Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAtíUR 23. JANÚAR 1996 53
4
i
4
i
I
4
i
i
i
i
i
i
i
i
<
i
i
i
l
I
I
BRÉF TIL BLAÐSINS
Um mengun á
Grundartanga
og á Rás 2
Frá Jóni Sigurðssyni:
ÞAÐ ER mikið hlustað á mas-rásir
útvarpsstöðvanna, ekki síst á Rás
2. Þar gengur starfsfólk hart fram
í að finna efni til flutnings, sem iðu-
lega er áhugavert og vel fram reitt.
Þeir, sem hlusta í alvöru eftir efni
af þessu tagi, finna stundum tii-
hneiginguna hjá útvarpsfólkinu að
reyna að gera efnið meira spennandi
en það er, með brögðum sem ein-
hverjum gæti komið í bobba og helst
að fá menn í einhvern opinberan
hanaslag á vegum fjölmiðlanna og
fyrir þeirra milligöngu. Stundum
má eindregið í þeirri viðleitni merkja
skoðanir og jafnvel fordóma útvarps-
fólksins í efnistökum þess á málum.
Við járnblendifélagsmenn lentum
í þessari tegund af myllu á Rás 2
15. og 16. janúar. Fyrri daginn var
útvarpað símaviðtali við ónafn-
greindan starfsmann járnblendi-
verksmiðjunnar, þar sem hann sagði
frá rykmengun á sínum vinnustöðum
í verksmiðjunni. Á eftir fór viðtal
við vinnueftirlitsmann. Bæði voru
þessi viðtöl greinargóð af hálfu við-
mælendanna, en tilhneiging konunn-
ar, sem viðtölin tók, með áréttingum,
athugasemdum og leiðandi spurn-
ingum, var ljós. Hún vildi fá efni í
eitthvert uppistand milli starfs-
manna og stjórnenda verksmiðjunn-
ar eða við eftirlitið. í afkynningu
starfsmannsins lét hún þess að auki
getið, að starfsmaðurinn hafi ekki
viljað koma fram undir nafni, með
því að „þá óttast hann um starf sitt“.
Næsta skrefið í viðleitni til að
koma hanaslagnum á var, að út-
varpskonan náði símasambandi við
mig undirritaðan, þar sem ég var
bundinn á fundi yfir öðru og ætlaði
að fá mig til að ræða málið undirbún-
ingslaust og að því er virðist án
þess að ég vissi hvað um málið hefði
verið sagt. Ég tók það ekki í mál,
en lofaði viðtali næsta dag. Það við-
tal var svo boðað ótal sinnum á Rás
2 þann dag og daginn eftir.
Óheiðarleg vinnubrögð
Tilraun var gerð til að taka þetta
viðtal. Útvarpskonan hóf það með
formála, sem var kynntur sem yfir-
lit um helstu atriði viðtalanna, sem
útvarpað var deginum fyrr, og spurði
mig um viðbrögð mín. Mér var nokk-
uð brugðið. Eg hafði sérstaklega
hlustað á viðtölin ásamt mínum
starfsmönnum og inngangur út-
varpskonunnar var greinilega úr
þeim viðtölum, sem hún vildi hafa
tekið, en ekki úr þeim, sem raun-
verulega fóru fram. Skoðun textans
eftir á leiðir í ljós, að öll helstu ly-
kilorðin, sem hún notaði í formál-
ann, voru úr hennar eigin innskotum
í viðtölin, en ekki úr texta viðmæ-
lendanna.
Þetta voru mjög óheiðarleg vinnu-
brögð, ekki aðeins gagnvart mér,
sem hafði búið mig undir að ræða
þessi viðtöl efnislega, heldur ekki
síður gagnvart fyrri viðmælendum
konunnar, þegar hún afflutti þeirra
málflutning, greinilega til að búa til
ágreining við mig sem stjórnanda
fyrirtækisins. Þar á ofan ætlaði kon-
an að segja hlustendum ósatt um
efni viðtalanna. Mín viðbrögð voru
því að sjálfsögðu að lýsa þessum
staðreyndum um framsetningu út-
varpskonunnar, áður en ég sneri
mér að efni málsins.
Á daginn kom, að þessi sannleikur
um vinnubrögð var ekki leyfilegur á
Rás 2. Viðhorf útvarpskonunnar var
einfalt. Hún átti að mega vaða yfir
mig og minn starfsmann, búin til
fótanna eins og hún kaus, en mér
var ekki leyfilegt að nota útvarpið
til að bera hönd fyrir mig og starfs-
manninn. Fyrir bragðið varð ekkert
af viðtalinu.
Mengaðir fjölmiðlar
Þessi saga er sögð til að vekja
athygli á þessari óværu, að ég segi
ekki mengun, í fjölmiðlun, því að
dæmin éru fleiri. Þessi umgengni
fjölmiðlafólks um annað fólk og um
staðreyndir er óhafandi.
Staðreyndirnar um mengun á
Grundartanga, sem skipta máli í
þessu sambandi, eru einfaldar.
Framleiðsla á kísiljárni er óþrifa-
iðnaður um allan heim og baráttan
við mengun innanhúss og utan er
sífelld. Þar verður engu „kippt í lag“,
eins og útvarpskonan orðaði það í
vanþekkingu sinni.
Með þessari mengun hefur verið
fylgst, bæði af hálfu opinberra aðila
og fyrirtækisins sjálfs og þess eru
þó nokkur dæmi, að ryk í lofti hafi
mælst yfir settum mengunarmörk-
um. Þess ber að geta í þessu sam-
bandi, að mengunarmörk og hættu-
mörk eru tvö ólík hugtök.
Um þetta hefur farið fram opinská
umræða í fyrirtækinu og allir eru
um það sammála, að núverandi
ástand, einkum í ofnhúsi, er ekki
viðunandi. Þess vegna hefur mjög
verulegt fjármagn verið tryggt til
að bæta hér urn. Leit að leiðum til
úrbóta með aðstoð erlendra sérfræð-
inga stendur yfir, sem og val á nýj-
um búnaði, sem ákveðið hefur verið
að kaupa í þessu skyni.
Þrennskonar ryk
Rykið, sem við er að fást er aðal-
lega þrenns konar, kísilryk, kísil-
járnryk og kvartsryk. Af þessu er
kvartsrykið hættulegt. Þótt mengun
sé af og til mikil í ofnhúsi verksmiðj-
unnar, er nánast ekkert af því
kvartsryk, heldur kísilryk og kísil-
járnryk. Það er til óþæginda, en
ekki talið heilsuspillandi eins og
kvartsryk sannanlega er.
Forráðamenn verksmiðjunnar
vænta þess, að það átak, sem nú
er hafið muni næstu misseri bæta
mikið vinnuumhverfið á staðnum.
Allt þetta er í fullu samræmi við
það, sem starfsmaður járnblendi-
félagsins sagði á Rás 2 15. janúar.
Á því viðhorfi starfsmannsins,
sem útvarpskonan lýsti, að hann vildi
ekki koma fram undir nafni vegna
ótta um starf sitt, kunna hvorki
stjórnendur né þeir trúnaðarmenn
sem í hlut eiga, neina skýringu.
Ákvæði kjarasamninga, starfs-
mannahandbók fyrirtækisins, þar
sem starfsmannastefna er skráð og
sautján ára hefð í fyrirtækinu, mæl-
ir allt gegn því, að nokkur starfs-
maður þess eigi að hafa slíkt viðhorf.
JÓN SIGURÐSSON,
framkvæmdastjóri íslenska
járnblendifélagsins.
TÓNLEIKAR
TON LISTARSKÓLAN S í REYKJAVÍK OG
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
I HASKÓLABÍÓI FIMMTUDAGINN 25. JANÚAR KL. 20.00.
EINLEIKARAPRÓF:
ÁSA BRIEM, PÍANÓLEIKARI. EINAR JÓNSSON, BÁSÚNU-
LEIKARI OG GÚSTAV SIGURÐSSON, KLARÍNETTULEIKARI.
STJÓRNANDI: BERNHARÐUR WILKINSON,
Miðaverð kr. 1.000 og kr. 500 fyrir nemendur og eldri borgara.
Sala aðgöngumiða á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar
íslands, Háskólabíói við Hagatorg, og við innganginn.
Hafa skal það sem
sannara reynist
Frá Ragnari Fjalari Lárussyni:
ÉG GET ekki lengur setið hjá án
þess að stinga niður penna í sam-
bandi við svonefnda Langholts-
kirkju-deilu, þó að slíkt væri ekki
ætlun mín. Ég þekki vel forsögu
þessa máls, þar sem ég var sátta-
semjari í því á síðasta ári og tókst
eftir mikil fundahöld og sáttafundi
að fá undirskriftir undir sáttargjörð
í Langholtssöfnuði, allra þeirra sem
hlut áttu að máli.
Upp úr sauð svo að nýju rétt
fyrir síðustu jól, svo sem alþjóð er
kunnugt. Ég gaf biskupi skýrslu
um afskipti mín af þessum deilum
og taldi rétt að hann leitaði nýrra
leiða þar sem sáttatilraunir virtust
vonlausar eftir yfirlýsingum máls-
aðila í fjölmiðlum að dæma. Biskup
hafði eftir nýárið fund með kirkju-
málaráðherra, Þorsteini Pálssyni,
en hann hefir verið kirkjunni mjög
vinveittur og var alls ekkert óeðli-
legt við það að kynna honum málið
og leita álits hans, þar sem sættir
virtust ekki fyrir hendi. Síðan fékk
biskup virtan lagaprófessor, Eirík
Tómasson, til að kynna sér mála-
vöxtu og gefa skýrslu til sín.
Um þessa ákvörðun hefir verið
deilt bæði af lærðum og leikum, og
er slík ádeila sem biskup hefir orð-
ið fyrir vegna þess með öllu óskilj-
anleg og ekki sæmandi skynsömum
og velviljuðum mönnum. Fremur
dettur manni í, hug að það sé gert
til að koma höggi á biskup, en það
get ég fullyrt að hann hefír aldrei
gert annað í þessu máli en að reyna
að leysa það farsællega, deiluaðilum
og kirkjunni til sem minnsts vansa.
Tilefni þessara skrifa er grein
sem kom í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins undir nafninu Af sjónar-
hóli leikmanns eftir Þorstein Sig-
laugsson. í greininni er marghátt-
aðan misskilning og rangfærslur
að finna. M.a. segir þar: „Afskipti
biskups magna deiluna. Milli jóla
og nýárs lýsti biskup í fjölmiðlum
þeirri ætlan sinni að ganga til ráð-
herra og fá hann til að skipa nefnd
er rannsaka ætti prestinn þar.“
Þetta er rangt. Það var ekki
presturinn einn sem átti að rann-
saka, eins og greinarhöfundur orðar
það, heldur skyldi reynt að gera sér
grein fyrir stöðu mála, hjá presti,
organista, kirkjukór, sóknarnefnd
og starfsfólki kirkjunnat. Engum
sérstökum rannsóknum skyldi beint
gegn prestinum. Þetta hefir biskup
allt útskýrt í fjölmiðlum, en það
virðist vera ýmislegt sem menn vilja
ekki heyra og vilja ekki skilja. Síð-
ar í sömu grein segir: „Biskup lét
ekki nægja að reyna að koma höggi
á prestinn með yfirlýsingu um lé-
lega kirkjusókn. Nei, hann gekk
lengra og hótaði brottrekstri.“ Þetta
eru rakalaus ósannindi sem höfundi
greinarinnar eru ekki sæmandi að
láta frá sér fara. Biskup hefír ekk-
ert vald til þess að reka sóknar-
prest, sem ekki hefir af sér brotið,
það veit hann vel og hefir margsinn-
is lýst því yfir. „Þetta dugði þó
ekki biskupi heldur hefir hann að
auki ráðist með fáheyrðum dóna-
skap að formanni prestafélagsins.“
Það má um það deilda hvor hafi
ráðist á hvom, en víst er um það,
að formaður prestafélagsins hóf
aðfínnslur sínar við biskup í fjöl-
miðlum milli jóla og nýárs og af
fullum þunga þegar eftir nýárið og
biskup hlaut að svara þeim.
Ég vísa því öllu umtali um „fá-
heyrðan dónaskap biskups" heim
til föðurhúsanna og sé einhver dóni
í þessu máli þá er það greinarhöf-
undur sjálfur. í lok máls síns segir
hann: „Oll framganga biskups í
þessu máli er með ólíkindum og
hæfir ekki æðsta manni kirkjunnar.
Ég hvet því biskup til að íhuga
þann vanda sem hann hefir komið
sjálfum sér og kirkjunni í.“
Ég vísa þessum orðum einnig til
föðurhúsanna. Þetta eru órökstudd-
ar dylgjur og ósannindi. Biskup ís-
lands, hr. Ólafur Skúlason, liefir í
þessu viðkvæma máli gert það sem
í hans valdi hefír staðið til að leysa
það farsællega og hann hefur leitt
íslensku kirkjuna á erfiðum og
umbrotasömum tímum með miklum
myndarbrag.
Eigi einhveijir að biðjast afsök-
unar á skrifum eða umræðum um
þessa deilu þá eru það þeir, sem
ráðist hafa á biskup íslands að
ósekju.
RAGNAR FJALAR LÁRUSSON,
prófastur.
Rosenthal _ þegnr K<wllir gi°f
Glæsilegar gjafavörur
Matar- og kaffistell í sérflokki
Verð við cillra hæfi Laugavegi 52, sími 562 4244.
___ STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Þriðjudagstilboð
Kuidaskór - Verð 2.995
Verð: ádurýjmí Verð: áðurJ^S" Verð: áðurýJ>9S'
Tegund: 7621.
Stærðir: 36-42.
Litur: Brúnn.
Efni: Leður.
Tegund: Rockstone.
Stærðir: 28-39.
Litur: Svartur.
Efni: Leður.
Tegund: Freeway.
Stærðir: 36-41.
Litur: Svartur.
Efni: Leður.
STEINAR WAAGE /
STEINAR WAAGE/
SKOVERSLUN
SÍMI568 9212 '
SKÓVERSLUN /
/
SIMI 551 8519