Morgunblaðið - 29.10.1995, Side 40
ÍO SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsing um
starfsleyfistillögur skv. gr. 70 í mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994.
í samræmi við gr. 70 ofangreindrar reglugerðar liggja frammi til kynningar hjá
upplýsingaþjónustunni (1. hæð) í Ráðhúsi Reykjavíkur, frá mánudeginum 30.
október nk., til 24. nóvember nk., starfsleyfistillögur fyrir eftirtalin fyrirtæki:
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíufélagið hf., bensínstöð
Olíuverslun íslands hf.,
Olíuverslun íslands hf.,
Olíuverslun íslands hf., bensínstöð
Olíuverslun íslands hf., bensínstöð
Olíuverslun íslands hf., bensínstöð
Olíuverslun íslands hf., bensínstöð
Skeljungur hf., bensínstöð
Skeljungur hf., bensínstöð
Skeljungur hf., bensínstöð
Skeljungur hf., bensínstöð
Skeljungur hf., bensínstöð
Skeljungur hf„ bensínstöð
Skeljungur hf., bensínstöð
Skeljungur hf., bensínstöð
Skeljungur hf„ bensínstöð
Skeljungur hf„ bensínstöð
Skeljungur hf„ bensínstöð
Geirsgata 19,101 Rvík
Borgartún 3, 105 Rvík
Ægisíða 102, 107 Rvík
Fellsmúli 24, 108 Rvík
Kringlumýrarbraut 100, 108 Rvík
Stóragerði 40, 108 Rvík
Skógarsel 10,109 Rvík
við Ártúnshöfða, 110 Rvík
Bíldshöfði 2, 112 Rvík
Gagnvegur 2,112 Rvík
bensínstöð Ánanaust 6,101 Rvík
bensínstöð Klöpp Skúlag, 101 Rvík
Álfheimar 49, 104 Rvík
Háleitisbraut 12, 108 Rvík
Álfabakki 7, 109 Rvík
við Gullinbrú, 112 Rvík
Skógarhlíð 16,101 Rvík
við Kleppsveg, 104 Rvík
Laugavegur 180,105 Rvík
við Miklubraut norður, 105 Rvík
við Miklubraut suður, 105 Rvík
við Birkimel, 107 Rvík
Bústaðavegur 20, 108 Rvík
Hraunbær 102, 110 Rvík
við Vesturlandsveg, 110 Rvík
Suðurfell 4, 111 Rvík
Gylfaflöt 1,112 Rvík
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn
tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna
mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir, ef gerðar eru, skulu vera skriflegar og sendast
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, Drápuhlíð 14, 105 Reykjavík,
fyrir 27. nóvember nk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Abendingar á nijólkitrunibúðum, nr. II) af 60.
Málalengingar!
I DAG
Með morgunkaffinu
Ást er..
að fara frekar í bílt-
úr á gamla skijóðn-
um hennar en fína
sportbílnum þínum.
TM Reg U.S. P«t Ofl — al rtghta raMrved
(c) 1996 Loa Angeles Times Syndicats
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur og
vinnur
Staðan kom upp í B
flokki á Haustmóti Tafl-
félags Reykjavíkur sem nú
er nýlokið. Sveinn Krist-
insson (2.040) var með
hvítt, en Einar K. Einars-
son (1.945) var með svart
og átti leik.
23. - Bxh3!! 24. gxh3 -
Hxh3+! 25. Kxh3 - Hf5
(Hvíti kóngurinn slepp-
ur nú ekki út úr prísund-
inni) 26. Hfl - Dh5+ 27.
Kg2 - Hg5+ 28. Hgl -
Hg5+ 29. Kfl - Dh3+ 30.
Kel - Hxgl+ 31. Kd2 -
Hxal 32. Rf2 — Hxa2+
ÞÚ ert reyndar búinn að
lækna mig, en um hvað á
ég nú að tala í sauma-
klúbbnum?
33. Kdl — Dg2 og hvítur
gafst upp.
Þröstur Þórhallsson sigraði
með yfirburðum í A-flokki
og er skákmeistari Taflfé-
lags Reykjavíkur
1995. Þröstur er
reyndar nýgeng-
inn í TR. í B-
flokki var barist
um sæti í A-
flokki að ári, en
það er mikilvægt
því A-flokkurinn
verður sterkari
með hveiju árinu.
Ólafur B. Þórs-
son vann B-
flokkinn örugg-
lega, hlaut 8
vinninga af 11
mögulegum og
tapaði ekki skák.
2.-3. Páll A. Þórarinsson
og Bergsteinn Einarsson,
14 ára, 7 v. 4. Heimir Ás-
geirsson 6'/2 v. 5. Einar
K. Einarsson 6 v. 6-8.
Bragi Þorfmnsson, 14 ára,
Björn Þorfinnsson 16 ára
og Hrannar Baldursson
5'/2 v.
Af yngstu keppendunum
er það að segja að Berg-
steinn náði einum sínum
besta árangri, en Bragi olli
vonbrigðum og missti alveg
leikgleðina, sem sem er
einn mikilvægasti þáttur-
inn í hans styrkleika. Þar
má kenna um of mikilli
taflmennsku í haust.
HÖGNIHREKKVÍSI
... /Ccitt- fupUn/v! ''
ÞESSIR duglegu krakkar héldu nýlega hlutaveltu til styrkt-
ar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn 1.500 krónur.
Þau heita Ama Erlendsdóttir, Öm Erlendsson, Bjami Þór
Árnason, Olga Lilja Ólafsdóttir, Linda Ósk Árnadóttir,
Helga Björk Árnadóttir og Jón Gunnar Ólafsson.
ÞESSIR duglegu krakkar þau Lilja Hrönn Helgadóttir,
Friðrik Már Helgason og Haraldur Hreinsson héldu hluta-
veltu nýlega ásamt félögum sínum, sem ekki gátu verið
með á myndinni, þeim Jóhönnu Hreinsdóttur, Hönnu Mar-
íu Karlsdóttur og Ester Ösp Valdimarsdóttur. Ágóðann sem
varð kr. 2.301 létu þau renna í Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra bama.
Oft eru merkingarlítil orð og orðasambönd notuð að óþörfu.
Sumt kemst í tísku og veður uppi, t.d. í fjölmiðlum.
Eölilegt málfar Málalengingar
Frystihúsið er við höfnina. Fyrirtækið er nýtt. í kosningunum í gær... Stjómmálaumræður. Frystihúsið er staðsett við höfnina. Um er að ræða nýtt fyrirtæki. í kosningunum sem fram fóru í gær... Umræður á vettvangi stjómmála.
Komum beint að efninu!
4
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufrczðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs.
Víkverji skrifar...
AÐ ER nánast sama hvar niður
er borið á jarðarkringlunni -
hvarvetna eru Islendingar á ferð!
En það er ekki nóg með að Mörland-
ar fari mikinn um allar jarðartriss-
ur. Hingað til eylands okkar yzt í
veraldarútsæ flyklqast ferðamenn
hvaðanæva að úr veröldinni. í fyrra
komu hingað hvorki fleiri né færri
en 180.000 ferðamenn - tífalt fleiri
en tíu árum fyrr. Heildargjaldeyris-
tekjur af þessum aðkomna sæg
námu tæpum 17 milljörðum króna
- 11% af útfluttri vöru og þjónustu
það árið! Það munar um minna,
meinar Víkveiji, á sumum sviðum
í stöðnuðum þjóðarbúskap okkar.
Islenzk náttúra er sterkasta að-
dráttaraflið á erlenda ferðamenn.
Aðstreymi þeirra hefur valdið um-
hverfisvandamálum á viðkvæmum
stöðum. Mikilvægt er að vemda
þennan segul, ósnortna náttúru
landsins. Um það þurfum við öll
að sameinast. Ög ekki myndi saka
að mótuð yrði opinber stefna í
ferðaþjónustu.
xxx
FJÓRIR þingmenn hafa flutt
þingsályktunartillögu um
rannsóknir í ferðaþjónustu, þeir
Tómas Ingi Olrich, Einar K. Guð-
finnsson, Sturla Böðvarsson og
Valgerður Sverrisdóttir. Þar segir
m.a.: „Alþingi ályktar að brýnt sé
að efla rannsóknir í ferðaþjónustu
og tryggja með þeim hætti grund-
völl stefnumótunar og langtímaá-
ætlana í atvinnugreininni og stuðla
að jafnvægi í fjárfestingu." Þetta
eru orð í tíma töluð.
Þeir leggja til að stofnuð verði
gagnamiðstöð við skrifstofu Ferða-
málaráðs íslands á Akureyri. Mið-
stöðin skipuleggi öflun upplýsinga
um atvinnugreinina - sem og um
erlenda ferðamarkaði og erlendar
rannsóknir í ferðamálum. Tillög-
unni fylgir greinargerð um fram-
kvæmdina.
Ferðaiðnaður er hvarvetna á
jarðarkringlunni vaxandi atvinnu-
grein. Hann er einn af fáum vaxtar-
broddum í íslenzku atvinnulífi. En
samkeppnin um ferðamenn heims-
ins harðnar dag frá degi, enda eft-
ir feiknamiklu að slægjast. Þennan
akur verður að yrkja - og yrkja
vei. Menn uppskera eins og þeir sá
til. Hér gildir sum sé hið forn-
kveðna að þeir fiska sem róa.
xxx
OFBELDI erlendis og hérlendis
helzt í hendur við útbreiðslu
fíkniefna - að stórum hluta. Gróf-
ari afbrot eru nánast alfarið fíkni-
efnatengd. Það er því ekki út í hött
að Jóhanna Sigurðardóttir og átta
aðrir þingmenn fara fram á skýrslu
„frá forsætisráðherra um útbreiðslu
fíkniefna og þróun ofbeldis" í ís-
lenzku samfélagi.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir m.a.:
„Hefur komið fram í viðtölum
við þá sem helzt vinna að þessum
málum hérlendis að staða þessa
málaflokks sé á margan hátt hlið-
stæð því sem var fyrir fimm árum
annars staðar á Norðurlöndum og
fyrir tíu árum í Bandaríkjunum.
Þróunin hefur verið misalvarleg, en
sem dæmi má nefna að samhliða
aukinni dreifíngu á krakk-kókaíni
fjölgaði morðum í Bandaríkjunum
og var hægt að tengja það neyzlu
þessa efnis.“
Það er illt til þess að vita, að
mati Víkveija, að hluti sjónvarps-
efnis, sem því miður er vaxandi
þáttur í uppeldi þjóðarinnar, hefur
ótvírætt „auglýsingagildi" fyrir
þann botnfalls-lífsmáta sem af-
brota- og fíkniefnaheiminum heyrir
til. Víkveiji er þeirrar skoðunar að
hreinsa þurfí sjónvarpssorann af
skjám landsmanna.
Víkverji tekur undir það með
flutningsmönnum að fámenni hér á
landi eykur möguleika til að sporna
við fíkniefnum og fíkniefnatengd-
um afbrotum. Herða þarf róðurinn,
m.a. rannsóknir - en ekki síður
aðhald og viðurlög. Það er óafsak-
anlegt að fljóta sofandi að þeim
feigðarósi, sem alltof margir svamla
nú í hérledis og erlendis. í þessum
efnum þarf þjóðin öll að leggjast á
fyrirbyggjandi árar: löggjafinn,
dómstólar, lögregla, heimili, skólar
og fjölmiðlar.