Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 40
.40 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Jónína Guðrún Jónsdóttir fæddist á Akureyri 14. október 1908. Hún lést á dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri 9. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jón Kristjánsson, framkvæmdastjóri, > f. 16. nóvember 1890, d. 22. nóvem- ber 1962, og Helga Sigríður Helgadótt- ir, f. 14. mars 1876, d. 23. október 1958. Árið 1927 giftist Jónína Þor- keli Valdimar Ottesen, prent- ara, f. 8. janúar 1905, d. 19. febrúar 1962. Eignuðust þau þijú börn: Ástu, f. 25. febrúar 1928, d. 16. júní 1980; Svavar, JÓNÍNA eða Ninna amma eins og við kölluðum hana oftast ólst upp í Búðargilinu hjá mömmu sinni og stjúpa, Þorkeli Þorkelssyni. Mjög —.ung að aldri fór Ninna amma að vinna fyrir sér en hún lauk aðeins barnaskólaprófi. Hún var á sínum yngri árum í svokallaðri vist, þ.e.a.s. vinnukona, og vann hún hjá ýmsum góðborgurum á Akureyri og má þar nefna Jón Sveinsson bæjarstjóra og Fanneyju konu hans. Ninna amma giftist Þorkeli Valdimar Ottesen prentara árið 1929 og eignuðust þau þijú böm, Ástu, Svavar og Grétu. Ninna og Þorkell skildu og þróuðust mál þannig að Ásta ólst upp hjá Ninnu ömmu, Svavar ólst upp hjá Helgu ömmu sinni í Búðargilinu, en Gréta var gefin þeim hjónum Sig- urði Helgasyni og Guðrúnu konu hans og- var ættleidd af þeim. Árið 1934 hóf Ninna amma sambúð með Oddi Pálma Sigmundssyni skip- stjóra og fluttist á Gamla spítalann (Aðalstræti 14, Akureyri) og var Ásta með henni og ólst þar upp. Fyrir á gamla spítalanum voru for- eldrar Pálma og svo Eiður Baldvins- son, bróðursonur Pálma, sem var alinn upp hjá ömmu sinni og afa, og fleira fólk. Örlögin höguðu því svo að Ninan amma ílentist á Gamla spítalanum og bjó hún þar samfellt í 50 ár. Pálmi varð bráðkvaddur árið 1961 og var þá á besta aldri. -Ninna amma og Eiður héldu heim- ili eftir það á Gamla spítalanum í um 30 ár og reyndist Eiður Ninnu ömmu sem besti sonur alla tíð. Þeg- ar Ninna amma var rúmlega áttræð flutti hún í sambýli fyrir aldraða í Bakkahlíð 39 á Akureyri og dvaldi þar í mjög góðu yfirlæti. Hinn 25. júlí 1995 flutti hún á Dvalarheimili aldraðra, Hlíð, enda heilsa hennar orðin rrijög léleg. Ninna amma vann alltaf utan heimilisins og til að drýgja tekjumar fór hún oft á sumrin til Siglufjarðar að vinna í síld ásamt fleiri konum úr Innbænum, þar á meðal var Salóme Hóseasdóttir (Salla), en þær vom alla tíð miklar vinkonur og únnu mikið saman, oftast mikla erfiðisvinnu. Ekki komu þær alltaf með fullar hendur fjár úr síldinni. T.d. sagði Ninna amma okkur að eitt sinn er hún kom úr síldinni á Sigló eftir sumarið átti hún aðeins tíu krónur í veski sínu. Vildi þá til það óhapp að hún datt í tröppunum á Gamla spítalanum er hún kom heim og eyðilagði einu nælonsokk- ana sína. Þar með fór sumarkaupið. Þegar ÚA (Útgerðarfélag Akur- eyrar) var stofnað gerðust nokkrar verkakonur úr Innbænum stofnfé- lagar með 500 króna framlag og fengu síðan vinnu þar þegar starf- semin hófst. Þá fóm konurnar úr Innbænum á fætur milli kl. 5 og 6 á morgnana og gengu út á Oddeyri og svo heim aftur að loknum erfið- um vinnudegi. Talaði Ninna amma oft um að ekki hefði verið mulið undir verkafólkið í þá daga. Síðar Vann Ninna amma um tíma hjá bræðmm sínum í niðursuðurverk- f. 21. september 1932; og Grétu, f. 2. nóvember 1933. Þau skildu. Árið 1934 hóf Jónína sambúð með Oddi Pálma Sigmunds- syni og fluttist á Gamla spítalann (Aðalstræti 14 á Akureyri). Bjó hún þar samfellt í fim mtíu ár. Þegar Jón- ína var rúmlega áttræð flutti hún í sambýli fyrir aldr- aða í Bakkahlíð 39 á Akureyri. Hinn 25. júlí 1995 fluttist hún á Dvalarheimilið Hlíð. Utför Jónínu fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. smiðju K. Jónssonar og Co. Þá lá leið hennar út á verksmiðjur SÍS á Gieráreyrum, þar sem hún vann við saumaskap og lauk hún þar sínum starfsferli. Ninna amma var sjálf- menntuð saumakona og þær voru ófáar flíkurnar sem hún saumaði fyrir sína íjölskyldu og aðra, aðal- lega fólk úr Innbænum. Oft var það svo, að hún þurfti að leggja nótt við dag til að ljúka verkinu á þeim tíma sem hún hafði lofað. Eitt er víst að ekki tók Ninna amma háa greiðslu fyrir þessa vinnu. Ninna amma og Salla ráku bama- heimili nokkur sumur fyrir stúlkum- ar og verkalýðsfélagið Einingu. Nutum við barnabömin góðs af því og fengum við alltaf að vera með Ninnu ömmu og Söllu til skiptis á sumrin. Vom oft á sumrin milli 70 og 80 börn hjá þeim og þvoðu þær ásamt aðstoðarstúlkum allan þvott í höndum og var vinnudagurinn oft á tíðum ansi langur. Þriðju hveija helgi átti Ninna amma frí og fór þá oft dijúgur tími af hennar fríi í að gera við föt af bömunum því hún sagði að ekki væri hægt að bömin fæm heim með fötin rifín og tætt. Eftir sumarið voru allir krakkarnir farnir að kalla Ninnu ömmu ömmu sína og þótti okkur systkinunum það vera ansi mikill yfirgangur þegar við vorum spurð í skóla um veturinn og jafnvel annars staðar: Hvemig hefur Ninna amma það? Ætlar hún ekki að vera með bamaheimili næsta sumar? Ninna amma passaði það vel að við systkinin nytum ekki neinna forréttinda á sumrin á barna- heimilinu og eitt er víst að ekki vom allir sáttir við það, sérstaklega ekki við bræður. Á sínum yngri ámm var Ninna amma mikil félagsmálakona og studdi hún af alefli verkalýðshreyf- inguna alla tíð. Hún var um tíma varaformaður Verkakvennafélagsins Einingar á Akureyri og tók mikinn þátt í störfum þess félags. Ninna amma var afar sátt við sitt hlutskipti í lífinu, þótt líf hennar hafi ekki verið neinn dans á rósum. Hún var alltaf glöð og góð og minnti Gamli spítalinn oft á tíðum á at- hvarf fyrir fólk sem minna mátti sín og gerði hún ekki greinarmun á fólki. Allir vom jafnir í hennar augum, jafnt ríkir sem fátækir, heilbrigðir sem óheilbrigðir. Minnumst við þess nú að fáar vom helgarnar sem ekk- ert af okkur systkinum var hjá Ninnu ömmu og Eiði. Minnisstæðust em þó jólaboðin hjá Ninnu ömmu og Eiði sem alltaf var beðið eftir og vom fastur punktur til fjölda ára. Að lokum, elsku Ninna amma, þökkum við þér fyrir allar yndislegu samvemstundimar heima og heim- an, alla gleðina og góðvildina sem þú sýndir okkur og reyndir að kenna okkur að lifa eftir. Við vitum að Ásta dóttir þín, sem þú saknaðir svo mikið, tók vel á móti þér. Guð blessi þig, elsku Ninna amma. Ásta, Gunnlaug, Þórhallur, Vilhelm og fjölskyldur. Móðuramma mín, Jónína Jóns- dóttir, er látin. Mig langar að minn- ast þessarar merku konu í nokkmm orðum og þakka um leið fyrir sam- fylgdina þau 45 ár sem ég hef lifað. Það byijaði strax við fæðingu, að Ninna amma fór að skipta sér af mér og mínu lífi. Hún kom að vísu einum degi of seint með fæðingarpakkann sem hún hafði sjálf útbúið fullan af tandurhreinum nýstraujuðum dulum, en hann kom að góðum notum því annað stúlku- barn fæddist þann dag á Ásgarðs- veginum og var Björn Jósep, lækn- ir okkar Húsvíkinga, feginn að grípa til pakkans. Æska mín ein- kenndist af tilhlökkun, nú fæ ég að fara og heimsækja Ninnu ömmu, Pálma afa og Eið á Gamla spítalan- um. Á Akureyri í Innbænum voru líka allir góðu vinirnir, Salla, Bússa, Svala og Sigga Simba og fleiri og fleiri sem vöndu komur sínar á Gamla spítalann. Já, þvílík „stoppi- stöð Hótel Jarðar. Þar voru málin rædd af mikilli innlifun þannig að Diddu litlu þótti oft nóg um. En hún var stolt af Ninnu ömmu sinni sem hafð yfirleitt hæst og einnig síðsta orðið. Svo komu rólegu tímarnir þegar Ninna amma las fyrir okkur upp úr dönsku blöðunum. Við fengum að heyra um heim frægra leikara og hvað konungsfjölskyldurnar höfðu fyrir stafni. Davíð var uppá- haldsskáldið hennar ömmu og þuldi hún okkur langa ljóðabálka eftir hann, einnig ýmiss konar vísur og bænir sem urðu okkur hin besta hjálp við að koma yngri systkinum og síðan eigin börnum í svefn. Og svo var það allur saumaskapurinn. Hversu oft heyrðum við ekki saumavélina suða langt fram á nætur. Það var samt alltaf pláss fyrir sífellt fleiri ömmubörn, manni fannst maður alltaf vera velkominn. Maður fékk kannski að heyra það að maður gæti ekki þetta eða hitt, en undir niðri fann maður stolt þessarar konu yfir sjáifri sér og sínum niðjum. Eftir að ég stofnaði sjálf heimili kom Ninna amma á hveiju sumri til okkar Magnúsar. Hún byijaði yfírleitt á því að kaupa kjötskrokk, þvi ekki ætlaði hún að láta blessuðu bömin halda sér uppi. Síðan byijuðu viðgerir: Saumsprett- ur, göt, bellar, allt var lagað. Lagað var til í öllum skápum og hver hlut- ur hafður á sínum stað. Ég tel það vera mikil forréttindi fyrir börnin mín að hafa haft aðgang að lang- ömmu í svona mörg ár. Ellin kom að vísu til Ninnu ömmu og þá breyttist hún mikið, en hún fékk sitt síðsumar í Bakkahlíðinni hjá Helgu, Sigrúnu og öllum hinum góðu konum sem starfað hafa þar. Þar eignaðsit hún nýja vini á nýju heimili og mikið var gaman að koma í heimsókn. Rifjaður var upp gamli tíminn og stundum sungin heilu „Æfintýrin á gönguför". Nú er Ninna amma sofnuð svefn- inum langa. Hún kenndi okkur barnabömum sínum að trúa á Guð og alla englana sem vaka yfir okk- ur dag og nótt. Hún kenndi okkur að trúa því að við færum upp til Guðs eftir dauðann. Þar dvelur hún nú hjá Ástu mömmu, Bússu, Söllu og öllum þeim mörgu vinum sem hvatt hafa þennan heim. Hvíl í friði, amma mín. Hólmfríður S. Benediktsdóttir. Ævi ömmu minnar og nöfnu, Jón- ínu Jónsdóttur, Aðaistræti 14 á Akureyri, var litríkari en gengur og gerist. Þeir sem kynntust henni dáð- ust að styrk hennar, dugnaði og samviskusemi. Frá blautu barnsbeini fékk hún stærri skammt ábyrgðar en börn almennt. Amma hefði án efa haft ástæðu til að sökkva sér í eymd og sjálfsvorkunn. í staðinn fór þrek hennar í að hlúa að fjölskyldu sinni, vinum og þeim sem minna máttu sín. Ákveðin og af festu tók hún að sér stóran þátt í uppeldi og umsjón barnabarna sinna. Hún var okkar akkeri í stormi, okkar stoð og stytta þegar á reyndi og sú mann- eskja sem sá til þess að alltaf var hægt að halda jólin. Fyrir okkur börnin virkaði amma oft hörð og á stundum gagnrýnin enda fannst henni án efa við ekki kunna að meta þá möguleika sem lífið gaf. Á heimili ömmu bjó einnig Eiður Bald- vinsson, sem var án efa kjölfestan í lífi hennar seinni árin. Saman tóku þau á móti okkur af hlýhug og kærleika. Okkur skorti aldrei neitt þegar við komum til þeirra og róleg- heitin og hlýjan á „Gamla spítalan- um“ á Aðalstræti 14 gleymist ekki. Ég leit alltaf mjög mikið upp til ömmu minnar enda var hún dugleg- asta manneskja sem ég hef kynnst. Allt var í röð og reglu og verkin unnin af samviskusemi þó launin væru iðulega lág. Amma var sauma- kona og ófáar ferðir kom hún til Húsavíkur til þess að hjálpa mömmu minni við sauma, þrif og annað sem nauðsynlegt var á stóru heimili. Þá sat hún við saumavélina fram á kvöld og allir fengu að lokum nýja flík. Að amma harnaði með árunum er ekki svo sérkennilegt. Sorgin barði oft dyra hjá henni. Að þurfa að láta frá sér barn sitt nýfætt hef- ur án efa gengið henni nærri. Eins þegar hún missti elskulegan sonar- son sinn, Helga Ottesen, kornungan. Ég minnist að við sátum á rúminu hennar og grétum, ég hafði misst góðan vin og hún yndislegan sonar- son. Allt í einu hætti amma að gráta og skammaði mig fyrir að vera að væla. „Honum líður vel, skaltu vita,“ sagði hún. Svona viðbrögð sýndi amma stundum og fyrir barn voru þessi viðbrögð erfið að skilja. Örugg- lega eru einhvejir sem skilja þessi viðbrögð enn þann dag í dag. Þegar svo móðir mín og dóttir hennar, Ásta Ottesen, lést virtist amma hafa skilið tilganginn í lífinu og ekkert virtist koma henni úr jafnvægi. En Eiður, svo og sonur hennar Svavar, systir mín Hólmfríður og mágur, svo og frænka Ásta Jónína, tóku að sér að fylla í þær eyður, sem mamma skildi eftir sig. Mamma hafði reynst henni vel og hjálpaði henni í hvívetna. Saman unnu þær verkin, samtaka um að aðeins það besta væri nógu gott. Það einkenndi bæði mömmu og ömmu að berast ekki á og að láta lítið fyrir sér fara. Þær unnu verk sín án þess að kalla á umbun eða hrós. Mamma leitaði oft til ömmu, enda voru þær líkar um margt. Báð- ar myndaríegar húsmæður með eðla lífssýn og tóku ávallt málstað þess sem minna mátti sín. Án efa hefði mátt hlúa betur að þeim báðum þar sem óregla og sjúkdómar ættingja kom niður á þeim. En hver er sinnar gæfu smiður og ömmu tókst að halda ró sinni og áhuga á vellíðan fjölskyldunnar þar til undir það síð- asta. Hún varð þeirrar gæfu aðnjótandi að dvelja síðustu árin á sambýlinu Bakkahlíð í Glerárhverfi. Sú góða umönnun sem hún varð aðnjótandi var starfsfólki heimilsins til sóma og ber að þakka. Vegna langdvala erlendis var ég minna með ömmu en ég hefði óskað. Hún var samt ofarlega í huga mínum sem og Eið- ur. Nú þegar við kveðjum ömmu vil ég minnast sterkrar, duglegrar og gjafmildar konu sem skildi eftir sig spor hvar sem hún fór. Hafðu þakk- ir, elsku amma, fyrir að hafa verið mér fyrirmynd og á þinn hátt kennt að enginn er betri en annar. Öll ljóðin sem þú kenndir mér og sögurnar sem þú sagðir varðveiti ég í minningunni. Eið, Svavari, Grétu svo og öðrum syrgjandum votta ég samúð mína. Lífsbaráttu Jónínu Jónsdóttur okkur til velfarnaðar er lokið. Megi góður guð varðveita minningu hennar. Þú lést þér annt um litla sauðahjörð. Þú lagðir rækt við býli þitt og jörð og blessaðir sem barn þinn græna reit, þinn blómvöll, hvert strá, sem augað ieit. Og þótt þú hvíldist sjálfur undir súð, var seint og snemmt vel að öðrum hlúð, og aldrei skyggði ský né hriðarél á skyldur þínar, tryggð og bróðurþel. Þú hafðir öllum hreinni reikningsskil. í heimi þínum gekk þér allt í vil. Þú hirtir lítt um höfðingsnafn og auð, Því hógværð þinni nægði daglegt brauð. (Davíð Stefánsson.) Hvíl í friði, elsku Ninna amma mín. Jónína Benediktsdóttir. JONINA GUÐRUN JÓNSDÓTTIR í minning vorri munt þú lifa, við munum þína blíðu lund. Nú lítum landamærin yfir og ljúft við söknum þín um stund, en fyrr en varir finnumst við á friðarstundu við lífsins hlið. (Bergþóra Pálsdóttir.) Hún elsku Ninna amma er dáin. Hún var vænst og best. Ég var ekki mjög gömul þegar ég fór að labba ein til hennar ömmu á Gamla spítalann og alltaf var mér tekið opnum örmum og alltaf var amma svo glöð að sjá mig, enda sótti ég það fast að fá að vera hjá ömmu um helgar, þaj var svo rólegt og gott að vera. Á laugardagsmorgnum hlustuðum við saman á óskalög sjúklinga í útvarpinu, hún yfirleitt að sauma eða strauja og ég kúrandi uppi í rúminu hennar. Oft sagði hún eft- ir þáttinn: „Óskaplega er nú sorg- legt, Kristín mín, hvað margir eru veikir." Einmitt svona var amma. Hún mátti hvergi aumt sjá án þess að reyna að rétta fram hjálparhönd og ef hún gat það ekki þá hugsaði hún svo hlýtt og faliega til þeirra sem voru veikir eða eitthvað bját- aði á hjá og aldrei talaði hún illa um nokkra einustu manneskju, hún sá eitthvað gott í öllum. I öllum þeim erfiðleikum sem fjölskylda mín gekk í gegnum þeg- ar ég var barn og unglingur þá var Ninna amma alltaf til staðar og sú stoð og stytta sem hægt var að leita til, sem ég gerði óspart og ég hef oft hugsað um það eftir að ég varð fullorðin hvernig amma gat alltaf verið með okkur um helgar, hún sem var í fullri vinnu. Við vorum stundum tvö, stundum þijú og stundum fleiri hjá henni og aldrei fundum við á henni að þetta væri nokkurt mál. Við vorum alltaf hjartanlega velkomin. Lífið hjá henni Ninnu ömmu var langt frá því að vera neinn dans á rósum og innst inni bar hún djúp sár sem gréru aldrei, en hún bar eins og hetja. Það var henni á móti skapi að tala um sinn sárs- auka og þær raunir sem hún sjálf hafði gengið í gegnum, nema það þjónaði einhveijum tilgangi og gæti gert eitthvert gagn svo að ég ætla ekki að tíunda það frekar hér. Elsku amma, ég gæti skrifað heila bók um þig og þinn stórkost- lega persónuleika, en ég læt hér staðar numið því þú vildir enga lofræðu um þig látna og lagðir mikla áherslu á að við lofuðum fólk á meðan það væri á lífi en ekki iátið. Elsku amma, takk fyrir allt og allt. Tíminn læknar. Tíminn græðir. Tár í kyrrþey mýkir lund. Lífsins innstu leyniþræðir leiða huggun á þinn fund. (Brynjólfur Ingvarsson.) Kristin Ottesen. Elsku Ninna mín. Mig langar með nokkrum fátæk- legum orðum að þakka þér fyrir alla þá góðvild og kærleika sem þú hefur alla tíð sýnt mér. Við höfum gengið í gegnum margt saman um tíðina og minnist ég þess að aldrei skiptir þú skapi, varst alltaf sama indæla og góða Ninna. Til þín var hægt að leita á nóttu sem degi og ekki taldir þú eftir þér sporin. Þú lýstir upp tilveru þeirra sem þig þekktu og gerðir gott úr öllum hlut- um. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér og vitum við báðar að sú gjöf er ómetanleg. Megi guð geyma þig Ninna mín og takk fyrir samfylgdina. Þeir ætla að syngja þér söngva og segja þér, hvað þú ert góð og eigir sál mína alla og allt mitt hjarta blóð. (Davíð Stefánsson;) Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu. (Davíð Stefánsson.) Anna María Þórhallsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.