Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Rannsókn enn ekki hafin á meintum fjöldagröfum í Bosníu Reuter MYNDIN var tekin úr bandarískum gervihnetti og sýnir eina af meintum fjðldagröfum með líkams- leifum fórnarlamba Bosníu-Serba í Nova Kasaba. NATO gæti öryggis rannsóknarmanna Sarajevo, Brcko, Glogova. The Daily Telegraph. Reuter. STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLL Sam- Austurríki 40 ára göm- ulvopnabúr Vín. Reuter. BANDARÍSK stjórnvöld ætla að veita Austurríkismönnum upplýs- ingar um hvar bandarísk vopn voru falin í Austurríki fyrir 40 árum vegna hugsanlegrar innrásar Sovét- manna, að sögn Swanee Hunt, sendi- herra Bandaríkjanna í Vín. Sendiherrann sagði í gær að Bandaríkjumenn hefðu komið vopnabirgðum fyrir á 79 stöðum í sveitahéruðum í Austurríki án þess að skýra austurrískum stjórnvöldum frá því með formlegum hætti. Bandaríkjamenn, Bretar, Frakkar og Sovétmenn hemámu Austurríki í síðari heimsstyijöldinni til ársins 1955. „Ég hef vitneskju um að austur- rísku stjóminni var aldrei skýrt frá þessu formlega. Ég legg þó áherslu á að með þessu er ég ekki að segja að enginn Austurríkismaður hafi vit- að af þessu,“ sagði sendiherrann. Fritz Molden, sem barðist gegn nasistum í stríðinu, fullyrti að Leop- old Figl, kanslari frá 1945-1953, og æðstu ráðherrar hans hefðu vitað af vopnabúranum og raunar beðið um vopnin þar sem þeir hefðu óttast að Sovétmenn myndu reyna að leggja landið undir sig. Reuter Flugmaðurinn ekki drukkinn RODRIGO Cabrera, sem stjórnar rannsókninni á flugslysinu í Kólumb- íu í síðasta mánuði, segir að læknar hafi útilokað að flugmaður farþega- þotunnar hafí verið drukkinn og valdið slysinu. Á myndinni sjást feðginin Gonzalo og Michelle Dussan sem koníust af. einuðu þjóðanna í Haag hefur óskað eftir aðstoð hersveita Atlantshafs- bandalagsins við rannsókn á meint- um fjöldagröfum nærri Brcko í norð- urhluta Bosníu til að koma í veg fyrir að Bosníu-Serbar hrófluðu við gröfunum. Múslimar og Króatar full- yrða að flestir þeirra 3.000 manna sem haldið var í fangabúðum Bosn- íu-Serba, liggi grafnir í skóginum við Brcko. Gröfin er á svæði sem bandarísk- ir hermenn í NATO-liðinu hafa eftir- lit með. Leighton Smith, yfírmaður her- afla NATO í Bosníu, varð við þeirri ósk í gær eftir viðræður við aðalsak- sóknara stríðsglæpadómstólsins. Smith hafði þó sagt á sunnudag að hermenn bandalagsins myndu „ekki, ég endurtek ekki... gæta öryggis þeirra hópa sem hyggjast rannsaka grafímar". Sagði Smith að þeim hermönnum NATO er gættu svæða þar sem talið væri að fjöidagrafir væri að fínna bæri að tilkynna um allar gransamlegar mannaferðir sem gætu bent til þess að einhver hefði átt við grafirnar. Þá myndi NATO fljúga könnunarflug yfir nokkra af þessum stöðum í rannsóknarskyni. Sönnunargögn til stríðsglæpadómstóls Æ frekari sannanir hafa komið fram fyrir því að allt að 3.000 manns hafi látið lífíð er Bosníu-Serbar náðu Brcko á sitt vald. Blaðamenn hafa rætt við sjónarvotta og sjálfír komið á staðinn. Talið er að flestir hafí verið líflátnir í maí og júní 1992 en fólkinu hafi verið haldið í fangabúð- um Bosm'u-Serba nærri Brcko. Skipulegar aftökur hafí farið fram í búðunum og Serbar losað sig við lík- in í dýrafóðurverksmiðju nærri ánni Sava og fjöldagröfum. Gröfín er í tijálundi, um 100 metra frá veginum sem herlið NATO fer reglulega um. Sjö fjöldagrafir við Srebrenica Þá er unnið að rannsókn á fjölda- gröf við bæinn Glogova en þar er talið að hluti fórnarlamba Bosníu- Serba í Srebrenica í fyrrasumar sé grafinn. Að minnsta kosti sjö fjölda- grafir hafa sést úr flugvél, þar á meðal þessi, og er þess nú beðið að starfsmenn stríðsglæpadómstólsins hefji þar uppgröft. Á sunnudag fór þangað hópur fréttamanna í fylgd John Shattuck, sem fer með mann- réttindamál í bandaríska utanríkis- ráðuneytinu. Stríðsglæpadómstóllinn telur að um 2.000 manns séu grafnir við Glogova og sáu Shattuck og blaða- mennirnir ummerki um grafir, m.a. sást í fatnað og bein. Shattuck seg- ir að fólkið hafi verið rekið inn í vöruhús, sprengjum hent inn og þeir skotnir sem reyndu að flýja. Bosníu- Serbar höfðu fengið fólkið til að yfírgefa felustaði sína í skóglendinu með því að ræna friðargæsluliða SÞ bláu hjálmunum og setja þá upp. í ákæru stríðsglæpadómstólsins segir að Ratko Mladic, yfirmaður hers Bosníu-Serba, hafi verið á staðnum og hvatt fólkið til að gef- ast upp. Þá var einnig farið á knattspyrnu- völlinn við Srebrenica þar sem um 2.000 karlmönnum frá bænum var safnað saman og þeir síðar teknir af lífi. Ekki er vitað um afdrif rúm- lega 3.000 manna til viðbótar sem hurfu í Srebrenica er Bosníu-Serbar tóku bæinn. BARNALEIKFIMIFATNAÐUR HAGÆÐA LElKFiMIFATNAÐUR HREYSTI VERSLANIR LAUGAVEGI 51 - S. 55) -7717 - SKEIFUNNI19 - S.568-1717 Landa- mærum lokað HER Tansaníu gerði í gær um 17.000 hútúmenn frá Rúanda afturreka frá landamærunum að Búrúndí, að sögn starfs- manna Rauða krossins. Yfir 14.000 hútúar komust til Tansaníu í síðustu viku og sögðust yfirvöld þar ekki geta tekið við fleira fólki. Fólk þetta flýði morðölduna í Rúanda fyr- ir hálfu öðru ári og hélt til Búrúndí en er nú á flótta undan ofsóknum stjórnarhers Búr- úndí, sem tútsar ráða. Helmingur horfir til vesturs NÆRRI helmingur Slóvaka er fylgjandi því að landið sæki um aðild að vestrænum samtökum á borð við Atlantshafsbanda- lagið og Evrópusambandið, að því er fram kemur í nýlegri skoðanakönnun. Aðeins 3% landsmanna telja að landið eigi að sækjast eftir nánari tengsl- um við Rússa en um 20% telja hins vegar að það sé verið að gera núna. Á fjórða hundrað handteknir FRAKKAR hafa handtekið 344 menn í tengslum við fjölda sprengjutilræða í í París og Lyon sl. sumar og haust. Af þeim eru 95 enn í haldi, að sögn Jean-Louis Debre innan- ríkisráðherra. Draga úr viðskiptum við íraka JÓRDANIR hafa ákveðið að draga úr útflutningi sínum til íraks um allt að helming. Ástæðuna segja þeir gífurlegar skuldir íraka. Jórdanir hafa selt írökum matvæli og vörur sem Sameinuðu þjóðirnar Ieyfa, fyrir um 200 milljónir dala ár- lega, um 16,2 milljarða ísl. kr. Slepptu gísl í Indónesíu SKÆRULIÐAR aðskilnaðar- sinna i Indónesíu slepptu í gær einum af fjórtán gíslum sínum, sem þeir hafa haft í haldi í tvær vikur. Af gíslunum eru sex Vesturlandabúar og er von- ast til þess að lausn gíslsins sé merki um það að gíslamálið leysist á næstu dögum. Námskeið fyrir þá sem vilja skara fram úr: TpLymiMSJÓNÍ Nutimarekstri Stýrikerfi og netumsjón, Word, Excel, Access, PowerPoint, fjölvar, VisualBasic, tölvusamskipti og Intemetið era tekin fyrir á þessu ítarlega námskeiði. 145 kennslust., kr. 99.900,- stgr. Námskeið á fimmtudögum og laugardögum ■ Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvuráðgjof • nómskeið • utgáfa Grensásvegi 16 ■ simi 568 8090 hk 960221_____Raðiireiðslur Euro/VISA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.