Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Um 67% af innlausnum spariskírteina fjármögnuð með nýrri útgáfu hjá Lánasýslu ríkisins
Reiknað með lækkun á
Hlutabréf íslandsbanka
Bréfað
nafnvirði
langtínm vöxtum íkjölfarið
LANASÝSLA ríkisins bauð eigendum 5 ára
spariskírteina frá 1991 upp á þá nýbreytni í gær
að gera tilboð i vexti nýrra skírteina um leið
og þeir innleystu eldri bréfin. Að sögn Péturs
Kristinssonar, hjá Lánasýslu ríkisins, voru við-
brögðin við þessari nýjung framar öllum vonum
og náðist að endurfjármagna um 67% af þeim
spariskírteinum sem koma til innlausnar þann
1. febrúar með þessum hætti. Ávöxtunarkrafa
spariskírteina breyttist lítið frá því sem verið
hefur í útboðinu og_ segist framkvæmdastjóri
Verðbréfamarkaðar íslandsbanka reikna með
því að niðurstaða þessa útboðs kunni að leiða
til vaxtalækkana á næstunni.
Alls var tekið tilboðum að fjárhæð um 5,5
milljarða, en alis koma 8,2 milljarðar til innlausn-
ar 1. febrúar. „Þetta er í fyrsta skipti sem við
bjóðum upp á þennan möguleika og við runnum
því nokkuð blint í sjóinn með það hvernig þáttak-
an yrði,“ segir Pétur. „Við erum því mjög ánægð-
ir með þessa niðurstöðu og ekkert síður ánægð-
ir með vaxtakjör þeirra tilboða sem bárust. Þau
fela í sér sáralitlar breytingar frá síðasta útboði
Lánasýslunnar og lítið var um óraunhæf tilboð.“
Þorri þeirra tilboða sem var tekið var, voru í
5 ára spariskírteini, eða tæpir 4,5 milljarðar
króna. Meðalvextir á þessum bréfum voru
5,86%. Tekið var tilboðum fyrir 502 milljónir í
10 ára spariskírteini og nam meðalávöxtun
þeirra 5,89% sem er engin breyting frá síðasta
útboði Lánasýslunnar fyrir tæpri viku. í 20 ára
spariskírteinum var tekið tilboðum fyrir 440
milljónir króna og nam meðalávöxtun þeirra
5,81%, 0,01% hærri en í síðasta útboði. Þá var
tekið tilboðum að fjárhæð 67 milljónir króna í
árgreiðsluskírteini til 10 ára og nam meðal-
ávöxtun þeirra 5,87%.
Lág vaxtatilboð hækkuð
Pétur segir að skiptingin á milli einstaklinga
og verðbréfafyrirtækja í útboðinu hafi verið
nokkuð jöfn. Vegna þess hve einstaklingar hafi
litla reynslu af útboðum af þessu tagi hafi verið
ákveðið að hífa tilboð þeirra sem voru undir
meðalávöxtun upp í meðaltalið, og hafi það ver-
ið látið jafnt yfir alla ganga. „Þessi háttur hefur
verið viðhafður víða erlendis og þykir vera góð
sanngirnisregla," segir Pétur.
Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfamarkaðar íslandsbanka, segir að þetta
útboð hafi verið mjög þýðingarmikið hvað varð-
ar vaxtaþróunina á næstu vikum og mánuðum.
„Stórar innlausnir spariskírteina setja alltaf
mark sitt á vaxtaþróunina vikurnar á undan og
á eftir og því er spennandi að sjá hvort að þetta
útboð marki einhvern vendipunkt í vaxtaþróun-
inni. Við höfum búið við mjög hátt vaxtastig
að undanförnu og í raun setið eftir miðað við
þróunina í löndunum í kringum okkur.“
Sigurður segist allt eins reikna með að vextir
húsbréfa geti lækkað um u.þ.b. 0,3% eða sem
nemur 30 punktum á næstu tveimur mánuðum.
Reikna megi með því að vextir spariskírteina
og annarra langtímabréfa fyigi í kjölfarið. Sig-
urður segir að vaxtamunur á spariskírteinum
og húsbréfum sé afbrigðilega lítill um þessar
mundir. Sögulega séð séu vextir spariskírteina
yfirieitt um 0,25% undir vöxtum húsbréfa en
nú sé munurinn hins vegar umtalsvert minni.
Hann treystir sér þó ekki til að spá fyrir um
hvort að vextir spariskírteina muni lækkka eitt-
hvað umfram vexti húsbréfa í bráð.
Flugfrakt til
og frá íslandi
Cargolux
með 12%
markaðs-
hlutdeild
MARKAÐSHLUTDEILD frakt-
flugfélagsins Cargolux nam 12%
af frakflutningamarkaðnum á síð-
asta ári, að sögn Þórarinns Kjart-
anssonar, framkvæmdastjóra
Flugflutninga ehf., sem er um-
boðsaðili Cargolux hér á landi.
Markaðshlutdeild félagsins í inn-
flutningi á síðasta ári var 16% en
í útflutningi var hiutdeildin 9% af
heildarmarkaðnum. Þórarinn segir
að þessi markaðshlutdeild hafi
verið reiknuð út frá upplýsingum
Flugmálastjórnar um stærð flugfr-
aktarmarkaðarins til og frá íslandi
Morgunblaðið/Halldór
30 milljón-
ir seld á ný
KYRRLÁTT var á hlutabréfamark-
aðnum í gær og hækkaði verð bréfa
lítið eða jafnvel lækkaði í viðskipt-
um dagsins. Stærstu viðskiptin urðu
með bréf í íslandsbanka að nafn-
virði 30 milljónir króna á genginu
1,58. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var þetta hluti af
115 milljóna bréfum sem Skandia
seldi ti! annars verðbréfafyrirtækis
á föstudag, en þau skiptu nú um
hendur á nýjan leik.
Meðal annarra viðskipta má
nefna að hlutabréf í Olís að nafn-
virði 500 þúsund krónur voru seld
á genginu 3,0 og hefur gengi þeirra
bréfa nú hækkað um 15,4% frá
áramótum án sýniiegs tilefnis. Þá
voru seld bréf að nafnvirði 5 milljón-
ir króna í Eignarhaldsfélaginu Al-
þýðubankinn á genginu 1,45 og
bréf í Marel voru seld fyrir 200
þúsund krónur á gengnu 6,1.
Hlutabréfavísitalan lækkaði í
gær í fyrsta sinn í nokkuð langan
tíma sem má rekja til iægra gengis
á bréfum í íslandsbanka en á föstu-
dag. Vísitalan var skráð 1488,42
stig sem er um 0,4% lægra gildi en
á föstudag.
Fundur um
fyrstu skref
í útflutningi
ÍMARK efnir til hádegisverðarfund-
ar í Víkingasal Hótels Sögu á morg-
un um fyrstu skref fyrirtækja í út-
flutningi á vöru og þjónustu. Meðal
þess sem fjallað verður um er hvern-
ig stærð og gerð fyrirtækja sem
og framleiðsiuvörur þeirra hafa
áhrif í þessu ferli. Að auki verður
rætt um ýmis almenn atriði sem
tengjast útflutningi.
Þeir sem munu fjalla um þessi
mál eru Haukur Björnsson, verk-
efnastjóri Útflutningsráðs; Baldur
Hjaltason, framkvæmdastjóri Lýsis
hf., og Daði Harðarson, fram-
kvæmdastjóri Nýrra Vídda hf.
*
Atak í atvinnumálum hjá iðnaðarráðuneyti, sjóðum iðnaðarins og Iðntæknistofnun
Sameinast um stuðning við
atvinnuskapandi verkefni
árið 1995.
Hann segist vera nokkuð
ánægður með þessa hlutdeild,
enda hafi félagið verið mjög skam-
man tíma á markaðnum. Cargolux
hóf sem kunnugt er ferðir hingað
til lands haustið 1994 og býður
það upp á eina ferð í viku. Þórar-
inn segir að líklega skýrist meiri
hlutdeild í innflutningi af því
hversu stórar einingar félagið geti
flutt í einu. „Þá hefur stærð Car-
golux-netsins um allan heim án
efa nokkuð að segja, en félagið
getur tekið á móti vörum til flutn-
ings í öllum helstu borgum Evr-
ópu, Asíu og Bandaríkjanna."
Unnið að því að
auka tíðni ferða
Nú er unnið að því að auka tíðni
ferða til og frá landinu þannig að
bæta megi þjónustu fyrirtækisins
enn frekar, að sögn Þórarins. Hins
vegar liggur ekki fyrir nein niður-
staða í þeim málum enn. Hann
bendir ennfremur á að Flugflutn-
ingar séu einnig umboðsaðili fyrir
fraktflutninga þýska flugfélagsins
LTU til og frá landinu og því auki
flug þess nokkuð þjónustu fyrir-
tækisins yfir sumarmánuðina.
Þórarinn segist reikna með því að
LTU muni fljúga hingað ijórum
sinnum í viku í sumar.
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðuneyti,
Iðntæknisstofnun, Iðnlánasjóður
og Iðnþróunarsjóður hafa ákveðið
að sameinast um að styðja ýmis
atvinnuskapandi verkefni undir
kjörorðinu „Átak til atvinnusköp-
unar.“ Jafnframt verður nú aukið
við það fjármagn sem fyrirhugað
er að verja til verkefnanna. Voru
samningar þar að lútandi undirrit-
aðir á laugardag að viðstöddum
blaðamönnum.
Undir átakið falla ýmis eldri
verkefni á borð við Vöruþróun,
Snjallræði og Frumkvæði/fram-
kvæmd sem eru í höndum Iðn-
tæknistofnunar. Þá er fyrirhugað
að ráðast í nokkur ný verkefni en
meðal þeirra eru Innflutningur fyr-
irtækja, Rauði þráðurinn, Evróp-
umiðstöð lítilla og meðalstórra fyr-
iiíækja og Frumkvöðlastuðningur.
Sérstök stjórn Átaksins mun
fjalia um umsóknir vegna einstakra
verkefna og er ábyrg gagnvart fjár-
mögnunaraðilum en framkvæmd
þess verður að mestu í höndum
Iðntæknistofnunar. Stjórnina skipa
þeir Árni Magnússon, aðstoðar-
maður iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, formaður, Órn Gústafsson,
fyrir Iðnlánasjóð, Snorri Pétursson
fyrir Iðnþróunarsjóð, Helgi Magn-
ússon fyrir hönd Samtaka iðriaðar-
ins og Rúnar Bachman fyrir hönd
Alþýðusambandsins. Ritari stjórnar
er Sveinn Þorgrímsson frá iðnaðar-
og viðskiptaráðuneyti.
Þar að auki koma að verkefnun-
um með einum eða öðrum hætti
Fjárfestingarskrifstofa viðskipta-
ráðuneytis og Útflutningsráðs,
Byggðastofnun, atvinnuráðgjafar
um allt land og fleiri.
Samtals verður um 83,5 miiljón-
um króna varið til verkefnanna
innan átaksins á þessu ári. Núna
bætist við framlag frá Iðnþróunar-
sjóði sem ver 27,4 milljónum til
át.aksins í ár, en þar að auki leggur
Iðnlánasjóður fram 27,4 milljónir,
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
17,7 milljónir og Iðntæknistofnun
10,9 milljónir.
„Ég vil sjá í árslok betri nýtingu
fjármuna en verið hefur hingað til,“
sagði Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, á fundinum
á laugardag. „í öðru lagi vil ég sjá
betri árangur af þeim stuðningsað-
gerðum sem verið hafa í gangi fyr-
ir atvinnulífið á undanförnum
árum. í þriðja lagi vonast ég tii
þegar til lengri tíma er litið að
þetta auki framleiðsluverðmæti í
fyrirtækjunum og um leið auki
hagvöxt. í fjórða lagi mun þetta
átak fjölga störfum.“
Styðja við lítil og meðalstór
fyrirtæki
Hallgrímur Jónasson, forstjóri
Iðntæknistofnunar, sagði m.a. að
hér væri um að ræða átak til að
styðja við lítil og meðalstór fyrir-
tæki. „Það er löngu viðurkennt að
lítil og meðalstór fyrirtæki eru
vaxtarbroddurinn í efnahagsvexti.
Um 70% af nýjum störfum innan
Evrópusambandsins eru í þessum
litlu fyrirtækjum, ekki í þeim
stærrri. Ég held að það sé mjög
eðlilegt að leggja mikla áherslu á
að hjálpa þessum smærri fyrirtækj-
um.“
Um þessar mundir er í undirbún-
ingi að skipa sérstaka verkefnis-
stjórn vegna verkefnisins „Inn-
flutningur fyrirtækja“ sem hefst
formlega 1. febrúar. „Það er sér-
staklega verið að horfa til fyrir-
tækja sem hafa markað þannig að
nægjanlegt sé að flytja starfsemina
hingað og halda áfram þar sem frá
var horfið. Þá kemur til greina að
stofna ný fyrirtæki hér eða kynna
þau fyrir starfandi fyrirtækjum
sem gætu aukið sína starfsemi,“
sagði Árni Magnússon í samtali við
Morgunblaðið.