Morgunblaðið - 27.10.1995, Síða 52

Morgunblaðið - 27.10.1995, Síða 52
Jíem&C -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 669 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaCENTRUMJS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Þriðja mannskæðasta snjóflóð á íslandi skall á Flateyri í gærmorgun HUNDRÚÐ manna unnu þrotlaust að björgunarstörfum á Flateyri í gær og þegar kvöldaði var unnið við leitarljós. 600 leitarmenn, læknar og hjúkrunarfólk til hjálpar 340 björgunarsveitarmenn héldu til Flateyrar í gær eftir að snjó- flóð féll þar klukkan 4.07 í gærmorgun, auk lækna, hjúkrunar- fólks og sérþjálfaðra slökkviliðsmanna. 230 til viðbótar voru í viðbragðsstöðu á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Árnessýslu, Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Snjóflóðið féll á 19 íbúðarhús og í þeim voru 45 manns. Nítján létust og í nótt var lítillar stúlku enn saknað. Snjóflóðið er hið þriðja mannskæðasta hér á landi. Björgunarsveitarmenn fundu fjóra á lífi í rústunum, en 21 bjarg- aðist af eigin rammleik eða með aðstoð nágranna áður en skipulagð- ar björgunaraðgerðir hófust. íbúar á Flateyri voru 379 fyrir flóðið. Snjóflóðið féll úr Skollahvilft fyrir ofan þorpið. Þar sem hætta var talin á snjóflóði voru hús efst í þorpinu rýmd fyrr í vikunni, en snjóflóðið féll á svæði, sem hingað til hefur talist öruggt. Aðeins efsta húsið af þeim sem flóðið hreif með sér taldist á hættusvæði. Liðsauki frá ísafirði Heimamenn byijuðu leit í rústunum strax eftir að flóðið féll, en þeim barst liðsauki frá ísafirði um kl. 11. Björgunarsveitarmenn þaðan voru með leitarhunda og gekk leit mun greiðar eftir komu þeirra. Varðskipið Ægir lagði af stað frá Reykjavík rétt fyrir kl. 8, með 105 menn og tvo leitarhunda. í hópnum voru, auk björgunarsveit- armanna, lögreglumenn, læknar og hjúkrunarfólk. Ægir kom til Flateyrar um kl. 19.30. Varðskip og þyrlur með leitarmenn og hunda Varðskipið Óðinn fór frá Grund- arfirði kl. 11.30 og þar um borð voru einnig björgunarsveitarmenn, læknar og hjúkrunarfólk, auk manna úr neyðarsveit slökkviliðs- ins í Reykjavík og tveggja leitar- hunda. Þá voru þrír leitarhundar fluttir til Flateyrar með þyrlu. Á Flateyri settu heimamenn upp hjálparstöð í húsnæði fiskvinnsl- unnar Kambs. ■ Á innlendu fréttasíðunum er að mestum hluta fjallað um óveðrið og afleiðingar þess. Fundu konu eftir átta stundir í snjónum Eina ljósið „EINN björgunarsveitarmann- anna bað okkur um að hætta, hann taldi sig heyra eitthvað. Þegar við höfðum hlustað í tvær mínútur, þá heyrðist hvískur í einu horninu. Þar grófum við og fundum Margréti. Þetta er eina ljósið sem ég sá í dag,“ segir Guðlaugur Pálsson verksmiðju- stjóri. Hann var í hópnum sem fann Guðnýju Margréti Kristjánsdótt- ur, 27 ára, á lífi í rústum Tjarnar- götu 7, þar sem hún hafði verið gestkomandi. Hún hafði þá verið grafin í snjó í átta klukkutíma. „Leitarmenn byijuðu á að stað- setja húsin eftir því sem hægt var. Erfitt var að finna kennileiti vegna þess hve langt var niður á húsin. Helst var hægt að miða út frá tveimur neðstu húsunum sem enn standa," segir Guðlaugur. Þegar hans hópur var búinn að grafa í tvo tíma var hann leyst- ur af og fór niður í gamla bakarí- ið. Guðlaugur fór aftur til leitar um klukkan tíu. „Við fórum beint að Tjarnargötu 7, sem var að hálfu leyti uppistandandi, en fullt af snjó. Við vorum búnir að grafa í tvo tíma þegar við fundum Mar- gréti. Þetta er eina ljósið sem ég hef séð í dag,“ segir Guðlaugur. Hann segir að Margrét hafi verið vel á sig komin, en alveg föst og samanhnipruð. „Það var kannski eins gott að hún gat ekki hreyft sig því að mikið var af glerbrotum í kringum hana. Hún gat talað við okkur, en það tók okkur kortér til hálftíma að ná í dag henni. Mig minnir að hún hafi fyrst talað um hvað henni væri kalt, en svo spurt hverjir við værum.“ Fékk kraft til að halda áfram „Það er ótrúlegt hvaða áhrif það hefur á mann að finna lífið, það gaf mér kraft til þess að halda áfram,“ segir Guðlaugur. Guðlaugur er í hreppsnefnd Flateyrarhrepps: „Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að við ættum eftir að þurfa að taka á svona máli hér. Fyrirhugað var að lengja snjóflóðavarnargarðinn þannig að hann næði þarna fyrir en ég hef ekki trú á því að hann hefði dug- að. Höggbylgjan hefur verið svo mikil," segir Guðlaugur Pálsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.