Morgunblaðið - 23.01.1996, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný þjónusta
í stafræna
símkerfinu
PÓSTUR og sími hefur auglýst
nýja þjónustu í stafræna sím-
kerfinu sem felst í því að þegar
hringt er í símanúmer sem er
á tali er unnt að leggja á og
fá síðan hringingu þegar við-
komandi hefur lokið símtali
sínu.
Þetta er gert með þeim hætti
að ýtt er á tölustafinn 5 og
lagt á, ef símanúmer sem
hringt er í er upptekið. Þegar
símtali A er lokið hringir síminn
hjá B sem var að reyna að ná
sambandi við hann og þegar B
tekur upp símtólið, hringir hjá
A.
Óljóst um tekjur
Þessi þjónusta kostar tæpar
10 krónur í hvert skipti, eða
þrjú skref, og stendur öllum
þeim sem hafa tónvalssíma til
boða. Þessi þjónusta er hins
vegar ekki til staðar í farsíma-
kerfinu og ekki þegar hringt
er í eða úr símkerfi hjá t.d.
stórfyrirtækjum, auk þess sem
erlend símanúmer eru undan-
þegin þessari þjónustu.
Guðbjörg Gunnarsdóttir
blaðafulltrúi P&S segir óljóst
hversu miklum tekjum gert er
ráð fyrir að þessi þjónusta skili,
en hún eigi von á að margir
fagni henni. „Talsvert er um
liðið síðan þessi hugmynd
fæddist og búnaðurinn var fyr-
ir hendi, en það vantaði þó
ákveðna tækni sem nú er hins
vegar til staðar," segir hún.
Líkamsárás 4 unglingsstúlkna á Akranesi
Sextán ára stúlka
á gjörgæsludeild
með höfuðáverka
Klukku-
strengir
skornir
LÖGREGLUNNI í Reylqavík var
aðfaranótt sunnudags tilkynnt
um skemmdarverk við Lang-
holtskirkju.
Einhver hafði lagt á sig mikið
erfiði og skorið í sundur kaðla
úr kirkjuklukkunum, en þær
hanga í klukknaporti fyrir fram-
an kirkjuna.
Ekki er vitað hveijir þarna
voru að verki.
Morgunblaöið/Þorkell
SEXTÁN ára stúlka iiggur á gjör-
gæsludeild Borgarspítalans með al-
varlegan höfuðáverka eftir líkams-
árás á Akranesi aðfaranótt laugar-
dags. Fjórar stúlkur, þijár fæddar
1980 og ein fædd 1977,P voru á
sunnudag úrskurðaðar í gæsluvarð-
hald vegna málsins.
Að sögn Viðars Stefánssonar,
rannsóknarlögreglumanns á Akra-
nesi, var árásin gerð á milli klukkan
tvö og hálfþijú aðfaranótt laugar-
dags. Stúlkurnar þijár réðust á
fjórðu stúlkuna á Kirkjubraut. Þær
héldu síðan yfir á Suðurgötu, eftir
Suðurgötu og niður Akratorg. Þar
skildu þær stúlkuna eftir. Einu sinni
á leiðinni tókst að skilja þær að en
þær eltu stúlkuna uppi og héldu
árásinni áfram.
Fannst meðvitundarlaus
Vinkona stúlkunnar kom að henni
og fór með hana í bíl á sjúkrahúsið.
Þar var hún skoðuð en henni sagt
að fara heim. Hún fór þá með vin-
konu sinni, sem er aðkomumann-
eskja og búsett á heimavist Fjöl-
brautaskóla Vesturlands, á herbergi
hennar og sofnaði þar. Vinkonan
skildi hana þar eftir og fór út aftur.
Um klukkan hálfsex um morgun-
inn komu fjórir unglingar í bíl að
heimavistinni og fundu þá stúlkuna
meðvitundarlausa á dyrapallinum
fyrir framan innganginn að heima-
vistinni. Móðir hennar var kölluð til
og kom hún stúlkunni á sjúkrahúsið
með aðstoð unglinganna. Þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti
síðan stúlkuna og lenti með hana
við Borgarspítalann kl. 9.05 á laug-
ardagsmorguninn.
Að sögn Björns Tryggvasonar,
vakthafandi læknis á gjörgæslu-
deild, er stúlkan nær eingöngu með
áverka á höfði. Hann orsakaði blæð-
ingu utan við heila sem þrýsti á
hann. Aðgerð var gerð á stúlkunni
strax á laugardagsmorgun og bblóð-
inu hleypt út, en að sögn Bjöms eru
afleiðingar árásarinnar enn ófyrir-
séðar. Stúlkan var í gær meðvitund-
arlítil.
Tíu daga gæsluvarðhald
Viðar Stefánsson segir rannsókn
málsins hafa miðað vel. Hún hófst
strax á laugardagsmorgun og leiddi
til handtöku stúlknanna fjögurra
þann sama dag. Strax var gerð krafa
um gæsluvarðhald og voru stúlkum-
ar úrskurðaðar á sunnudag í tíu
daga gæsluvarðhald til 31. janúar.
Elsta stúlkan er vistuð í fangelsi en
hinar þijár eru í gæslu á vegum lög-
reglu undir eftirliti barnaverndaryf-
irvalda. Allar stúlkurnar fimm eru
búsettar á Akranesi.
Að sögn Viðars var árásin tilefn-
islaus, eftir því sem næst verður
komist.
Ólafur Jóhann hættir hjá Sony
Fengið tilboð frá
stórfyrirtækjum
Stjóm Sjúkrahúss Reykjavíkur fundar með heilbrigðisráðherra
Kynna ráðherra afleið-
ingar niðurskurðar
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson hyggst
láta af störfum hjá Sony og er
reiknað með að fyrirtækið tilkynni
um afsögn hans í dag. Ólafur Jó-
hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann hefði kynnt Michael
Schulhof, þáverandi forstjóra Sony
í Bandaríkjunum, hug-
leiðingar í þessa veru
snemma á seinasta ári
en setið áfram fyrir orð
hans. Schulhof réði
Ólaf Jóhann til starfa
fyrir tíu árum.
Ólafur segir Schul-
hof í raun vera ástæðu
þess að hann hafi verið
hjá fyrirtækinu jafn-
lengi og raun ber vitni.
„Ég féllst á að vera
áfram og koma Sony
Electronic Publishing
fram á við, uns Play-
Station leikjatölvan
væri komin á markað.
Ég hugðist ljúka því
verkefni, ráða menn sem ég treysti,
meðal annars nýjan forstjóra, og
taka síðan við stjórnarformennsku.
Þetta gekk eftir en síðan hætti
Schulhof í byijun desember og þó
fóru málin áð stokkast upp,“ segir
Ólafur Jóhann.
Vill ekki í daglegan rekstur
Margmiðlunarfyrirtæki Sony,
Sony Electronic Publishing, sem
Ólafur Jóhann hefur veitt forstöðu
og tók þátt í að stofna árið 1991,
veltir á þessu ári yfir einum millj-
arði dollara. í byijun október vék
Ólafur úr stöðu forstjóra og tók
við stjórnarformennsku í fyrirtæk-
inu og sæti í stjórn Sony í Banda-
ríkjunum. Eftir afsögn Schulhof
vildu japanskir stjórnendur fyrir-
tækisins skipta Sony í Bandaríkj-
unum í tvennt, í stað þess að vera
í fjórum hlutum, og átti Ólafur að
veita öðrum helmingnum forstöðu.
Þetta hefði þýtt að að Ólafur færi
aftur inn í daglegan rekstur, fyrst
og fremst vegna þess hve yfir-
stjórnin _er fámenn; að
sögn Ólafs. „Þetta
myndi þýða endalausa
vinnu. Ég sagðist ætla
að hugleiða hvort ég
vildi gera þetta yfir
jólin og tilkynnti það
svo endanlega í sein-
ustu viku að ég myndi
hætta.“
Ólafur Jóhann segir
að um jólin hafi full-
trúar Sony komið
hingað til lands til að
reyna að telja honum
hughvarf en ákvörð-
unin hafi verið endan-
leg.
Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins hafa nokkur
umfangsmikil bandarísk fjölmiðla-
fyrirtæki á borð við Universal,
Disney og Time-Warner kannað
möguleikana á að fá Ólaf Jóhann
til starfa, og sama máli gegnir um
ónefnt útgáfufyrirtæki ytra og fjár-
festingafyrirtæki. Aðspurður um
þessi mál, kvaðst Ólafur Jóhann
ekki hafa viljað ræða um nýjan
starfsvettvang meðan hann væri
enn í þjónustu Sony. Hann geti þó
vart hugsað sér að fara út í dagleg-
an rekstur hjá öðru fyrirtæki.
Hann viðurkennir ennfremur að
Schulhof hafi rætt við hann um að
taka upp samstarf að nýju á öðrum
vettvangi. „Við erum miklir mátar
og það er líklegt að við munum
allavega tala saman um þá hluti.“
STJÓRN Sjúkrahúss Reykjavíkur
sendi frá sér ályktun í gærmorgun
í framhaldi af umræðu um hug-
myndir til lækkunar útgjalda, þar
sem segir m.a. að stjórnvöld verði
að gera sér grein fyrir afleiðingum
sparnaðaráforma og svara því hvort
þau vilji að farið verði í þann niður-
skurð sem við blasi.
Kristín Á. Ólafsdóttir, formaður
stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur,
segir að hugmyndir stjómar séu
trúnaðarmál að svo stöddu en þær
verði kynntar ráðherra á morgun.
„Þarna er verið að tala um sam-
drátt í heilbrigðisþjónustunni og
bent á að ekki aðeins við erum að
vinna út frá fjárlögum til sparnað-
ar, heldur einnig hitt aðalsjúkrahús
landsins. Það hljóta að verða ein-
hver áhrif af slíkum aðgerðum út
í samfélagið," segir Kristín.
Vantar 380 miiyónir
„Fólk verður að átta sig á því
að til þess að halda sambærilegum
rekstri og var á þessum tveimur
sjúkrahúsum, Borgarspítala og
Landakoti, á seinasta ári, vantar
okkur 380 milljónir í fjárlögin. Hver
maður sér að þegar þessi upphæð
er á milli 7% og 8% af rekstrar-
kostnaði spítalans, hlýtur að verða
að grípa til mjög mikilla aðgerða
ef á að mæta kröfum fjárlaga. Það
þarf að lækka kostnað mjög mikið
og menn finna fyrir því á einhvern
hátt þegar þarf að draga saman
rekstrarkostnað um jafnvel 7-8%.“
Kristín segir sjálfsagt að heil-
brigðisráðherra fái upplýsingar um
hvemig stjórn Sjúkrahúss Reykja-
víkur telji að verði að haga málum,
til að mæta kröfum fjárlaga, og að
stjórnin geri um leið ráðherra grein
fyrir hvernig hún meti afleiðingarn-
ar.
„Stjórnendur hafa unnið mjög
samviskusamlegá seinustu vikur í
leit að leiðum til að mæta kröfum
fjárlaga og við erum með ákveðnar
leiðir sem við teljum að verði að
fara, eigi að mæta þessum kröfum.
Við viljum gera ráðherra grein fyr-
ir í hverju þessar leiðir felast og
hveijar afleiðingar þeirra em.“
Kristín kveðst ekki þora að spá
fyrir um viðbrögð ráðherra, en í
hans sporum teldi hún nauðsynlegt
að fá meira fé til þessa málaflokks.
„Við værum sæmilega sátt ef við
fengjum sambærilegt rekstrarfé og
við fengum í fyrra, því að við emm
nú að glíma við stórt og mikið verk-
efni, þ.e. að vinna úr sameiningu
tveggja spítala.“
Svar þarf að fást
í ályktuninni segir að stjórn SR
samþykki að kynna þessar „Ieiðir
fyrir heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra og kanna viðbrögð hans.
Svar þarf að fást frá ríkisvaldinu,
meðal annars um framkvæmdafé
til þeirra breytinga sem reiknað er
með í fyrirliggjandi leiðum. Brýnast
er þó að kynna yfirvöldum þær af-
leiðingar sem sparnaðurinn hefur í
för með sér, ekki síst I Ijósi þess
að hitt aðalsjúkrahús landsins, Rík-
isspítalar, undirbýr einnig sparn-
aðaraðgerðir sem leiða til mikillar
fækkunar sjúkrarúma. Áður en
stjóm SR afgreiðir tillögur um að-
gerðir verður að liggja fyrir hvort
ríkisvaldið vill að farið verði í þann
samdrátt í heilbrigðisþjónustunni
sem hér blasir við. I því sambandi
er mikilvægt að heilbrigðisyfirvöld
meti afleidd áhrif þeirra aðgerða
sem hér er bent á, áður en til þeirra
er gripið."
Ólafur Jóhann
Ólafsson