Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 31
30 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur. hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. EINKA VÆÐIN G RÍKISB ANK ANN A RÍKISSTJÓRNIN mun á kjörtímabilinu leggja áherzlu á að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög, að því er fram kemur í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar. Af hálfu stjórnvalda hefur hins vegar ekki komið fram með skýrum hætti, að stefnt sé að einkavæðingu bankanna. Vitnað hefur verið til þeirrar greinar stjórnarsáttmálans, þar sem sagt er að framkvæmdaáætlun um einkavæðingu verði lögð fram á kjörtímabilinu og að unnið verði „að sölu ríkisfyrirtækja í samræmi við ákvarðanir Alþingis". Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, bendir á í viðtali við viðskiptablað Morgunblaðsins í gær að markmið stjórnvalda í málinu virðist vera óljós. Bankastjórinn segir miklu máli skipta fyrir Landsbankann að engin óvissa ríki um hver séu áform eigenda hans varðandi framtíðarfyrir- komulag eignarhalds. „Ég álít það vera alveg út í hött að hefja athugun þessa vandaverks með því að láta sem aðeins sé verið að breyta rekstrarformi ríkisbankanna," segir Sverrir í viðtalinu. „Sú breyting er tilgangslaus nema þá að menn stefni að einkavæð- ingu og auðvitað hefur það svo komið í ljós að það er mein- ingin. Ég er mjög áhyggjufullur vegna þessara lausu taka á þessu máli.“ Þessar ábendingar bankastjóra Landsbankans eru réttmæt- ar. Ríkisstjórnin á að sjálfsögðu að ganga hreint til verks í þessu máli. Morgunblaðið hefur fært rök fyrir því að rétt sé að einkavæða ríkisbankana og að skynsamlegt sé að byija á öðrum bankanum, Búnaðarbankanum. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur nú hafið störf og er ætlunin að hún leggi á næstunni tillögu að fram- kvæmdaáætlun einkavæðingar á kjörtímabilinu fyrir ríkis- stjórnina. Ríkisstjórnin ætti að hraða þeirri vinnu og stefna eindregið að einkavæðingu Búnaðarbankans. Ríkisstjórnin hlýtur sjálf að taka af skarið í málinu. Al- þingi hefur vissulega síðasta orðið um það hvort af einkavæð- ingu ríkisfyrirtækja verður, en það er ríkisstjórnarinnar að leggja tillögur um slíkt fyrir þingið og vinna að samþykkt þeirra. SLYS Á SJÓ SLYSATÍÐNI meðal íslenzkra sjómanna er ein hin hæsta sem þekkist í heiminum. Á tíu ára tímabili (1984-1993) voru 467 slys á sjó tilkynnt árlega að meðaltali til Trygginga- stofnunar ríkisins. Árið 1990 voru tilkynnt 600 slys sem samsvarar því, að tíundi hver sjómaður hafi slasast það ár, en ársverk á sjó eru talin um 6 þúsund. Á tuttugu ára tíma- bili, 1973-1993, slösuðust 7.713 sjómenn, þar af voru 523 lagðir inn á spítala. Tíðust eru slysin um borð í frystitogur- um, eða um 70% allra slysa á sjó, og er slysatíðnin um borð í þeim 15%. Þetta eru hrikalegar tölur og má einskis láta ófreistað til að að koma í veg fyrir þessi slys. Brynjólfur Mogensen, forstöðumaður slysadeildar Sjúkra- húss Reykjavíkur, og Sigurður Á. Kristinsson, læknir þar, hafa komið fram með hugmynd um Heilbrigðisstofnun sjófar- enda, sem staðsett verði hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Henni verði falin fimm meginsvið heilbrigðismála sjómanna, grunn- og endurmenntun, samræmda slysa- og sjúkdómaskráningu sjófarenda, fjarskiptalæknisþjónustu, umsjón með lyfjakistum og upplýsingamiðlun. Telja læknarnir að með því megi fækka slysum og auka öryggi sjómanna. Þeir telja það hægt án þess að kostnaður við heilbrigðisþjónustuna aukist. Slys á sjó eru svo óhugnanlega tíð og mörg, að kostnaður á ekki ,að vera fyrirstaða í forvörnum. Ekki er hægt að una við núverandi ástand. Fram hjá því verður ekki horft, að íslendingar byggja lífsaf- komu sína að langmestu leyti á sjávarfangi og flutningar á sjó eru jafnmikilvægir sem fyrr. Þeir Brynjólfur og Sigurður benda á, að íslenzkir sjómenn búi við lakari heilbrigðisþjón- ustu, slasist þeir eða veikist á hafi úti, heldur en þeir sem í landi búa. Þetta verður að hafa í huga, þegar kostnaður vegna heilbrigðismála sjófarenda er metinn. Nýja þyrla Land- helgisgæzlunnar, sem er eins konar fljúgandi gjörgæzlu- sveit, hefur bætt verulega aðstoð og hjálp við sjómenn þegar alvarleg slys verða. Það má hins vegar ekki verða til þess að beina sjónum manna frá aðalatriðinu, sem er að koma í veg fyrir slys á sjómönnum. Hugmyndir læknanna tveggja verðskulda því stuðning allra, sem láta sig varða velferð sjó- manna okkar. 4 Smugan: Hvorki hefur gengið né rekið í deilunni um veiðar íslenzkra skipa í Smugunni, eftir að Evrópusambandið krafðist þess af Norðmönnum að fá sama kvóta fyrir sín skip og samið yrði um við íslendinga. Lít'l von er um árangur á samningafundi í Moskvu í næstu viku. Svaibarða- _ svæðið: ísland hefur byggt kröfur um veiðirétt í Barentshafi m.a. á aðild sinni að Svalbarðasamningnum. Norðmenn hafa hins vegar bannað veiðar á verndarsvæðinu við Svalbarða og hafa íslenzk skip ekki veitt þar um skeið. ísland hefur beðið með að vísa deilunni til Alþjóðadómstólsins. Síldar- tsT' i: Eftir að norsk-íslenzki síldarstofninn byrjaði að ganga á ný út úr norsku lögsögunni, hafa íslendingar gert kröfur um hlutdeild í veiðum á grund- velli sögulegs réttar. Norðmenn og Rússar hafa ekki viljað koma til móts við þær kröfur. Rússar kunna nú að vera fúsari til samninga. Breytt staða í fisk- veiðideilum * Tekst Islendingum að reka fleyg milli Noregs og Rússlands í samningum um síldveiðar? Hefur Evrópusambandið eyðilagt möguleika á samkomulagi um veiðar í Smugunni? Olaf- ur Þ. Stephensen flallar um breytta stöðu í tveimur viðkvæmum fiskveiðideilum. URSLITATILRAUN til að ná samkomulagi Noregs, Rússlands, íslands og Færeyja um stjómun og veiðar á norsk-íslenzka síldarstofnin- um á þessu ári verður gerð á samn- ingafundi landanna fjögurra, sem hefst í Moskvu á þriðjudaginn í næstu viku. Að loknum fundinum um síldina taka við viðræður um veiðar íslend- inga í Smugunni. Staðan í báðum málum hefur breytzt talsvert frá því að síðast var fundað í hvorri deilu um sig. í Moskvu verður byijað á tveggja daga fundi um veiðar og stjórnun á norsk-íslenzka síldarstofninum. Sjáv- arútvegsráðherrar íslands og Fær- eyja hafa lýst því yfir að á þeim fundi verði gerð úrslitatilraun til að ná sam- komulagi um síldarkvóta fyrir árið í ár, ella muni löndin tvö gefa út ein- hliða kvóta handa sjálfum sér. Brestir í samstöðu Noregs og Rússlands Staðan í síldarviðræðunum hefur orðið flóknari að undanförnu. í fyrra stóðu _ Noregur og Rússland saman gegn íslandi og Færeyjum, sem komu sér þá saman um að gefa út einhliða síldarkvóta. Nú bendir hins vegar ýmislegt til að brestir séu að koma í samstöðu ríkjanna. Fyrsta merkið um það var tillaga Rússa um bráða- birgðakvóta á síðasta samningafundi landanna fjögurra í Færeyjum í des- ember. Rússar lögðu þá til að skip hvers lands fengju á þessu ári að veiða ákveðið hlutfall af þeirri síld, sem þau veiddu í fyrra, til dæmis 70% eða 80%. Norðmenn hafa hins vegar aukið eigin kvóta. Fyrir jólin gáfu Norðmenn út heild- arkvóta fyrir síldarstofninn, eins og þeir hafa gert undanfarin ár og höfðu um það samráð við Rússa. Þegar Norðmenn tóku sér einhliða 725.000 tonna kvóta af milljón tonna heildark- vótanum gerðu þeir að öllum líkindum ráð fyrir að með því væru þeir ekki að styggja Rússa, þótt þeir gætu gengið út frá að ísland og Færeyjar myndu bregðast öndverð við slíkri ákvörðun. Þar gætu Norðmenn hafa misreiknað sig. Fréttir hafa borizt af mikilli óánægju hagsmunaaðila í Norðvestur-Rússlandi með þessa gjörð Norðmanna. Þannig hótaði að- stoðarframkvæmdastjóri sjávarút- vegssamsteypunnar Sevryba í Mur- mansk því fyrir nokkrum dögum að Rússar myndu hefja veiðar á ungsíld í eigin lögsögu til að þrýsta á Norð- menn um að láta öðrum ríkjum í té meira af kvótanum. Til þessa hefur verið samkomulag um að Rússar létu ungsíldina í friði en fengju þess í stað kvóta í lögsögu Noregs. Norðmenn að einangrast? í norskum ijölmiðlum hafa undan- fama daga birzt vangaveltur um að Rússar séu að snúast gegn .Norð- mönnum í síldarviðræðunum og að Norðmenn kunni að einangrast. í leið- ara nýjasta tölublaðs Fiskaren eru norsk stjómvöld vöruð við að halda fast við hina einstrengingslegu af- stöðu sína í viðræðunum. Fiskaren hvetur til þess að Noregur semji sem fyrst um bráðabirgðakvóta fyrir árið í ár, en geri samkomulag við hin rík- in um að verða áfram ósammála um kvótaskiptingu til lengri tíma. Norðmenn hafa sagzt vera afar sanngjarnir við hin strandríkin, þegar þeir ætla þeim samtais 27,5% af heild- arkvótanum. Norðmenn byggja í því efni á nýlegum rannsóknum á út- breiðslu síldarinnar, sem sýna að undanfarin ár hafí 89% stofnsins haldið sig innan norskrar lögsögu. Kröfur íslendinga byggjast hins veg- ar á sögulegum göngum síldarinnar yfir hafið og inn í núverandi efna- hagslögsögu íslands og vísbendingum um að síldin sé að taka upp fyrra göngumynztur. íslendingar vísa til þess að á síldarárunum á sjöunda áratugnum hafi íslendingar veitt um 27% af heildaraflanum úr síldarstofn- inum og 27% stofnsins hafi þá haldið sig á því svæði, sem íslenzka efna- hagslögsagan nær nú til — eða álíka stór hluti og Norðmenn ætla nú hin- um strandríkjunum þremur að skipta á milli sín. Samkvæmt^ heimildum Morgun- blaðsins hafa Islendingar sagzt sætta sig við að fá ekki strax í sinn hlut svo hátt hlutfall heildarkvótans, en íslenzk stjórnvöld vilja að farin verði millileið, sem komi svo til endurskoð- unar ef hin sögulega skipting stofns- ins endurtaki sig. Betra samband við Rússa íslenzku samningamennirnir í síld- arviðræðunum hafa undanfarnar vik- ur og mánuði markvisst reynt að nýta sér óánægju Rússa með sam- starfið við Norðmenn og reka fleyg á milli þeirra með því að taka undir tillögur Rússa, sem gengið hafa gegn málflutningi Noregs. Utanríkisþjón- ustan hefur lagt sig í framkróka að ná sem beztu sambandi við Rússa og telja margir að það sé nú mun nán- ara en áður. Rússar hafa þó lítið lát- ið uppi um væntanlega afstöðu sína á 'fundunum í Moskvu í næstu viku. Á það ber að líta að Rússar hafa eftir sem áður mikla hagsmuni af góðu sambandi við Norðmenn, þar sem þeir hafa á undanförnum árum veitt mest af síldarafla sínum í norsku lögsögunni. Standi Norðmenn því áfram fast á sínu — sem er allt eins líklegt, í ljósi fyrri reynslu af viðræð- um strandríkjanna. — má búast við að ísland og Færeyjar muni bráðlega gefa út eigin síldarkvóta, án þátttöku Rússlands. Evrópusambandið krefst sambærilegs kvóta Að loknum viðræðum landanna fjögurra um síid, hefst fundur ís- lands, Rússlands og Noregs um veið- ar íslenzkra skipa í Barentshafi. Við- ræður um þorskkvóta íslands í Smug- unni hafa verið í sjálfheldu síðan í október. Nýr kippur hafði komið í viðræðurnar í september, eftir fund Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráð- herra og Bjorns Tores Godal, utanrík- isráðherra Noregs, í New York. Þar kom fram aukinn samningsvilji af háifu Norðmanna og ráðherrarnir lýstu því yfir að stefnt væri að lausn Smugudeilunnar fyrir áramót. Emb- ættismenn ríkjanna þriggja áttu með sér samningafund í Moskvu í október og þokaðist þá talsvert áleiðis í átt til samkomulags. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins voru menn þá sammála um að hægt væri að ná samkomulagi um fyrirkomulag og stjórnun veiðanna, að því gefnu að nkin yrðu sammála um stærð kvóta íslendinga. Bilið mjókkaði talsvert á fundinum í Moskvu og voru aðeins nokkur þúsund tonn á milli kröfu ís- lendinga, sem var einhvers staðar á milli 15 og 20 þúsund tonna af þorski, og tilboðs Noregs og Rússlands, sem nálgaðist líklega 15 þúsund tonnin. Eftir fundinn voru menn áfram bjart- sýnir og töldu hilla undir lausn. 1 kringum mánaðamót október og nóvember hljóp hins vegar snurða á þráðinn. Norðmenn skýrðu íslending- um frá því að Evrópusambandið hefði gert þeim grein fyrir því að ef samið yrði við Isiand myndi ESB gera kröfu um að skip sambandsins fengju sam- bærilegar veiðiheimildir og íslenzk MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 31 skip, til viðbótar við það sem þau hafa þegar í Barentshafinu. ísienzk stjórnvöld hafa síðan fengið staðfest af hálfu Evrópusambandsins að þessi sé raunin. Norðmenn skýrðu íslenzkum stjórnvöldum frá því að hendur þeirra væru nú bundnar og þeir treystu sér ekki til að semja við ísland nema þeim tækist að fá Evrópusambandið til að fp.Ha frá þessari kröfu. Frá því á viðræðufundinum í október hafa engir viðræðufundir um Smuguna verið haldnir. Norðmenn óttast ESB Velta má fyrir sér hvað liggi að baki kröfu ESB. Sambandið hefur á undanförnum árum fengið talsverðan kvóta, allt að 30.000 tonn, af Bar- entshafsþorski. Framkvæmdastjórnin er dugleg að gæta hagsmuna aðildar- ríkja sambandsins og knýr með reglu- legu millibili á um að fá meiri kvóta, en Norðmenn þráast við. Vel er hægt að hugsa sér að embættismenn Evr- ópusambandsins hugsi sem svo að sé hægt að semja við íslendinga um á annan tug þúsunda tonna kvóta, sé greinilega meira til skiptanna en látið hafi verið í veðri vaka og þeir vilji því fá sinn skerf. Það er einnig til í dæminu að Evr- ópusambandið hafi áhyggjur af því að kvóti íslendinga kæmi niður á veiðiheimildum skipa aðildarríkja þess og vilji því tryggja sig gegn því að Norðmenn fari að krukka í ESB- kvótann. Evrópusambandið getur jafnframt vísað til þess að skip þess hafi miklu meiri úthafsveiðireynslu en íslenzk og að veiðireynsla þeirra í Barentshafinu sé sömuleiðis langt- um meiri en íslendinga, sem ekki hafa veitt þar nema í þrjú ár. Hver sem röksemdafærsla ESB er, er ljóst að Norðmenn óttast samband- ið, enda deila þeir við það á fleiri sviðum og vilja væntanlega ekki bæta við deilumálin. íslenzkum stjórnvöld- um þykir sem Norðmenn hafi lítið gert í því að reyna að sannfæra Evr- ópusambandið um að samningarnir við ísiand séu sérstakt tilfelli og ekki fordæmisskapandi. Kröfugerð ESB hefur sett íslenzka ráðamenn í nokk- uð erfiða stöðu. Nú er ekki stífni Norðmanna einni um það að kenna að ekki semst í Smugudeilunni. Hins vegar er erfitt að greina á milli þess hvort Norðmenn eru vísvitandi að kaupa sér tíma með því að leggja lít- inn sannfæringarkraft í tilraunir sín- ar til að róa ESB eða hvort þeir eru í raun og sann að reyna að leysa deiluna. íslendingar í erfiðri stöðu Á meðan pvona stendur á, eiga íslenzk stjórnvöld þess vegna erfitt um vik að beita Norðmenn auknum þrýstingi, til dæmis með því að gera alvöru úr hótun sinni um að láta reyna á rétt Norðmanna til að banna veiðar á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða með því að vísa málinu til Alþjóða- dómstólsins í Haag. Eitt af skilyrðum Nörðmanna fyrir samningum um Smuguveiðamar hefur verið að ísland falli frá málssókn. Það er erfitt matsatriði fyrir ís- lenzk stjórnvöld hvenær sé nóg kom- ið og ástæða til að sauma fastar að Norðmönnum. Raunar má heyra ýms- ar efasemdaraddir um að málssókn fyrir Alþjóðadómstólnum á grundvelli Svalbarðasamningsins muni borga sig. Ein röksemd í þá átt er að þótt dómstóllinn úrskurðaði að Norðmönn- um væri óheimilt að banna aðildarríki Svalbarðasáttmálans veiðar, myndi það ekki endilega þýða að íslendingar gætu náð samningum um þann kvóta, sem þeir vildu. Annað hvort myndu þá sömu reglur gilda um Svalbarða- svæðið og úthafsveiðar eða kvóta yrði skipt milji aðildarríkja Svalbarða- sáttmálans. ísland gæti orðið í nokk- uð veikri stöðu vegna lítillar veiði- reynslu og kann að vera betur sett með því að nota hótunina um máls- sókn til að ná samningum en með því að gera alvöru úr henni. í öðru lagi er hins vegar bent á að Norð- menn kunni að hafa ákveðna hags- muni af því sjálfir að réttarstaðan á Svalbarðasvæðinu yrði skýrð, þótt það virðist ekki hafa verið skoðun Norðmanna til þessa. Af þessum ástæðum kann að vera skynsamlegra fyrir íslendinga að hafa Svalbarða- málið áfram í óvissu. Þjóðverjar uppfylltu ekki Maastricht-skilyrðin 1995 Efnahagsleg niður- sveifla veldur titringi VINNUVIKAN er hvergi styttri í Evrópu en í Þýskalandi. Líklega er hún þó hvergi styttri en í Wolkswagen-verksmiðjunum en þar vinna menn að meðaltali fjóra daga í viku. Teikn eru á lofti um að uppganginum í þýsku efnahagslífi sé lokið í bili. Steingrímur Sigur- geirsson gerir grein fyrír vaxandi áhyggjum innan Evrópusambandsins og efasemdum um að unnt reynist að tryggja efnahags- og peningalegan samruna aðildarríkjanna. MARGT bendir til að þriggja ára tímabil efna- hagslegrar uppsveifiu í Þýskalandi sé nú senn á enda og innan Evrópusambandsins hafa menn vaxandi áhyggjur af því að Þjóðverjar muni ekki uppfylla hin ströngu skilyrði Maastricht-sáttmál- ans fyrir þátttöku i efnahagslegum og peningalegum samruna Evrópu- ríkja, EMU. Hagvöxtur stöðvaðist á þriðja ársfjórðungi síðasta árs og sumir efnahagssérfræðingar telja jafnvel að hagvöxtur hafi verið nei- kvæður á síðasta ársfjórðungi árs- ins, hugsanlega um allt að 0,5%. Endanlegar tölur liggja þó ekki fyrir um það. Þó að hagvöxtúr hafi verið 1,9% í Þýskalandi á árinu -í heild (2,9% árið 1994) fækkaði störfum í efnahagslífinu. Atvinnuleysi mælist nú 10% og er ekki búist við að sú tala muni lækka á þessu ári. Þetta jafngildir því að 3,8 milljónir Þjóð- veija séu án atvinnu. Ékki hefur mælst meira atvinnuleysi í desember í Þýskalandi frá árinu 1945 og þetta er í fyrsta skipti í þtjátíu ár sem atvinnuleysi er meira í Þýskalandi en Bretlandi. Bjartsýnir fræðimenn, þeirra á meðal sérfræðingar þýska seðla- bankans, eru vongóðir um að hag- vöxtur verði í kringum 2% á þessu ári en aðrir telja líklegra að hann verði í kringum 1% eða jafnvel nei- kvæður. Margir eru þó þeirrar skoð- unar að hagvaxtartímabilið sé ekki á enda heldur sé einungis um tíma- bundið hlé að ræða. Þeir eru jafnvel til sem telja líklegt að botninum hafi verið náð á íjórða ársfjórðungi síð- asta árs og að hagkerfið verði komið á fullt skrið síðari hluta ársins og að hagvöxtur muni mælast allt að 2,9% á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Allt ekki svart Bent hefur verið á að kaupmáttur Þjóðvetja muni aukast um 10-15 milljarða marka á árinu vegna skattalækkana og þar sem það eru fyrst og fremst efnaminni fjölskyldur er njóta góðs af þeim er líklegt að sú kaupmáttaraukning renni til neyslu en ekki sparnaðar. Það gæti leitt til allt að 2% aukningar heildar- neyslu. Á móti kemur að útflutningsspár gera ráð fyrir að heildarheimsvið- skipti muni aukast um 6% á árinu." Færi svo að einnig hægði á hagvexti í öðrum ríkjum er hætta á að heim- sviðskipti dragist saman. Þá er ekki útilokað að fólk kjósi að leggja fyrir fyrrnefnda kaupmáttaraukningu fremur en að nota hana til neyslu vegna óvissu í atvinnumálum. Samdrátturinn í efnahagslífinu olli því að Þýskaland átti töluvert í land með að uppfylla skilyrði Ma- astricht-sáttmálans. Halli á útgjöld- um hins opinbera nam 3,6% í fyrra en má ekki fara yfir 3% samkvæmt skilyrðum samningsins. Hallinn árið 1994 var ein- ungis 2,5%. Það kom flest- um í opna skjöldu þegar þessar tölur komu í ljós í síðustu viku því fram til þessa hafa stjórnmálamenn og sér- fræðingar lýst því yfir að hallinn yrði örugglega innan við 3%. Þetta hefur leitt til vangaveltna um hvort Þjóðverjum muni hugsan- lega ekki takast að uppfylla skilyrð- in fyrir árið 1997 án þess að grípa til róttækra aðgerða. Þetta er nokk- uð óþægilegt fyrir Theo Waigel fjár- málaráðherra sem hefur beitt sam- starfsríki Þjóðveija miklum þrýstingi í þessum efnum. Nú er komið í ljós að Þjóðvetjar hafa ekki uppfyllt sjálf- ir þær ströngu kröfur er þeir gera til annarra ríkja. Hinar nýju upplýsingar um efna- hagsástandið og stöðu ríkisijármála í Þýskalandi hafa vakið upp vanga- veltur um hvort að Þjóðverjum tak- ist að koma málum sínum á hreint fyrir árið 1999, en þá stendur til að taka upp sameiginlegu myntina. Það eru hins vegar hagtölur ársins 1997, sem lagðar verða til grundvallar, þegar metið verður hvaða ríki upp- fylla kröfur Maastricht. Til þessa hafa Þjóðverjar verið eitt örfárra ríkja er uppfylla öll skilyrðin. Verði breytingar þar á er nær óhugsandi að áformin geti orðið að veruleika, ekki síst þar sem að Þjóðverjar hafa lagt mesta áherslu á að skilyrði Maastricht verði túlkuð með ströng- um hætti og ekki veittar neinar undanþágur. Spáð auknum halla Hagfræðingar spá því að fjárlaga- halli muni aukast á yfirstandandi ári en lækka síðan aftur árið 1997. Halli áranna 1995 og 1996 gæti hins vegar valdið því að opinberar skuldir fari yfir 60% hlutfallið af vergri landsframleiðslu, sem kveðið er á um í skilyrðum EMU. Sameiginleg mynt án þátttöku Þjóðveija er óhugsandi af efnahags- legum ástæðum rétt eins og útilokað er af pólitískum ástæðum að Frakk- ar taki ekki þátt. Það er því ekki nema von að nýj- ustu þýsku hágtölurnar hafi valdið ótta innan Evr- ópusambandsins. Ma- astricht-samkomulagið kveður á um að efnahagslegi og peningalegi samruninn skuli eiga sér stað í síðasta lagi árið 1999 og ef gera á breytingar á því verður að semja um samkomulagið upp á nýtt. Það gæti haft ófyrirsjáardegar af- leiðingar í för með sér og enginn leiðandi stjórnmálamaður innan Evr- ópusambandsins treystir sér til að leggja í þann slag. Atvinnleysi áhyggjuefni Það er líka ekki síður hið mikla atvinnuleysi sem veldur áhyggjum. Fjöldi atvinnulausra jókst um tæp 212 þúsund í desember og voru 3,791 milljónir Þjóðvetja án atvinnu. Sérfræðingar telja að þessi tala eigi enn eftir að hækka í janúar, jafnvel um allt að 300 þúsund manns. Bernard Jagoda, yfirmaður þýsku vinnumálastofnunarinnar, varar hins vegar í Frankfurter Allgemeine Zeit- ung við því að menn túlki þessar tölur of neikvætt. Árstíðabundnar ástæður liggi að baki um 70 þúsund uppsögnum í desember og ekki síst hafi mjög slæmt veður haft mikil áhrif. Éf litið er á árið í heild sinni var atvinnuleysi nokkru minna en árið á undan eða 9,4% borið saman við 9,6%. í vesturhluta Þýskalands var atvinnuleysi að meðaltali 8,3% en 14,0% í austurhluta landsins. Þrátt fyrir það verður ekki hjá því litið að atvinnuleysi jókst úr 9,2% í 9,9% í desember en var til saman- burðar 9,4% í desember 1994. Að auki er ljóst að draga mun úr efna- hagslegum stuðningsaðgerðum við austurhlutann á næstu misserum og umfangsmikii verkefni á sviði upp- byggingar, er hafa verið mjög at- vinnuskapandi, eru senn á þrotum. Þessi þróun hefur vakið upp mikla umræðu í Þýskalandi um hvernig hægt sé að fjölga atvinnutækifær- um. Jagoda segir að alla kosti beri að kanna í því sambandi. Upplýsingar um aukið atvinnuleysi, aukinn fjár- lagahalla og samdrátt í efnahagslífinu hafa valdið verulegum titringi í Þýska- landi og vakið upp umræðu um hvort stefnubreyting sé nauðsynleg. Leið- andi stjórnmálamenn, jafnvel í flokki Kohls kanslara, er farnir að ræða opinskátt um að fresta áformunum um peningalegan samruna. Deilt um lækkun skatta Gúnther Rexrodt efnahagsmála- ráðherra hyggst síðar i mánuðinum kynna aðgerðapakka en hann hefur sjálfur átt í hörðum deilum við aðra ráðherra undanfarna daga. Sakaði Kohl kanslari Rexrodt og flokk fijálsra demókrata um það í síðustu viku að bera ábyrgð á óvinsældum ríkisstjórnarinnar samkvæmt skoð-.. anakönnunum. Rexrodt hefur hvatt til að þýski „samstöðuskatturinn“ verði lækkað- ur sem allra fyrst. Sá skattur var lagður á til að mæta kostnaði við enduruppbyggingu í austurhluta Þýskalands og nemur nú 7,5%. Kohl kanslari og Waigei Ijármála- ráðherra hyggjast kynna aðgerðir er miði að því að auka hagvöxt og atvinnu en hafa báðir lagst gegn öllum frekari skattalækkunum ekki síst vegna þess að skatttekjur ríkis- ins hafa dregist töluvert saman að undanförnu. Tekjusamdráttur ríkisins er ein helsta skýring aukins fjárlagahalla en þar sem talið er útilokað að hækka skatta að ráði beinast augu manna í auknum mæli að opinberum útgjöldum. Samkvæmt tölum þýsku hagstof- unnar nam fjárlagahallinn 123,6 milljörðum þýskra marka. Þar af voru 55 milljarðar vegna sambands- stjórnarinnar, 53,8 milljarðar vegna ríkisstjórna sambandslanda og sveit- arstjórna og 15,8 milljarðar vegna velferðarútgj alda. Eftir því sem atvinnuleysi eykst greiða færri launþegar í félagslega sjóði og sjúkratryggingar. Til þessa hefur verið brugðist við því með hækkun skyldugreiðslna. Það hefur hins vegar getið af sér vítahring. Þar sem auknar félagslegar greiðslur auka kostnaðinn við að hafa starfs- fólk í vinnu hafa fyrirtæki brugðist við með því að fækka starfsfólki enn frekar. Atvinnulífið í Þýskalandi er að bugast undan skattbyrðinni og ein helsta krafa vinnuveitenda er að launatengdur kostnaður verði lækk- aður. Það sé áhrifaríkasta leiðin til að draga úr atvinnuleysi. Vilja róttækar aðgerðir Oháð því hvort að hagvaxtarskeið-" ið í Þýskalandi sé á enda eður ei er ljóst að róttækra aðgerða er þörf. Hið mikla atvinnuleysi og 18% aukn- ing gjaldþrota milli ára eru skýr vís- bending um hinn mikla innri vanda. Þær raddir gerast sífellt háværari sem krefjast þess að Þjóðveijar af- sali sér einhverju af þeim félagslega munaði er þeir hafa vanist á síðustu árum og áratugum. Þjóðin hafi ein- faldlega ekki lengur efni á í ljósi sívaxandi samkeppni að leyfa sér að vinna stysta vinnudag Evrópu og hærri skatta og meiri ríkisafskipti en helstu samkeppnisríkin og ósveigjanlegar og strangar reglur er hefta framtak og fyrirtækjarekst-* ur. Hans-Olaf Henkel, formaður sam- taka þýskra vinnuveitenda, telur jafnvel nauðsynlegt að gera eins konar Thatcher-byltingu í þýsku efnahagslífi og bendir á að Bretar hafi náð til sín níu sinnum meiri erlendri fjárfestingu en Þjóðveijar upp á síðkastið. Það verður þó erfitt að semja um slíkt við þýsku verkalýðshreyfinguna þó eflaust-verði niðurstaðan einhvers konar málamiðlun. Allir hafa þó ekki- gefíð upp vonina um að Þjóðveijar muni þrátt fyrir allt verða reiðubún- ir að taka þátt í EMU eftir þrjú ár og benda á að þrátt fyrir ákveðna veikleika í efnahagslífinu sé fram- leiðni að meðaltali þó enn mun meiri en gengur og gerist í öðrum Evrópu- ríkjum, til að mynda 40% meiri en í Bretlandi. „Vinnuveit- endur vilja aðgerðir „Mesta at- vinnuleysi frá 1945“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.