Morgunblaðið - 30.01.1996, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORQUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónlistarskóli og grunnskóli
Ohjákvæmilegt að
tengja námið betur
Samtök tónlistarskólastjóra efndu til ráð-
stefnu o g skoðanaskipta um hlutverk tónlist-
arskólanna í ljósi breytinga sem nú eiga sér
stað innan grunnskólans með hliðsjón af
samfelldum skóladegí. Hildur Einarsdóttir
greinir frá helstu niðurstöðum sem komu
fram í framsöguerindum.
IUPPHAFI ráðstefnunnar
ávarpaði menntamálaráð-
herra, Björn Bjarnason, ráð-
stefnugesti. Björn sagði meðal
annars, að í nýrri aðalnámskrá tón-
listarskóla, sem kemur út í næsta
mánuði, væri lögð áhersla á sjálf-
stæði einstakra skóla. Jafnframt
kæmi þar fram að samstarf tón-
listarskóla og grunnskóla geti verið
með ýmsum hætti og breytilegt eft-
ir aðstæðum hverju sinni. „Það er
því fyrst og fremst í höndum skóla-
stjórnenda, kennara, foreldra,
stjórnenda sveitarfélaga og annarra
heimamanna að finna þessu sam-
starfi þann farveg sem vænlegastur
er til árangurs á hveijum stað og
hverjum tíma.“
Sem flestir lyóti tónlistarnáms
„Með flutningi grunnskólans til
sveitarfélaganna er^eðliiegt að menn
skoði á ný stöðu tónlistarskólanna
og hvort endurmeta beri þau viðmið
sem fram að þessu hafa ráðið fjár-
veitingum til skólanna," sagði Ami
Þór Sigurðsson, formaður Skóla-
málaráðs Reykjavi'kur. Kom fram í
erindi hans, að rætt hefði verið inn-
an skólamálaráðs hvort einskorða
ætti stuðning sveitarfélagsins við
nemendur á grunnskólaaldri eða við
tiltekin stig tónlistamámsins. Einnig
hefði verið rætt hve mikið tillit ætti
að taka til nemenda sem búsettir
eru í öðrum sveitarfélögum. Árni
Þór sagði ofangreindar hugmyndir
hafa mætt andstöðu hjá fulltrúum
tónlistarskólastjóra og tónlistar-
kennara í Reykjavík. Svo róttækar
breytingar verði því ekki lagðar til
nú.
Árni vék að þeim áhrifum sem
einsetning allra grunnskóla fyrir
árið 2001 muni hafa. „Óhjákvæmi-
legt er að mínu mati, að tengja bet-
ur saman nám í tónlistarskóla og
grunnskóla, sérstaklega hvað ýarðar
yngstu börnin. Vel má hugsa sér að
einstakir skóiar taki upp formiegt
samstarf við tiltekna grunnskóla í
þeim tilgangi að tónlistarkennslan
verði ékki einskorðuð við eftirmið-
dag en slíkt samstarf kallar á góðá
skipuiagningu og nálægð skólanna
hver við annan. Árni Þór kvað skóla-
málaráð hafa áhuga á að beita sér
fyrir slíku samstarfí. Væri áhugi á
að standa fyrir tilraunverkefni í til-
teknum skólum til að byrja með.
Gengi það í grófum dráttum út á
að bjóða forskólanám auk hefðbund-
ins tónlistarnáms fyrir byrjendur
innan veggja grunnskólans eftir að
skóiadegi iýkur. Verkefni af þessum
toga gæti verið skipulagt af viðkom-
andi grunnskóia, t.d. sem hluti af
lengdri viðveru, sem daglega gengi
undir heitinu „Heilsdagsskóli". Einn-
ig gæti námið verið á snærum ein-
hvers tónlistarskólanna sem fengi
tækifæri til að vera með hluta af
starfsemi sinni inn í grunnskólunum.
„Mikilvægi tóniistarnáms í uppeldi
er óvefengjanlegt. Við hljótum þess
vegna að stefna að því að gefa sem
flestum tækifæri til að njóta þess,“
sagði Árni Þór.
Hópkennsla fyrir 3-9 ára börn
hefur gefist vel á Húsavík
Halldór Valdimarsson, skólastjóri
Tónlistarskólans á Húsavík, lýsti í
erindi sínu sameiginlegu þróunar-
verkefni sem grunnskóli staðarins,
Borgarhólsskóli, Tónlistarskólinn og
leikskólinn Bestibær hafa unnið að
undanfarin þrjú ár. Markmiðið með
verkefninu er að koma á markvissu
tónlistaruppeldi fyrir aldurshópinn
3-9 ára með því að koma á sam-
vinnu og samræma tónlistarkennslu
í leikskóla, tónlistarskóla og grunn-
skóla með gerð sameiginlegrar nám-
skrár í tónlistarfræðslu fyrir þetta
aldursskeið. Einnig að þróa og afla
þekkingar í viðkomandi stofnunum
um kennsjuaðferðir fyrir þetta ald-
ursskeið sem gerir það mögulegt að
bjóða heilum bekkjardeildum upp á
hljóðfæranám sem fellur inn í sam-
fellda stundaskrá. Rökstuðningur
með þessum markmiðum er sá, að
, sögn Halldórs, að rannsóknir benda
til þess að tónlistarörvun og tónlist-
aruppeldi eigi að hefjast fyrir sex
ára aldurinn. „Það hlýtur því að
vera lykilatriði að geta hafið strax
í leikskóla markvisst tónlistaruppeldi
sem er í samhengi við það nám sem
börnunum stendur til boða séinna. Á
sama hátt er mikilvægt að námið
sem er í boði í tónmenntakennslu
grunnskóla og í tónlistarskólum geti
tekið mið af námi og tónlistarupp-
eldi sem fram fer í leikskólunum."
Taldi Halldór leikskólana á margan
hátt vel til þess fallna að sinna þess-
um hluta tónlistarnámsins. „Sú stað-
reynd að stærstur hluti nemenda í
tónlistarskólum landsins flokkast
undir byrjendur á fyrstu stigum í
hljóðfæranámi undirstrikar enn
frekar nauðsyn þess að byrjenda-
kennslan sé sem markvissust. Það
ætti líka öllúm að vera ljóst að það
FRÁ ráðstefnunni.
Morgunblaðið/Sverrir
er slæm nýting á fjármunum og
þekkingu þegar tónlistarkennari er
að kenna í einkatímum átta eða níu
ára gömlum nemendum sem vantar
alla undirstöðuþjálfun fyrir hljóð-
færanám.“ Halidór sagði þetta fyrir-
komulag auðvelda að koma á sam-
felldum skóladegi barnanna og félli
vel að þeim hugmyndum að koma á
heilsdagsskóla. Með því að koma
hljóðfæranáminu inn í samfelldan
skóladag væri líka komist hjá því
að lenda í, árekstri við tómstunda-
starfsemi ýmiss konar og starfsemi
íþróttafélaga sem fram fer að lokn-
um skóladegi. Halldór sagði að
vegna hagkvæmni hópkennslunnar
væru skólagjöldin hlutfallslega lægri
á hvern einstakling en í einkakennsl-
unni. Hér væri því ekki um háar
upphæðir að ræða. Að lokum sagði
hann að gert væri ráð fyrir að nýr
sérbúinn tónlistarskóli verði inn í
miðju grunnskólahúsinu.
Ekki má stofna góðum árangri
í einkakennslu í hættu
Sigursveinn Magnússon, skóla-
stjóri Tónskóla Sigursveins, greindi
frá viðræðum sem umræðuhópur
tónlistarskólastjórnenda átti við
skólamálaráð. Auk hans voru Stefán
Edelstein og SigríðUr Árnadóttir í
hópnum. Sagði Sigursveinn að nokk-
ur rök mæltú með nánari samvinnu
tónlistarskóla og grunnskóla í ein-
hverri mynd. Ekki væri þó hægt að
líta fram hjá því að þarna væri um
tvær ólíkar skólagerðir að ræða sem
lúta hvor um sig eigin lögmálum.
Sigursveinn sagði að tilraunir sem
gerðar hefðu verið með stofnun
útibúa frá tónlistarskólum í húsnæði
grunnskóla í Reykjavík hefðu ekki
alltaf gengið sem skyldi. Ekki hefði
verið boðið upp á viðunandi starfsað-
stöðu og erfitt hefði verið að fá kenn-
ara að kenna á fámennum kennslu-
stöðum þar sem viðkomandi er til-
tölulega einangraður í starfi. Kenn-
arar hefðu líka kvartað yfir að ýmis
einkenni starfsins í grunnskólunum
flyttust yfir til tónlistarskólans svo
sem agavandamál og ónæði.
Sigursveinn kvað núverandi fyrir-
komulag, sem byggir að me.stu á
einkakennslu, hafa gefíst vel og
breyting á því mætti ekki setja þann
jákvæða árangur sem hefði náðst í
hættu. Sagði hann þó athugandi að
tónlistarskólar og grunnskólinn bjóði
upp á nám sem væri að einhverju
leyti frábrugðið því sem nú er svo
sem í formi hópkennslu til að gefa
fleiri börnum kost á námi með lægri
námsgjöldum. Huga þyrfti að því í
þessu samhengi að gera hópkennslu
að lið í kennaramenntun en svo hefði
ekki verið hingað til.
Björn Th. Arnason, formaður og
skólastjóri FÍH, kvað það ekki óeðli-
legt að forskólakennsla í tónmennt-
um færðist inn í grunnskólana og
þar verði um hópkennslu að ræða.
„En ég tel nauðsynlegt að velja vel
í hópana og að tekið verði tillit til
þroskastigs hvers og eins svo kennsl-
an skili sér. Einnig þarf að stórauka
tónmenntakennsluna svo allir fái að
njóta hennar. Fyrir eldri aldurshóp-
ana er það þó samvinna nemanda
og kennara í einkatímum sem hefur
skilað okkur árangri. Kerfið sem við
búum við nú er til fyrirmyndar og
því þurfum við að fara hægt í allar
breytingar því við höfum ekki þörf
Tónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn
1 . febrúar kl. 20.00
En Shao, Hallfríður Ólafsdóttir,
hljómsveitarstjóri flautuleikari
ásamt
Sinfóníuhljómsveit íslands
. 5
RÚN í
Carl Nielsen: Flautukonsert g
Dmitríj Shostakovitsj: Sinfónía nr. 5
Gul áskriftarkort gilda
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíói við Hagatorg, sími 562 2255
MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN
Syndararnir þagna
RÁÐÞROTA lögreglumenn (Freeman og Pitt) í glímu við snjallan
fjöldamorðingja í spennuhryllinum Dauðosyndirnar sjö.
KVIKMYNPIR
Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri
DAUÐASYNDIRNAR SJÖ
(„SEVEN'jtr ★ ★ Vi
Leikstjóri David Fincher. Handrits-
höfundur Andrew Kevin Walker.
Kvikmyndatökusljóri Darius
Khondji. Tónlist Howard Shore. Að-
alleikendur Brad Pitt, Morgan Free-
man, Gwyneth Paltrow, Kevin Spac-
ey, Richard Roundtree, R. Lee Er-
mey, John C. McGiniey. Bandarísk.
New Line Cinema 1995.
STÓRBORGARUMHVERFI
Dauðasyndanna sjö er líkt og umíjöll-
unarefnið, fráhrindandi, hráslagalegt,
grátt og guggið. Sviðsmyndimar
meistaraverk í gotneskum hryllings-
stíl, allt útskitið, myrkt og blautt.
Persónurnar litlaus massi þar sem
syndaramir skera sig úr, ámm líkir,
og örfáir samviskusamir laganna
verðir eru pánast eina ljósið í myrkr-
inu.
í þessu jarðneska víti hefur lög-
reglumaðurinn Sommerset (Morgan
Freeman) unnið alla tíð en er að láta
af störfum og í upphafi myndarinnar
kemur Mills (Brad Pitt), eftirmaður
hans til sögunnar. Það fer ekkert of
vel á með þeim til að byija með, enda
Sommerset kunnáttumaður af gamla
skólanum, Mills fljóthuga og ótaminn.
Það er ekki fyrr en að kona Mills
(Glyneth Paltrow) hefur blíðkað þá
að samstarfíð verður bærilegt. Eins
gott því fyrr en varir em þeir félagar
komnir í örvæntingarfulla leit að
íjöldamorðingja sem kvelur og drepur
fómarlömbin á óvenju hroðalegan
hátt. Lögreglumennimir komast að
raun um að þeir eiga, í höggi við
snjallan bijálæðing sem telur sig út-
sendara almættisins með það veiga-
mikla hlutverk að láta synduga sam-
borgargna gjalda Dauðasyndanna sjö
með Iífí sínu. Þeir Mills og Sommer-
set verða sífellt flæktari í málið og
að endingu hluti af djöfullegri fléttu
morðingjans.
Það er engum blöðum um það að
fletta að Dauðasyndimar sjo er ein
óhugnanlegasta mynd sem gerð hefur
verið í háa herrans tíð og ein sú lang-
óþægilegasta að sitja undir. Allt
leggst á eitt að gera hana sem óbæri-
legasta. Efnið og útlitið og ekki síst
hljóðrásin. Hér fer enginn sigurvegari
af hólmi, undir lokin tapa allir í þeim
blóði drifna hildarleik sem fram fer
á milli góðra afla og illra. Sjúkleikinn
einatt í fyrirrúmi og hefur sjaldan náð
jafnsterkum tökum á áhorfandanum
og leikstjórinn, David Fincher, óspar
á krassandi hjáiparmeðöl. Þar eru
snjallir menn í hveiju plássi. Mestan
þátt í nöturlegu útlitinu á kvikmynda-
tökustjórinn Dario Khundji, mikill
kunnáttumaður í lýsingu, líkt og sýndi
sig eftirminnilega í Delicatessen.
Hann er svo spar á birtuna að mynd-
in virkar nánast svart/hvít á löngum
köflum. Það á ekki illa við í víti.
Stórleikarinn Morgan Freeman fær
t