Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 2
J 2 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Umboðsmaður barna ritar samkeppnisráði Auglýsingar ofbeldismynda komi ekki fyrir sjónir bama UMBOÐSMAÐUR bama hefur farið fram á að samkeppnisráð banni birtingu auglýsinga frá kvikmyndahúsum um ofbeldiskvikmyndir, ekki ætlaðar bömum 12 ára og yngri, í sjónvarpi, kvikmyndahúsum og á myndböndum. Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna, segir í bréfí til samkeppnisráðs að fyrst og fremst sé vísað til auglýsinga, sem birtar séu í sjónvarpi fyrir klukkan 22 að kvöldi og auglýsinga í kvikmynda- húsum, sein sýni brot úr væntanlegum kvik- myndum á kvikmyndasýningum ekki ætlaðar bömum yngri en 12, 14 eða 16 ára. Þórhildur rekur að samkvæmt samkeppnislög- um skuli auglýsinganefnd, sem sé samkeppnis- ráði til ráðgjafar, fjalla um auglýsingar og gæta þess að þær veiti ekki rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar og bijóti ekki að öðm leyti í bága við ákvæði 21. og 22. gr. nefndra laga. Hinn 27. mars 1995 hafí Samkeppnisstofnun sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segi m.a. að auglýsinganefnd hafi hinn 21. sama mánaðar vakið athygli Ríkisútvarpsins og kvikmyndahús- anna á 22. gr. samkeppnislaga og beint þeim tilmælum til þessara aðila að virða framangreint lagaákvæði og gæta þess að ekki komi fram í auglýsingum atriði sem brjóti í bága við það. Tilmæli þverbrotin „Eins og Samkeppnisráði má vera ljóst þá hafa framangreind tilmæli auglýsinganefndar verið þverbrotin, bæði af Ríkissjónvarpinu og kvikmyndahúsunum, “ segir í Þórhildur í bréf- inu. Hún fer í framhaldi af því fram á að Sam- keppnisráð banni birtingu auglýsinga frá kvik- myndahúsum um ofbeldismyndir, ekki ætlaðar bömum 12 ára og yngri, í sjónvarpi, kvikmynda- húsum og á myndböndum. Hún segir að ekki þurfi að fara mörgum orð- um um þau skaðvænlegu áhrif sem ofbeldi sé talið hafa á viðkvæman barnshuga sem sé í mótun. Skynjun og skilningur ungra barna sé allt annar en fullorðinna. Auglýsingar um ofbeld- ismyndir, hvort sem er í sjónvarpi, kvikmynda- húsum eða á myndböndum, hafí því án nokkurs vafa óheillavænleg áhrif á börn. Þórhildur vekur að lokum athygli á ákvæði 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna, sem tók gildi á íslandi, 27. nóvember árið 1992 en það hljóði þannig: „Það sem bami er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opin- bera eða einkaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.“ KOSNINGABARÁTTU A-lista og B-lista um forystu í Verkamannafélaginu Dagsbrún lauk með fundi í Austurbæjarbíói í gær og var áhersla lögð á kjarabaráttu. Ræðumenn Stjórnarkjör í Dagsbrún A-lista hömruðu á því að hans aðall væri „reynsla og róttæk endurnýjun". Hjá B-lista var viðkvæðið að kjör A-lista jafnaðist á við kyrrstöðu. Kosningarnar hefjast í dag og Morgunblaðið/RAX lýkur á morgun. Hér sjást Dagsbrúnarmenn fylgjast með málflutningi frambjóðenda. Ábyrg/12 Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Rekstrarhall- inn 500 millj- ónir króna Gjaldskrár veitufyrirtækja óbreyttar FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavík- urborgar fyrir árið 1996 var lögð fram til fyrri umræðu á fundi borg- arstjómar í gær. Þar kemur fram að áætlaðar heildartekjur borgar- sjóðs em tæpir 17,3 milljarðar en þar af era skatttekjur rúmir 11,2 milljarðar og rekstrargjöld era áætluð um 9,8 milljarðar. Rekstrar- gjöld að frátöldum vöxtum, sem hlutfall af skatttekjum, eru því 79% og sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri að það væri umtals- verð breyting frá fyrri áram en árið 1993 var hlutfallið 84% og 93% árið 1994. Gert er ráð fyrir að skuldir hækki um 500 milljónir á árinu og hefur halli borgarsjóðs ekki verið minni í fímm ár. Að sögn borgarstjóra er ekki gert ráð fyrir breytingum á gjaldskrám veitufyr- irtækja á árinu. Auknar skuldir - hærri skattar Borgarstjóri sagði að fjárhags- áætlunin markaði áframhald þeirr- ar stefnu sem framkvæmd hefði verið á síðasta ári, sem einkenndist af aðhaldi og spamaði í borgar- rekstri. Reynt yrði að ná tökum á fjármálastjórn borgarinnar og draga úr skuldasöfnun. „Þetta hef- ur tekist nokkuð vel,“ sagði Ingi- björg Sólrún. „Bæði árið 1995 og væntanlega í framhaldi árið 1996 þó að ekki hafi verið unnt að stöðva algerlega þessa skuldasöfnun." Heildar- skuldir 1990-95 borgJAVÍKUR' Rekstrargjöld sem hlutfall af skatttekjum uw—™* 1988-96 97% 1990 '91 '92 '93 '94 '95 1988 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 Fram kemur að heildartekjur era 17,3 milljarðar, þar af eru skatttekj- ur 11,2 milljarðar og hækka um liðlega 400 milljónir króna árið 1996 frá áætlaðri útkomu ársins 1995. „Þá verður að reikna með að tekjur af holræsagjaldi koma til frádráttar á kostnaði vegna hol- ræsaframkvæmda en eru ekki reiknaðar sem skatttekjur enda kemur fram í álitsgerð félagsmál- ráðuneytisins að þetta séu þjónustu- gjöld en ekki skattar," sagði borg- arstjóri. í bókun sjálfstæðismanna, sem lögð var fram á fundinum í gær, segir að sjálfstæðismenn telji það úrlitaatriði að við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar verði markvisst stefnt að lækkun skatta og skulda borgarbúa. Sú fjárhagssáætlun, sem R-list- inn leggi fram, vinni gegn þessari stefnu. Meirihlutinn hyggist auka skuldir um 500 milljónir króna, þrátt fyrir hækkun þjónustugjalda og 1,5 milljarða króna greiðslu fyr- irtækja borgarinnar í borgarsjóð. ■ Sjálfvirkur vöxtur/6 Sérfræðing- ur vill koma frá Banda- ríkjunum BANDARÍSKUR sérfræðingur í hjartasjúkdómum bama við Children’s Hospital í Boston hefur boðist til að gera hjartaað- gerð á Marín Hafsteinsdóttur, 8 mánaða frá Eskifirði, á Land- spítalanum. Hróðmar Helgason, sérfræðingur í hjartasjúkdómum bama, segir ódýrara og ákjósan- legra fyrir Marín og foreldra hennar að aðgerðin sé gerð hér en í Boston. Stanton var læknir Marínar þegar hún gekkst undir langa skurðaðgerð vegna hjartagalla í Boston í nóvember sl. „Endan- leg ákvörðun verður tekin fljót- lega og hægt yrði að gera að- gerðina í lok febrúar eða byijun mars,“ sagði Hróðmar. „Sjúkrahúsdvöl erlendis myndi aldrei fara niður fyrir 1 '/2 millj. á meðan kostnaður vegna aðgerðarinnar hér færi af fjárframlagi til spítalans," sagði Hróðmar. Hann áætlaði að annar kostiiaður vegna komu Perry, færi ekki upp fyr- ir 150.000 kr. Jafnréttisfulltrúi Uppsögn vegna óánægju JÓHANNA Magnúsdóttir, jafn- réttisfulltrúi Reykjavíkur, hefur sagt starfí sínu lausu. I uppsagnarbréfi til borgar- ráðs og borgarstjóra segir Jó- hanna, sem tók við starfinu 1. maí 1994, að frá byijun hafi skort mjög á að jafnréttisnefnd markaði stefnu og tæki af skar- ið um verkefni sem vinna þyrfti að. Hún hafí fengið fá tækifæri til að vinna að stefnumörkun. Við gerð nýrrar jafnréttisáætl- unar hafi hún t.d. verið áheyrn- arfulltrúi í starfshópi. Ýmsar hugmyndir hennar hafí sömu- leiðis verið kæfðar í fæðingu. „Formaður nefndarinnar hef- ur iðulega gert mér erfitt fyrir, ýkt og jafnvel sagt ósatt um meintar misfellur í störfum mín- um,“ segir Jóhanna í bréfinu. Upplagseftirlit Verslunarráðs Upplag Morgunblaðs- ins 52.482 eintök í SAMRÆMI við reglur upp- lagseftirlits Verslunarráðs Is- lands hefur trúnaðarmaður þess, Reynir Vignir, lögg. end- urskoðandi, sannreynt upplag Morgunblaðsins í mánuðunum júlí-desember 1995. Að meðaltali voru seld 52.482 eintök á dag. Á sama tímabili 1994 var salan 51.586 eintök daglega að meðaltali. Söluaukningin á tímabilinu er 896 eintök á dag að meðaltali. Upplagseftirlit VÍ annast eft- irlit fyrir þá útgefendur sem óska eftir staðfestingu hlut- lauss aðila á upplagi viðkom- andi blaða og rita. Morgunblað- ið er eina dagblaðið sem nýtir sér þessa þjónustu nú, en þar að auki nokkur tímarit og all- mörg kynningarrit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.