Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
555-1500
Garðabær
Stórás
Gott ca 200 fm einbhús auk 35
fm bílskúrs. Mögul. á tveimur
íb. Ekkert áhv. Skipti mögul. á
3ja herb. íbúð.
Reykjavík
Baughús
Glæsil. ca 90 fm 3ja herb. íb. í
tvíbýli með góðu útsýni. Áhv.
ca 2,8 millj. húsbr. Verð 8,5
millj.
Kóngsbakki
Mjög góð 3ja herb. íb. ca 80 fm
á 3. hæð. Áhv. ca 3,1 millj.
Verð 6,8 millj.
Hafnarfjörður
Miðvangur
Gott raðhús ca 150 fm + 38 fm
bílsk. Möguleiki á 4 svefnh.
Skipti mögul. á minni eign.
Flókagata
Góð 5-6 herb. íb. ca 125 fm
ásamt bílsk.
Flókagata
Einb. á fjórum pöllum, ca 190
fm, ásamt nýjum bílsk. og öðr-
um eldri. Mikið endurn. Útsýni.
Áhv. ca 2,5 millj. eldra byggsj-
lán. Ath. skipti á minni eign.
Álfaskeið
Einb. á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm.
Mikið endurn. Lítið áhv. Ath.
skipti á lítilli íb.
Vantar eignir á skrá.
FASTEIGNASALA,
jm■ Strandgötu 25, Hf].,
Árnl Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl.
FRETTIR
Þórhildur Líndal umboðsmaður barna
Sjónvarp og kvik-
myndahús sjái að sér
„EINS OG við var að búast er af-
staða talsmanna sjónvarpsstöðvanna
og kvikmyndahúsanna misjöfn en
hún mótast greínilega af öðrum þátt-
um en ég hef að leiðarljósi, sem eru
velferð og vernd bama í þessu sam-
félagi. Ég vona að þeir sjái að sér
og ef hægt er að gera auglýsingar
um ofbeldiskvikmyndir án ofbeldis
myndi ég fagna slíku. Núna er geng-
ið of langt í alltof mörgum auglýs-
ingum,“ segir Þórhildur Líndal, um-
boðsmaður barna, um viðbrögð tals-
manna ríkissjónvarpsins, Stöðvar 2
og nokkurra kvikmyndahúsa við
bréfi hennar til samkeppnisráðs.
Þórhildur fer í bréfinu fram á að
bannað verði að auglýsa ofbeldis-
myndir, bannaðar 12 ára og yngri,
í almennri sjónvarpsdagskrá fyrir
kl. 22, í kvikmyndahúsum á sýning-
um ætluðum öllum aldurshópum og
á myndböndum.
„Eg hef áður lýst því yfir að ég
ætli að vinna gegn ofbeldi gagnvart
bömum. Ofbeldi er alls staðar í sam-
félaginu og ofbeldi í fjölmiðlum er
einn hluti af því. Bréf mitt til sam-
keppnisráðs er liður í þessari vinnu.
Samkeppnisstofnun hefur í tvígang
sent út tilmæli vegna auglýsing-
anna. Fyrri tilmælin voru til Ríkis-
Boðahlein - Hrafnista
Nýkomið í einkasölu mjög fallegt 84,9 fm einnar hæðar
endaraðhús á svæðinu næst Hrafnistu í Hafnarfirði.
Um er að ræða verndaða þjónustuíbúð í tengslum við
Hrafnistu, þ.e. stofa, svefnherb., eldhús, bað, þvotta-
hús og garðskáli. Allt í ágætu ástandi. Laust strax.
, Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, si'mi 555 0764.
552 1150-552 1370
LARUS Þ. VALOIMARSSON, fRAMKV/iMOASTjori
KRISTJAN KRISTJANSSON, tOGGiUUR fasieigNASau
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Einbýlishús - stór lóð - fráb. útsýni
Mikið endurn. með stórri 3ja herb. íb. á hæð og í kj. eru 2 herb. m.m.
Ræktuð lóð um 1.000 fm með háum trjám á vinsælum stað við Digra-
nesveg, Kóp. Skipti mögul. á góðum bíl.
Skammt frá KR-heimilinu
í lyftuhúsi mjög stór 4ra herb. íb. 3 rúmg. svefnherb. Frábært útsýni.
Suðuríbúð 4ra herb. um 100 fm. 3 svefnherb. Sólsvalir. Langtímalán
kr. 4,2 millj. Vinsæll staður.
Eignaskipti mögul. á báöum íbúðum.
Öli eins og ný - eignaskipti
4ra herb. íb. um 100 fm í Seljahverfi. Sér þvottahús. Mjög góð bíla-
geymsla. Sameign ný klædd. Skipti æskil. á góðri 2ja herb. íb.
3ja herb. ódýrar íbúðir
Meðal annars við: Njálsgötu, Hjallaveg og Vesturgötu. Vinsamlegast
leitið nánari uppl.
Ofanleiti - nágrenni
Til kaups óskast góð 4ra herb. íb. á 1. eða 2. hæö. Bílsk. þarf að
fylgja. Skipti mögul. á úrvals sérhæð um 160 fm. Nánari upplýsingar
aðeins á skrifst.
Höfum kaupanda að
Góðu einbýlis eða raðh. í Seljahverfi eða nágrenni.
Góðum eignum í vesturborginni og nágrenni.
íbúðum og stærri eignum í gamla bænum og nágrenni. Mega þarfn-
ast endurb.
Traustir kaupendur, margskonar hagkvæm makaskipti.
Viðskiptum hjá okkur
fylgir ráðgjöf og traustar
upplýsingar.
Margskonar eignaskipti.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
UU6IVE6I H S. 552 1151-552 137»
sjónvarpsins og kvikmyndahúsanna.
Hin voru send til allra sjónvarps-
stöðva, kvikmyndahúsa og samtaka
myndbandaleiga. Þar sem augljóst
er að tilmæli þessi hafa ekki borið
tilætlaðan árangur taldi ég brýna
þörf á að samkeppnisráð gripi tii
þeirra úrræða sem því eru tiltæk,“
sagði Þórhildur.
Boltinn hjá Samkeppnisráði
Hún sagðist hafa sent tilmælin
til samkeppnisráðs því auglýsingar
á ofbeldiskvikmyndum héldu áfram.
„Samkeppnisráð getur sett bann við
brotum gegn ákvæði 22. greinar
samkeppnislaganna um að miða
skuli við að böm sjái og heyri auglýs-
ingar. Auglýsingar megi ekki mis-
bjóða börnum og sýna verði sérstaka
varkárni vegna trúgirni barna og
unglinga. Ef banninu er ekki fylgt
er heimild fyrir því í lögunum að
dagsektum sé beitt,“ sagði hún. Hún
sagðist myndi fylgja bréfinu eftir
af fremsta megni enda væri henni
mikið í mun að ofbeldi kæmi ekk
fyrir sjónir óþroskaðra bama. Nú
væri boltinn hins vegar í 'höndum
samkeppnisráð og myndi ráðið vænt-
anlega taka bréf hennar fyrir á
næsta fundi sínum.
Þórhildur minntist á að í viðbrögð-
um frá talsmönnum kvikmyndahús-
anna hefði komið fram að allt eins
væri ástæða til að banna fréttatíma
sjónvarps. „Oft er verið að sýna
grimman raunveruleika í fréttatím-
um sjónvarps. Hins vegar finnst mér
að gera verði foreldra ábyrga fyrir
því að útskýra fyrir börnum sínum
hvað þar býr að baki. Ekki má held-
ur gleyma því að fréttamenn hafa
verið duglegir við að vara áhorfend-
ur við ofbeldi í fréttum," sagði Þór-
hildur og hún minnti á að í Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna segði
að hagsmunir barna skyldu ávallt
hafa forgang, t.d. þegar stjórnvöld
gerðu ráðstafanir varðandi börn.
Samkeppnisráð er stjórnsýslunefnd
eða stjórnvald í þessu tilfelli.
Mogrunblaðið/Guðlaugur Tryggvi
Vilja stækka golfvöll í Mosfellsbæ
BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar
hefur samþykkt deiiiskipulag í
Mosfellsdal sem gerir ráð fyrir
18 holu golfvelli í landi Minna-
Mosfells. Þar er í dag 9 holu völl-
ur. Magnús Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri golfklúbbsins
Bakkakots í Mosfellsbæ, sagði að
talsverður áhugi væri á að stækka
völlinn, en ekkert lægi fyrir um
hvenær það yrði gert. Golfklúbb-
urinn gæti ekki staðið að svo
stórri framkvæmd nema að til
kæmi fjárhagslegur stuðningur
frá bæjarsjóði eða öðrum aðilum.
í vor verður golfskálinn við
völlinn stækkaður um 80 fer-
metra. Við það batnar aðstaða
kylfinga í Mosfellsbæ verulega.
Á myndinni eru frá vinstri
Magnús Steinarsson, Steinar Guð-
mundsson, brautryðjandi í golf-
íþróttinni í Mosfellsbæ, Guðmund-
ur T. Magnússon, formaður golf-
klúbbsins, og Gísli Snorrason vall-
arstjóri.
Nokkur frábær fyrirtæki
Sælgætisgerð, sem framleiðir þrjóstsykur.
Staðsett úti á landi en flytjanleg hvert sem
er. Góðar uþpskriftir og starfsþjálfun fylgja.
Verð 4 millj.
Sólþaðsstofa með tveimur nýjum 10 mín.
þekkjum og fjórum eldri. Vaxandi viðskipti.
Verð 6,2 millj., en 2,2 millj. áhv.
Barnafataverslun á einum besta stað í Kringl-
unni. Gott verð. Góð söluumboð fylgja.
Laus strax.
Lítil heildverslun með gjafavörur o.þ.h. Velta
árið 1995 var um 22 millj. Verð 4 millj. -+ lager.
Söluturn og skyndibitastaður. Mikili hluti söl-
unnar eigin framleiðsla. Gott eldhús. Stólar
og borð. Spilakassar gefa góðar tekjur. Næt-
ursöluleyfi. Góð velta. Verð 6 millj.
Skipti á sólbaðsstofu.
Söluturn í miðbænum sem opinn er allar
helgarnætur. Vel staðsettur. Mikil íssala á
sumrin. Góð velta. Verð 5,5 millj.
7. Áhugavert fyrirtæki einmitt fyrir þig. Fyrirsætu-
skrifstofa með góð erlend sambönd í fullum
rekstri. Vantar eiganda, sem getur verið starf-
andi framkvæmdastjóri. Verð 1,2 millj.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAlAIM
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
2.
3.
5.
6.
MORGUNBLAÐIÐ
Fólk
Viðar Egg-
ertsson
leikhús-
stjóri LR
•VIÐAR Eggertsson hefur sem
kunnugt er verið ráðinn leikhús-
stjóri Leikfélags Reykjavíkur frá
leikári sem hefst
1. september nk.
Viðar hefur hafið
störf við undir-
búning næsta
leikárs.
Viðar er fædd-
ur í Reykjavík 18.
júní 1954. Hann
hóf á unglingsár-
um að starfa með Leikfélagi
Akureyrar á þeim tíma þegar það
var að þróast yfir í atvinnuleik-
hús. Hann lék á fyrstu sýningu
sinni með LA í ársbyrjun 1970
og hefur síðan komið víða við í
íslensku leiklistarlífi. Hann var
einn af stofnendum Leikfrumunn-
ar í Reykjavík 1971 ogvar
fremstur í flokki þeirra sem stofn-
uðu Samtök áhugafólks um leik-
listarnám og stóðu síðan að stofn-
un Leiklistarskóla SÁL, 1972, en
hann varð til þess að Leikiistar-
skóli íslands var síðan stofnaður.
Viðar stundaði leiklistarnám í
SÁL-skólanum og lauk því við
Leiklistarskóla íslands í hópi
fyrstu nemendanna sem þaðan
brautskráðust 1976. Hann var
meðal stofnenda Sunnandeildar
Alþýðuleikhússins 1978 og sat um
árabil í stjórn og varastjórn Al-
þýðuleikhússins.
Viðar hefur kennt leiklist á
mörgum námskeiðum fyrir
áhugamenn og í Leiklistarskóla
Islands sem og útvarsþáttagerð í
Háskóla íslands. Hann hefur sótt
fjölda námskeiða í leiklist hér-
lendis sem erlendis. Hann var
fulltrúi íslands í leiksmiðju Menn-
ingarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna undir stjórn Eugine Barba
í Bergamo á Italíu 1977, leik-
smiðju Alþjóða leikhússtofnunar-
innar í Helsinki í Finnlandi 1989
og Norrænni leiksmiðju leikhús-
listamanna undir stjórn Erland
Josephson í Sisimiut á Grænlandi
1992.
Viðar var fastráðinn leikari hjá
LA 1978-80 og hjá Þjóðleikhús-
inu 1986-87. Hann hefur sett á
svið 18 leiksýningar hjá áhuga-
leikfélögum og með atvinnu-
mönnum og hefur leikið yfir 60
hlutverk á sviði með ýmsum leik-
félögum, þar á meðal íjóðleikhús-
inu, LR og LA, auk hlutverka í
útvarpi, sjónvarpi og kvikmynd-
um. Viðar hefur einnig leikstýrt
fyrir útvarp og sjónvarp. Hann
stofnaði EGG-leikhúsið 1981 og
starfrækti það til ársins 1993, þar
sem hann var leikhússtjóri og
framkvæmdastjóri en við leikhús-
ið hafa starfað yfir 100 manns,
leikarar, leikstjórar, þýðendur,
tónskáld, ljósahönnuðir, höfund-
ar, tónlistarmenn o.fl. Viðari var
boðið með sýningar EGG-leik-
hússins á listahátíðir víða um
heim.
Hann hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir íslenskt leik-
húsfólk. Hann hefur setið í stjórn
Félags íslenskra leikara, verið
formaður og varaformaður Félags
leikstjóra á Islandi, ritari í stjórn
Bandalags íslenskra listamanna
og setið um árabil í Leiklistarráði
svo eitthvað sé nefnt.
Viðar var ráðinn leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar í apríllok
1993 og gegndi því starfi allt til
ársloka 1995 þegar hann hóf störf
fyrir Leikfélag Reykjavíkur.
og með næsta