Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 11
FRÉTTIR
Verslunar-
skólanemendur
sýnaCats
NEMENDUR Verslunarskóla ís-
lands undirbúa nú sýningar á
söngleiknum Cats, sem verður
frumsýndur í Loftkastalanum í
Héðinshúsinu 1. febrúar. Alls
hafa um 100 nemendur komið
að undirbúningi sýningarinnar
þar af verða um 30 í söng- og
danshlutverkum. Valgerður
Guðnadóttir fer með aðalhlut-
verkið.
Að sögn Árna Vigfússonar,
formanns nemendamótsnefndar
Verslunarskólans, er söngleikur-
inn Cats eftir Andrew Lloyd
Webber vinsælasti söngleikur
allra tíma og hefur gengið á sviði
í London stanslaust frá árinu
1981.
Magnea Matthíasdóttir hefur
þýtt söngleikinn á íslensku en
leikstjóri á sýningu nemenda
Verslunarskólans er Ari Matt-
híasson. Tónlistarstjóri er Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson. Hann
stjómar hljómsveit sem saman-
stendur annars vegar af félögum
hans í Tweety og hins vegar af
fjórum hljóðfæraleikurum úr hópi
nemenda Verslunarskólans.
Danshöfundar eru Selma Björns-
dóttir og Bima Bjömsdóttir.
Nemendur Verslunarskólans
hafa undanfarin ár fært á svið
nokkra af vinsælustu söngleikjum
sögunnar við góðar undirteknir.
Ámi Vigfússon segir að almenn-
ingur hafi jafnan sýnt sýningun-
um mikinn áhuga og kveðst hann
eiga von á að svo verði einnig
nú enda hafí þessi söngleikur
hlotið metaðsókn víða um heim.
Hann sagði að þegar væri upp-
selt á fýrstu tvær sýningarnar.
Ámi sagði að i hópi nemenda
Verslunarskólans væru margir
sem þegar hefðu getið sér gott
orð í söngleikjum á borð við Jesus
Christ Superstar og Rocky Horror
Picture Show, þótt Valgerður
Guðnadóttir söngkona væri lang-
þekktust þeirra.
FRÁ búningaæfingu nemenda Verslunarskólans á
söngleiknum Cats.
Styrkur til
tónlistarnáms
Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar mun á
þessu ári veita íslenskum söngvurum styrki til
framhaldsnáms erlendis.
Einn eða fleiri styrkir verða veittir.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform, sendist fyrir 10. febrúar nk. til:
Söngmenntasjóðs Marinós Péturssonar,
íslensku óperunni,
Ingólfsstræti,
101 Reykjavík.
Umsóknum íylgi hljóðritanir og/eða önnur gögn
sem sýna hæftii umsækjanda.
Endumýja skal eldri umsóknir.
Snjókarlinn
og hlákan
UMHLEYPINGAR í veðri koma
öllum í opna skjöldu og litla snjó-
karlafjölskyldan sem varð til eftir
seinustu snjókomu fór ekki var-
hluta af hláku sem fylgdi í kjölfar-
ið. Fjölskyldufaðirinn reyndi eftir
megni að bera höfuðið hátt og
sýna iskalda ró, en varð að lúta í
lægra haldi fyrir hækkandi hita-
stigi og þyngdarkraftinum. Ljós-
myndari Morgunblaðsins var við-
staddur þegar þessi glaðbeitti
minnisvarði yfirstandandi vetrar
hneig til jarðar einn dag fyrir
skömmu. Vafalaust hefur þetta
ótímabæra fráfall snjókarlsins
valdið höfundi hans og fjölskyldu-
meðlimum trega, en flestir fulltrú-
ar mannheimsins vona sennilega
að það marki upphaf að hlýrri
árstíma og hækkandi sól.
Morgunblaðið/Þorkell
Nýtt íbúðarhverfi rís
FRAMKVÆMDIR við nýtt íbúðar-
hverfi á Kirkjutúni við Sæbraut og
Kringlumýrarbraut, sem hófust í
haust á vegum Álftáróss og ístaks,
ganga vel og eru aðeins á undan
áætlun, að sögn Þórunnar Pálsdóttur
verkfræðings hjá ístaki. Nú er að
rísa 8 hæða blokk með 30 íbúðum
sem verða tilbúnar til afhendingar í
september nk. Þegar hefur um helm-
ingur þeirra íbúða selst. Gert er ráð
fyrir um 400 íbúðum í heild á svæð-
inu í blokkum og nokkrum raðhús-
um.
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar
Sundlaug í
Grafarvogi
VIÐ FYRRI umræðu um fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar kom fram
í máli borgarstjóra, að áætlað er að
vetja 50 milljónum til byggingar
nýrrar aimennings- og kennslulaugar
við íþróttamiðstöðina í Grafarvogi.
Gert er ráð fyrir að Iaugin verði
tekin í notkun í árslok 1997. Borgar-
stjóri sagði að fjárveitingin væri sett
fram með fyrirvara þar sem hún
væri ennþá byggð á óljósum hug-
myndum. Hvorki forsögn né teikning-
ar væru fyrir hendi að lauginni. „Svo
kann að fara að endurskoða verði
þessa upphæð, en þó má ljóst vera,
að á næsta ári þurfa til að koma
umtalsvert hærri upphæðir, ef takast
á að ljúka byggingunni á árinu
1997,“ sagði borgarstjóri.
-----♦'•"» ♦--
Listamenn til
Korpúlfsstaða
GERÐUR hefur verið leigusamningur
við Félag íslenskra myndlistarmanna
um afnot af miðhluta hússins að
Korpúlfsstöðum fyrir vinnustofur.
Borgarstjóri sagði við fyrri umræðu
um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar að vonast væri til að húsnæðið
bætti að nokkru úr því aðstöðuleysi,
sem niargir listamenn í borginni búa
við. í nýlegri könnun sem FÍM hafi
gert meðal myndlistarmanna hafi
komið fram að þeir telji að það vanti
átakanlega vinnuaðstöðu fyrir lista-
menn en hún sé forsenda þess að
þeir geti sinnt listsköpun sinni.
• Passamyndir • Portretmyndir
• Barnaljósmyndir • Fermingarmyndir
• Brúðkaupsmyndir • Stúdentamyndir
PÉTUR PÉTURSSON
L JÓSMYNDASTÚDÍÓ
LAUGAVEGI 24 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 552 0624