Morgunblaðið - 17.12.1995, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Heimili vort Rússland
Stjórnarflokkurinn, Heimili vort
Rússland (NDR) sem Tsjernomyrd-
in forsætisráðherra stofnaði til að
reka málstað ríkisstjórnarinnar í
kosningunum varð aldrei leiðandi
afl í kosningabaráttunni, einsog
vonir stóðu til. Síðustu daga hefur
aðalstöð rússneska sjónvarpsins
rekið skammlausan áróður fyrir
flokki forsætisráðherrans og þver-
brotið allar reglur um hlutleysi, eft-
ir að það fór að renna upp fyrir
mönnum að stjórnarflokkurinn gæti
ekki gengið að því sem vísu að
hann sópaði til sín fylginu. NDR
bauð ekki fram 1993. Flokknum
hefur verið spáð 8 til 10 prósentum
atkvæða, en síðustu daga virðist
hann hafa verið að vinna á.
Samtök rússneskra samfélaga
Samtök Rússneskra Samfélaga
(KRO) er sérkennilegur flokkur fyr-
ir margra hluta sakir. Stofnendur
hans eru Júríj Skokov og Sergei
Glazev og nokkrir aðrir sem upphaf-
lega voru í innsta hring Jeltsíns,
en komust síðar upp á kant við
hann og sögðu loks alveg skilið við
forsetann. Síðar bættust róttækari
forsetagagnrýnendur í hópinn, þar
á meðal Alexandr Lebed, fyrrum
herforingi. Lebed var yfirmaður 14.
herfylkis rússneska hersins sem
staðsett hefur verið í Moldovu og
leikið hlutverk í átökunum þar sem
sætt hefur gagnrýni. Hann hefur
um langt skeið verið eindreginn
andstæðingur Jeltsíns. Lebed er
talsmaður aukinnar valdstjórnar
sem hann telur einu leiðina til að
að sigrast á kreppunni í Rússlandi.
Hann hefur lýst hrifningu sinni á
mönnum á borð við Pinochet sem
stjórnaði Chile í næstum tvo ára-
tugi eftir blóðugt valdarán og for-
setamorð. Lebed nýtur mikilla vin-
sælda meðal almennings í Rúss-
landi og á töluverða sigurmöguleika
í forsetakosningunum sem haldnar
verða næsta sumar. KRO er ásamt
Kommúnistaflokknum í hópi þeirra
sem vilja stöðva þróunina í átt til
kapitalisma í Rússlandi. Flokknum
er spáð 8 prósenta fylgi.
Val Rússlands
Val Rússlands (DVR) er flokkur
Gaidars, sem var forsætisráðherra
í fyrstu ríkisstjórn Rússlands eftir
að Sovétríkin voru lögð niður og
hefur verið helsti talsmaður skjótra
efnahagsumbóta. Flokkur Gaidars
var sá lýðræðisflokkanna sem fékk
mest fylgi fyrir tveimur árum eða
15,5 prósent. Nú er flokknum spáð
4 til 7 prósentum. Nái DVR ekki
að skríða yfir 5 prósenta markið
hverfa eindregnustu talsmenn kap-
italiskra hátta af þingi.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
Frjálslyndi Lýðræðisflokkurinn
(LDPR) flokkur Zhirinovskíjs, er
auðvitað alræmdur og ekki bara í
Rússlandi. Hann fékk 22,9 prósent
atkvæða í kosningunum 1993 sem
færði flokknum 59 þingsæti. LDPR
fékk flest atkvæði í 64 landskjör-
dæmum af 87 (1993 var ekki kosið
í Tsjetsjenju og Tatarstan). Til sam-
anburðar fékk DVR flest atkvæði
í 11 kjördæmum og Kommúnistar
ekki nema í fjórum. LDPR gekk
hinsvegar afleitlega í einmennings-
kjördæmunum, aðeins fimm fram-
bjóðendur flokksins unnu sæti í 225
einmenningskjördæmum á meðan
DVR vann 18 sæti í einmennings-
kjördæmum og Kommúnistar 16.
Þessi mikli munur á frammistöðu
LDPR í listakjörinu og í einmenn-
ingskjöri sýnir blendinn hug fólks
til flokksins og undirstrikar að fylgi
Zhirinvskíjs var óánægjufylgi. 153
af 225 einmenningskjördæmum
voru innan landskjördæmanna 64
þar sem flokkur Zhirinovskíjs sigr-
aði. Ef frambjóðendur LDPR hefðu
unnið í einmenningskjördæmum
þar sem flestir greiddu landslista
LDPR atkvæði sitt, hefði Zhir-
inovskíj haft 212 manna þingflokk
í stað 64 manna. Með öðrum orðum
hann hefði ekki vantað nema 14
þingmenn til að hafa hreinan meiri-
hluta. En flest virðist benda til að
fylgi LDPR sé hrunið. Flokknum
Þingkosningarnar í Rússlandi
Níu flokkar líklega
yfir 5 prósenta múrinn
.Keuter
AÐDÁENDUR Alexandrs Lebeds með mynd af hetju sinni. Nái flokkur hans, Samband rússneskra
samfélaga, góðum árangri í kosningunum í dag mun það styrkja stöðu hans fyrir
forsetakosningarnar næsta sumar.
kjördæmum, en stærstu flokkarnir
bjóða bæði fram lista og styðja ein-
staka frambjóðendur í einmenn-
ingskjördæmunum. Þó hefur mis-
mikil áhersla verið lögð á einmenn-
ingsframboðin og sumstaðar eiga
frambjóðendur landsflokkanna nán-
ast enga möguleika á að sigra
óháða frambjóðendur sem hafa per-
sónulegan stuðning í einstökum
héruðum en eru óþekktir utan
þeirra.
Kommúnistaflokkurinn
Miðað við skoðanakannanir er
næsta vist að Kommúnistaflokkur
rússneska sambandsins (KPRF)
verði sigurvegari kosninganna.
Honum er spáð 14 til 30 prósentum
á landsvísu. Flokkurinn fékk 12,4
prósent í kosningunum 1993. Það
er hugsanlegt, en þó ekki líklegt,
að Kommúnistaflokkurinn fái
hreinan meirihluta á þinginu. Til
þess að það megi verða þyrfti tvennt
að koma til. Ekki aðeins þyrftu
Kommúnistar að sigra á landsvísu,
til viðbótar þyrftu fáir flokkar að
komast yfir 5 prósenta markið og
gengi Kommúnista í einmennings-
kjördæmum að vera sambærilegt
við gengi flokksins í listakjörinu.
Að þessu gefnu gæti hreinn meiri-
hluti náðst á þingi. Enginn annar
flokkur en Kommúnistaflokkurinn
á möguleika á hreinum meirihluta.
Kommúnistaflokkurinn er býsna vel
skipulagður og þessvegna er ekki
ólíklegt að honum gangi betur en
öðrum flokkum í einmmennings-
kjördæmunum.
GENNADÍJ Zhjúganov, leiðtogi flokks rússneskra kommúnista.
Enginn flokkur er betur skipulagður en kommúnistar
höfða einkum til eldri kjósenda.
Jabloko
ALEXANDR Lebed, hershöfðingi, sem margir telja mann fram-
tíðarinnar í rússneskum stjórnmálum.
Helstu slagorðin
Sá lýðræðisflokkanna sem mest
fylgi virðist ætla að fá er Jabloko,
flokkur hagfræðingsins Grígoríj
Javlinskíjs, sem um tíma var vonar-
peningur Gorbatsjovs Sovétleiðtoga
og höfundur hinnar frægu 500 daga
áætlunar um umbyltingu sovéska
hagkerfinsins, sem þingið felldi áð-
pr en hún væri reynd. Nafnið á
flokknum er stafaleikur. Fyrstu
þrír stafirnir eru upphafsstafir
stofnenda flokksins, en orðið jab-
loko þýðir epli. Jabloko fékk 7,9
prósent í síðustu kosningum. Nú
er flokknum spáð 10 til 15 pró-
senta fylgi.
Föðurland, Fullveldi fólksins, Rétt-
læti, Velmegun!
(Bændaflokkurinn)
Þegnlegur friður, Þjóðarsátt!
(Samtök Rybkins)
Frelsi, Einkaeign, Lögmæti!
(Val Rússlands)
Án kvenna ekkert lýðræði!
(Konur Rússlands)
Rússland, Vinna, Fullveldi fólksins,
Sósíalismi!
(Kommúnistaflokkurinn)
Engan nema okkur!
(Samtök rússneskra samfélaga)
Fijálslyndi, Lýðræði, Lög og reglu,
Réttlæti!
(Fijálslyndi Lýðræðisflokkurinn
- Zhirinovskíj)
Virðingu, Reglu, Réttlæti!
(Jabloko - Javlinskij)
Þrátt fyrir ákall fólks á
borð við Elenu Bonner,
ekkju andófsmannsins
Andrei Sakharovs,
ganga lýðræðisflokk-
arnir sundraðir til leiks
í þingkosningunum í
Rússlandi í dag. Jón
----------------------
Olafsson segir frá
helstu flokkunum sem
möguleika eiga á að fá
fulltrúa á þingi og leið-
togum þeirra.
ÞAÐ eru alls 43 flokkar sem
bjóða fram á landsvísu
þingkosningunum sem í
dag eru haldnar í Rúss-
landi, flestir þeirra eiga enga mögu-
leika á að koma mönnum á þing
af listum sínum. Það þýðir þó ekki
að þeir muni enga fulltrúa hafa á
þingi því að sumir leiðtogar flokka
sem verða undir fimm prósenta
markinu eru í framboði í einmenn-
ingskjördæmum líka og geta unnið
þingsæti. Það er þó alveg ljóst að
til þess að flokkur geti haft einhver
áhrif á þingi, verður hann að fá
gott fylgi á landsvísu.
Það gefur auga leið að flokka-
fjöldinn verður til þess að atkvæðin
dreifast meira en góðu hófí gegnir.
Það gæti meira að segja farið svo,
að þeir flokkar sem hafa það af að
koma mönnum á þing af landslist-
um sínum, hafí samanlagt innan
við helming greiddra atkvæða á
bakvið sig. Slíkt mundi í sumra
augum hnekkja lögmæti þingsins,
þótt kosningalög eða stjórnarskrá
segi ekkert um hversu mikið af
atkvæðunum kosnir flokkar þurfí
að hafa á bakvið sig til að þingið
teljist réttkjörið. Sú hugmynd var
viðruð eftir að í ljós kom hver fjöldi
flokkanna yrði, að láta lágmarks-
hlutfallið vera fljótandi, þannig að
tryggt væri að flokkar á þingi hefðu
aldrei minna en helming greiddra
atkvæða. En þá var orðið of seint
að gera slíkar breytingar á lögun-
um.
Aðeins ein umferð
Það má deila um hvort fímm
prósenta markið er galli eða kost-
ur. Hinsvegar er það tvímælalaust
stórgalli á lögunum að ekki skuli
vera gert ráð fyrir tveimur umferð-
um í einmenningskjördæmum. Þar
keppa að meðaltali 11 frambjóðend-
ur um hvert einasta sæti og því er
líklegast að í mörgum tilfellum verði
sigurvegararnir ekki með nema 10
til 20 prósent atkvæðanna. í kosn-
ingunum í dag verða kosnir 450
þingmenn. 225 eru kosnir af listum
flokkanna 43 sem bjóða fram á
landsvísu. Landskjördæmin eru 89,
það er öll lýðveldi, héruð, hreppar
og borgir sem hafa stöðu sam-
bandsfylkis í Rússneska samband-
inu. 225 eru kosnir í einmennings-