Morgunblaðið - 23.01.1996, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
Friðarpottlok á
suðupottinn
IDAG
SKAK
Umsjðn Margeir'
Pétursson
Hvítur leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp á Ho-
ogovens stórmótinu í Wijk
aan Zee í Hollandi, sem
nú stendur yfir, í viður-
eign tveggja ungra stór-
meistara. Rússinn Sergei
Tivjakov (2.625) var með
hvítt og átti leik, en Mich-
ael Adams (2.660) hafði
svart.
Svartur var að enda við
að fórna hrók á c3,
lék 32. - Hc8xc3!?
en það kom krókur
á móti bragði:
33. Hxd5! (Það
mátti alls ekki
þiggja hróksfórn-
ina: 33. bxc3?? —
Dxa3+ 34. Kbl -
Ba2+ og hvítur er
sjálfur mát í þriðja
leik) 33. — exd5
34. Df6. (Svartur
er nú fastur í gam-
aldags mátneti og á nú
ekkert eftir að reyna annað
en að skáka á hvíta kóng-
inn með öllum ráðum) 34.
— Hxa3+ 35. bxa3 —
Dxa3+ 36. Kbl - Db4+
37. Kcl - Del+ 38. Kb2
og Adams gafst upp.
Með morgunkaffinu
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Erfitt að fá
fuglafóður
MÉR hefur gengið afar
illa að fá keypt fuglakom
undanfarið því það fæst
ekki í verslunum núna.
Gætu innkaupastjórar
verslana ekki haft litlu
fuglana í huga og pantað
kom fyrir þá þegar snjóar.
Fuglavinur
Þýðandi óskast
ÓSKA eftir aðstoð við
að þýða norskt pijóna-
blað. Upplýsingar í síma
557-2889. Matta.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn 3.202
krónur. Þau heita Eva Dröfn, Sif og Steinn Einar.
Hann verður alveg
brjálaður ef þú meiðir
mig.
Þið verðið að þola þetta,
því fiðlan hans er í við-
gerð.
Það er farið að rigna.
Við verðum að Ijúka
samræðunum gegnum
síma.
... Og svo er það þurri
hóstinn, verkir í hrygg-
jarliðum og þessir und-
arlegu bleftir...
Reikningur frá snyrti-
og fegrunarstofunni.
Fyrir hvað viltu að ég
borgi, með leyfi að
spyija?
Ég fann ekki kústinn
áður en ég fór út.
-TAS'*
Ég spurði hvort þú vild-
ir meira kaffi.
Víkveiji skrifar...
Frá Ástþórí Magnússyni:
í ÞJÓÐLÍFSÞÖNKUM Morgun-
blaðsins sunnundaginn 7. janúar,
veltir Uuðrún Guðlaugsdóttir því
fyrir sér hvers vegna Ísléndingar
séu friðsöm þjóð. Guðrún bendir
réttilega á að
ýmsar aðstæður
hér á landi hafí
komið í veg fyrir
blóðug átök
manna á meðal,
en hún veður
einnig þá villu að
halda því fram
að ein megin-
ástæðan sé einangrun okkar á eyju
þar sem fátt sé til að deila um.
íslendingar hafa ekki síður
ágreiningsefni í sínu veraldarlífí en
aðrir heimsbúar. Munurinn er hins
vegar sá, að við höfum í nær þús-
und ár verið vopnlaus þjóð og ekki
kennt ungmennum okkar hemað
eins og hefðin er hjá öðrum þjóð-
um. Það er vopnleysið sem lagði
grundvöllinn að því blómlega lífí
sem nú þrífst hér á landi. Við erum
vel upplýst þjóð og okkur því Ijóst
að það er fyrst þegar vitið þrýtur
að hnefamir taka við. í stað þess
að taka sér vopn í hönd og van-
virða verk skapara síns, tömdu ís-
lendingar sér þann góða sið að
útkljá deilumál með umfjöllun á
Alþingi og fyrir dómstólum.
Menn þurfa ekki að vera af mis-
munandi þjóðflokkum til að drepa
hver annan í blóðugum bardögum
eins og Guðrún virðist halda fram
í grein sinni. Fyrrverandi Júgósla-
var hafa dregið upp margra alda
gamlar eijur til að ala á stríðslöng-
un fárra valdagráðugra einstakl-
inga. Við íslendingar gætum fullt
eins vel dregið upp slíkar erjur og
til dæmis farið í stríð við alla bann-
settu afkomendur Dana hér á landi.
Ég tala nú ekki íraskrattana. Og
svo geta Reykvíkingar að sjálf-
sögðu tekið Akureyringa alvarlega
í karphúsið.
íslendingar vaxnir upp úr
stríðsrekstri
Sem betur fer erum við íslend-
ingar vaxnir upp úr slíkum barna-
skap. Við emm löngu hættir að
ala á sundmng manna á meðal,
og notum frekar kraftinn til efling-
ar samhugar og kærleika meðal
landsmanna. Við höfum líka áttað
okkur á því að stríðsrekstur er
óþarfur og óæskilegur atvinnuveg-
ur. Ef við Iétum þetta ljós okkar
skína um heimsbyggðina væri ekki
ólíklegt að það kæmi alvarlega
niður á útflutningstekjum Banda-
ríkjamanna af vopnasölu. En sá
spónn, sem félli úr þeim aski, yrði
vafalaust kærkomin gjöf milljón-
um bama og aðstandenda þeirra
sem era hin saklausu og sveltandi
fórnarlömb hringavitleysunnar
sem viðgengst í pólitískri refskák
stórveldanna. Komið hafa út bæk-
ur sem hafa greint frá því hvernig
bandaríska leyniþjónustan CIA
hefur skipt sér af innanríkismálum
utan heimalandsins og jafnvel
komið á stað blóðugum byltingum
til „að gæta hagsmuna Bandaríkj-
anna“.
Það þurfti reyndar aðeins einn
bijálæðing til að koma á stríðinu
í Júgóslavíu. Slobodan Milosevic
var sem útsmoginn eitursnákur
þegar hann með klókindum svið-
setti þjóðarrembinginn í nýjum
búningi endurvakningar með að-
stoð fjölmiðla. Fyrirmyndina fékk
hann líklegast frá Adolf Hitler sem
gerði ekki síðri sviðsetningu til
ofsóknar gyðingum. Það er alveg
á hreinu, að lítill vandi væri að
koma öllu í bál og brand á fleiri
stöðum með slíkri misnotkun á
fjölmiðlatækninni.
Ekki hægt að sjá þjóðerni
af útliti
Það er enginn möguleiki að sjá
það af ytra útliti manna af hvaða
þjóðarbroti fólk er komið í fyrrver-
andi Júgóslavíu. Ekkert frekar en
hægt er að þekkja afkomendur
Dana á Islandi. Þetta er allt orðið
meira og minna blandað. Það búa
t.d. júgóslavnesk hjón á íslandi
sem flúðu stríðið fyrir rúmum
tveimur ámm. Þau hjónin era tal-
in af hvort af sínu þjóðarbrotinu
og því ólíft í heimaborg sinni
Sarajevó. Það -er eins með frá-
skilda foreldra ungs drengs sem
ég þekki sögu af. Hvoragt foreldr-
ið getur haft drenginn sem hefur
farið huldu höfði, því hann hefur
átt yfír höfði sér að verða drepinn
af hvoram ættliðnum um sig.
Þar sem ekki er hægt að þekkja
sauðina af útlitinu, er sú aðferð
sem allra helst viðgengst í Bosníu
að þekkja sauðina af ættarnafni
viðkomandi. Það er alveg ótrúlegt
að enginn hafí enn lagt það til að
þessu fólki verði gefinn kostur á
að leggja niður ættamöfnin eins
og íslendingar hafa upp til hópa
gert.
Nú hafa leiðtogar Vesturlanda
enn frekar dýpkað kviksyndið und-
ir alþjóðastofnuninni Sameinuðu
þjóðunum sem varð að hverfa með
skömm frá Bosníu. Enginn stuðn-
ingur af viti gat fengist frá að-
ildarþjóðunum. Nú skyldi skipt um
hatt, og senda NATO á staðinn
með bandaríska fánann í fárar-
broddi til að vinna friðinn. Ein-
hvern veginn gleymist það alveg
að til að koma á friði þarf að vinna
hjörtu fólksins í landinu. Það verð-
ur einfaldlega ekki gert með enda-
lausum vopnaflutningum á stað-
inn.
Miðað við það sem á undan er
gengið, kom það mér því ekki á
óvart að einhveijir Serbar hafa
lagst svo lágt að ræna nokkram
bílstjórum sem voru með rangt
ættarnafn. Ég var þó feginn að
þeir gátu skilað þeim aftur og
enginn var drepinn með köldu
blóði eins og hefur verið daglegt
brauð á staðnum undanfarin ár.
Fyrir nokkru fóra sögur af fjölda-
morði þar sem öllum karlmönnum
eins bæjarfélags var safnað saman
á fótboltavelli staðarins, sjö þús-
und talsins, og þar skotnir niður
á tuttugu mínútum.
Mikið átak þarf til að
koma á friði
Það þarf gífurlegt átak til sálu-
hjálpar fólkinu í fyrrverandi Júgó-
slavíu til þess að þar komist á
friður. Slíkt má vinna með já-
kvæðri fjölmiðlun, og hópfundum
jafnt fyrir skólafólk svo og þá
fullorðnu. Sendum kennara, sálu-
hjálpara og fjölmiðlafólk til Bos-
níu í stað vopnaðra hermanna.
Að öðrum kosti er hætt við að
friðarpottlokið springi af suðu-
pottinum áður en langt um líður.
Friður 2000 vinnur að því að
koma á fót jákvæðri fjölmiðlun
og kennslu til friðar. Þess er ósk-
að að þetta geti orðið samstarfs-
verkefni almennings, fyrirtækja
og opinberra aðila. Nokkrir frið-
arboðar á vegum íslands til Bos-
níu geta öragglega skotið 60.000
NATO herrnönnum ref fyrir rass
með því að taka af suðuna og
vinna friðinn með mætti orðsins.
Þá gæti mönnum loks orðið það
ljóst að framleiðsla og notkun
vopna til að limlesta og drepa
menn er álíka úrelt og fáránlegt
fyrirbæri eins og einvígi breskra
snobbhænsna voru á síðustu öld.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
stofnandi Friðar 2000.
UM FÁTT er meira talað manna
á meðal en forsetakosningar
og hugsanlega frambjóðendur. ís-
lendingur, sem lengi hefur verið
búsettur erlendis og m.a. fylgzt
með glæsilegri framgöngu núver-
andi forseta á erlendum vettvangi,
lýsti í samtali við Víkveija áhyggj-
um yfir því, hvað talað væri um
forsetaembættið af miklu virð-
ingarleysi í tengslum við væntan-
legar kosningar.
Það er vafalaust rétt, að lítillar
virðingar gætir í umræðum fólks
um væntanlega frambjóðendur.
Ástæðan er sú, að það verkar
hlægilega á marga, þegar einstak-
ir áhugamenn um forsetaframboð
lýsa því, að þeir íhugi framboð
vegna þess, að svo margir hafi
komið að máli við þá og hvatt þá
til þess að gefa kost á sér.
Fólk veit sem er, að mönnum er
í sjálfsvald sett að lýsa því yfir,
ef nöfn þeirra eru nefnd, að fram-
boð komi ekki til greina af þeirra
hálfu. Það er hins vegar umhugs-
unarefni, hvort hægt er að koma
aðdraganda forsetaframboða í
annan farveg en þann, sem við
kynnumst þessar vikurnar og höf-
um raunar áður séð að nokkru
leyti. Umræðurnar í þeim farvegi,
sem þær eru nú, eru frekast til
þess fallnar að ýta undir sjónarmið
þeirra, sem telja, að embættið eigi
að leggja niður og fela forseta
Alþingis að sjá um helztu skyldu-
störf þjóðhöfðingja.
XXX
• •
ONNUR meginstofnun þjóðfé-
lagsins er í hættu vegna al-
manna umtals en það er sjálf þjóð-
kirkjan. Deilurnar í Langholts-
kirkju eru ekki fyrstu deilur af
þessu tagi, sem vekja upp spurn-
ingar um þroska og umburðarlyndi
kirkjunnar manna. Þær hafa hins
vegar leitt til slíkra umræðna um
kirkjuna og helztu forsvarsmenn
hennar, þ.e. prestana, að það mun
taka langan tima að fyrnast yfir
þær.
Svo virðist að því oftar sem
kirkjunnar menn tjá sig um málið,
þeim mun verri verði staða þjóð-
kirkjunnar. Og ekki sér fyrir end-
ann á þessum deilum. Ef prestarn-
ir geta ekki leyst sín innri mál er
þess ekki að vænta, að sóknarbörn
þeirra hafi mikla trú á ráðlegging-
um þeirra um úrlausn á vanda
sóknarbarnanna.
xxx
AÐ VERÐUR fróðlegt að sjá,
hver niðurstaðan í útboði FIB
á bílatryggingum verður. Ef það
stenzt, sem forráðamenn samtak-
anna sögðu sl. föstudag, að tilboðin
frá tveimur aðilum leiði til 15-30%
lækkunar á iðgjöldum má búast
við, að ný viðhorf skapist á trygg-
ingamarkaðnum hér vegna þess,
að tæplega geta þau tryggingafé-
lög, sem fyrir era, setið auðum
höndum, komi slík staða upp.