Morgunblaðið - 23.01.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 2 7
Sigrún Eðvaldsdóttir og
Selma Guðmundsdóttir.
Selma og
Sigrún í
Carnegie
Hall
SIGRÚN Eðvaldsdóttir, fiðluleikari,
og Selma Guðmundsdóttir, píanóleik-
ari, héldu nýlega tónleika í Weill
Recital Hall í Carnegie Hali í New
York þar sem þær fluttu íslensk lög
í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar
og verk eftir Vitali, Beethoven,
Chausson og de Faila/Kreisler.
Selma hefur leikið oft áður í New
York en þetta var í fyrsta skipti sem
Sigrún kemur fram þar.
Selma Guðmundsdóttir sagði í
samtali við blaðamann að hátt á
annað hundrað manns hefðu sótt
tónleikana sem sé gott miðað við það
að margt var á seyði í New York-
borg þetta kvöld. „Við fengum mjög
góðar undirtektir meðal áhorfenda
sem voru fiestir bandarískir en einn-
ig voru nokkrir landar okkar komnir
til að hlusta.“
Selma segir að tónleikar í
Carnegie Hall hafi óneitanlega nokk-
uð auglýsingagildi, „menn frá Was-
hington-borg komu til dæmis að
máli við okkur um að halda tónleika
þar. Það má kannski líka segja að
þetta sé viss áfangi að hafa spilað í
þessu fræga húsi, það er gott að
hafa þetta á ferlinum sínum.“
-----» ♦ ♦----
Islenski dansflokkurinn
og Þjóðleikhúsið
Staða listdans-
stjóra laus til
umsóknar
ÍSLENSKI dansflokkurinn og Þjóð-
leikhúsið hafa auglýst stöðu listdans-
stjóra lausa til umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 20. febrúar næstkom-
andi en ráðið verður í stöðuna frá
1. ágúst 1996 til þriggja ára.
Samkvæmt reglugerð á að ráða
listdansstjóra til þriggja ára í senn
en að sögn Vilborgar Gunnarsdóttur
framkvæmdastjóra íslenska dans-
flokksins var sú breyting gerð í fyrra
að hann var ráðinn til eins árs. „Það
var gert til þess að við ættum mögu-
leika á að auglýsa stöðuna betur,
erlendis en verið hefur gert. Að þessu
sinni auglýsum við tímanlega til að
kanna hvað markaðurinn hefur upp
á að bjóða.“
María Gísladóttir hefur gegnt
stöðu iistdansstjóra hjá íslenska
dansflokknum undanfarin fjögur ár
og kveðst Vilborg vona að hún verði
meðal umsækjenda að þessu sinni.
„Það verður hins vegar stjórnar ís-
lenska dansflokksins að vinna úr
umsóknum og það kemur í ljós í
byijun mars hver verður ráðinn í
stöðuna.“
-----♦ ♦ ♦----
Steinvör sýnir
í Lóuhreiðri
ÞESSAR vikurnar stendur yfir sýn-
ing Steinvarar Bjarnadóttur í Lóu-
hreiðri, Kjörgarði við Laugaveg.
Á sýningunni eru vatnslitamynd-
ir úr íslenskri náttúru. Steinvör
hefur haldið sýningar víðsvegar
undanfarin ár.
Gleði, vonleysi,
reiðiog sátt
TONLIST
Bústaðakirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Bemardelkvartettinn flutti verk eft-
ir Beethoven, Shostakovitsj og
Brahms á tónleikum Kammermúsik-
klúbbsms, sunnudaginn 21. janúar,
1996.
AÐ hlusta á tónlist er í raun
margbrotin „athöfn", þ.e. að vinna
úr þeim hljóðum sem 'berast tii eyr-
ans og þar í er fólgin ráðgátan
varðandi mismunandi tónlistar-
áhuga manna. Því einfaldari sem
tónlistin er, því auðveldari er úr-
vinnslan og að hlusta á flókna tón-
list útheimtir ekki aðeins næma
tilfinningu fyrir samröðun tón-
anna, heldur þarf bæði að koma
til þekking og þjálfun í hlustun.
Þeir sem vilja og ná því að njóta
t.d. kammertónlistar, þurfa að gefa
sér góðan tíma í hlustun og hefur
því verið haldið fram, að þá nálg-
ist menn það sem kalla mætti djúpa
íhugun.
Við fyrstu heyrn liggur ekki allt
ljóst fyrir í kvartettum Beethovens
og alls ekki fyrr en hlustandinn
hefur lært að sundurgreina marg-
brotið tónferlið, þ.e. beinlínis að
heyra allt sem er að ske. Sjöundi
kvartettinn, sá fyrsti af svonefnd-
um Rasoumovsky kvartettum, sem
oft er nefndur sellókvartettinn, er
glæsileg tónsmíð og var um margt
vel leikinn af Bernardelkvartettin-
um, sérstaklega annar og einnig
þriðji þátturinn, sem er í flokki
þeirra meistaraverka, sem margir
af hægu þáttunum í verkum Beet-
hovens eru. í fjórða þættinum, þar
sem Beethoven vinnur úr rússnesku
þjóðlagi, vantaði meiri hrynskerpu.
Sjöundi kvartettinn eftir Shos-
takovitsj er einkennileg tónsmíð,
mjög tilfinningaþrungin, glaðleg
og gsimansöm, svolítið stíðnisleg í
upphafi og þá tekur vonleysið völd-
in og síðan ofsaleg reiði en verkinu
lýkur samt með tregafullri sátt.
Þetta stutta og áhrifamikla verk
var mjög vel leikið og andstæður
tónmálsins vei útfærðar.
Tónleikunum lauk með þriðja
kvartettinum, eftir Brahms, glæsi-
legu kammerverki sem var að
mörgu leyti vel leikið, með skýrum
andstæðum. Bernardelkvartettinn
er á góðri leið hvað snertir samspil
og túlkun en það sem bæta mætti
til að leikurinn verði sem næst óað-
finnanlegur, er inntónunin og merk-
ir það meira en að leika hreint, einn-
ig að tónn hljóðfæranna sé sam-
stæður í blæ og tóngerð. Þetta er
helst áberandi þegar leikið er sterkt
og kom stundum fyrir í Brahms,
meira en í fyrri verkunum. Því veld-
ur trúlega að tónbreytingar eru
örari hjá Brahms, en t.d. Beethoven
en hækkaðir og lækkaðir tónar
hafa ekki sömu sveifluvirkni, þó
umrita megi sem sama tónheiti.
Þegar fengist er við inntónun er
samspilsvinnan komin á „æðra“
stig, stig algjörrar fágunar.
Guðmundur Kristmundsson lág-
fiðluleikari átti fallega leiknar stróf-
ur í Brahms, bæði í þriðja og fjórða
þættinum. Zbigniew Dubik er frá-
bær leiðari en var á einstaka stað
of hljóðlátur eða hlédrægur og til-
litssamur við samleikara sína. Það
er orðið gott samspilið á milli hans
og Gretu Guðnadóttur. Guðrún Th.
Sigurðardóttur opnaði tónleikana
með fallegum leik í upphafi selló-
kvartettsins. í heild var gott styrk-
ieikajafnvægi á milli hljóðfæranna
og samspilið gott, þó nokkuð vant-
aði á hrynskerpuna í lokaþætti Be-
ethovens. Shostakovitsj var sérlega
vel leikinn og sama má segja um
fyrsta þáttinn í Brahms, sem er
yndisleg tónsmíð.
Jón Ásgeirsson
Morgunblaðið/Þorkell
ÞAU koma fram annað kvöld: Richard Korn, Kristinn Sigmunds-
son, Olafía Hrönn, Gerrit Schuil og Atli Heimir Sveinsson.
Lögin úr leikhúsinu
Kristinn á leikhúskvöldi
Atla í Kaffileikhúsinu
FJÓRÐU tónleikarnir í tónleika-
röð Kaffileikhússins sem helguð
er íslenskri leikhústónlist verður
á morgun, miðvikudag 24. janúar
kl. 21. Þá mun Atli Heimir
Sveinsson tónskáld kynna leik-
hústónlist sína og fær hann til
liðs við sig eftirtalda listamenn:
Kristin Sigmundsson söng-
vara, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur
leikkonu og söngkonu, Örn Árna-
son leikara og söngvara og fé-
laga úr Caput-hópnum, sem eru
þeir Gerrit Schuil píanóleikari,
Kolbeinn Bjarnason flautuleik-
ari, Pétur Grétarsson slagverks-
leikari og Richard Korn kontra-
bassaleikari.
Á dagskránni verða sönglög
sem Atli hefur samið fyrir hinar
ýmsu leiksýningar í gegnum árin
og spanna þau 25 ára tímabil.
Fluttir verða söngvar úr Ieik-
ritunum Bubba kóngi eftir Alf-
red Jarry, textar eftir Þórarin
Eldjárn, Dimmalimm eftir Helgu
Orgel vígt með frumflutningi tónverks eftir Jónas Tómasson
Kostnaður
greiddur
af tveim
útgerðum
ísafirði. Morgunblaðið.
ORGELIÐ í nýrri ísafjarðarkirkju
var vígt að viðstöddu miklu ijöl-
menni síðastliðið fimmtudagskvöld.
Flutt var verkið Dýrð Krists eftir
Jónas Tómasson tónskáld, en hann
samdi verkið sérstaklega af þessu
tilefni. Hörður Áskelsson lék á org-
elið, en það er tuttugu og tveggja
radda smíðað af P. Bruhn og Sön
Orgelbyggeri í Aarselv í Danmörku.
Tvær útgerðir og dótturfyrirtæki
þeirra gáfu féð til kaupanna, um
20 milljónir króna.
Útlit orgelsins er að nokkru
hannað af Hróbjarti Hróbjartssyni
arkitekti kirkjunnar og er allt tré-
verk úr eik. Það voru útgerðar-
mennirnir Ásgeir Guðbjartsson og
Guðmundur Guðmundsson, aðaleig-
endur Guðbjargar ÍS, sem 15. nóv-
ember 1990 afhentu kirkjunni 10
milljónir, sem minningargjöf um
foreldra þeirra, hjónanna Jónínu
Guðbjartsdóttur og Guðbjarts Ás-
geirssonar og Jónu Salómonsdóttur
og Guðmundar Stefáns Guðmunds-
sonar, og skyldi fénu varið til orgel-
kaupa. Um tveimur og hálfu ári
seinna afhenti svo Jóakim Pálsson
í Hnífsdal 5 milljónir til sjóðsins frá
Mjölvinnslunni í Hnífsdal og eina
milijón frá Hraðfrystihúsinu hf. og
Miðfelli hf., sem gerir út togarann
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
MERKISDAGUR í sögu ísafjarðarkirkju: Jónas Tómasson, Sig-
rún Guðmundsdóttir, Hulda Bragadóttir, Hörður Áskelsson, sr.
Magnús Erlingsson og Björn Teitsson.
Pál Pálsson. Þetta fé með vöxtum
hefur svo dugað til að kaupa orgel-
ið, sem er meðal 10 stærstu orgela
í landinu. .
Samningar um smíði og uppsetn-
ingu stóðust og var orgelið fyrst
notað við jólaguðsþjónustu á að-
fangadagskvöld. Þá lék Hulda
Bragadóttir, orgelleikari ísafjarðar-
kirkju og kórstjóri, á hljóðfærið.
Sóknarnefnd samdi við Jónas
Tómasson, tónskáld á Isafirði, um
að semja kirkjulegt orgelverk til
flutnings á víxlutónleikunum. Verk-
ið nefnir hann Dýrð Krists - sjö
hugleiðingar fyrir orgel og er það
með tilvitnunum í jafnmarga ritn-
ingartexta. Sigrún Guðmundsdótt-
ir, kennari á ísafirði, las ritningar-
textana, en Hörður Áskelsson, or-
gelleikari Hallgrlmskirkju, flutti
tónverkið.
Björn Teitsson, formaður sóknar-
Egilson, Ofvitanum eftir Þór-
berg Þórðarson í leikgerð Kjart-
ans Ragnarsonar, Land míns föð-
ur eftir Kjartan Ragnarsson og
Eg er gull og gersemi eftir Svein
Einarsson. Þeir Sveinn Einars-
son, Kjartan Ragnarsson og Þór-
arinn Eldjárn munu vera við-
staddir leikhústónlistarkvöld
Atla Heimís og segja frá verkum
sínum.
nefndar, gat þess í upphafi vígslu-
tónleikanna að lagður yrði niður sá
siður sem ávallt hefur verið virtur
í ísafjarðarkirkju að ekki mætti
klappa. Óhætt er að segja að kirkju-
gestir tóku þessari nýlundu vel og
fögnuðu tónskáldi og flutningsfólki
með dynjandi lófataki. Auk frum-
flutningsins söng kirkjukór ísa-
fjarðarkirkju tvö sálmalög, annað
við lag Jónasar Tómassonar eldri,
við undirleik Huldu Bragadóttur.
Síðan lék Hörður Áskelsson Toccötu
og fúgu eftir Jóhann Sebastian
Bach.
Að lokum sungu allir kirkjugest-
ir í faðmi fjalia blárra við lag Jónas-
ar Tómassonar eldri.
Að lokinni athöfninni færði Guð-
mundur Guðmundsson kirkjunni að
gjöf málverk eftir Jónas heitinn
Guðmundsson, sem sýnir gömlu
kirkjuna og nágrenni hennar.
Styrkur
úr sjóði
Marinós
í ÁR verður veittur í annað
sinn styrkur úr Söngmennta-
sjóði Marinós Péturssonar.
Úmsóknarfrestur er til 10.
febrúar næstkomandi. Stofnfé
sjóðsins er dánargjöf Marinós
Péturssonar sem var um ára-
bbil kaupmaður í Reykjavík.
Árið 1978 hætti hann fyrir-
tækjarekstri og flutti tii æsku-
stöðva sinna á Bakkafirði þar
sem hann var trillukarl síðust
tólf ár ævinnar. Marinó lést
árið 1991.
Marinó var alla tíð tónlistar-
unnandi og spilaði sjálfur á
píanó. Síðustu árin á Bakka-
firði veitti hann börnum á
staðnum ieiðsögn í tónlist.
Stofnfé sjóðsins var um 16
milljónir. Honum er ætlað að
styrkja unga og efnilega
söngvara til náms.
I stjórn sjóðsins eru Guð-
mundur Eiríksson, Haukur
Björnsson og Stefán Arn-
grímsson. Sjóðurinn er í umsjá
Islensku óperunnar.
Ljóðakvöld á
Mömmu Rósu
LJÓÐAVINIR í Kópavogi
halda mánaðarlegt ljóðakvöld
á veitingastaðnum Mömmu
Rósu, Hamraborg 11 í Kópa-
vogi, næstkomandi fimmtudag
kl. 20.30.
Þessi ljóðakvöld „síðasta
fimmtudag hvers mánaðar"
hafa verið haldin reglulega frá
því síðastliðið haust og hafa
meðal annars komið fram
Steinþór Jóhannsson, Gylfi
Gröndal, Hjörtur Pálsson, Böð-
var Guðlaugsson, Jón úr Vör,
Sveinn Sæmundsson, Valdi-
mar Lárusson, Elín E. Guð-
mundsdóttir; Erlingur Gísla-
son, Einar Ólafsson, Marteinn
Götuskeggi, Jón frá Pálmholti,
Jón Óskar o.fl.