Gæði og fræði
GAMAN að þessi
tvö orð skuli ríma
saman. Sérstaklega
ef maður starfar í
skóla - og keppir að
því að láta þessi orð
ríma saman - í verki.
Fræði eru vísindi -
af ýmsu tagi auðvit-
að. Ein fræðin sem
ég hef verið að velta
fyrir mér undanfarna
mánuði svona allt í
bland og saman við -
eru fræðin um gæði.
Sérstaklega í sam-
hengi við þá menntun
sem mér er falið að
veita mínum nemend-
um - og svo auðvitað rammann
utan um hana.
Stefnt norður
- og upp!
Einn liðurinn í þessari hugleið-
ingu allri var sú ákvörðun að taka
þátt í ráðstefnu sem þeir Akur-
eyringar (með virkilega stórum
staf) stóðu fyrir í ágústlok. Hún
var nefnd „Gæðastjórnun í
menntakerfinu". Gott hjá þeim!
Og gott hjá öllum þeim skóla-
mönnum, af öllum skólastigunum
fjórum, sem flykktust norður -
og upp - til móts við nýja
strauma, sem eiga að hjálpa okk-
ur að taka okkur enn meira á -
og gera enn betur. Frábært mark-
mið.
Ég verð nú samt að segja að
ég varð fyrir pínulitlum vonbrigð-
um þegar ég leit yfir
þátttökulistann með
öllum nöfnunum tvö-
hundruðogeitthvað -
og sá einungis einn
skólastjóra grunn-
skóla Reykjavíkur
fyrir utan mig og
samverkakonu mína,
Maríu Solveigu. En
svo var auðvitað
ánægjulegt að sjá -
og hitta - forstöðu-
mann Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, Viktor
A. Guðlaugsson.
Hann var kappsfullur
að vanda og tilbúinn
að kynna sér gæðin á
vettvangi þeirra norðanmanna.
Mér til óblandinnar ánægju virt-
ust nær allir framhaldsskólarnir
í Reykjavík eiga sina fulltrúa.
Hvað um það. Þarna frædd-
umst við á prýðilega skipulagðri
ráðstefnu um það hvað getur fal-
ist í fræðunum um gæðastjórnun
- og hvernig megi heimfæra þá
hugmyndafræði, sem hingað til
hefur fremur verið spyrt saman
við fyrirtækjarekstur af ýmsu
tagi, - upp á íslenskt skólakerfi.
Og auðvitað var menntamálaráð-
herra vor mættur til leiks.
Að kappkosta við
að bæta sig
Mér þótti gaman á þessari ráð-
stefnu. Margir fyrirlestrarnir voru
áhugaverðir og vöktu til um-
hugsunar hvað skipulögð nafla-
Margrét
Theodórsdóttir
skoðun á eigin vinnu og vinnustað
getur verið gott verkfæri til þess
að finna veiku hlekkina - og í
framhaldi af því leita leiða til að
styrkja þá. Ég get ekki neitað
því, að innlegg rektors Kvenna-
skólans í Reykjavík, Aðalsteins
Eiríkssonar, fyllti mig hrifningu.
Hann útlistaði á skýran og skil-
merkilegan hátt, og kryddaði mál
sitt með góðum glærum, hvernig
hann og hans samverkafólk, hafði
tekið þátt í verkefninu: „Samn-
ingsstjórnun, árangurs- og gæða-
mat“ í samvinnu við fjármálaráðu-
neytið. Verkefnið er enn í vinnslu,
en í því felst m.a, að mælistika
hefur verið lögð á afar fjölbreyti-
lega þætti skólastarfsins í Kvenna-
skólanum í Reykjavík. Þarna mátti
t.d. sjá glærur með upplýsingum
um mætingu, bæði kennara og
nemenda, einnig mat nemenda á
því hvernig þeim fínnst kennararn-
ir standa sig m.t.t. undirbúnings,
áhugaverðrar framsetningar, vals
á námsbókum, hvort þeir skili
fljótt/seint verkefnum sem þeir
fara yfir... og margt, margt
fleira. Forvitnilegt var að sjá við-
horf kennara til ýmissa þátta
Skyldi það vera á
stefnuskránni, spyr
Margrét Theodórs-
dóttír, að koma á fag-
legri gæðastjórnun?
skólastarfsins, s.s. yfirmanna og
þannig mætti lengi telja.
Það sem mér þótti mest heill-
andi í öllu þessu upplýsingaflóði
var að kynnast því viðhorfi þeirra
í Kvennó - að leikurinn væri auð-
vitað fyrst og fremst gerður til
þess að skoða skólastarfið á skipu-
Íagðan hátt - til þess að auðvelda
sér að bæta það sem væri ábóta-
vant - og fá staðfestingu á því
sem er gott og vel gert. Mér finnst
fyllsta ástæða til að hvetja til þess
að Kvennaskólatilraunin fái góða
og gagngera kynningu.
Hvað er að frétta
að sunnan?
Nú, í öllum þessum vangavelt-
um og skemmtilegheitum norður
á Akureyri fór ég að velta eftirfar-
andi spurningu fyrir mér: Ætli
núverandi forráðamenn skólamála
í Reykjavík hafi kynnst þessum
hugmyndaheimi og aðferðafræði?
Skyld! það vera á stefnuskránni
að koma á faglegri gæðastjórnun
þegar ábyrgðin á velferð reyk-
vískra ungmenna í reykvískum
grunnskólum - verður á nær alla
kanta á þeirra ábyrgð? Spyr sá
sem ekki veit - og óskar um leið
eftir svari. Ég man svo vel að
skömmu eftir að Ámi Sigfússon
varð formaður skólamálaráðs
Reykjavíkur þá steig hann fyrsta
skrefið í þá átt að kynna gæða-
mat í grunnskólum Reykjavíkur -
og tilraunaverkefni fór af stað
með starfsmönnum fimm grunn-
skóla. Það var árið 1993.
Og svo, og svo, og svo varð til
nýr meirihluti. Ég bíð spennt eftir
að frétta af innri málefnum grunn-
skóla Reykjavíkur en fátt hefur
vitnast um þau á síðum þessa
blaðs.
Höfundur er skólastjóri í Tjarnar-
skóla og formaður borgarmála-
hóps Sjálfstæðisflokksins í skóla-
og dagvistarmálum.
Húðkrem dr. Guttorms Hernes frá Bodo f
Noregi hefur vakið verðskuldaða athygli
vegna árangurs gegn húðvandamálum.
Ofannefndar vömr hafa áunnið sór sess og
virðingu á fslandi og viðar vegna yfirburða
gæða og árangurs.
Oræni vagninn - sérfræðiþjónusta. 2. hæð Borgarkringlunnl.
High Desert blómahjókom, fersk, lifrænt ræktud.
Hlgh Deserf drottningarhunang, ferskt, hfrænt ræktaö.
High Desert Propolis.
Aloe Vera frá JASON snyrti- og
hreinlætisvörur: