Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Jón Páll Ásgeirsson
LOÐNAN er nú farin að veiðast í nótina á ný, en það sem af er ári, hefur hún aðeins veiðzt í flot-
troll. Skipin eru því sem óðast að taka næturnar um borð og eru 32 skip nú komin á loðnuveiðarnar
út af Austfjörðum. Hér eru starfsmenn Veiðarfæragerðar Seifs að undirbúa flutning á nótinni af
Þorsteini EA austur á firði.
jgsp
Góður skriður komínn
á loðnuveiðarnar á ný
„ÞAÐ ER allt að fara vel í gang og
kroppað í nót og troll,“ segir Frey-
steinn Bjarnason, útgerðarstjóri Síld-
arvinnslunnar hf. í Neskaupstað.
Hann segir að nótabátamir hafi ver-
ið að fylla sig á tveimur nóttum og
flotttrollsskipin hafi verið um þtjá
sólarhringa í síðustu túrum.
Loðnubátar sem eru með flotvörpu
hafa verið á veiðum síðan um ára-
mót, en nótabátar hafa aðeins haft
eitthvað upp úr krafsinu síðustu fjór-
ar nætur. FYeysteinn segir að Börkur
sé á nótaveiðum fyrir Síldarvinnsluna
hf. og hafi landað 750 tonnum í
gærmorgun. Beitir sé aftur á flot-
Nótabátar tvær
nætur að fylla sig
vörpuveiðum og sé búinn að fá í
heildina um 6 þúsund tonn frá ára-
mótum.
Veruleg hækkun á loðnuverði
„Verð fyrir tonnið upp úr sjó er
í kringum 6 þúsund krónur," segir
Freysteinn. „Það er veruleg hækkun
frá því á sama tíma í fyrra.“ Hann
segir að ástæðan fyrir því sé hærra
verð á lýsi og mjöli. Aðspurður seg-
ist hann ekki bjartsýnn á að loðnu-
kvótinn náist á þessu fiskveiðiári:
„Þá þarf að ganga vel.“
Nú eru um 510.000 tonn eftir af
loðnukvóta okkar, en auk auki kem-
ur verulegt magn frá Norðmönnum,
sem ná ekki kvóta sínum hér. Því
eru til reiðu um 750.000 tonn frá
áramótum, en aldrei hafa náðst
meira en um 600.000 tonn á vetrar-
vertíðinni. Komið hefur til tals að
Færeyingar fá heimildir til loðnu-
veiða hér gegn veiðiheimildum á
uppsjávarfiski í lögsögu þeirra, en
hvort svo verður er enn ekki ljóst.
12 frystitogarar til sölu
suður á Kanaríeyjum
SKIPASALAN UNS í Reykjavík
býður um þessar mundir til kaups
12 frystitogara, systurskip, á Kan-
aríeyjum. Um er að ræða fremur
lítil skip, 40 metra löng og tæplega
500 tonn að stærð. Þau eru smíðuð
1989 í Þýzkalandi og er um helming-
ur þeirra nýupptekinn. Skipin eru
talin henta vel til rækjuveiða hér við
land, en vinnslubúnað vantar á milli-
dekkið. Verð á skipunum er í kring-
um 110 til 120 milljónir króna.
Þorsteinn Guðnason sér um skipa-
söluna fyrir UNS. Hann segir að
mikill áhugi sé á þessum skipum og
þegar hafi fulltrúar nokkurra út-
gerða farið til Kanaríeyja til að skoða
þau. Skýringin á því að þessi skip
eru til sölu nú, er að veiðiheimildir
Spánverja við Marokkó hafa verið
skertar verulega og því eru skipin
Verðið 110 til 120
milljónir króna
verkefnalítil svo útgerð þeirra er
ekki lengur talin arðbær.
10 tonna frystigeta
Mesta lengd skipanna er 39,80
metrar, breiddin er 9 metra og
mælast þau 499 tonn. Flokkunarfé-
lag er Lloyds í Þýzkalandi, aðalvélar
eru 1.217 hestöfl frá Deutz og eru
togspilin 16 tonna. íbúðir eru fyrir
27 manns og tveir lausfrystar anna
um 10 tonnum á sólarhring.
Aðalbjörn Jóakimsson, fram-
kvæmdastjóri Bakka hf. í Hnífsdal
er meðal þeirra, sem eru að skoða
m
þessa togara. Aðalbjörn segir að við
fyrstu skoðun hafi þeir verið auglýst-
ir á hagstæðum kjörum og því hafi
fulltrúi Bakka hf. ásamt fulltrúum
nokkurra annarra íslenskra útgerð-
arfyrirtækja farið til Kanaríeyja um
helgina til að kanna málin nánar.
Ákvörðun bíður
Sævar Birgisson, skipatæknifræð-
ingur, fór til Kanaríeyja til að kynna
sér þessi skip og þá verslunarhætti
sem menn vildu viðháfa í sölu þeirra
síðastliðinn föstudag að sögn Aðal-
bjöms. „Ég vænti upplýsinga frá
honum fljótlega, en engin ákvörðun
verður tekin þangað til,“ segir hann.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins eru fyrirtæki á Akranesi,
Vestfjörðum og Austfjörðum að
skoða þennari skipakost.
k ■ É*-
Forráðamenn og
starfsfólk skyndibitastaða
Námskeið um innra eftirlit á skyndibitastöðum verða haldin í
Reykjavík 5. febrúar og á Akureyri 8. febrúar.
Meðal efnisþátta eru ákvæði matvælareglugerðar um innra
eftirlit, hlutverk starfsfólks í innra eftirliti og hreinlætisáætlanir.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 587 7000.
Iðntæknistofnun 11
FRÉTTIR: EVRÓPA
Skiptar skoðanir
um tengingu
franka og marks
Brussel. The Daily Telegraph.
ÞRÁLÁTUR orðrómur hefur verið
á kreiki undanfarna daga um að
Frakkar og Þjóðveijar hafi uppi
áform um að sameina frankann og
markið löngu áður en af hinum
efnahagslega og peningalega sam-
runa Evrópuríkja (EMU) yrði.
Þessi orðrómur komst á kreik í
síðustu viku í kjölfar þess að jafn-
vel harðsnúnustu Evrópusinnar
voru nær búnir að afskrifa mögn-
leikana á því að EMU gæti orðið
að veruleika árið 1999 vegna efna-
Ihagslegra erfiðleika í Þýskalandi
og Frakklandi. Ein helsta kveikjan
að umræðunni var grein í franska
dagblaðinu Le Monde þar sem hug-
myndir af þessu tagi voru reifaðar
án þess að heimilda væri getið.
Samruni þessara tveggja gjald-
miðla yrði þó síður en svo einfaldur
og meðal háttsettra embættis-
manna í Brussel eru fáir sem vilja
taka þessar hugmyndir alvarlega.
Til að mynda er öruggt að samrun-
inn myndi valda mikilli reiði á Spáni
og Ítalíu og vekja upp ótta um stöðu
pesta og líru. Þá yrðu Þjóðveijar
að taka pólitísk sjónarmið fram
yfir peningaleg, sem ekki mun fara
vel í yfirmenn þýska seðlabankans.
Ein helsta ástæða þess að jafn-
langsótt hugmynd sem þessi virðist
vera rædd í fullkominni alvöru á
háttsettum stöðum er óttinn við að
EMU-áformin séu að renna út í
sandin.
Hugmyndin hefur þó ákveðna
kosti í för með sér, ekki síst fyrir
Frakka. Fræðilega séð væri hægt
að taka fyrsta skrefið án samráðs
við þýsk stjórnvöld með því að lýsa
því yfir að gengi frankans hefði
verið tengt við gengi marksins til
frambúðar. Margir sérfræðingar
telja þó að áður en það kæmi til
greina yrði að fella gengi frankans
til að veita frönskum útflytjendum
andrúm.
Ólík sjónarmið
Talsmenn samrunahugmyndar-
innar segja að með þessari aðgerð
yrði slegið á þau rök að slaka verði
á skilyrðum Maastricht fyrir efna-
hagslegum samruna og hugmyndir
um að halda sérstaka ríkjaráðstefnu
um EMU-frestun.
Aðrir, sem haldnir eru meiri efa-
semdum um peningalegum sam-
runa, telja að eðli umræðunnar um
peningamál hafi breyst á varanlegan
hátt. Hlutir sem hafí verið „bannað“
að ræða á borð við breyttar tíma-
setningar í tengslum við EMU þyki
ú sjálfsagt að velta fyrir sér. Benda
eir jafnframt á að hugmyndin um
sérstakar tímasetningar hafi fyrst
skotið upp kollinum á lokastigum
Maastricht-ráðstefnunnar og verið
keyrð í gegn af Francois Mitterrand,
fyrrverandi Frakklandsforseta, og
Guilio Andreotti, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Ítalíu.
Reuter
HELMUT Kohl á blaðamannafundi í Wildbad Kreuth. Kanzlarinn
sagðist þess fuliviss að áherzla á áframhaldandi samruna Evrópu-
ríkja myndi hljóta stuðning þýzks almennings í næstu kosningum.
Kohl vill ekki
hægja á samruna
Wildbad Kreuth. Reuter.
AÐ HÆGJA nú á samrunaþróun-
inni innan Evrópusambandsins gæti
haft í för með sér að hún stöðvað-
ist einfaldlega og ætti sér ekki við-
reisnar von, að mati Helmuts Kohl,
kanzlara Þýzkalands.
Flokkur Kohls, Kristilegir demó-
kratar (CDU), og systurflokkurinn
CSU í Bæjaralandi héldu sameigin-
lega málefnaráðstefnu um helgina
í Wildbad Kreuth. Kohl sagði á
blaðamannafundi að ráðstefnunni
lokinni að ekki mætti seinka eða
hægja á samrunaþróuninni. „Sá,
sem vill taka sér hlé núna, ætti að
vita að hann gæti með því auðveld-
lega bundið enda á þróunina," sagði
kanzlarinn.
Heimildarmenn Reuters á ráð-
stefnunni, sem var ekki opin fjöl-
miðlum, sögðu að Edmund Stoiber,
forsætisráðherra Bæjaralands,
hefði varað við því að halda áfram
efnahagslegum samruna í Evrópu
án þess að efla sameiginlega félags-
málastefnu. Dagana fyrir fundinn
krafðist Stoiber þess jafnframt að
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu (EMU) yrði ekki komið á árið
1999 nema ákveðinn lágmarksfjöldi
aðildarríkja ESB tæki þátt í því,
ella yrði að fresta gildistöku mynt-
bandalagsins.
Munum hljóta atkvæði út á
óbreytta Evrópustefnu
Að sögn fundarmanna varaði
Kohl við því að láta slíkar kröfur
seinka nánara samstarfi Evrópu-
ríkja. Hann vísaði því jafnframt á
bug að kjósendur hefðu nú meiri
efasemdir um samrunaþróunina og
að flokkarnir yrðu að laga sig að
því.
„Við munum áreiðanlega hljóta
atkvæði í framtíðinni ef við fylgjum
þessari stefnu,“ sagði kanzlarinn á
blaðamannafundinum. Til þessa
hefur Evrópustefna hans virzt
höfða til kjósenda.