Morgunblaðið - 23.01.1996, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ær með tvö lömb
fannst við Búrfell
Náði kind-
inni á
þriðja degi
Mývatnssveit.
ÆR MEÐ tvö lömb fannst síð-
asta föstudag austur við Búr-
fell. Það var Hermann Krist-
jánsson sem fann kindurnar
og var hann þama einn á ferð.
Ekki var hann með neinn
hund með sér í ferðinni en
honum tókst þó að reka kind-
urnar alllangan veg eða niður
að Lúdent þar sem bíll hans
var. Við þessar aðstæður gekk
frekar illa að handsama kind-
urnar. Loks náðust þó lömbin
og voru sett í bílinn en ærin
slapp. Næsta dag leitaði Her-
mann hennar en varð einskis
vís. Þriðja daginn fór hann enn
af stað að.leita og fann þá ána
á fyrri stöðvum við Búrfell.
Það tók hann tvo og hálfan
tíma að teyma hana að bílnum
við Lúdent.
Ærin slök
Lömbin líta sæmilega út en
ærin er talin frekar slök og
ull farin að losna af henni.
Eigandi þessara kinda er Jón
Aðalsteinsson bóndi í Vind-
belg.
Brotist inn í hesthús
Skemmdir og
hrossum
hleypt út
ÞAÐ var ljót aðkoma í hest-
húsi í Lækjargili á Akureyri á
sunnudagsmorgun, brotist
hafði verið inn í húsið og var
búið að vinna töluverðar
skemmdir innandyra. Þá hafði
sjö hrossum sem í húsinu voru
verið hleypt út.
Brotist var inn í húsið að-
faranótt sunnudags. Eigendur
hrossanna leituðu þeirra þá
um daginn og fundust þeir
allir í Kjarnaskógi, skammt
sunnan hesthúsanna.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar var einnig brotist
inn í hesthús í Lækjargili í síð-
asta mánuði.
Kyrrðar-
stund
KYRRÐARSTUND verður í
Glerárkirkju í hádeginu á
morgun, miðvikudaginn 24.
janúar, frá kl. 12 til 13. Þetta
er fyrsta hádegiskyrrðar-
stundin á nýju ári, en slíkar
stundir verða I hádeginu alla
miðvikudaga fram að sumar-
deginum fyrsta, en þær eru
fastur liður í vetrardagskrá
kirkjunnar. Á kyrrðarstundun-
um er orgelleikur, helgistund,
altarissakramenti og fyrir-
bænir. Léttur máisverður
verður í safnaðarsal að stund-
inni lokinni, en öilum er vel-
komið að taka þátt.
Fíkniefna-
vandi
JÓNA Lísa Þorsteinsdóttir
guðfræðingur fjallar um fíkni-
efnavandann I opnu húsi fyrir
foreldra með ung börn,
„mömmumorgni" í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju, á
morgun, miðvikudaginn 24.
janúar frá kl. 10 til 12.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Margrét Þóra
ÞÓRGUNNUR Ingimundardóttir og Þyri Eydal kenndu á píanó
við Tónlistarskólann á Akureyri nánast frá stofnun
hans og þar til nú á síðustu árum.
INGVI Rafn Jónsson, Jakob Tryggvason sem var skóla-
stjóri frá 1950 til 1974 og Áskell Jónsson spjalla
saman í afmælishófinu.
Tónlistarskólinn á Akureyri
Haldið upp á
50 ára afmæli
HÁLFRAR aldar afmælis Tón-
listarskólans á Akureyri var
minnst með hátíðarsamkomu í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju á laugardag, en skólinn
tók til starfa 20. janúar 1946.
Skólanum voru færðar gjafir i
tilefni dagsins, m.a. frá nokkrum
af stofnendum hans.
Heiðursgestir voru Jakob
Tryggvason sem stjórnaði skól-
anum frá árinu 1950 til 1974, Jón
Hlöðver Áskelsson sem var við
stjórnvölinn frá þeim tíma og til
ársins 1991, Þyri Eydal en hún
kenndi á píanó við skólann frá
árinu 1947-1993 ogÞórgunnur
Ingimundardóttir sem einnig
kenndi á píanó á fyrstu árunum
og síðan aftur eftir hlé frá 1974
til 1994.
Tónlistarbandalag Akureyrar
sem saman stóð af Karlakór
Fiskverkun Sæunnar Axels hf. í Ólafsfirði
Saltfiskvinnslan flutt
til Reykjavíkur
FISKVERKUN Sæunnar Axels hf.
í Ólafsfirði hefur flutt hluta starf-
semi sinnar til Reykjavíkur. Vélar
og tæki fyrirtækisins, flökunar- og
flatningsvélar og önnur tæki hafa
verið flutt suður og þessa dagana
er verið að setja þau upp I Sjólahús-
inu svokallaða á Granda. Að sögn
Sæunnar Axelsdóttur er gert ráð
fyrir að fyrirtækið hefji starfsemi á
nýjum stað einhvern næstu daga.
Sæunn sagði margar ástæður
fyrir flutningnum til Reykjavíkur
en vildi að öðru leyti ekki ræða
þær. „Ég tel þessa niðurstöðu vera
heppilegasta bæði sjálfrar mín
vegna og míns fyrirtækis og þessi
ákvörðun er ekki tekin í neinu fljót-
ræði. En þetta þýðir að öll saltfisk-
vinnsla fyrirtækisins er að fara úr
bænum.“
Starfsfólki fækkar í Ólafsfirði
Starfsmannafjöldi fyrirtækisins í
Ólafsfirði hefur verið nokkuð mis-
munandi en að jafnaði hafa starfað
þar um 16-20 manns. Eftir flutning-
inn munu um 10 manns starfa í
Ólafsfirði og svipaður íjöldi í
Reykjavík.
„Við erum með þrjá þurrkklefa í
Ólafsfirði og munum áfram þurrka
fisk hér, hvað sem það verður lengi.
Ég geri það sem ég tel skynsamleg-
ast hveiju sinni og stend og fell
með þeim ákvörðunum. Við erum
búin að vinna við þessa þurrkun í
ein 7 ár og klefarnir eru í gangi
bæði dag og nótt nánast allan árs-
ins hring,“ segir Sæunn.
Þurrkaður fiskur til Brasilíu
Þurrkaði fiskurinn, sem er aðal-
lega þorskur, ufsi, keila og langa,
er seldur til Brasilíu og í fyrra voru
flutt út um 1.000 tonn frá fyrirtæk-
inu í Ólafsfirði. Þá var fyrirtækið
með verktaka á Selfossi, sem einnig
þurrkaði fisk og þaðan voru flutt
út um 2-300 tonn til viðbótar. Sæ-
unn Axels hf. hefur einnig verið í
verkun á skreið, sem farið hefur á
markaði í Kanada, Bandaríkjunum
og Frakklandi.
Fyrirtækið fletur, saltar og
þurrkar fiskinn með gamla laginu
en Sæunn vildi ekki trúa því á sínum
tíma að Islendingar væru úr leik í
þeirri framleiðslu á sama tíma og
Norðmenn einokuðu markaðinn.
„Nú höfum við komist inn á þennan
markað í Brasilíu en það hefur ver-
ið mjög erfitt. Við fórum út úr SÍF
1992 m.a. út af þessum fiskþurrk-
málum. Frá þeim tíma höfum við
verið að sanna okkur í þessari fram-
leiðslu og selt okkar afurðir sjálf,
undir eigin merki og það hefur
gengið mjög vel,“ segir Sæunn, sem
ásamt ijölskyldu sinni rekur út-
flutningsfyrirtækið Valeik hf. í
Reykjavík.
Sæunn Axels hf. á ijögur vinnslu-
hús í Ólafsfirði og er ljóst að með
flutningi saltfiskvinnslunnar til
Reykjavíkur mun starfsemin þar
dragast saman. „Það er ekkert
verra að eiga mörg hús. Það er þá
alltaf auðveldara að losna við þau
hvert fyrir sig en eitt stórt hús og
ekki síst ef þau eru í góðu standi."
Akureyrar, Karlakórnum Geysi,
Lúðrasveit Akureyrar, Kantötu-
kór Akureyrar og Tónlistarfé-
lagi Akureyrar stofnaði skólann
og fluttu fulltrúar nokkurra-
þeirra ávörp á samkomunni, auk
skólameistara Menntaskólans á
Akureyri og bæjarstjórans á
Akureyri.
Þá voru flutt erindi um gildi
tónlistarmenntunar og þýðingu
skólans fyrir tónlistarlíf bæði á
Norðurlandi og almennt hér á
landi.
Fjögiir
óhöpp í
umferð-
inni
FJÖGUR umferðaróhöpp urðu á
Akureyri um helgina, minniháttar
meiðsl urðu í einu þeirra, en eigna-
tjón varð töluvert.
Öll urðu óhöppin á gatnamótum
Glerárgötu, það fyrsta við Glerár-
götu og Þórunnarstræti, þá við
Glerárgötu og Gránufélagsgötu,
Glerárgötu og Smáragötu og loks
við Glerárgötu og Geislagötu.
Þrír ökumenn voru teknir fyrir
meinta ölvun við akstur um helg-
ina og tveir voru kærðir fyrir að
aka of hratt, annar ökumannanna
mældist á 122 kílómetra hraða á
Moldhaugnahálsi. Einn ökumaður
var tekinn fyrir að aka númers-
lausri bifreið og reyndist hann
einnig ölvaður.
Þá var lögreglu tilkynnt um
þjófnað úr bifreiðum og einnig var
tækjum og fleiru stolið frá bíla-
partasölu.
Mikil rækjuveiði
Stöðugar
landanir á
Akureyri
MJÖG GÓÐ rækjuveiðl hefur ver-
ið fyrir norðan land að undan-
förnu en frá áramótum hafa sex
skip landað samtals um 900 tonn-
um á Akureyri. Skipin eru Hákon
ÞH, Blængur NK, Svalbakur EA,
Margrét EA, Hjalteyrin EA og
Gissur ÁR. Blængur NK kemur
aftur inn til Iöndunar á Akureyri
í vikulokin en togarinn verður
tekinn í flotkvínna í næstu viku.
Þá er von á Pétri Jónssyni RE, inn
til löndunar í næstu viku með
góðan afla. Á myndinni er verið
að landa rækju úr Blæng NK, sem
landaði um 130 tonnum á Akur-
eyri í síðustu viku.
Morgunblaðið/Kristján