Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 21
ERLENT
Sjötta kjarnorkusprenging Frakka
Vísindamenn vilja
fleiri sprengingar
París. Reuter, The Daily Telegraph.
HAFT var eftir heimildarmönnum'
í París í gær að Jacques Chirac,
forseti Frakklands, myndi ákveða
innan tveggja daga hvort hætta
ætti kjarnorkutilraunum Frakka
eftir að sjötta kjarnorkusprengjan
var sprengd í Suður-Kyrrahafi um
helgina.
Upphaflega var gert ráð fyrir því
að 6-8 kjarnorkusprengjur yrðu
sprengdar en Chirac sagði í sjón-
varpsviðtali í fyrra að þær yrðu lík-
lega ekki fleiri en sex. Fregnir
herma að franskir vísindamenn telji
að sprengja þurfi að minnsta kosti
eina sprengju til viðbótar til að þeir
geti þróað tölvuhermi, sem á að
koma í stað kjarnorkusprenginga.
Charles Millon, varnarmálaráðherra
Frakklands, hafði sagt að tilraun-
unum lyki ekki síðar en 29. febrúar.
Oflugasta sprengingin
Sjötta sprengjan var sprengd
neðanjarðar á eyjunni Fangataufa.
Þetta var öflugasta sprengingin í
tilraunum Frakka, jafngilti 120.000
tonnum af hefðbundnu sprengiefni,
og meira en sex sinnum öflugri en
kjarnorkusprengingin í Hiroshima
árið 1945.
Kjarnorkusprengjurnar hafa ver-
ið sprengdar með u.þ.b. fjögurra
vikna millibili á Fangataufa og
Mururoa í Frönsku Pólynesíu frá
því þær hófust í september. Ráða-
menn í Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Jap-
an og Filippseyjum mótmæltu síð-
ustu sprengingunni harðlega eins
og þeim fyrri.
Gareth Evans, utanríkisráðherra
Ástralíu, kvaðst vona að þetta væri
„endirinn á mjög sorglegum og
mjög ábyrgðarlausum kafla í nú-
tímasögu Frakklands“. Jim Bolger,
forsætisráðherra Nýja-Sjálands,
hvatti Chirac til að lýsa því nú yfir
að sjötta sprengjan væri sú síðasta.
Frönsk yfirvöld viðurkenndu í vik-
unni sem leið að lítilsháttar geisla-
mengun hefði mælst á Mururoa-
eyju og Bolger sagði það renna
stoðum undir röksemdir um að
binda þyrfti enda á kjarnorkutil-
raunirnar.
Búist er við að Chirac taki
ákvörðun um hvort hætta eigi til-
raununum áður en hann heldur í
þriggja daga heimsókn til Banda-
ríkjanna á miðvikudag.
Flugstjór-
inn örendur
eftir hjarta-
áfall í aðflugi
London. Reuter.
FLUGMAÐUR breskrar þotu af
gerðirini Boeing-757 lenti heilu
og höldnu á flugvellinum í Mala-
ga á Spáni með 220 farþega
innanborðs eftir að flugstjórinn
fékk hjartaáfall og lést skömmu
fyrir lendingu.
Talsmaður Britannia félags-
ins sagði að flugstjórinn, sem
var á sextugsaldri, hefði fengið
hjartááfall nokkrum mínútum
áður en flugvélin átti að lenda
í Malaga. Tilraunir til þess að
lífga hann við hefðu reynst ár-
angurslausar.
„ Atburðir af þessu tagi eru
afar fágætir. Að sjálfsögðu eru
áhafnir flugvéla þjálfaðar í að
glíma við hvers kyns tilvik,
hversu ólíklegt er að þau eigi
sér stað, og því miður var þörf
fyrir þá þjálfun að þessu sinni,“
sagði talsmaðurinn.
Britannia er stærsta leigu-
flugfélag Bretlands og starf-
rækir 20 þotur af gerðinni Bo-
eing-757 og átta stærri af gerð-
inni Boeing-767.
A *
Yaxandi deilur milli Ira og Breta um Norður-Irland
Londonderry. Reuter.
DICK Spring, utanríkisráðherra ír-
lands, sakaði í gær bresku stjórnina
um að reyna að koma af stað klofn-
ingi í írsku stjórninni vegna málefna
Norður-írlands. Bretar stungu ný-
lega upp á því að efnt yrði til kosn-
inga á N-Irlandi áður en hafnar
yrðu viðræður um frið milli kaþó-
likka og mótmælenda.
Kaþólikkar vilja flestir samein-
ingu eða aukið samstarf við írland
en mótmælendur, sem eru rúmlega
helmingur íbúa N-írlands, vilja að
héraðið verði áfram hluti Bretlands.
Bretar og helstu flokkar mótmæl-
enda krefjast þess að hryðjuverka-
menn, þ. á m. liðsmenn írska lýð-
veldishersins, IRA, afhendi vopn sín
Spring
andvígur
kosningum
áður en raunverulegar friðarvið-
ræður allra aðila heíjist. IRA og
Sinn Fein, stjórnmálaarmur hreyf-
ingarinnar, hafna með öllu að af-
henda vopnin áður en viðræður
hefjast.
Spring sagði Breta lengi hafa
notað þá aðferð gegn írum að deila
og drottna og nýju tillögurnar
hefðu það að markmiði. Það myndi
þó ekki takast að þessu sinni; sam-
starf hans við John Bruton for-
sætisráðherra væri mjög traust.
Útilokað væri að leysa deilur Norð-
ur-íra með kosningum núna vegna
gagnkvæmrar tortryggni deiluað-
iia.
Stjórn Johns Majors í Bretlandi
hefur nú mjög lítinn meirihluta í
neðri deild þingsins og getur þurft
á stuðningi þingmanna n-írskra
mótmælenda að halda. Þeir fagna
hugmyndinni um kosningar sem
ætlað er að tryggja að fulltrúar
deiluaðila í friðarviðræðum hafi
raunverulegt umboð kjósenda.
KáMiriveim
ÚRVALÚTSÝN
Lágmúla 4: sími 569 9300,
Hafnarfirði: s(mi 565 2366, Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: stmi 482 1666, Akureyri: sítni 462 5000
- og hjá umboðsmöntium utn lancl allt.
20. mars í 2, 4 eða 5 vikur
Við tökum forskot á sumarið og bregðum
okkurtil Kanarí. Sérlegur gestgjafi
ÚrvaJs-fólks er Sigríður Hannesdóttir.
Verð frá:
2 vikur 1 4 vikur
74.956 kr. 95.035 kr.
Staðgreiðsluverð m.v. tvo í húsi
á Beach Flor með afslætti f. Úrvals-fólk.
Verð fyrir 5tu vikuna 13.600 kr. á mann.
■' Stjórntækniskóli íslands
I Höfðabakka 9
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐi
Stjórntækniskóli íslands
gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í markaðs-
fræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við sívaxandi
kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta. Námið er ætlað
fólki, sem vill bæta við sig þekkingu og fá innsýn í heim
markaðsfræðanna.
Markmið
námsins er meðal annars að þátttakendur tileinki sér
markaðshugsun í íslensku viðskipta- og athafnalífi og nái
þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin eru próf
í einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða reynslu við
kennslu og í viðskiptalífinu.
Námsgreinar:
Markaðsfræði.
Sölustjórnun og sölutækni.
Vöruþróun.
Vörustjórnun.
Stjórnun og sjálfstyrking.
Auglýsingar.
Tölvunotkun í áætlanagerð.
Viðskiptasiðferði.
„Ég mæli með
náminu fyrir alla
þá, er starfa við
markaðs- og
sölustörf. Ég
hef verið í sölu-
mennsku í 6 ár
og námskeiðið hefur nýst mér
vel í starfi. Fjölbreytt og
áhugavert námskeið."
Elísabet Ólafsdóttir,
Eggert Kristjánsson hf.
„Ég mæli tví-
mælalaust
með þessu
námi fyrir alla
þá sem eitthvað
eru tengdir
markaðs-, sölu-,
upplýsinga-, skipulags-, og/
eða framleiðslumálum sinna
fyrirtækja."
Hendricus Bjarnason,
Skýrr
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtiðar.
Simi 567 1466. Opið til kl. 22.00.
EIÐFAXI ER KOMINN ÚT
STÚTFULLUR AF NÝJU EFNI!
Jón Stefánsson organisti í Langholtskirkju
talar um hestamennsku.
Kristinn Hugason lýsir því hvernig sýna eigi kynbótahross.
Nýjar hugmyndir um fimikeppni.
Breyttar reglur í gæðingakeppni o.fl. o.fl.
EFNISYFIRLIT EIÐFAXA SÍÐUSTU FIMM ÁRIN FYLGIR MEÐ!
Eiðfaxi - fróðleiksbrunnur hestamannsins.
GERIST ÁSKRIFENDUR
EIÐFAXI ehf.
Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími 588 2525, fax 588 2528
TÍMARIT HESTAMANNA
Fréttaskýringaþátturinn
48 stundir í kvöld kl. 22:15