Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 43 ÞURÍÐUR SVAVA ÁSBJÖRNSDÓTTIR + Þuríður Svava Ásbjörnsdóttir fæddist á Dísar- stöðum í Sandvík- urhreppi 30. mars 1933. Hún lést á Borgarspítalanum 13. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sigríð- ur Guðmundsdóttir frá Sólheimum í Hrunamanna- hreppi og Ásbjörn Guðjónsson frá Dís- arstöðum í Sand- víkurhreppi. Þau eru bæði látin. Hún fluttist sex vikna gömul með foreldrum sínum til Hafnar- fjarðar, en síðar til Reykjavíkur. Systkini hennar eru: Hrafnhild- ur, hennar maður er Olafur Ágústsson, og Guðmundur Gunnar, hans kona er Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir. Hinn 9. októ- ber 1954 giftist Þuríður Svava eftirlifandi eiginmanni sínum Gústav Adolf Bergmann, sem er frá Hámundar- stöðum í Vopnafirði. Böm þeirra eru: 1) Sigurbjörn Svavar, f. 27.7. 1955, kona hans er Laufey Auð- ur Kristjánsdóttir og eiga þau fjögur böm. 30.6. 1960, kona hans er Margrét Þóra Ein- arsdóttir og eiga þau tvö böm. 3) Ásdís, f. 6.6. 1961, hennar maður er Helgi Bragason og eiga þau tvö böm. Upp- komin dóttir Ásdísar er Svava Ingþórsdóttir, unnusti hennar er Guðmundur Wemer Emilsson. 4) Gunnar, f. 26.11. 1962, ókvæntur og bamlaus. Þau hjón, Þuríður Svava og Gústav, fluttu til Suðurnesja 1958 og settust að í Keflavík 1963. Útför Svövu verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. FALLIN er frá, langt um aldur fram, aðeins 62 ára, ein elskuleg- asta kona og nágranni sem hægt er að hugsa sér, Svava Ásbjörns- dóttir, Mávabraut 8d f Keflavík. Við hjónin erum vitanlega harmi slegin eftir þau tíðindi er okkur bárust laugardaginn 13. janúar sl., að Svava væri látin. Þó kom þessi harmafregn okkur ekki á óvart fremur en ættingjum hennar, sem, eins og við, reyndu að halda í þá veiku von, að um einhvern bata gæti orðið að ræða, er tímar liðu fram. Við hjónin höfum búið eins nærri þeim Svövu og Gústav og hægt er að komast, í orðsins fyllstu merk- ingu, því einungis einn veggur skil- ur íbúðir okkar að, þau í raðhúsinu á Mávabraut 8d og við á 8c, og geta má nærri, að nokkur samgang- ur hafi verið okkar á milli, í meira en 30 ár, sem við höfum búið þama. Þó var hann mun meiri, þegar böm- in okkar voru lítil ög léku sér sam- an, oftast í mesta bróðerni. Er þau uxu úr grasi hélst áfram mikil vin- átta á milli þeirra og ríkir enn. Það er margs að minnast frá þeim tíma, sem við höfum verið nágrannar, og er þá einungis um góðar minningar að ræða, því það bar aldrei skugga á samskipti okkar við þau. Við Gústav vorum sam- starfsmenn í lögreglunni á Keflavík- urflugvelli í hartnær 40 ár eða þar til ég hætti þar störfum sakir ald- urs og má nærri geta, hvort slíkt samstarf hafi ekki átt sinn þátt í að efla sambandið og vináttuna. Guðrún, konan mín, og Svava voru einnig alla tíð, frá upphafi til enda, einstaklega góðar vinkonur og vildu allt fyrir hvor aðra gera sem þær máttu. Aldrei gleymi ég því, þegar Svava kom í kaffi til Gunnu með einhveijar fréttir og umræðuefni með sér og ég sat uppi, við tölvuna eða lestur dagblaða, að ég heyri oftar en einu sinni svo hvellan og dillandi hlátur frá Svövu, sem virk- aði á mig sem bjartur, heitur sólar- geisli í skammdegi og yljaði mér um hjartaræturnar í hvért sinn. Reyndar sá ég hana aldrei öðru vísi en brosandi eða hlæjandi, enda var hún einstaklega hláturmild og þurfti lítið til að laða fram hlýtt bros á varir hennar. Alla jafnan var hún glettin og spaugsöm og sá oftast björtu hliðarnar á tilverunni. Ef ég ætti að telja upp alla kosti Svövu þyrfti greinin að vera helm- ingi lengri. Læt ég því nægja að tilgreina nokkra, sem ég er viss um að geta staðið við. Hún var einstak- lega trygglynd gagnvart vinum sín- um og vandamönnum, hlý í viðmóti við alla, sem hún átti samskipti við, með afbrigðum gjafmild, sem sann- aðist best á því, að ef einhver í okkar fjölskyldu (hvað þá hennar) átti stórafmæli og ef barn fæddist eða var skírt komu ætíð svo dýrar gjafir frá Svövu, að lá við ofrausn og gerði það að verkum, að við stóð- um ætíð í ómældri þakkarskuld við hana. Hún var fjarskalega bamgóð og umgekkst börn með mikilli natni og hlýju, enda hefði hún ekki getað verið dagmamma í fjölmörg ár, ef hún hefði ekki verið þeim kostum búin. Oft gætti hún fimm til sex barna samtímis fyrir vandalausa og var ekki annað að sjá en bömin kynnu vel að meta viðmót hennar og hjartagæsku. Ekki er ósennilegt, að blessuð bömin eigi eftir að sakna hennar sárt. Telja mætti upp fleiri kosti hennar, en þetta læt ég nægja. Sjálfsagt hefur hún haft einhverja ókosti, eins og við öll, annað væri ekki mannlegt, en þá bar hún ekki á borð fyrir óviðkomandi. Við urðum aldrei vör við neitt annað en gott í fari hennar og eru minningar okkar tengdar því. Svava átti mikinn þátt í að halda fjölskyldu sinni vel saman og ekki veit ég betur en hjónaband þeirra Gústa hafi verið reist á traustum gmnni, því þau voru samhent í öllu og hann létti undir með henni, eins og kostur var. Eins og börnin þeirra kallaði hann hana oft „mömmu“ sem sýnir best, hversu mikils hann mat hana. Oft var gestkvæmt hjá þeim Svövu og Gústa enda þau höfðingjar heim að sækja, veittu öilum vel í mat og drykk og ekki síður með hlýju hugarfari og skemmtilegum umræðum um allt milli himins og jarðar. Þótt börnin þeirra væru flest flutt að heiman komu þau oft í heim- sókn með sín böm, því þar var gott skjól að finna, sem Svava var. Það verður tómlegt á Mávabraut 8, eftir að Svava er horfin þaðan. Má helst líkja því við, að slokknað hafi á sólinni um langa hríð. En í dag kveðjum við Svövu, eina elsku- legustu konu, sem við höfum kynnst á lífsleiðinni, með sárum söknuði og treystum því, að góður guð gefi Gústa og ollum afkomendum þeirra hjóna allan þann styrk, sem hann hefur yfir að ráða til að létta þeim lífið ný og í komandi framtið. Megi minningin um ástríka eiginkonu og móður búa um sig í hjarta þeirra og veita þeim hugarró. Við hjónin kveðjum Svöyu með söknuði og sárum trega og þökkum henni fyrir allar þær ánægjustundir, sem hún veitti okkur með nærveru sinni. Sigurgeir og Guðrún. Okkur systkinin langar í fáum orðum að minnast hennar Svövu sem okkur þótti alla tíð svo vænt um. Við sem vorum að alast upp á Mávabraut í Keflavík fyrir tveim til þrem áratugum eigum öll hlýjar og góðar minningar um Svövu. Máva- braut, sem á þeim tíma samanstóð aðallega af þremur nýlega byggðum raðhúsum, var mjög sérstakt samfé- lag á þessum árum og þar skipaði Svava alveg sérstakan sess. Hverfið var fullt af krökkum sem léku sér saman í móanum sem umlukti það og öll vorum við heimagangar hvert hjá öðru. Þetta var alveg sérstak- lega skemmtilegt umhverfí að alast upp í. Gekk oft mikið á í eldhúsinu hjá Svövu þegar við vorum þar sam- ankomin. Þá gekk kókómaltið og ristaða brauðið ómælt ofan í krakkaskarann og hló Svava þá oft dátt yfír vitleysunni sem gat oltið upp úr okkur krökkunum. Þarna kom vel í ljós hversu stóran sess bömin og þeirra hugarheimur skip- aði í hjarta Svövu. Börnum leið allt- af vel í hennar návist. Enda átti hún síðar eftir að taka að sér dagvist barna og passaði þá meðal annars böm þeirra bama sem áður höfðu setið hjá henni í eldhúsinu og notið þess að vera í návist hennar. Ekki er hægt að sleppa því að minnast á barnaafmælin fjörugu á Mávabraut 8D, því þau voru alltaf alveg einstaklega vel heppnuð. Það var líka alveg sérstakt tilhlökkunar- efni að fá sneið af marglitu, rönd- óttu lagtertunni sem engan sveik. Fyrir þremur áram fékk heimilis- fólkið á Mávabaut 8D þá frábæra hugmynd að bjóða heim „krökkun- um“ úr hverfinu og endurnýja göm- ul kynni. Var mikið hlegið þegar riijuð vora upp gömul prakkarastrik og ævintýri. Það var eins og við hyrfum öll aftur til uppvaxtarár- anna í því sérstaka andrúmslofti sem þama myndaðist. Það var okk- ur öllum mikils virði að hittast aftur í þessum góða félagsskap þar sem Svava var eins og ævinlega hrókur alls fagnaðar. Þó að leiðir skilji nú munum við alltaf eiga góðar minn- ingar um Svövu. Með þessum orðum viljum við fyrir hönd fjölskyldu okkar votta ykkur öllum sem um sárt eigið að binda okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur. Guðbjörg, Jón Örn og Magnús. Elsku „amma“ Svava. Ég mun alltaf sakna þín í hjarta mínu því þú varst mér alltaf svo kær á meðan ég var í pössun hjá þér. Þú varst eins og mín þriðja amma og hjá þér var alltaf gott að vera í þau fimm ár sem þú passaðir mig. Þakka þér fyrir það og allar ógleymanlegu stundirnar. Hvíl þú í friði. Þín, Bergný Ösp. Tárin leka hægt og rólega niður kinnamar, hugurinn er að melta það sem erfitt er að skilja. Hjartað minn- ist og líkaminn titrar. Hún amma Svava er farin af okkar tilverustigi. Af hveiju? Þó var þessi yndislega manneskja ekki skyld mér. Hún var dagmamm- an mín á yngri árum en ég var ekki lengi að tileinka mér hana sem ömmu. Þegar ég hóf skólagöngu hélt ég heimsóknum mínum áfram og hélt vinskap við elstu barnabörn hennar. Þegar ég heimsótti hana eða hringdi fannst mér ég vera að tala við jafn- aldra vinkonu mína. Hún var svo skilningsrík ög skemmtileg. Við unglingarnir pælum mörg í því hvort það sé líf eftir dauðann. Á meðan við erum í vafa getum við verið sannfærð um eitt andlegt til- verustig. Það eru minningar í hjarta okkar eftirlifandi. A meðan við minnumst hennar lifir hún' í huga okkar og hjarta. Ég sendi afa Gústa, Asdísi, Sig- urbirni, Gunnari, Hjalta og fjöl- skyldum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minning ömmu Svövu lifa um eilífð. Þórdís Þórhallsdóttir. Ég var búinn að vera á þönum um allan bæ á Þorláksmessu, glaður í bragði og hlakkaði óvenju mikið til jólanna miðað við undanfarin ár. Þegar komið var undir kvöld og ég að búa mig undir brottför til Kefla- víkur, þar sem ég ætlaði að dvelja hjá foreldrum mínum á Mávabraut 8c yfír hátíðimar bárust mér þær þau válegu tíðindi að hún Svava á Mávabraut 8d, móðir míns besta æskuvinar, hefði veikst alvarlega og væri vart hugað líf. I einu vet- fangi dofnuðu jólaljósin og tilhlökk- unin eftir jólunum breyttist í gremju og kvíða. Það varð ekkert við neitt ráðið og nú þegar nýtt ár hefur göngu sína er Svava látin og ljóst að við fáum ekki notið návistar hennar framar í þessu lífi. Það er erfítt að hugsa sér Máva- brautina án Svövu, því þau era vel á fjórða tug árin sem Svava og Gústi hafa búið á Mávabraut 8d. Æskuárin verða ekki rifjuð upp öðruvísi en Svava komi þar við sögu því við Gunni, yngsti sonur hennar, voram óaðskiljanlegir fram á ungl- ingsár. Þeir vora ófáir dagarnir sem ég dvaldi heima hjá Gunna þar sem við lékum okkur daginn út og inn með tindáta, söfnuðum leikara- myndum, teiknuðum, skoðuðum hasarblöð, horfðum á kanasjónvarp- ið og sigraðum heiminn í huganum. í öllum hamagangnum og tillitsleysi æskunnar var Svava stæðileg og góð kona sem sá um að fullnægja framþörfum okkar svo við gætum haidið áfram að vera hasarblaða- hetjur í okkar eigin ímyndaða hug- arheimi. Þegar klukkan sló fjögur kallaði hún okkur í drekkutíma, eins og við kölluðum það, og á meðan við Gunni skoðuðum hvor sitt hasar- blaðið og þömbuðum kókómaltið stóð Svava við brauðristina og rist- aði hveija brauðsneiðina á fætur annarri handa okkur. Hún eins og leit á það sem sitt hlutskipti í lífínu að næra og passa börn, ekki bara sín eigin, heldur hvert það bam er rataði inn á hennar heimili. Fyrir meira en tuttugu áram gerði hún það að fullu starfi að passa böm og hélt því áfram allt til enda. Svava var mjög eftirsótt dagmóðir og kom- ust jafnan færri foreldrar að með börn sín en vildu. Það gat verið hávaðasamt, enda börnin flest mjög ung en Svava hafði einstakt lag á þeim og kölluðu þau flest, ef ekki öll, hana Svövu ömmu. Svava var einstaklega glaðlynd kona og hafði hvellan og smitandi hlátur sem kom manni ávallt í gott skap. Þótt heimsóknunum á Máva- brautina hafi fækkað eftir að ungl- ingsáranum sleppti fann maður ávallt fyrir hlýhugnum. f hvert sinn er tímamót hafa orðið í mínu lífi hafa mér verið færðar gjafír frá Svövu. f hennar augum var ég eflaust eins og einn af hennar son- um, enda varði ég stóram hluta æsku minnar inni á eða kringum hennar heimili. Hin síðari ár var það fastur liður að fá þéttingsfast faðm- lag frá Svövu á miðnætti á gamlárs- kvöld sem gaf manni kraft og trú á nýja árið. Það er sárt til þess að vita að fá ekki þetta faðmlag oftar sem svo fuilt var af ástúð og hlýju. Nú ertu horfín úr þessari jarð- vist, elsku Svava. Ég vil þakka þér þær stundir sem ég hef átt í návist þinni. Ég veit að ef til er Guð þá ert þú hjá honum. Ég veit að ef til era englar þá ert þú einn af þeim og ef til era lítil englaböm þá era þau nú í pössun hjá þér. Þinn Þorri. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, ÞÓRUNNAR JÓNU ÞÓRÐARDÓTTUR, Hringbraut 50. Sigurmundur Guðnason, Guðni Sigurmundsson, Edda Sveinbjörnsdóttir, Garöar Guðnason, Karólfna Þórunn Guðnadóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við and- lát og útför móður minnar, tengdamóö- ur, ömmu, langömmu og langa- langömmu, ULLU BENDIXEN, Utterslev Torv 20, Kaupmannahöfn. Inger Guðmundsson, Engilbert Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns og bróður okkar, SIGURPÁLS MARINÓS ÞORKELSSONAR, Aflagranda 40, Reykjavfk. Svava Aradóttir og systkini. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR EIRÍKSDÓTTUR frá Túnsbergi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra- húss Suðurlands og dvalarheimilisins á Blesastöðum. Jóhanna M. Þorgeirsdóttir, Eiríkur Þorgeirsson, Sigrfður Ó. Þorgeirsdóttir, Óttar Gunnlaugsson, Siggeír Þorgeirsson, Kjartan J. Þorgeirsson, Sólborg Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.