Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 29 Hverjir eiga að virkja og hvar? í UMRÆÐU undan- farið hefur komið tölu- vert rót á orkumál m.a. vegna áhrifa nýgerðs samnings um stækkun áiversins í Straumsvík og hugsanlega annarra samninga um orkufrek- an iðnað á íslandi sem nú er unnið að. I þeirri umræðu bein- ast sjónir manna að hagkvæmum virkjunar- kostum raforku á Nesja- völlum þar sem Hita- veita Reykjavíkur getur virkjað tæp 80 Mw og hefur Ólafur Flóvents jarðeðlisfræðingur bent á að lækka megi orkureikning Reyk- víkinga um 700 til 1.000 Mkr. á ári með þeirri framkvæmd. Þessi virkjun er einn þeirra val- kosta sem rætt er um að ráðist verði í og gæti 1. áfangi komið í rekstur 1997 ef þeir samningar sem unnið er að ganga eftir. Einnig hefur Hita- veita Suðurnesja sótt um leyfi til að virkja 15-20 Mw í Svartsengi, og svo hefur bæjarstjórn Seyðisfjarðar ósk- að eftir því við Rafmagnsveitur ríkis- ins að hrinda í framkvæmd virkjun Fjarðarár í Seyðisfirði um 20 Mw Myndi sú virkjun henta mjög vel raforkukerfi Austurlands og 132 Kv.dreifikerfi landsins. Það er því ljóst að nokkrir telja hag af því að taka þátt í virkjun orkunnar á íslandi. „En hver á að virkja og hvar?“ Finnur Ingólfsson iðnararráðherra hefur hrint í framkvæmd heildarend- urskoðun á orkulögum, þ.m.t. vinnslu, flutningi og dreifingu orku, með það að markmiði að auka skil- virkni og koma á samkeppni sem stuðli samtímis að jöfnun orkuverðs, tryggi gæði þjónustunnar, auki sjálf- stæði orkufyrirtækja. og ábyrgð stjómenda. í þessu skyni hefur hann óskað eftir tilnefningu í ráðgjafanefnd frá stjómmálaflokkunum sem eiga full- trúa á Alþingi, Sambandi ísl. sveitar- félaga, Akureyrarbæ, Reykjavíkur- borg, Alþýðusambandi íslands, Vinnuveitendasambandi íslands, Sa- morku, Orkustofnun, Landsvirkjun og Rafmagnsveitum ríkisins. Það eru því spennandi tímar framundan og eflaust margir sem hafa skoðanir á því hvernig þessum málum verði fyr- ir komið í framtíðinni. Vonandi verður starf ráðgjafa- nefndarinnar happadijúgt og þeir nái að koma með tillögur sem Alþingi getur sett í lög sem við munum not- ast við fram á næstu öld. Þeir ann- markar sem við höfum búið við verði lagfærðir og það skilgreint mun bet- ur hvað verði hlutverk ríkisins í fram- tíðinni og hvað verði ætlað öðrum. Fyrstir tii að virkja raforku á Is- landi voru einstaklingar og síðan sveitarfélögin en með raforkulögum 1946 kom ríkið að þessum málum, bæði með rannsóknir, framkvæmdir og rekst- ur. Sett voru lög um Landsvirkjun og önnur orkufyrirtæki svo sem Orkubú Vestfjarða og Hitaveitu Suðumesja svo og virkjanir. Ekki er óeðlilegt að þessi lög komi einnig til skoðun- ar í þessu samhengi því vart er hægt að horfa framhjá því að áfram mun verða samvinna og samstarf milli þess- ara fýrirtækja allra þótt á verði komið sam- keppni. Náttúra landsins býr yfir mikilli orku sem við höfum nýtt okkur til hagsbóta og er hún ein aðalundirstaða þeirra lífsgæða og mannlífs sem við búum við á land- inu, samtímis að vera einn helsti vaxtarbroddur í okkar verðmæta- sköpun. Hvemig að er staðið fer eft- ir aðstæðum á hveijum tíma og segja má að öll mannanna verk séu börn síns tíma. Ljóst er að nú þarf að taka tillit til fjölmargra atriða sem oft hefur ekki verið horft til þegar ákvarðanir hafa verið teknar um virkjanir og áhrif þeirra á næsta umhverfi. Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin var í Ríó de Janeiro í júní 1992 var m.a. beint til ríkis- stjórna: Að auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa sem valda lítilli sem engri mengun, þar á meðal eru jarðvarmi og vatnsorka. Að sam- ræma orkuáætlanir svo auka megi notkun slíkra orkugjafa og draga með því úr notkun óæski- _ Iegra orkugjafa. í þessu felst m.a. ósk til ísland- inga að þeir nýti sínar orkulindir til að draga megi úr losun mengandi úrgangsefna sem hlýst af brennslu jarðefnaeldsneytis eða kjarnorku til orkuvinnsiu í öðrum löndum. Við þeirri ósk má verða m.a. með eftir- töldum hætti: Staðsetja mætti orkufrekan iðnað á íslandi í auknum mæli. Vinna mætti eldsneyti sem hefði í för með sér litla mengun við bruna. Nota mætti raforku til að knýja samgöngutæki. Flytja mætti raf- orku út um sæstreng. Jafnframt verður að tryggja að virkjun orkulindanna og sú starfsemi sem henni fylgir valdi sem minnstum spjöllum á umhverfi. Ný lög um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda eiga að tryggja að ekki verði slík röskun á umhverfi að eigi fáist rétt- lætt miðað við þann ábata sem af framkvæmdum leiðir og eru alla nýjar vatnsaflsvirkjanir 10 Mw. og stærri og framkvæmdir þeim tengdar háðar slíku mati. En hvað er framundan? í vikunni komu fréttir af tillögum um uppstokkun Orkustofnunar sem Mikil eignamyndun hef- ur orðið í Landsvirkjun, segir Sverrir Sveinson, sem borgin nýtur ekki síður en ríkið. er e.t.v. liður í endurskoðun á starf- semi ríkisins í orkumálum. Þær til- lögur samkvæmt frétt fjölmiðla gerðu ráð fyrir að fækka starfsmönn- um Orkustofnunar úr 100 manns í 20 sem ættu hafa á hendi sjórnsýslu og ráðgjöf til ráðherra en rannsókn- arverkefni sem stofnunin hefur haft með höndum yrðu boðin út á fijálsum markaði. Ekki skal það dregið í efa að eflaust finnast aðrir vísindamenn sem geta unnið þessi störf en þeir sem nú vinna hjá Orkustofnun, en ég er þeirrar skoðunar eftir áratuga reynslu af góðum samskiptum við þessa starfsmenn, að varlega verði að fara í svo róttækar breytingar eins og þama er lagt til samkv. frétt- um. Mér fínnst að ríkinu beri að annast grundvallar frumrannsóknir, úrvinnslu þeirra og varðveislu gagna, þann þátt er erfitt að bjóða út á fijálsum markaði eða ætlast til að orkufyrirtækin sjái um þetta sjálf þar sem sá kostnaður hlyti að koma fram í hækkuðu orkuverði. Vonast ég því til að ráðherra skoði þessar tillögur um Orkustofnun samtímis þeim tiliögum sem ráðgjafahópurinn mun senda frá sér svo nátengdar sem þær eru . Auðvitað er sjálfsagt að endur- skoða og endurmeta alla starfsemi en ég tel eðlilegt að starfsmenn stofnana fái að fylgjast með slíkum endurskoðunum og var með í þeirri vinnu. Ég tel mig geta sagt þetta af nokkurri reynslu það var fyrir tæpum fimm árum að Siglufjarðarkaupstað- ur stóð svo illa ijárhagslega að talið var að hann hefði ekki aðra útgöngu- leið en að selja sín orkufyrirtæki, þ.e. Rafveitu Siglufjarðar sem stofn- uð var 1913, með Skeiðsfossvirkjun sem byggð var 1945 ásamt jörðum í Fljótum með vatnsréttindum og virkjun við Þerá sem byggð var 1974,og Hitaveitu Siglufjarðar sem tekin var í notkun 1975 með vatns- réttindum í Skútudal og Skarðsdal í Siglufirði. Þrátt fyrir að Rafveita Siglufjarð- ar greiddi afgjald til bæjarsjóðs þótti bæjarfulltrúum rétt að jafna út skuldir sveitarsjóðs með sölu þessara eigna til Rafmagnsveitna ríkisins sem sáu sér vissulega hag í því að taka þessi mannvirki inn í sinn rekst- ur. Ég tók sem starfsmaður veitnanna þátt í þeirri vinnu sem þurfti til að koma þessari sölu á þótt ég hefði aðra afstöðu til hennar. Siglfirðingar Sverrir Sveinson urðu fyrir smávægilegri breytingu á gjaldskrá. Rafmagnsveiturnar gengu í það að lagfæra það sem betur mátti fara í virkjunum, breyttu sölu- kerfi hitaveitunnar, styrktu Siglu- Ijarðarlínu og á sl. ári var tekið í notkun nýtt verkstæðis- og skrif- stofuhús fyrir þá starfsemi sem fram fer á Siglufirði. Bæjarfulltrúar geta snúið sér að öðrum verkefnum sem samfélagið leggur þeim á herðar. Þetta fangar huga minn þegar ég sé að borgarstjórinn í Reykjavík leggur það mat á eignarhlut borgar- innar í Landsvirkjun að hann skili ekki nógu í borgarsjóð og eftir meiru kunni að vera að slægjast. Eftir því sem mig minnir voru inni á ríkisreikningi um 1980 8 eða 11 milljarða króna skuld vegna 132 KV. hringtengingar um ísland sem hófst með því að leggja línu milli Akur- eyrar og Varmahlíðar upp úr 1970. En þá sárvantaði raforku bæði á Norðurlandi eystra og vestra og dfsil- vélar keyrðar á báðum svæðum sök- um ört vaxandi notunar raforku til upphitunar af stórhækkuðu olíuverði og því að ekki fékkst að ljúka við Laxárvirkjun. Mig minnir að Landsvirkjun hafi yfírtekið þessi lán hjá ríkissjóði fyrir þá upphæð sem svaraði til að raf- orkuverð til almenningsnota hækkaði einungis um 10%. Hvaða upphæð það var veit ég ekki en ætli hún sé ekki uppfærð í eignareikningi Landsvirkj- unar eins og aðrar eignir og Reykja- víkurborg á tæpan helming af. Þótt ekki hafí tekist að greiða eig- endum Landsvirkjunar arð af sínu fjármagni öll rekstrarárin er ljóst að f fyrirtækinu hefur orðið mikil eigna- myndun sem borgin nýtur ekki síður en ríkissjóður. Reykjavíkurborg hef- ur alltaf átt sína fulltúa í stjóm Landsvirkjunar og látið sér lynda að fá einungis afgjald af eignum Raf- veitu og Hitaveitu Reykjavíkur á meðan hefur eignarhlutur eigenda í Landsvirkjun vaxið ört. í dag bárust fréttir af háhitasvæði í Brennisteinsfjöllum rétt hjá Reykja- vík,sem er talið að virkja megi um 100 Mw. til raforkuvinnslu. Mikil umræða hefur verið um virkjunarkosti norðan Vatnajökuls og er unnið að umhverfísathugunum á hinum ýmsu valkostum. I riti iðnaðarráðuneytisins Inn- landar orkulindir til vinnslu raforku sem kom út 1994 er sagt frá ýmsum kostum virkjana bæði vatnsafl og jarðhita. Þar er sagt frá m.a. virkjun Jökulsánna í Skagafírði við Villinga- nes um 100 Mw. og orkuframleiðslu 570 Gwst.á ári. Ég nefni þennan möguleika sem hagstæða stærð virkjunar sem Raf- magnsveitur ríkisins gætu tekist á við ef það yrði raunin að Landsvirkj- un yrði skipt upp á milli eiganda. Orkukaup Rafmagnsveitnanna eru um 150 Mw. og milli 800 og 900 Gwst. á ári, fyrirtækið fengi allt aðra samningsstöðu um þá viðbótar- orku sem það keypti af örðum ef eigin orkuframleiðsla væri orðin um 70% af heildamotkuninni. Rafmagn- sveiturnar hafa orðið að taka þátt í þeim félagslegu verkefnum að end- umýja og styrkja dreifílínur landsins og dreifa raforku til upphitunar í dreifbýlinu. Ríkissjóður hefur greitt niður raf- orku til upphitunar um 400 Mkr. á ári og þarf að takast á við endumýj- Athugasemd frá læknum á röntgen- og myndgreiningardeild Landspítalans: Ahrif röntg’entæknadeilunnar FYRSTA desember 1995 hættu 15 röntgentæknar störfum við röntg- en- og myndgreiningardeild Land- spítalans af ástæðum, sem mjög hafa verið til umræðu í fjölmiðlum. Við læknar deildarinnar erum veru- lega uggandi vegna ástands þess sem skapast hefur vegna þessa. í byijun töldum við í bjartsýni okkar að deilan yrði fljótlega leyst, en sú hefur ekki orðið raunin. Afkastageta deildarinn- ar hefur dregist verulega saman og er engan veginn hægt að sinna sjúkl- ingum sem skyldi. Það starfsfólk, sem enn er í vinnu, hefur verið und- ir miklu álagi við að reyna að halda uppi nauðsynlegri þjónustu við inni- liggjandi sjúklinga spítalans. Þetta fólk er nú að vonum orðið lang- þreytt af mikilli vinnu og gífurlega auknu vaktaálagi, þar sem sex manneskjur hafa orðið að sinna bak- vöktum og meðfylgjandi vinnu, oft sleitulaust Iangt fram á nótt í kjölfar erfiðs vinnudags. Áður en deila þessi hófst deildust þessar vaktir niður á a.m.k. 18 manns. 1. mars nk. er fyrirsjáanlegt, að a.m.k. þrír rön- tengtæknar í viðbót láti af störfum af sömu ásætðu og þeir 15, sem hurfu á bort 1. desember síðastlið- inn. Það er geigvænlegt- að hugsa til þess ástands sem þá mun taka við. Engan veginn mun verða unnt að sinna nema bi'áðnauðsynlegustu rannsóknum á þeim sjúklingum sem veikastir eru. Leita mun þurfa til annarra stofnana í borginni með rannsókn á öllum öðrum sjúklingum. Ekki mun verða hægt að halda uppi vaktþjónustu. Miðað við að núver- andi ástand vegna deilunnar milli röntgentækna og stjómenda spítal- ans hefur nú staðið yfir 40 daga, án þess að lausn sé í sjónmáli, virð- ist 1. mars ótrúlega skammt undan. Landspítalinn er háskólaspítali og stjórnendur spítalans verða að gera upp við sig hvort þeir vilji í raun og veru starfrækja við hann röntgen- deild sem rís undir nafni. Við undir- rituð skorum hér með á stjómendur spítalans að leggja sitt ítrasta af mörkum til að ráða bót á þessu ástandi áður en hagmsunum sjúkl- inga verður alvarleg hætta búin. Anna Björg Halldórsdóttir, Ágústa Andrésdóttir, Einar Jónmundsson, Kolbrún Benediktsdóttir, Olafur Eyjólfsson, Pétur Hannesson og Sigurður V. Sigurjónsson. un og styrkingar dreifílína sem Or- kuráð hefur áætlað að kosti um 150 Mkr. á ári næstu 8 ár ef vel á að vera. Ef Rafmagnsveitur ríkisins byggðu þessa virkjun yrði fyrirtækið mun betur í stakk búið til að takast á við þessi félagslegu verkefni sem það tekur nú þátt í með ríkissjóði. Ef ráðist yrði í þessa framkvæmd væri hún dæmi þess að stjómvöld ætluðu að beita sér fyrir uppbygg- ingu á landsbyggðinni með þeim væntingum sem því fýlgir. Þeir kostir sem kæmu á eftir væra að Skagafjörður væri orðinn fýsileg- ur til að setja niður meðalstórt fyrir- tæki sem notaði raforku að verulegu marki til sinnar framleiðslu. Það er því alls ekki sama „hveijir virkja og hvar“. Höfundur er veitustjóri í Siglu- firði. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, simi 4Í-j| 567-1800 ^ Löggild bílasala Opið laugard. kl. 10-17 sunnudag kl. 13-18 Nissan Sunny 1.6 SLX 4x4 station '93, blár, 5 g., ek. aðeins 28 þ. km., rafm. í öllu, 2 dekkjag., álfelgur. V. 1.290 þús. Willys Koranda 2.3 diesil (langur) '88, 5 g., ek. aðeins 30 þ. km. V. 980 þús. Cherokee Laredo 4.0L '91, vínrauður, sjálfsk., ek. 77 þ. km., rafm. í rúðum, cru- iscontrol, álfelgur o.fl. Gott ástand. V. 1.980 þús. Nýr bfll. Hyundai Pony GSi '94, sjálfsk., ek. 1. þ. km. 2 dekkjagangar. V. 890 þús. Nissan Sunny SKX 4x4 '91, rauður, 5 g., ek. aðeins 35 þ. km., rafm. í rúðum, spoil- er o.fl. V. 1.030 þús. MMC L-300 Minibus 4x4 ’88, grásans., 5 g., ek. 120 þ. km., vél yfirfarin (tímareim o.fl. Nótur fylgja). V. 1.050 þús. Mjög góð lánakjör. Audi 80 1.8 S '88, 5 g., ek. 130 þ. km. Gott eintak. V. 690 þús. Grand Cherokee LTD 8 cyl. '94, ek. að- eins 16 þ. km. Einn með ölllu. V. 3,9 millj. MMC Galant GLSi '90, sjálfsk., ek. 140 þ. km., spoiler o.fl. aukahl. V. 850 þús. (Ýmis skipti möguleg). Nissan King Cap P. up '91, 2.4 bensín, ek. 70 þ. km. Gott eintak. V. 1.100 þús. Toyota Hilux D. Cap m/húsi '94, 2.4 bens- ín, 5 g., ek. 30 þ. km., 33" dekk, bretta- kantar o.fl. V. 2,2 millj. V.W Vento GL 2000 '93, blár, 5 g., ek. 40 þ. km. V. 1.380 þús. Nýr jeppi: Suzuki Sidekick JX Sport '96, sjálfsk., óekinn, ýmsir aukahlutir. V. 2.350 þús. Nissan Terrano SE V-6 '90, 5 dyra, sjálfsk., ek. 85 þ. km., sóllúga, rafm. í rúðum, hiti í sætum, ólfelgur o.fl. Fallegur jeppi. V. 1.950 þús. MMC Lancer EXE '91, 5 dyra, blár, sjálfsk., ek. aðeins 11 þ. km., rafm. í rúð- um, samlitir stuðarar o.fl. V. 980 þús. Peugout 106 XN '92, 3ja dyra, rauður, 4 g., ek. 66 þ. km. V. 580 þús. VW Golf CL station '95, 5 dyra, 5 g., ek. 8 þ. km. V. 1.290 þús. Nissan Primera SLX 2000 '92, 5 dyra, 5 g., ek 61 þ.km., rafm. í rúðum o.fl. Gott eintak. V. 1.160 þús. stgr. Sk. ód. Ford Explorer XLT '91, rauður, sjálsk., ek. 98 þ. km., óvenju gott eintak. V. 2.350 þús. Toyota Corolla XL Sedan '91, rauöur, sjálfsk., ek. 76 þ. km. V. 740 þús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.