Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 23 ERLENT STUTT Iðnjöfur eftirmaður Tsjúbaís? EINN af helstu iðnjöfrum Rússa, Vladimír Kadanníkov, er talinn líklegasti eftirmaður Anatólíjs Tsjúbaís, sem sagði af sér embætti fyrsta aðstoð- arforsætisráðherra Rússa fyrr í vikunni. Kadanníkov er for- stjóri stærsta bílaframleið- anda landsins, AvtoVAZ. * Ovænt vaxta- lækkun í Bretlandi BRESKA stjórnin fyrirskipaði í gær óvænta vaxtalækkun, úr 6,5% í 6,25%. Var ástæðan sögð sú að minnka yrði hættu á verðbólgu og hægja á hag- vexti. Lækkunin kom mjög á óvart og eru uppi getgátur um að fjármálaráðherrann Kenneth Clarke hafi ákveðið hækkunina til að bæta ímynd stjórnar íhaldsmanna. Fjármálaráð- herra Finna á útleið IIROViinanen, fjármálaráð- herra Finnlands, tilkynnti í gær að hann hygðist segja af sér á næstunni. Sagði hann að líklega myndi dómsmála- ráðherrann Sauli Niinisto taka við af honum. Viinanen hefur ekki farið dult með löngun sína að draga sig út úr amstri stjórnmálanna og hefur gefið í skyn að hann hyggist hefja störf hjá trygg- ingafyrirtæki. Klerkur fær lífstíðardóm SHEIKH Omar Abdel- Rahman var á miðvikudag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bandaríkj- unum fyrir að hafa lagt á ráðin um hi-yðjuverk sem hefði getað lagt miðborg New York í rúst og orðið þúsundum að aldurtila. Abd- el-Rahman er egypskur klerk- ur múslima en auk hans voru níu fylgismanna hans dæmd- ir, einn í lífstíðarfangelsi, hin- ir til 25-28 ára fangavistar. Þeir voru m.a. fundnir sekir um að hafa ætlað að sprengja upp byggingu Sameinuðu þjóðanna, brýr og undirgöng, auk þess sem þeir hefðu lagt á ráðin um morð á stjórnmála- mönnum og trúarleiðtogum. Dæmdur fyrir njósnir MAÐUR sem sem staðinn var að gagnnjósnum á tímum kalda stríðsins, var í gær fundinn sekur um að hafa selt óvinum Vestur-Þýska- lands, sem þá var, ríkisleynd- armál. Var maðurinn, Hans- Joachim Amborst, dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að hafa njósnað fyrir Stasi frá 1981- 1989. Abdel-Rahmán Reuter Giftusamleg björgun ÞYRLA, sem var á leið frá Stafangri í Noregi út í borpall á Gyda-olíusvæðinu, hrapaði eða nauð- lenti í Norðursjó í gær, í um 40 mílna fjarlægð frá borginni. Flaut hún nokkra stund og tókst mönnun- um að komast ómeiddum í tvo björgunarbáta. Myndin var tekin er komið var með þá til Sola. Lögbann á bókum Mitterrand París. Reuter. DÓMSTÓLL í París ákvað í gær að setja lögbann á bók læknisins Claude Gubler þar sem fjallað er um hvernig Framjois Mitterrand, fyrrver- andi Frakklandsforseti, leyndi því í rúman áratug að hann væri haldinn krabba- meini. Gubler heldur því með- al annars fram í bókinni að forsetinn hafi verið ófær um að stjórna landinu vegna veikinda hluta síðara kjör- tímabilsins. Fjölskylda Mitterrands krafðist þess að lögbann yrði sett á bókina „Leyndarmálið mikla“ á þeirri forsendu að læknirínn hefði rofíð trúnað sinn við sjúklinginn og birt upplýsingar um einkahagi forsetans í heimildarleysi. Georges Kiejman, lögfræð- ingur Mitterrand-fjölskyld- unnar, sagði að með bókinni væri verið að „henda gijóti í grugguga tjörn“. Lögfræð- ingur Gublers færði á móti rök fyrir því að almenningur ætti rétt á að vita hið sanna um veikindi forsetans. Segir læknirinn að forsetinn hafí viljað láta hið sanna koma í ljós. sem pií - kjarni málsins! hn. viit!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.