Morgunblaðið - 30.01.1996, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samvinnuferðir semja við Atlanta um sólarlandaferðir
Allt að 18% verðlækk-
un á ferðum milli ára
SAMVINNUFERÐIR-Landsýn
hafa samið við flugfélagið Atlanta
um sólarlandaflug með 350 sæta
Tri-Star breiðþotu félagsins í sum-
ar. Að sögn Helga Jóhannssonar,
forstjóra ferðaskrifstofunnar, mun
þetta þýða allt að 18% verðlækkun
á sólarlandaferðum frá því sem var
í fyrra, þrátt fyrir að á ýmsum
áfangastöðum hafí orðið jafnvel
5-7% kostnaðarhækkanir milli ára.
Þá mun ferðaskrifstofan í kjölfar
samningsins einnig geta boðið upp
á lægri fargjöld til ýmissa borga
sem Atlanta flýgur til í Evrópu og
nefndi Helgi sem dæmi að hægt
yrði að bjóða flug til Zurich á tæp-
lega 25 þúsund krónur á meðan
Brotist inn
í fyrirtæki
LÖGREGLUNNI í Reykjavík var í
gærmorgun tilkynnt um nokkur
innbrot í fyrirtæki, bíla og íbúðar-
húsnæði.
Brotist var inn í fyrirtæki við
Hamarshöfða og þaðan stolið
myndsendi, rafmagnsritvél og
smáræði í peningum. Úr bíl við
Rauðalæk var stolið geislaspilara.
Brotist var inn í bílageymslu við
Engjasel og farið inn í þrjá bíla
og m.a. stolið geislaspilara og há-
tölurum. Brotist var inn í verslun
við Vesturberg og stolið tóbaki,
happaþrennum og ávísunum. Farið
var inn um glugga á fyrirtæki við
Skúlagötu. Þar var stolið verkfær-
um.
Hagstæð
tilboð í
Morgunblaðið/Kristinn
í GÆR handtók lögreglan menn í húsi við Hávallagötu vegna
innbrotins í verzlunina við Vesturberg og fannst þýfi í bílum
þeirra fyrir utan.
lægsta skráð fargjald þangað væri
um 55 þúsund krónur.
Bahamaflugið kraftaverk
Helgi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að reynsla Samvinnuferða-
Landsýnar af flugi með breiðþotu
Atlanta til Bahama síðastliðið haust
hefði sýnt hvaða kraftaverk væri
hægt að gera á þessu sviði. Þess
vegna hefði verið leitað til íslensku
flugfélaganna og kannað hvað væri
hægt að gera í þessu sambandi
varðandi ferðir með íslendinga yfír
sumarleyfístímann.
Þessi möguleiki hefði ekki reynst
vera fyrir hendi hjá Flugleiðum, en
hjá Atlanta væri breiddin í flugflot-
anum hins vegar nægilega mikil.
Atlanta hefði getað leyst málið með
því að útvega breiðþotu af þessari
stærð yfír sumarleyfístímann þar
sem hagkvæmni stærðarinnar nyti
sín sannanlega.
Amgrímur Jóhannsson eigandi
Atlanta sagði samninginn við Sam-
vinnuferðir-Landsýn hafa í för með
sér mun betri nýtingú á vélum fé-
lagsins. Ferðaskrifstofan fengi að-
gang að nánast öllum flugflota
Atlanta, hvort sem um væri að
ræða vélar af gerðunum 747, 737
eða Tri-Star, og þannig kæmi sú
breidd að ferðaskrifstofan gæti not-
að þá vél sem hentaði best hveiju
sinni.
ií&gíf
. n i gm f&jsf m ' * 4*
Morgunblaðið/Kristinn
HÆSTARÉTTARLÖGMENNIRNIR Jóhann H. Níelsson og Ást-
ráður Haraldsson afhenda Ólafi G. Einarssyni forseta Alþingis,
undirskriftarlista með áskorun rúmlega 230 lögmanna.
Lögmenn vilja
breytt skaðabótalög
LÖGMENN afhentu í gær Ólafí G.
Einarssyni, forseta Alþingis, undir-
skriftalista 231 lögmanns. Þar er
skorað á Alþingi að lögleiða hið
fyrsta tillögu Gunnlaugs Claessen
hæstaréttardómara og Gests Jóns-
sonar hæstaréttarlögmanns um
breytingu á skaðabótalögum nr.
50/1993. Lögmennimir telja að í
tillögunum felist nauðsynlegar rétt-
arbætur því fólki til handa sem
hefur misst starfsorku í slysum og
á rétt á skaðabótum.
Ástráður Haraldsson hæstarétt-
arlögmaður, einn af forsvarsmönn-
um undirskriftasöfnunarinnar, seg-
ir að virkir lögmenn í landinu séu
í námunda við 270-280 talsins.
Þess vegna hafí yfír 80% starfandi
lögmanna skrifað undir áskomnina.
Ástráður kveðst telja að þetta sé í
fyrsta sinn sem lögmenn safna und-
irskriftum með þessum hætti til
þess að knýja á um lögleiðingu
mála á Alþingi.
Skaðabótamál ekki
stór tekjupóstur
„Við teljum að tillögur Gunnlaugs
og Gests séu mjög til bóta frá því
réttarástandi sem nú gildir. Því hef-
ur verið haldið fram að aðeins örfá-
ir lögmenn hafí haft einhveijar
áhyggjur af þessu máli en það hefur
nú verið afsannað með eftirminnileg-
um hætti. Því verður alveg ömgg-
lega haldið fram að þama séu menn
að skara eld að eigin köku. Stað-
reyndin er hins vegar sú að mjög
margir og sennilega flestir þeirra
lögmanna sem undir þetta rita koma
mjög lítið við meðferð svona mála.
Skaðabótamál í rekstri langsamlega
flestra lögmanna er ekki sá tekju-
póstur að vemlegu máli skipti,“
sagði Ástráður.
Allsherjarnefnd
fundaði um málið
Allsheijarnefnd Alþingis íjallaði
um tillögur þeirra Gunnlaugs Cla-
essen og Gests'Jónssonar á löngum
fundi í gær. Sólveig Pétursdóttir
formaður nefndarinnar sagði að
fjöldi gesta hefði komið á fundinn
og veitt upplýsingar. Nefndarmenn
hefðu hins vegar óskað eftir enn
frekari upplýsingum um málið og
umfjöllun allsheijarnefndar um það
yrði haldið áfram þegar þær upplýs-
ingar hefðu borist. Sólveig sagði
að nefndinni hefði ekki í gær borist
umrædd áskomn lögmanna sem
afhent 'var forseta Alþingis.
Nýjar reglugerðir miða að auknum sparnaði í heilbrigðiskerfinu
Hlutdeild sjúklinga
í lyfjaverði hækkar
Gilsfjörð
KLÆÐNING hf. í Garðabæ átti
lægsta tilboðið í lagningu vegar
og brúar um Gilsfjörð, úr Saurbæ
í Dölum yfír í Króksfjarðarnes í
Reykhólahreppi, í útboði Vega-
gerðarinnar. Tilboð fyrirtækisins
er 484 milljónir kr. sem eru 75%
af kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar. Ef verkinu verður flýtt um
ár kostar það 15 milljónir kr. auka-
lega.
Kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar hljóðaði upp á 645 milljónir
kr. og er tilboð Klæðningar því 161
milljón undir áætlun. Suðurverk
hf. á Hvolsvelli er með næst lægsta
tilboðið, 516 milljónir kr. Alls bár-
ust 10 tilboð í verkið sem er eitt
stærsta vegagerðarverkefni hér á
landi á næstu ámm. Jón Helgason,
yfírverkfræðingur Vegagerðarinn-
ar, telur að tilboðin séu hagstæð.
Hann segir að nú verði farið yfír
þau og síðan gengið til samninga
við þann verktaka sem eigi hag-
stæðasta tilboðið.
Framkvæmdir eiga að geta haf-
ist á næstu mánuðum. í útboðinu
er miðað við að umferð verði hleypt
á veginn ekki síðar en 1. desember
1998 og verkinu verði að fullu lok-
ið 15. ágúst 1999. Einnig var ósk-
að eftir frávikstilboði, þar sem
verktökum er boðið upp á það að
fjármagna flýtingu verksins um
eitt ár. Kostar það 15 milljónir kr.
hjá Klæðningu. Jón segir að þessi
viðbótarkostnaður virðist ekki mik-
ill en segir óákveðið hvom tilboðinu
verði tekið.
SAMKVÆMT nýrri reglugerð,
sem heilbrigðisráðherra hefur sett,
þurfa sjúklingar nú að greiða
hærri hlut af verði þeirra lylja, sem
almannatryggingar taka þátt í að
greiða.
Lyf eru flokkuð í 4 flokka. í
þeim fyrsta era lyf sem Trygg-
ingastofnun greiðir að fullu, í öðr-
um og þriðja flokki em lyf sem
Tryggingastofnun greiðir að hluta
og í fjórða flokknum eru lyf sem
stófnunin greiðir ekki.
Reglugerðin nær til lyfja í 2.
og 3. flokki. Fyrir þau lyf, sem
sjúklingum er talin brýn nauðsyn
að nota að staðaldri, greiða þeir
nú fyrstu 600 krónurnar, í stað
500 króna áður, og síðan 16% af
verðinu umfram 600 krónur í stað
12,5% áður, þó aldrei meira en
1.500 krónur. Þetta þak er
óbreytt.
Fyrir lyf í 3. flokki greiða sjúk-
lingar fyrstu 600 krónurnar af
smásöluverði í stað 500 króna
áður. Einnig greiða þeir 30% af
smásöluverði umfram 600 krónur
í stað 25% áður, þó aldrei meira
en 3.000 krónur og þetta þak er
óbreytt.
Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða nú fyrstu 200 krónurnar
af smásöluverði lyfja í 3. flokki, í
stað 150 króna, og 12,5% af verð-
inu umfram 200 krónur í stað
10%, þó ekki meira en 800 krónur.
Fyrir lyf í 2. flokki greiða elli-
og örorkulífeyrisþegar fyrstu 200
krónurnar og síðan 8% af verðinu
umfram það, í stað 5%, en þó aldr-
ei meira en 400 krónur.
Að sögn Rannveigar Gunnars-
dóttur í heilbrigðisráðuneyti er
ástæða þessarar hækkunar eink-
um sú, að greiðsluhlutfall almenn-
ings í lyfjakostnaði hefur lækkað
undanfarin ár úr 33% árið 1993 í
29,5% á síðasta ári. Orsök þessa
er, að sögn Rannveigar, verðbreyt-
ingar og dýrari lyf á lyfjaskrá.
Með reglugerðarbreytingunni er
áætlað að greiðsluhlutfallið hækki
aftur í um 33%.
Bílakaupastyrkur lækkar
Heilbtigðisráðherra hefur einn-
ig sett reglugerð um að fækka
bílakaupastyrkjum til öryrkja úr
600 á ári í 335 á ári. Þessir styrk-
ir nema 235 þúsund krónum sem
þýðir að heildarupphæðin lækkar
úr 141 milljón í 78 miiljónir. Einn-
ig er aldur þeirra sem rétt eiga á
slíkum styrkjum lækkaður úr 75
ámm í 70 ár og viðkomandi geta
nú sótt um slíkan styrk á 5 ára
fresti í stað fjögurra.
Þá hefur verið sett ný reglugerð
um heimilisuppbót og sérstaka
heimilisuppbót auk sérstakra bóta,
svo sem umönnunarbóta, sem
heimilt er að greiða til elli- og
örorkulífeyrisþega ef sýnt þykir
að þeir geti ekki framfleytt sér
án þeirra. Samkvæmt reglugerð-
inni verða þessar sérstöku bætur
nú að hámarki 120% af grunnlíf-
eyri einstaklings, en þetta hámark
var áður 140%. Aðrar viðmiðanir
þessara bóta lækka um 5-10%.
Björk
í Kína
BJÖRK Guðmundsdóttir
heldur tónleika í Peking,
höfuðborg Kína, 13. febr-
úar. Greint var frá þessu í
dagblaðinu Æska Peking
23. janúar og sagt að þessi
„framúrskarandi söngvari“
hefði bætt Peking við við-
komustaði á liljómleikaferð
sinni um Asíu.
í blaðinu sagði að Björk
væri ekki jafn fræg og
Roxette meðal ungra tón-
listarunnenda í Peking og
vitneskja um hana virtist
einkum sprottin af því að
Wang Jing Wen, ein fræg-
asta söngkona Hong Kong,
leggi sig alla fram um að
líkja eftir hinni íslensku
söngkonu.