Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 42

Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ BRIDS Umsjón Arnðr G. Ragnarsson Föstudagsbrids BSI Föstudaginn 20. október var eins- kvölds tölvureiknaður Monrad-baró- meter. 30 pör spiluðu 7 umferðir með 4 spilum á milli para. Efstu pör voru: Halla Bergþórsdóttir - Vilhjálmur Sigurðsson +80 Rósmundur Guðmundsson - Brynjar Jónsson +71 MagnúsTorfason-SævinBjamason +71 Unnsteinn Arason - Kristján B. Snorrason +70 Siguijón Tryggvas. - Guðlaugur Sveinss. +51 Föstudagsbrids BSÍ er spilað öll föstudagskvöld í húsi Bridssambands- ins í Þönglabakka 1. Spilaðir er eins- kvölds tvfmenningar og byijar spila- mennska kl. 19. Spilaður er Monrad- barómeter og Mitchell tvímenningur til skiptis. Dagskáin næstu föstudaga er þannig: 27. október Mitchell tvímenningur. 3. nóvember Monrad-Barómeter. 10. nóvember Mitchell tvímenningur. 17. nóvember Monrad-Barómeter. 24. nóvember Mitchell tvímenningur. EKTA HANDHNÝTT AUSTURLENSK TEPPl EMÍRf: JL-húsinu. Opið: Virka daga kl. 13-18, laugardaga kl. 10-16. Bridsfélag Akureyrar Þá er lokið 10. umferð af 25 í Akur- eyrarmótinu í tvímenningi og er stað- an nú þessi: Reynir Helgason - Tryggvi Gunnarsson 100 FrimannStefánsson-PállÞórsson 95 SveinbjömJónsson-JónasRóbertsson 80 Hróðmar Sigurbjömss. - Stefán G. Stefánss. 75 PállPálsson-ÞórarinnB.Jónsson 73 SigurbjömHaraldsson-StefánRagnarsson 72 Sunnudagsbrids var spiluð 22. októ- ber. 16 pör mættu til leiks, úrslit urðu þessi: Stefán Stefánsson - Eiður Gunnlaugsson 248 PállÞórsson-FrímannStefánsson 243 ÖmEinarsson-StefánSveinbjömsson 237 Þórhallur Hermannss. - Sigurður Marteinss. 231 Meðalskor 210 Brids í Grafarholti Bridskeppnir Golfklúbbs Reykjavík- ur hefjast með tveggja kvölda tví- menningi miðvikudaginn 1. nóvember nk. stundvíslega kl. 19.30. Þátttöku- gjald er kr. 500 og er kaffi og með- læti innifalið. Skráning er á skrifstofu GR í síma 5872211. Bridsdeild Rangæinga og Breiðholts Hafinn er þriggja kvölda Barómet- er, með þátttöku 18 para. (Það vantar reyndar eitt par og er sæti þess laust...) Staðan eftir 6 umferðir: Rósmundur Guðmundsson - Brynjar Jónsson 64 AlbertÞorsteinsson-BjömÁmason 56 Maria Ásmundsd. - Steindór Ingjmundars. 24 Auðunn Guðmundsson - Ásmundur Ömólfsson 21 Guðbjöm Þórðars. - Steingrimur Steingrimss. 18 Tómas Siguijónsson - Óli Bjöm Guðmundsson 16 o,s°OA ^. 30. október- 8. nóvember. Mánudagar og miðvikudagar kl. 20-22. Vöðvabólga, höfuðverkur, orkuleysi.... -skilaboð líkamans um streitu? Skoðaðu streituvaldana i lífi þínu og kynnstu aðferðum til þess (Æ HEIMSLJÓS Jógastöðin Heimsljós, Ármúla 15, 2. hæð, sími 588 4200. að urnbreyta vanlíðan í vellíðan. Leiðbeinandi: Krístin Noríand Kripalujógakennari. Ábendingar á mjólkurumbúðum, nr. S af 60. Upp til handa og fóta! Orð um líkamshluta eru algeng í alls konar samböndum. Orðið hönd kemur fyrir í a.m.k. 150 orðatiltækjum, fótur í a.m.k. 70, höfuð og auga í 40-50 og orðið rass er notað í a.m.k. 30 orðatiltækjum. Dæmi: leggja síðustu hönd á eitthvað; koma fótunum undir sig; gera einhverjum hátt undir höfði; ganga í augun á einhverjum; spila rassinn úrbuxunum. Manst þú eftir fleiri slíkum? íslenskan er skemmtilegt tungumál! MJÓIKURSAMSALAN íslenskufrœðsla ú mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar, íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs. ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegitil föstudags Síþreyta og þurrkur EINAR Stefánsson hringdi og sagðist vilja segja frá því hvemig honum hefði tekist að lækna sjálfan sig af síþreytu og þurrki. Sagðist hann hafa verið illa haldinn af hvoru tveggju og margt reynt til að bæta úr. Á endanum datt hann ofan á það ráð að borða salt og fann strax bót. Nú segist hann halda sér góðum með því að borða eina teskeið af salti á tveggja daga fresti. Ein- ar sagðist vita til þess að margir ættu við síþreytu og þurrk að stríða, án þess að fá einhveija bót við. Þess vegna vildi hann segja mönnum frá þessari reynslu sinni, ef það gæti hjálpað einhveijum, sem honum. Jafnaðarlaun í fréttum si. mánudags- kvöld var haft eftir Áma Benediktssyni hjá Vinnu- málasambandinu að verið væri að reifa þá hugmynd að borga jafnaðarkaup fyr- ir allar stundir sólarhrings- ins. Finnst mér hugmyndin snilldarleg og vona einiæg- lega að hægt verði að gera hana að veruleika, launa- fólki til góðs. Kristín Ástgeirsdóttir kvennalistakona sendi þjóðinni hins vegar kaldar kveðjur í sjónvarpinu sl. þriðjudagskvöld er hún hvatti konur til að fara í verkfall. Hvaða konur? All- ar konur? Rannveig Tryggvadóttir Þakkir til Páls SKÚLI Einarsson hringdi og vildi koma á framfæri þökkum til Páls Gíslasonar fyrir góða grein sem birtist í blaðinu á miðvikudag. Eins vill Skúli skora á eldri borgara að sameinast um Pál Gíslason sem forsvara Félags eldri borgara og öryrkja og hrinda þessu óréttlæti sem þessi hópur er beittur, því skilaboð rík- isstjórnarinnar em þau að eldri borgarar geti tekið skófluna og gengið út í Fossvog. Gott væri að muna eftir þessum herrum í kjörklefanum í næstu kosningum. Tapað/fundið Kápa tekin I misgripum KÁPA var tekin í misgrip- um á Astró 14. október sl. Tvær kápur virðast hafa víxlast, báðar svartar með stórri hettu, en sú sem tek- in var er síðari og þykkari og með tveimur tölum en ekki einni eins og á hinni. Sú sem hefur tekið vitlausa kápu á Astró vinsamlegast hringi í síma 561-1619 á kvöldin. Týnt veski BRÚNT fílofax-veski merkt Búnaðarbanka ís- lands tapaðist í Bíóhöllinni eða þar fyrir utan sl. sunnudag. Finnandi vin- samlegast hringi í síma 587-6399. Frakki tekinn í misgripum SÍÐUR, ljósdrapplitaður frakki var tekinn í misgrip- um á dansleik í Akoges- húsinu 20. október sl. Frakkinn er vatteraður rykfrakki. Skilvís fmnandi vinsamlegast hafí sam- band í síma 557-4897. Gæludýr Tómasína er týnd TÓMASÍNA tapaðist frá heimili sínu, Mávahlíð 6, þann 19. október sl. Hún er fjögurra ára brúnbrönd- ótt læða, ólarlaus en eyrnamerkt R-3032. Þar sem hennar er sárt saknað eru þeir sem kunna að vita örlög hennar vinsamiegast beðnir um að hafa sam- band í síma 551-3107 eftir kl. 18. Kattagæsla HELGA hringdi og vildi koma á framfæri til katt- areigenda að hún tekur að sér að passa ketti í lengri eða skemmri tíma. Uppl. í síma 551-7110. ÞESSAR duglegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands fyrir konur og börn i neyð og varð ágóðinn 1.741 kr, Þær heita Hlín Vala, Berclind osr Marerét. ÞESSIR duglegu strákar héldu nýlega hlutaveltu og notuðu ágóðann sem varð kr. 885 til styrktar Félagi heyrnarlausra. Lettinn þvingaði nú frajn óveijandi mát með fallegri hróksfórn: 31. - Hxg2+! 32. Kxg2 - Be4+ 33. Kh2 (Eða 33. Kgl - Dh3) 33. - Df7 (með tvöfaldri hótun: Df2+ og Dh5+) 34. Hxe3 — Df2+ og hvítur gafst upp, því hann er óveijandi mát. Sokolovs þessi sigr-. aði á mótinu ásamt Þjóðveijanum Schlindwein með 5'/2 v. af 9 mögulegum. 3. Schmalts 5 v. 4-7. Bezold, Onísjúk, Úkraínu, Smejkal, Tékklandi og Grund 4‘/2 v. 8. Beikert 4 v. 9-10. Siegel og Lettneski stór- meistarinn Rausis 3‘/2 v. Afar jafnt mót og úrslitin óvænt. Holger Grund, 16 ára, náði áfanga að alþjóð- legum meistaratitli og var jafn stigahæstu kepp- endunum, þeim Onísjúk og Smejkal. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson SVARTUR mátar í 9.leik Staðan kom upp á móti í Viemheim í Þýskalandi nú í október í viðureign tveggja alþjóðlegra meist- ara. Georg Siegel (2.480), Þýskalandi, var með hvítt, en Andrei So- kolovs (2.505), Lettlandi, hafði svart og átti leik. Víkverji skrifar... KRIFRÆÐI og duttlungar ís- lenskra embættimanna hafa oft orðið Víkveija að umtalsefni. Víkveija varð þó ljóst, þegar hann brá sér til Moskvu fyrir skömmu, að íslenska kerfíð bliknar í saman- burði við það rússneska. Sem dæmi má nefna, að þeim sem fara inn í Rússland er gert að skrifa á sérstakt eyðublað skýrslu um það sem þeir flytja með sér af farangri, verðmætum og peningum. Þegar farið er gegnum tollinn fylgj- ast tollverðir með hvort ekki hafí örugglega eitthvað verið skrifað á eyðublaðið en skoða það ekki að öðru leyti. Þegar farið er út úr landinu þarf að skila bæði upphaflega eyðublað- inu og öðru eins, þar sem skráð er hvað farið er með út úr landinu. Þessi tvö eyðublöð taka tollverðir, athuga hvort ekki sé skráð lægri peningaupphæð á útflutnings- skýrsluna en innflutningskýrsluna (það er bannað samkvæmt lögum að fara með meiri peninga út úr landinu en fluttir eru inn) og að merkt sé í nei-reitinn við spuming- una hvort ætlunin sé að flyta út rúblur (sem er einnig bannað sam- kvæmt lögum). Síðan stimplar toll- vörðurinn eyðublöðin og leggur þau í bunka sem safnast upp yfir dag- inn. Því er raunar haldið fram að enginn skoði þessi eyðublöð nánar heldur sé þeim hent þegar bunkinn hefur náð ákveðinni stærð. Tilgang- urinn er þá sjálfsagt að veita ferða- mönnum óbeint eftirlit: eftir því sem þeir þurfa að fylla út fleiri skýrslur þeim mun minni líkur eru á að þeir bijóti reglurnar. xxx RÚSSLAND er einnig eina land- ið, sem Víkveiji hefur komið til, þar sem meira eftirlit er með ferðamönnum sem fara út úr land- inu en koma inn í það. Allur farang- ur er gegnumlýstur og vegabréfíð og vegabréfsáritunin skoðuð í óra- tíma. Það er raunar bannað með lögum að flytja fommuni út úr landinu og ef ferðamenn geta ekki sýnt fram á það með kvittunum að minjagrip- ir séu ekki forngripir, getur orðið talsvert uppistand í tollinum. Einn kvenkyns ferðafélagi Vík- veija hafði farið á útimarkað og keypt þar frekar óhijálegan olíu- lampa sem hún hugðist taka með sér heim. Fyrir lampann greiddi hún um 1.900 krónuren hafði ekki feng- ið neina kvittun. Konan setti lampann niður í tösku en gripurinn komst ekki fram hjá tollvörðunum sem þóttust held- ur betur hafa sett í feitt. Og eftir míkil fundahöld og hlaup fram og aftur, var niðurstaðan sú, að lamp- inn, sem í augum Víkverja var bara gamalt drasl, væri fomgripur og því var hann gerður upptækur! xxx OFNOTKUN orðsins aðili er mörgum þymir í augum. Um daginn heyrði Víkveiji nýja útgáfu af orðinu þegar forystumaður í björgunarsamtökum talaði um við- bragðsaðila!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.