Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 29 Bergmál okkar tíma BOKMENNTIR Ljód og Icikrit BLÁ MJÓLK OG SKUGGAR STRÍÐUM, VINNUM VORRI ÞJÓÐ Blá mjólk ogSkuggar eftir Jóhann Hjálmarsson. Örlagið - 1990 og 1992. Stríðum, vinnum vorri þjóð, flokkur örleikrita eftir Kjartan Árnason. Örlagið - 1994 og 1995. ÖRLAGIÐ nefnist útgáfufélag sem sent hefur frá sér nokkur smá- prent. Tvö smáprentanna eru verk eftir Jóhann Hjálmars- son. í hinu fyrra sem út kom árið 1990 er ljóðið Blá mjólk sem ort var 1962. Það var til- einkað André Breton og sent honum í pósti. Ljóðið elti Breton á ferðum hans um heim- inn en hann lést áður en það barst til hans. Af þeim orsökum kemst kvæðið aldrei á leiðarenda en slíkt á vel við súrrealískan kveð- skap því að hann er í eðli sínu ferðalag. Myndmál kvæðisins er einfalt og tært. Enda þótt rökrænt samhengi veruleikans sé ekki fyrir hendi í kvæðinu og tungutak þess leiti út fyrir venjubundna, rökræna skynjun bindur hugmyndin um bláu mjólkina ljóðveruleikann saman. Allir þættir hans verða birtingarmynd hennar og hún þannig samhengið í tilver- unni. Kvæðið er því röð af myndum sem allar túlka með sínum hætti brot eða öllu heldur dropa af hinni bláu „ósýnilegu mjólk sem rennur í æðum heimsins". Af því leiðir að bjart er yfir kvæðinu, gott ef ekki fögnuður: Hún er ljósmynd af þér með höfuðið í fugla- búri Hún er íkorninn sem hleypur léttilega Hún er bílamir á götunni flautandi dæprlög Hún er útvarpið sem við lokum aldrei fyrir' Hún er kaffikvörn gæfunnar Hún er kennslubók í matargerð handa nas- hyminpm Hún er málarinn sem stinpr höfðinu í litinn í síðara smáprenti Jóhanns frá því 1992 er svo kvæðabálkur sem viðskila varð við handrit bókarinnar „Ný lauf, nýtt myrkur" (1967). Bálkinn nefnir skáldið Skugga og telur hann kominn í eðlilegt sam- hengi þar sem andi hans líkist því andrúmslofti sem Ákvörðunarstaður myrkrið (1985) er ti! vitnis um. Skuggar er fremúr órætt kvæði með trúarlegu og dulræðu ívafi. Skáldið vísar til Swedenborgs og rammar kvæðið inn með spumingu sem vísar til mystísk.rar reynslu um hvað sé ást til hins æðsta enda einkennist það af ákveðinni spennu milli jarð- neskrar skuggaveraldar og birtu himinsins. Ljóðsjálfíð fínnur til sam- semdar með guðdóminum: „Þú er hjá mér aftur / skuggi guðs á slétt- unni / minn eigin skuggi / og skuggi sólarinnar." Samt er eins og það velji fremur hina jarðnesku skugga- veröld: „Leyfðu okkur að reika um í hvelfingunum / og vera áfram skuggar: upprétt mold. / Órólegt er blóðið / sem elskar rökkrið / og kyrrð veitingahússins.“ Bæði eru kvæði þessi gagnmerkur vitnisburður um þróun skáldskapar Jóhanns og athygli vekur hversu skjótum þroska hann hefur náð sem skáld. Kjartan Ámason hefur einnig sent frá sér fjögur smárit með flokki fimm örleikrita eða stuttra einþátt- unga sem hann nefnir Stríðum, vinn- um vorri þjóð. Verkin nefnir hann Vindur, hold og andi (1994), Skot- menn (1994), Prinsip (1995), Álit og Pont du Ciel (1995). Verk Kjart- ans em pólitísk. Þau em innlegg í friðarbaráttu, eins konar litterature engagée, skorinorð og áróðurskennd en undirstrika þó ábyrgð mannsins, mannlega skuldbindingu hvers og eins. Á kápu eins smáritsins er hug- Ieiðing sem undirstrikar það: „í valdi sérhvers manns er að taka ákvörðun með sjálfum sér um að efna til frið- ar við sjálfan sig og aðrar lifandi vemr. Fyrr verður friður tæpast tryggður í samfélagi manna - fyrr verður friðardúfan vart frelsuð úr hári myrkursins eða mannlíf leyst frá sífelldri endurtekningu sömu fortíðar.“ Verkin fjalla öll um ofbeldi og óhugnað stríðs og ógnarstjómar í ýmsum myndum. í ljósi þess hve texti örleikrita er knappur og mögu- leiki til persónusköpunar, framvindu og dramatískrar spennu er lítill gegnir siðferðileg og hugmyndaleg forsenda verksins, friðarhyggjan, mikilvægu hlutverki og þá ekki síður meginhugmynd hvers verks sem tengist henni með einhveijum hætti. Hvað eftir annað dregur Kjartan upp kaldhæðnar myndir af heimi þar sem ofbeldið og grimmdin virðast vera megininntakið og aðstæður manna fáránlegar. í leikritinu Vindur, hold og andi deila tvær aftökusveitir um það hvor þeirra eigi að deyða sam- viskufanga. Það verður hins vegar hlutskipti fómarlambsins að taka af skarið, sameina sveitirnar og gefa skipun um eigin aftöku. Fáránleik- inn fær jafnvel aukið vægi í leikrit- inu Point du Ciel þegar M. í landi upplausnar er mulinn til bana undir skriðdreka friðargæslusveitar stór- veldanna á meðan sjónvarpsfrétta- maður veltir sér upp úr neyð hans. Þótt hugmyndir sem þessar séu ekki órafjarri leikhúsi fáránleikans er þó nokkur munur á. Meginforsendur verkanna em siðferðislegar. Absúrd- isminn sýndi okkur framandleika mannsins í fjandsamlegum heimi án framtíðarvonar. í verkum Kjartans er ávallt önnur leið, leið friðarins, sem er á valdi hvers og eins. Annað einkennir einnig verk Kjartans. Hann fetar mikilvægt öng- stigi milli almennrar umfjöllunar og hluttækrar. Persónur eru að mestu nafnlausar og atburðimir tengjast ekki beinlínis ákveðinni stund né stað. Samt fer ekki milli mála að hann fjallar um vemleika líðandi stundar. Hinir fáránlegu atburðir leikritanna em bergmál okkar tíma. Texti höfundarins er knappur en ljós og meðfærilegur. I honum er jafnan einhver tvíræðni því að per- sónur verkanna afhjúpa oft hið nakta ofbeldi_ sem falið er í málinu (Prinsip og Álit) og í hugmyndum manna um heiminn. Ég hygg því að töluverður fengur sé að örleikrit- um Kjartans og efni þeirra kemur okkur öllum við á tímum þegar vél- byssurnar gjamma ótt og títt. Skafti Þ. Halldórsson Jóhann Kjartan Hjálmarsson Árnason Að gefnu tilefni* minnum við á afburða þjónustu Hertz Bílaleigu Flugleiða: Við sækjum þig á höfuðborgarsvæðinu eða sendum þér bílinn á innanlandsflug eða hótel. Þú getur leigt bíl á einum stað og skilað á öðrum. T.d. er ekkert aukagjald þegar bíll er leigður í Reykjavík og honum skilað í Leifsstöð. Staðlað eftirlitskerfi Hertz um öryggi, viðhald og umhirðu tryggir þér áhyggjulausan og ánægjulegan akstur. Við leigjum aðeins bifreiðategundir sem hafa áunnið sér traust og hylli almennings. Við leigjum eingöngu nýja bíla. Viðskipti við okkur gefa punkta í Vildarþjónustu Flugleiða. Á verði sem stenst allan samanburð: Dæmi um verö: Daggjald Lcigður aö morgtii, skiiað aö kvoidi. 100 kni akstur innif. Sólarhringsgjald 24 klukkustunda ieiga 100 km akstur innif. Vetrarverð: VWPolo Toyota Corolla Hatchback 2.870,- 3.270,- 3.470,- 3.970,- Sérverð til aðila í stéttarfélögum: VW Polo 2.470,- 2.970,- Toyota Corolla Hatchback 2.870,- 3.470,- Innifalið er 100 km akstur, skyldutr>7gging og virðisaukaskattur. Bensín greiðist aukalega. * Vegna misskilnings viö upplýsingagjöf til blaöamanns birtust tölur í laugardagsblaöi Morgunblaösins sem gáfu airanga mynd af verðlagningu Hertz Bílaleigu Flugleiða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.