Morgunblaðið - 23.01.1996, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 47
fannst svo gaman að vera heima hjá
henni og henni fannst svo gaman
heima hjá mér að við urðum eins og
ein úr fjölskyldunni hvor hjá annarri.
Það er margs að minnast í gegn-
um öll þessi ár og í raun væri hægt
að skrifa heila bók um þessi 47 ár.
Þrátt fyrir að ég gifti mig og eign-
aðist börn en Edda ynni alltaf úti
og var laus og liðug lengi vel, var
alltaf afskaplega náið samband milli
okkar. Það var eins og við fyndum
á okkur ef eitthvað var að hjá hinni.
Oft kom það fyrir að við hringdum
hvor í aðra á sama tíma. Edda var
svo lánsöm að eignast son, hann
Pétur Þóri, sem er nýkvæntur in-
dælli konu, og á hann einn son með
henni og tvö stjúpbörn.
Þau hafa stutt og hjálpað Eddu í
gegnum veikindi hennar af mikilli
ástúð og umhyggju. Eddu þótti af-
skaplega vænt um að eignast þessa
fallegu fjölskyldu, sem henni fannst
hún eiga fyrir sig.
Edda var mjög ákveðin í skoðun-
um og gat enginn fengið hana til
að skipta um skoðun ef hún var
búin að ákveða eitthvað. Þegar hún
fór að vinna eftir skóla byrjaði hún
hjá Feldinum, sem var stórt og
myndarlegt fyrirtæki þá. Það var
ekki langt þangað til hún var gerð
að gjaldkera, sem hún sinnti af
stakri prýði. Þar vann hún í mörg
ár. Þá bauðst henni gjaldkerastarf
hjá varnarliðinu, sem var bæði vel
borgað og spennandi fyrir hana, þar
sem hún talaði góða ensku.
Eftir að hún eignaðist Pétur fór
hún að vinna sem gjaldkeri hjá Borg-
arsjóði Reykjavíkur og nú síðustu
árin sem borgargjaldkeri eða þangað
til hún þurfti að hætta í september
1994 vegna veikinda sinna.
Elsku Edda mín, ég veit að
mamma þín og pabbi og systur þfn-
ar tvær hafa tekið vel á móti þér
þegar þú komst til æðri staðar. Ég
veit að við eigum eftir að hittast
aftur og það verða skemmtilegir
endurfundir.
Elsku Pétur, Sigga og börnin ykk-
ar, ég votta ykkur mína dýpstu sam-
úð. Megi guð gefa ykkur styrk í
sorg ykkar og fylgja ykkur alla tíð.
Hvíl í friði, elsku Edda mín.
Tíminn læknar. Tíminn græðir.
Tár í kyrrþey mýkir lund.
Lífsins innstu leyniþræðir
leiða huggun á þinn fund.
(Brynjólfur Ingvarsson.)
Anna R. Einarsdóttir.
Enn einu sinni hefur krabbamein-
ið lagt að velli mæta konu langt um.
aldur fram. Edda Tryggvadóttir
fyrrverandi borgargjaldkeri er látin
eftir skamma sjúkrahúsvist á sex-
tugasta og fyrsta aldursári.
Edda hafði gengist undir aðgerð
fyrir tæpum tveimur árum og fengið
viðeigandi meðferð, sem því miður
náði ekki tilætluðum árangri, því
sjúkdómurinn tók sig upp að nýju
og varð hún af hans völdum að láta
af störfum á síðastliðnu ári.
Við Edda störfuðum saman á
skrifstofu borgarstjóra í 25 ár. Hún
var lengst af aðstoðarmaður borg-
argjaldkera, en hin síðari ár gegndi
hún starfi borgargjaldkera. Þessu
I ábyrgðarmikla og oft erilsama starfi
I sinnti hún af stakri prýði, samvisku-
| semi og nákvæmni. Einn af hennar
helstu kostum var að vilja fullvissa
sig um rétt væri að máium staðið,
áður en til afgreiðslu kæmi til að
forðast vandræði og leiðréttingar
síðar meir. Hún var föst fyrir og
ákveðin og vildi hafa allt sitt á hreinu
eins og góðum gjaldkera ber.
Ég kynntist líka umhyggjusamri
móður og viðkvæmri konu sem lét
sér annt um menn og málefni.
A gamlársdag kom Edda við
heimili mínu á leið í fjölskyldusam-
kvæmi, til að óska mér og fjölskyldu
minni gleðilegs árs og við þökkuðum
hvort öðru samvinnuna á undanförn-
um árum. Þrátt fyrir að ég vissi
hversu alvarleg veikindi hennar
væru hvarflaði ekki að mér að að-
eins hálfum mánuði síðar væri hún
811, slík var reisn hennar og andleg-
ur styrkur.
Ég og fjölskylda mín sendum
einkasyni hennar og fjölskyldu hans
hugheilar samúðarkveðjur.
Óskar G. Óskarsson.
í dag er til moldar borin Edda
Tryggvadóttir, en hún lést á Land-
spítalanum 16. þ.m.
Fregnin um andlát Eddu varð
okkur, samstarfsfólki hennar á borg-
arskrifstofunum, mikið áfall. Öll
vissum við, að hún hafði átt við al-
varleg veikindi að stríða um nokkurt
skeið, en ekki hvarflaði að okkur,
að hún ætti svo skammt eftir ólifað
sem raun varð á. Edda var heldur
ekki vön að kveinka sér þótt eitt-
hvað blési á móti og sinnti störfum
sínum hjá borginni af stakri prýði,
hvernig sem á stóð.
Edda var fædd og uppalin í
Reykjavík, dóttir hjónanna Tryggva
Gunnarssonar smiðs og vörubílstjóra
og Guðrúnar Guðmundsdóttur konu
hans. Að Eddu stóðu sterkir stofn-
ar, en faðir hennar var öflugastur
glímumanna sinnar tíðar, og hún
ólst upp í stórum systkinahópi. Sjálf
eignaðist Edda einn son, Pétur Þóri
Hugus, sem fæddur er 7. maí 1962.
Kona hans er Sigríður Hafdís Sig-
urðardóttir og eiga þau einn son
saman, og Pétur auk þess tvö fóstur-
börn.
Edda vann borginni af heilindum
í meira en þrjátíu ár, nú síðast sem
borgargjaldkeri og segir það meira
en mörg orð um það traust sem hún
naut.
Sjálf varð ég þess ekki aðnjótandi
að starfa með henni nema skamma
hríð, en þó nógu lengi til að ég nyti
góðs af hlýju viðmóti hennar og
langri reynslu. Þegar ég kom til
starfa í ráðhúsinu fyrir hálfu öðru
ári reyndist hún mér bæði góð og
hollráð og fyrir það vil ég nú þakka.
Samstarfsfólk hennar í ráðhúsinu
vottar öllum aðstandendum Eddu
einlæga samúð sína og biður þess
að guð gefi henni raun lofi betri.
F.h. samstarfsfólks,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
stjúpmóðir, tengdamóðir og amma,
INGA WÍUM HANSDÓTTIR,
Brekkulandi 3,
Mosfellsbæ,
lést á heimili sínu aðfaranótt 20. janúar.
Bjarni Hólm Bjarnason,
Arnþór H. Bjarnason, Lovísa Guðmundsdóttir,
Anna Hlfn Bjarnadóttir,
Berglind H. Bjarnadóttir, Þórarinn Gestsson,
Kristín Bjarnadóttir, Jónmundur Kjartansson
og barnabörn.
Elskuieg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna ÁRNÝ INGVALDSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
veröur jarðsungin frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 24. janúar kl. 13.30.
Jóna Fríða Leifsdóttir, Birgir Guðmannsson,
Svanhildur Leifsdóttir, Þorvaldur S. Hallgrfmsson,
Kristján I. Leifsson, Margrét Björnsdóttir,
Halldór Leifsson, Anna Rósa Sigurgeirsdóttir,
Ásta Sólrún Leifsdóttir, Gestur Ó. Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður dg
ömmu,
ÞURÍÐAR SVÖVU,
ÁSBJÖRNSDÓTTUR,
Mávabraut 8d,
Keflavfk.
Gústav A. Bergmann,
Gunnar Gústavsson,
Sigurbjörn S. Gústavsson, Laufey Auður Kristjánsdóttir,
Hjalti Gústavsson, Margrét Þóra Einarsdóttir,
Ásdfs Gústavsdóttir, Helgi Bragason
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru eigin-
konu, móður, tengdamóður og ömmu.
KRISTENSU (Stellu)
ANDRÉSDÓTTUR
frá Risabjörgum,
Hellissandi,
Lyngbrekku 20,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks
hjartadeildar B-7, Borgarspítala, fyrir góöa umönnun.
Sigurður Þorkelsson,
Björgvin Andri Guðjónsson, Sigrún A. Júlíusdóttir,
Sveinbjörg Hrólfsdóttir,
Birgir Sigurðsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir,
barnabörn og fósturbörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda
faðir og afi,
ÁSGEIR JAKOBSSON
rithöfundur,
andaðist á heimili sínu 16. janúar.
Útför hans verður gerð frá Hallgríms-
kirkju fimmtudaginn 25. janúar
kl. 13.30.
Bergrós Jóhannesdóttir,
Ásgeir Ásgeirsson, Guðrún fris Þórsdóttir,
Elsa K. Ásgeirsdóttir, Jón Ólafsson,
Jóhannes Asgeirsson, Kolbrún K. Karlsdóttir,
Bergrós Ásgeirsdóttir,
Jakob F. Ásgeirsson
og barnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
KRISTMUNDUR GEORGSSON
trésmfðameistari,
Holtsgötu 8,
Hafnarfirði,
lést í St. Jósefsspítala að morgni
21. janúar sl.
Bjarni Kristmundsson, Birgit Sonnenberger,
Valdfs Kristmundsdóttir, Jens Jónsson,
Ásdís Kristmundsdóttir, Guðbrandur Óli Þorbjörnsson,
Guðleifur M. Kristmundsson, Hildur Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Minningarathöfn um föður minn, afa
okkar og langafa,
JÓHANNES JÓNSSON,
dvalarheimilinu Hlff,
ísafirði,
verður í Fossvogskapellu þriðjudaginn
23. janúar kl. 13.30.
Útförin fer fram frá ísafjarðarkirkju laug-
ardaginn 27. janúar kl. 14.00.
Agnes Jóhannesdóttir,
Svava Hrafnkelsdóttir,
Jóhanna Hrafnkelsdóttir, Guðbjartur Þórarinsson,
Helena Kristbjörg Hrafnkelsdóttir, Valtýr Helgi Diego
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
BALDURS P. SNÆLAND
vélstjóra.
Aðstandendur.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
systur og ömmu,
ESTHERARPÉTURSDÓTTUR,
Reynimei 26,
Reykjavík.
Þórhallur T ryggvason,
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, Helgi Björnsson,
Anna Guðrún Þórhallsdóttir, Björn Þorsteinsson,
Tryggvi Þórhallsson,
IdaTalling
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall og útför
SIGURGEIRS JÓNATANSSONAR
frá Skeggjastöðum,
Bergstaðastræti 28,
Reykjavík.
Lára Inga Lárusdóttir,
Hafdfs Sigurgeirsdóttir, Sigmundur Stefánsson,
Sævar Þór Sigurgeirsson, Unnur Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.