Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elsku faðir minn, GARÐAR DAGBJARTSSON, Nestúni 4, lést í sjúkrahúsinu á Hvammstanga sunnudaginn 21. janúar. Hera Garðarsdóttir. t Móðir okkar, KRISTÍN KRISTMUNDSDÓTTIR, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 20. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Örn Óskarsson, Bára Óskarsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BERGSTEINN KRISTJÓNSSON frá Laugavatni, andaðist á Ljósheimum, Selfossi, 20. janúar. Sigrún Guðmundsdóttir, Sigriður Bergsteinsdóttir, Björn Jakobsson, Hörður Bergsteinsson, Elfn Bachman Haraldsdóttir, Kristín Bergsteinsdóttir, Áslaug Bergsteinsdóttir, Ari Bergsteinsson, Sigrún Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur bróðir okkar og frændi, TÓMAS EMIL MAGNÚSSON frá ísafirði, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 21. janúar sl. Minningarathöfn og jarðarför auglýst síðar. Ólafurl. Magnússon, Arnþrúður Aspelund, Halldór Magnússon, Jónas Magnússon, Kristín Högnadóttir. t Faðir okkar,tengdafaðir, afi og langafi, ELÍAS KR. KRISTJÁNSSON, bifvélavirkjameistari, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar- kirkju miðvikudaginn 24. jan. kl. 15.00. Björgvin Elíasson, Ingibjörg Aðalsteinsdóttir, Pétur Eliasson, Guðlaug Eiriksdóttir, Guðbjörg Elíasdóttir, Gísli Friðfinnsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma, HELGA MAGNÚSDÓTTIR, Tómasarhaga 41, sem lést á heimili sínu 9. janúar verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju mið- vikudaginn 24. janúar kl. 15.00. Sigurður Sævar Sigurðsson, Björn Sigurðsson, Sig Signhildur Sigurðardóttir, Úlfi Birna Hrönn og Sigurður, t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ANDRÉSAR H.G. KJERÚLF, Akri, Reykholtsdal. Þórunn Kjerúlf, Jónas Kjerúlf, Brynja Ó. Kjerúlf, Ingibjörg Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. EDDA TRYGGVADÓTTIR + Edda G. Tryggvadóttir fæddist í Réykjavík 20. október 1935. Hún lést á Landspít- alanum 16. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðrún P. Guð- mundsdóttir, f. 10.6. 1901, d. 8.10. 1983, og Tryggvi Gunn- arsson glímukappi og smiður, f. 10.6. 1895, d. 26.10. 1967. Hún ólst upp hjá for- eldrum sínum, ein af tíu systkinum. Hún átti öll sín bemsku- og unglingsár heima á Lokastíg 6 í Reykjavík, sem fað- ir hennar byggði 1919 af miklum stórhug fyrir sína stóru fjöl- skyldu. Edda keypti síðar sína eigin íbúð í Álftamýrinni og núna ELSKULEG vinkona mín, Edda Tryggvadóttir, er látin eftir mjög strangt sjúkdómsstríð. Við kynntumst smástelpur, hún var falleg með ljósa hrokkna hárið sitt, sem hún sagði að aldrei gæti verið til friðs. Edda ólst upp á Lokastígnum og voru systkinin 10. Oft hlýtur að hafa verið erfitt hjá foreldrum henn- ar með stóra barnahópinn en Edda mundi aðeins glaðværa æskudaga, hjá elskulegum foreldrum og systk- inum. Við lentum í sama bekk í Gagn- fræðaskóla Austurbæjar, og man ég enn sundferðirnar okkar allan ársins hring svo aldrei náðu sundbolirnir að þorna, því við fórum stundum tvisvar á dag í höllina sem var stutt frá heimilum okkar beggja. Edda stundaði einnig mikið leikfimi, og sund stundaði hún alla tíð. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar Edda mín er farin, eins og t.d. þegar við tókum þátt í boðsundsmóti framhaldsskólanema fyrir skólann okkar, og gleymi ég aldrei kvöldinu sem keppnin fór fram og við stóðum undir sturtunni skjálf- andi af kulda og æsingi, með helblá- ar varir. Þá sáum við okkur til skelf- ingar að undir einni sturtunni stóð ein af bestu sundstjörnum þessa tíma og átti að keppa á móti okkur ásamt fleirum fyrir Kvennaskólann. Edda var auðvitað sett henni til síðustu fimm árin bjó hún í Ásholti 2 í Reykjavík. Edda átti einn son, Pétur Þóri Hugus, f. 7.5. 1962. Eiginkona hans er Sigríður Sigurðar- dóttir, f. 25.8. 1968, þeirra sonur er Dav- íð, f. 2.11. 1994. Edda vann alltaf við skrifstofu- og gjald- kerastörf, síðustu 30 árin hjá Borgarsjóði Reykjavíkur. Edda leysti borgargjald- kera af í mörg ár i forföllum hans, en síðustu árin starfaði hún sem borgargjald- keri Reykjavíkur. Útför Eddu fer fram frá Krossinum, Hlíðarsmára 5-7 í Kópavogi, í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. höfuðs því hún var svo langbest af okkur, og þvílíkt, hún var í einu orði sagt stórkostleg, þar sem hún þaut áfram á sundinu. Þær voru upplitsdjarfari ungu stúlkurnar þeg- ar fagnaðarlætin brutust út í troð- fullri Sundhöllinni, því við sigruðum, og Eddu var svo sannarlega eignað- ur sigurinn. Síðan leið tíminn við alls konar nám og störf, Edda vann t.d. um tíma á Keflavíkurflugvelli, enda tal- aði hún og skrifaði mjög góða ensku. Hún talaði sérstaklega fallegt mál og hafði mjög gaman af að ræða íslenskt málfar. Lengstur var starfstími hennar sem gjaldkeri hjá Reykjavíkurborg, og fyrir nokkrum árum var hún skip- uð borgargjaldkeri, og skilaði hún því starfi með sóma og af mikilli samviskusemi. Edda var alla tíð snyrtileg í klæða- burði án þess að vera sérstaklega pjöttuð, keypti sér ætíð vönduð föt og klæddi sig smekklega. Mér er samt efst í huga hvað hún hafði fallegar hendur. Edda fór oft til útlanda og þá einna helst heimsótti hún Erlu syst- ur sína sem býr í Bandaríkjunum, og mikil var gleði þeirra beggja þeg- ar Edda gat heimsótt hana sl. vor, þó skyggði á, að hún var þá orðin helsjúk. Edda eignaðist einn dreng, Pétur Þóri Hugus, hann var sólargeislinn t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR, Hólabraut 3, Hafnarfirði, lést í St. Jósefsspítala aðfaranótt laugardagsins 20. janúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 26. janúar kl. 13.30. Oddur Ingvason, börn, tengdabörn og barnabörn. t Frændi okkar, HAFLIÐI JÓNSSON, Lækjargötu 9, Akureyri, sem lést á dvalarheimilinu Skjaldarvík 19. janúar, verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 26. janúar kl. 13.30. Magnús Guðmundsson, Rósa Jóni'da Benediktsdóttir, Kolbrún Magnúsdóttir, Auður Magnúsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, GUÐMUNDUR JÓNSSON, Langholtsvegi 93, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 24. janúar kl. 13.30. Ólöf Þorsteinsdóttir. í lífí hennar. Pétur er nú kvæntur maður, og á einn son og tvö fóstur- börn. Edda var hamingjusöm með litlu fjölskyldunni sinni og naut þess að vera með barnabörnin hjá sér, en þessi tími varð alltof stuttur. Pétur hefur reynst móður sinni afskaplega vel, og sýndu þau hvort öðru elsku og virðingu, og er hans missir mestur. Edda átti fallega litla íbúð í Ás- holti 2, sem er efst við Laugaveg- inn, og fannst henni að þar væri hún komin í „gamla bæinn“ sinn aftur. Við Edda höfðum mikið samband síðustu árin, og stutt að skjótast til hennar þegar hún var komin í Ás- holtið ef keyrt var Laugaveginn. Alltaf voru móttökurnar innilegar og gátum við malað endalaust, þó man ég ekki eftir að við töluðum um sultu-, kæfugerð eða kökuupp- skriftir, af nógu öðru var að taka. Hún vinkona mín var ákaflega vönd að virðingu sinni og mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Og mestar kröfur gerði hún til sjálfrar sín í allri vinnu. Hún var mikill vinur vina sinna, og alltaf hafði hún eitthvað gott til málanna að leggja ef eitt- hvað bjátaði á. Á stuttum tíma læddist þessi voðalegi sjúkdómur að henni svo ekkert varð við ráðið. Edda mín fór æðrulaus í gegnum sitt sjúkdóms- stríð, var sárþjáð eftir lyfjagjafir og geislameðferð, en allt kom fyrir ekki. Trúin á Guð hjálpaði henni eins og svo mörgum síðasta spölinn í þessu lífi, og hún var svo innilega þakklát fyrir að Pétur sonur hennar hafði gengið í trúfélagið Krossinn, þaðan sem hann fær nú styrk og stuðning til að mæta þessu áfalli að missa móður sína langt um aldur fram. Það var bæði ljúft og sárt að sitja hjá henni stund og stund síðustu dagana á spítalanum. Kvöldið fyrir andlát hennar, komst hún aðeins til meðvitundar, horfði á mig, hvíslaði: „Ertu ekki orðin þreytt? Viltu ekki leggja þig?“ Þetta var hún Edda mín. Eg kvaddi hana þá með sömu orðum og við kvöddumst svo oft með í gegnum tíðina: „Vertu sæl elsku vinkona mín, mér þykir vænt um þig og Guð veri með þér.“ Þann- ig kveð ég hana einnig nú. Eg votta Pétri, Sigríði og börnum þeirra mína dýpstu samúð, svo og öðrum ættingjum hennar og vinum. Ellen Þóra Snæbjörnsdóttir. Látin er í Reykjavík vinkona mín, Edda Tryggvadóttir borgargjaldkeri í Reykjavík. Mikið bar hún sig vel í veikindunum og tók sínum örlögum með æðruleysi og jafnaðargeði og var alveg ótrúlega sátt við sitt hlut- skipti. Við Edda kynntumst fyrst í Lind- argötuskóianum 1949, þar sem við vorum í einn vetur, síðan vorum við í Gagnfræðaskóla Austurbæjar tvo vetur. Var þetta óskaplega skemmti- legur tími, alltaf eitthvað um að vera og allt lífið framundan. Edda var mjög myndarleg, há og spengileg og með afskaplega fallegt ljóst hár. Hún vakti óskipta athygli. Má ég til með að segja litla sögu, sem skeði fyrir nær 30 árum, þegar yngri sonur minn, sem var þriggja ára, var að skoða erlent myndablað. Hann kom hlaupandi fram í eldhús til mín og kallaði: „Mamma, mamma, hér er mynd af henni Eddu vinkonu okkar.“ Þegar ég fór að skoða myndina, var myndin af Maureen O’Hara, sem var þá ein af fallegustu og dáðustu leikkonum þess tíma. Meira að segja barnið sá hvað lagleg Edda var. Það var ekki mikið upp á að bjóða í skemmtanalífinu fyrir unglinga á þessum árum, það var helst að fara í bíó eða niður á Laugaveg 11 og fá sér kakóbolla og hitta aðra ungl- inga, það var líka óspart gert. Eftir- minnilegt var það fyrir mig þegar ég 13 ára gömul kom fyrst á heim- ili Eddu. Þar var sko fjör, foreldrarn- ir og tíu systkini, öll fullorðin nema fjórir unglingar. Þetta var allt elsku- legt fólk. Mikið voru þau alltaf góð og elskuleg við mig. Þar var gott og ástríkt heimili. Þegar við vorum í gaggó lærðum við hvor hjá annarri sitt hvora vik- una. Og það skemmtilega var að mér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.