Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska Jæja, hvernig var fyrsti dagnrinn þinn í réttar- Þú hefðir sennilega ekki átt að bjóða henni hunda- salnum? kex... Eg held að dómarinn hati mig... BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Vér fiskarnir... Frá Ásgrími Sverrissyni og Gísla Snæ Eríingssyni: ARNALDUR Indriðason kvik- myndagagnrýnandi Morgunblaðs- ins gerði okkur, „félögunum fyndnu", sem hann kýs að kalla svo, mikinn heiður síðastliðinn laugardag með því að svara grein okkar frá 3. janúar hvar við gerð- um að umtalsefni dóm hans um kvikmyndina „Un Coeur en Hi- ver“. Rúmum mánuði áður hafði verið fundið að vinnubrögðum hans í opnu bréfi til ritstjóra Morg- unblaðsins, en fátt orðið um svör. Eitthvað í okkar skrifum varð þó til þess að Arnaldur vaknaði af dvala og er það vel. Hitt þótti okkur verra að Am- aldur virðist halda að við unum honum ekki að hafa sínar skoðan- ir í friði. Það er misskilningur. Málið snýst um trúverðugleika gagnrýnandans, þær forsendur sem að baki skoðunum hans liggja. Sér til vamar nefnir Arnaldur tvo þekkta bandaríska kvikmynda- gagnrýnendur, Vincent Canby og Pauline Kael. Ekki getum við var- ist þeirri hugsun að honum sé far- ið líkt og hornsílinu sem svamlaði um og hugsaði með sér: „Hér syndum vér fiskarnir." í skrifum Canby og Kael kemur fram djúp þekking, ástríða og persónuleg sýn á kvikmyndir. Skrif þeirra hafa þyngd, það er hægt að vera þeim hjartanlega ósammála eða öfugt en þau hræra upp í lesandanum. Okkur hefur fundist allnokkuð á þetta skorta hjá Arnaldi, sem og raunar fleirum sem fjalla um kvik- myndir hér á landi. Alltof oft er okkur boðið uppá skrif um kvik- myndir sem einkennast af metnað- arieysi, áhugaleysi, sleggjudóm- um, vanþekkingu á kvikmynda- sögu og fjasi um aukaatnði. Allir eru fijálsir að skoðunum sínum en sú krafa er gerð að skoðunum þeirra, sem fjalla um kvikmyndir opinberlega, fylgi slagkraftur og þekking á miðlinum. í stuttu máli: Fagmennska. Arnaldur gerði ein- mitt vel í því að lesa skrif ein- hverra af þeim ágætu gagnrýn- endum sem við nefndum í grein okkar, sem og fleiri góðra manna. Af þeim má ýmislegt læra um vinnubrögð. Afsakanir um tíma- skort eru ekki teknar gildar. Um- ræða um kvikmyndir á íslandi er á lágu plani og það er vont. Fólk sem unnir kvikmyndum fer á mis við vitræna umfjöllun og ekki síð- ur íslenskir kvikmyndagerðar- menn, sem er bráðnauðsynlegt að eiga bakland í frjórri umræðu og markvissri gagnrýni, bæði um eig- in myndir sem og erlendar. Arnaldur tekur fram í grein sinni að honum hafi verið vel kunn- ugt um þær góðu viðtökur sem „Un Coeur en Hiver“ fékk á sínum tíma. Það er miður að hann hafi ekki séð ástæðu til að geta þess í gagnrýni sinni. Kvikmyndir frá Hollywood eru bakkaðar upp af öflugri og vel smurðri áróðursvél. í kringum þær er stjörnufans og dýrðarljómi sem gefur þeim ábúð- armikinn svip. Kvikmyndir frá öðrum þjóðum njóta ekki þess háttar bakhjarla. Því er ekki til of mikils mælst að þær fái svolít- inn inngang og kynningu hjá þeim sem um þær fjalla, óháð skoðunum gagnrýnandans á hvernig til tókst. Kvikmyndagagnrýni er sérhæfð blaðamennska og snýst því einnig um að miðla upplýsingum. Kvikmyndagagnrýnandinn ber mikla ábyrgð — fyrst gagnvart lesendum sínum en ekki síður gagnvart viðfangsefni sínu. Arn- aldur fær, líkt og Canby, borgað fyrir að segja skoðun sína á kvik- myndum. Hann fær væntanlega líka borgað fyrir að hafa umsjón með „kvikmyndasíðu" Morgun- blaðsins á sunnudögum. Þar gefur oft að líta þýddar klausur úr er- lendum kvikmyndablöðum án þess að heimilda sé getið. Þetta er auð- vitað afleit blaðamennska og fyrir neðan virðingu Morgunblaðsins. Sama má segja um heilsíðukynn- ingar Morgunblaðsins á væntan- legum Hollywood-kvikmyndum sem unnar eru uppúr kynningar- efni dreifingaraðilanna án þess að það sé tekið fram. í því rými sem Morgunblaðið ætlar undir kvik- myndaumfjöllun viljum við sjá kræsilegra efni. Greinar um strauma og stefnur, vel unnin við- töl við þá sem starfa við kvikmynd- ir og vandaðar umfjallanir um at- hyglisverðar myndir. Óskandi væri að Morgunblaðið færi að dæmi helstu dagblaða Evrópu, sem gera stórum kvikmyndahátíðum á borð við Cannes, Berlín og Feneyjum ítarleg skil með daglegri umfjöllun meðan á þeim stendur. Sömuleiðis mætti Morgunblaðið flytja okkur umfjallanir um kvikmyndahátíðir sem standa okkur enn nær, svo sem í Gautaborg og Haugasund. Islenskar kvikmyndir eru þáttak- endur í hinni evrópsku kvikmynda- flóru og er nauðsynlegt að finna til þess, auk þess að almenningi sé þetta samhengi ljóst. Þar geta fjölmiðlar leikið stórt hlutverk með því að fjalla um kvikmyndir af þekkingu og næmi. Það er hárrétt hjá Arnaldi að starfi hans fylgi að mynda sér skoðanir og vissulega er gagnrýni aðeins skoðun þess sem setur hana fram. En þegar hann veitist að kvikmynd, sem hlotið hefur frá- bærar undirtektir, með illa grund- uðum fullyrðingum kallast það að skjóta sjálfan sig í fótinn faglega. Ekki bætir úr skák að um leið og hann biðst afsökunar á einni af mörgum fljótfæmislegum fullyrð- ingum sínum í dómnum, kemur hann með enn aðra um kvikmynd- ina „Benjamín dúfu“ sem kemur málinu ekkert við. Er ekki kominn tími til að taka kvikmyndina svolítið alvarlega nú þegar hún hefur skriðið á annað árhundraðið? ÁSGRÍMUR SVERRISSON, GÍSLI SNÆR ERLINGSSON, kvikmyndagerðarmenn. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt f upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.