Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Sjö innflytjendur farast í Þýskalandi Reuter SLÖKKVILIÐSMENN reyna að ráða að niðurlög- um elds í gistiheimili fyrir innflytendur í Liibeck í Þýskalandi. Sjö manns fórust í eldsvoðanum. Grun- ur um íkveikju LUbeck. Reuter. SJö manns, þar af tvö ung böm, létu lífið í fyrrinótt í elds- voða í gistiheimili fyrir útlend- inga í þýsku borginni Liibeck. Tveir menn hafa verið hand- teknir grunaðir um að hafa kveikt í húsinu en þeir sáust við það fáeinum mínútum eftir að eldur varð laus í því. Lög- regla segir þó enn ekki fullvíst að um íkveikju hafí verið að ræða, þó að flest bendi til þess. Flestir þeirra sem bjuggu á gistiheimilinu voru frá Sýr- landi, Líbanon, Zaire og Togo, auk Þjóðverja frá Austur-Evr- ópu. Um tuttugu manns slös- uð'ust er þeir stukku út úr brennandi húsinu og 35 til við- bótar fengu reykeitrun. Þyngdin er ríkis- leyndarmál „ÞYNGD mín og rúmmál í þess- um heimi eru ríkisleyndarmál," sagði Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, er hann kynnti nýja matreiðslubók sína og konu sinn- ar Hannelore, fyrr í þessari viku. Kanslarinn, sem þykir ágætlega skjólgóður, er annálaður sælkeri en bókin er afrakstur ferða þeirra um þýsk gnægtaborð á undanförnum árum. í bókinni, sem er 230 blaðsíð- ur, er að finna 350 uppskriftir. Hannelore hefur einkum fengist við að skrifa þær niður en hver kafli bókarinnar hefst með inn- gangsorðum kanslarans. Upp- skriftirnar eru af margvíslegum toga en kanslarahjónin gættu þess að hafa með leiðbeiningar um hvernig laga má fljótlega og einfalda rétti sem hæfa fjölskyld- um á ferð og flugi. Hannlore ljóstrar þvi upp að oft leiti hún í frystikistuna eftir pakkamat og réttum örbylgjunnar þegar timinn er naumur. ÞÝSKU kanslarahjónin með matreiðslubókina nýju. Bókin geymir þverskurð af þýskri matargerð. Frá því að Helmut Kohl gerðist atvinnu- stjórnmálamaður hafa þau hjón- in verið á eilífum þeytingi um fósturjörðina og því kynnst öllum leyndarmálum matargerðarinn- ar í hinum ýmsu og ólíku hlutum Þýskalands. Ferðunum fjölgaði siðan um allan helming er Kohl var kjörinn kanslari þáverandi Vestur-Þýskalands árið 1982. Ekki undir 130 kílóum Kohl þykir þungavigtarmaður á stjórnmálasviðinu og kilóunum hefur fjölgað í réttu hlutfalli við pólitískan skriðþunga hans. „Þyngd mín er ríkisleyndarmál," sagði kanslarinn stæðilegi er hann stillti sér upp ásamt konu sinni fyrir myndatöku. Lærðir menn fullyrða þó að fallþungi kanslarans sé ekki undir 130 kílóum en baðvigtin á heimili þeirra hjóna mun lúta sérstakri öryggisgæslu og þvi verða áætl- anir einar að duga. Kanslarinn segir að tilgangur- inn með bókinni sé ekki síst sá að breyta ímynd Þjóðveija er- lendis. „Vitaskuld erum við nýtn- ir, nákvæmir og stundvísir. En það gleymist stundum að við höfum einnig ánægju af því að gera vel við okkur í mat og drykk.“ Vilja bola Major burt sem leiðtoga London. Reuter. íkveikja mistekst Að sögn lögreglu breiddist eldurinn óvenjuhratt út, sem bendi til þess að kveikt hafí verið í húsinu. Borgarstjórinn í Liibeck harmaði atburðinn í gær og kvaðst óttast að um íkveikju hefði verið að ræða. Þá var gerð tilraun til að kveikja í öðru gistiheimili í Grossburgwedel nærri Hanno- ver. Tókst íbúum þess að slökkva í kassa með teppaaf- göngum sem settur hafði verið inn á gang hússins og kveikt í. 50.000 ára gamall bú- staður SKÝRT var frá því í fyrradag, að fomleifafræðingar hefðu fundið 50.000 ára gamlar mann- vistarleifar í þessum helli í Suð- vestur-Frakklandi. Hafa þeir verið að rannsaka hann í fimm ár og meðal annars fundið brunn- ar beinleifar úr bjaradýrsfæti. HÁTTSETTIR menn í breska íhaldsflokknum hafa lagt á ráðin um að steypa John Major forsætis- ráðherra af stóli bíði flokkurinn mikinn ósigur í sveitarstjómar- kosningum í maí næstkomandi. Var þessu haldið fram í tveimur breskum dagblöðum í gær. Dagblöðin Times og Financial Times höfðu eftir nokkrum þing- mönnum íhaldsflokksins, að ónefndir frammámenn í flokknum væru reiðubúnir að láta til skarar skríða ef Verkamannaflokkurinn ynni mikinn sigur í kosningunum í maí eins og raunar er búist við. „Þetta fólk einblínir aðeins á eitt — völdin. Það telur, að íhalds- flokkurinn hafí guðlegan rétt til að stjórna og það vill ekki hætta á að þurfa að greiða hærri skatta komist Verkamannaflokkurinn að,“ hafði Times eftir einum þing- manni. Ekki átakalaust Sagt er, að ýmsir, sem stutt hafa Major, vilji nú losna við hann vegna þess, að hann hafi reynst ófær um að setja niður deilurnar í flokknum um Evrópumálin. Segja sumir, að hugsar.lega verði Major hvattur til að víkja fyrir Michael Heseltine en ónefndur ráðherra og stuðningsmaður Majors segir, að forsætisráðherrann muni ekki fara frá átakalaust. „Hann er baráttumaður og vilji þeir í raun losna við hann, þá má búast við miklu blóðbaði,“ er haft eftir ráðherranum í Financial Times. Heseltine nýtur allmikils stuðn- ings í íhaldsflokknum en óvíst er, að hann geti tekið við sem leiðtogi án hatrammra innanflokksátaka. Enginn verri en Major „Sumum okkar er orðið sama um hvort leiðtogaskiptin gangi ljúflega fyrir sig eða endi með blóð- ugum slagsmálum. Ástæðan er einfaldlega sú, að enginn hugsan- legra eftirmanna Majors getur staðið sig verr,“ sagði einn þing- maður íhaldsflokksins við Financ- ial Times. Þessar fréttir hafa ýtt undir vangaveltur um, að aftur komi til leiðtogakjörs innan íhaldsflokksins síðar á árinu milli Majors og ein- hvers úr hægriarminum en í kosn- ingunum í júní á síðasta ári sigraði Major John Redwood örugglega. regn/snjógallar St. 92-116 kr. 3.390.- St. 122-152 kr. 3.570.- Gott úrval af fóðruðum gúmmískóm og stígvélum fyrlr börn og fullorðna. 15% afsláttur Regnfatabúðin Laugavegi 21 s. 552 6606. Sendum út á land.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.