Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Vélritun undir tónum Bachs
Morgunblaðið/Ásdís
VÉLRITUNARKENNARAR kynntu sér
PC-Bach vélritunarforritið.
FYRSTA vélritunarforrit á
vegum Námsgagnastofnun-
ar er nýkomið út, en fram
til þessa hafa grunn- skóla-
kennarar nánast eingöngu
stuðst við kennslubók Þór-
unnar Felixdóttur í vélritun
og nú síðustu ár á tölvu-
tæku formi. Að sögn As-
geirs Guðmundssonar
framkvæmdastjóra stofn-
unarinnar hefur forritið
verið tekið til notkunar í
nokkrum skólum á landinu.
Helga Stefánsdóttir
kennari í Arbæjarskóla
hefur notast við forritið á
ensku undanfarin þrjú ár
fyrir elstu bekki grunn-
skólans, en nú hefur hún
þýtt það yfir á íslensku.
Hún segir íslenska forritið
henta vel til sérkennslu og
sjálf notar hún það fyrir
nemendur allt niður í 11
ára.
Fyrirmæli
af snældum
Öll fyrirmæli koma af
segulbandssnældum þar
sem sagt er á hvaða stafi
skal slegið. A bakvið hljómar
sígild tónlist eftir tónlistarmenn-
ina Antonio Vivaldi, Sebastian
Bach, Domenico Scarlatti og
Fridrich Hándel, en fremsti staf-
urinn I skírnarnöfnum þeirra
mynda heimalykla vinstri hand-
ar. „Sumir óttast að unglingar
kæri sig ekki um að hlusta á sí-
gilda tónlist inni í bekk,“ sagði
Helga. Hún segir að þvert á
móti hafi þeim líkað það mjög
vel, enda verði andrúmsloftið
einkar afslappandi og þægilegt.
Slökunaræfingar á sérstökum
snældum fylgja með á segul-
bandssnældu sem hægt er að
nota í lok hvers tíma.
Helga nefnir að eitt sinn hafi
nemendur beðið hana um að
spila lög með þungarokkshljóm-
sveitinni Metallicu. Varð hún við
ósk þeirra þegar þeir tóku
hraðaæfingu og í Ijós kom að
allir nemendur sem einn misstu
niður hraðann. „Þeir báðu aldrei
um slíkt aftur,“ sagði Helga.
Auðvelt er að leiða sig áfram
í forritinu, sem býður upp
á ýmsa „rétti“ eins og for-
rétt, aðalrétt og eftirrétt.
Segir Helga að í venjulegri
kennslustund sé tekið sitt
lítið af hverjum rétti. Ellefu
kennslustundir tekur að
koma öllum fingrum af
stað, en þá er þjálfunin eft-
ir. Þegar komið er í fram-
haldshluta leiðréttir forrit-
ið texta nemenda og gefur
þeim einkunn fyrir hraða
og nákvæmni.
A skjánum má sjá lykla-
borðið þar sem hver fingur
hefur sinn lit og í hvert sinn
sem byijað er á nýjum stöf-
um lýsast þeir sérstaklega
upp. Er hvort tveggja gert
til að auðvelda kennslu fyr-
ir mjög unga nemendur, en
hingað til hefur vélritunar-
kennsla einskorðast við
unglingadeildir í flestum
skólum og jafnvel einungis
efsta bekkinn.
Aðspurð segir Helga að
ekki sé reiknað með heim-
anámi í þessu kerfi. Hún
vísar til þess að fyrir nokkr-
um árum hafi dómur gengið
í máli, sem kvað á um að ekki
mætti krefjast þess að nemandi
eigi tölvu eða ritvél. „Þetta for-
rit hentar vel, því góður árangur
hefur mælst á stuttum tíma.“
Asgeir Guðmundsson segir að
áætlanir séu um að kynna forrit-
ið einnig í fyrirtækjum, því það
þykir henta vel vil þjálfunar ein-
stakra starfsmanna. „Þetta er
okkar hugmynd, en framtíðin
leiðir í ljós hvernig til tekst,“
sagði hann.
handavínna
myndmennt
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparið og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 5517356.
■ Listmálun - leirlist
Nýtt námskeið að byrja í listmálun og
leirlist. Morgun- og kvöldtímar.
Innritun í simum 552 3218 og 562 3218.
Ríkey Ingimundardóttir,
myndhöggvari.
■ Virku námskeiðin byrja 5. febrúar
Bútasaumur, byrjendur (teppagerð
4x3 tímar).
Framhaldsnámskeið (4 teppamynstur
4x3 tímar).
Dúkkugerð (2x3 tímar).
Eldhúshlutir, tehetta servíettubox,
mynd, pottaleppar o.fl. (4x3 tímar).
Baðherbergishlutir (4x3 tímar),
tissuebox, seta, ilmdúkka o.fl.
Veggteppanámskeið (3x3 timar).
Kennt 3 miðvikudagskvöld kl. 19-22.
VIRKA
Mörkinni 3, sími 568 7477
heilsurækt
■ Grænmetisréttir
- námskeiðin eru byrjuð aftur
Viltu læra að elda ódýran mat úr græn-
meti og ávöxtum?
Námskeið 1: Indverskir réttir mán.
Námskeið 2: Mexíkóskir réttir þri.
Námskeið 3: Blandað alþjóðlegt mið.
Tími: Kl. 18-21.30. Verð á kvöld 2.500.
6-8 manns í hóp.
Tvö brauð og fimm laukar,
sími 587 2899, Steinunn.
ýmisiegt
■ Ættfræðinámskeið
Lærið sjálf að leita uppruna ykkar og
frændgarðs. Frábær rannsóknaaðstaða.
Ættfræðiþjónustan, s. 552 7100.
■ Námskeið í keramik
Keramiknámskeiðin á Hulduhólum hefj-
ast 19. febrúar. Byrjendanámskeið,
framhaldsnámskeið.
Upplýsingar í síma 566 6194.
Steinunn Marteinsdóttir.
■ Bréfaskólanámskeið
í myndmennt
Á nýársönn, janúar-maí, eru kennd eftir-
farandi námskeið:
Grunnteikning. Líkamsteikning. Lita-
meðferð. Listmálun með myndbandi.
Skrautskrift. Innanhússarkitektúr.
Híbýlafræði. Teikning og föndur fyrir
börn.
Fáðu sent kynningarrit skólans með því
að hringja eða senda okkur línu.
Sími 562 7644, pósthólf 1464,
121 Reykjavík.
tungumál
■ Enskunám f Englandí
Við bjóðum enskunám við einn virtasta
málaskóla Englands. Skólinn sér þér fyr-
ir fæði og húsnæði hjá enskri fjölskyldu.
Um er að ræða alhliða ensku, 18 ára
og eldri, 2ja-4ra vikna annir; unglinga-
skóla, júlí og ágúst, 13-17 ára, 4ra vikna
annir; viðskiptaensku, 2ja og 4ra vikna
annir.
Allar nánari upplýsingar gefur
Jóna Marfa Júifusdóttir eftir
kl. 18 i' síma 462-3625.
■ Dönskuskólinn, Stórhöfða 17
Kennsla hefst mánudaginn 15. janúar.
Danska kennd í litlum samtalshópum.
Einnig unglinganámskeið.
Upplýsingar og skráning i sfmum
567 7770 og 567 6794.
■ Enskunám i' Englandi
í boði er alhliða enskunám allt árið við
virtan enskuskóla. Sérstakt fjórtán vikna
námskeið hefst 11. mars (Cambridge
examinatination first certificate).
Fámennir hópar. Fæði og húsnæði hjá
enskri fjölskyldu.
Allar nánari upplýsingar gefur
Marteinn M. Jóhannsson eftir
kl. 18.00 i' si'ma 581 1652.
tónlist
■ Píanókennsla
Einkakennsla á píanó og í tónfræði.
Upplýsingar og innritun í s. 553 1507.
Anna Ingólfsdóttir.
nudd
■ Nuddskóli
Nuddstofu Reykjavíkur
Vorönn 1996
■ Nám í svæðameðferð
(4 áfangar alls 280 kennslustundir).
Akureyri
1. áfangi hefst 31. janúar.
Reykjavík
1. áfangi hefst 21. febrúar.
■ Námskeið
Höfuðnudd og orkupunktar
(52 kennslustundir).
Akureyri
6.-10. mars.
Reykjavik
28. febrúar-3. mars.
Kennarar: Kristján Jóhannesson, sjúkra-
nuddari og Katrín Jónsdóttir, svæða-
nuddari.
Upplýsingar og innritun í símum
462 4517 og 557 9736.
Háskóli íslands
Meistaranám í um-
hverfisfræðum rætt
HÁSKÓLARÁÐ hefur ekki tekið af-
stöðu til tillagna pefndar um stefnu-
mörkun Háskóla íslands í umhverfis-
málum. Nefndin hefur lagt til að
annars vegar komi skólinn á meist-
aranámi í umhverfísfræðum með
svipuðu sniði og meistaranámið í
sjávarútvegsfræðum sem nú er kennt
og hins vegar verði komið upp Um-
hverfisstofnun Háskólans, sem
greiddi fyrir. starfi mismunandi
deilda að umhverfismálum. Um yrði
að ræða miðstöð fyrir umhverfis-
rannsóknir sem háskólinn stundaði
eða tæki að sér.
Sveinbjörn Björnsson háskólarekt-
or segir að heita megi að í öllum
deildum háskólans sé áhugi á um-
hverfismálum. „í fyrstu datt mönn-
um einungis í hug greinar eins og
líffræði og jarðfræði. I ljós kom hins
vegar að innan verkfræðinnar er
ýmislegt sem tengist umhverfi eins
og t.d. fráveitukerfi. Nefna má að
lög um umhverfismál snúa að iaga-
deild. Einnig hafa mörg lönd reynt
að stýra umhverfismálum með fjár-
hagslegum aðgerðum og í guðfræði-
deiid velta menn fyrir sér siðfræði
gagnvart náttúru og fleiru, svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Hann segir að hugmyndir séu
uppi um að menn ljúki fyrst fagnámi
í einhverri deild en síðan yrði námi
í umhverfisfræðum bætt ofan á og
með því mætti ljúka meistaragráðu.
Umhverfisstofnun Háskóla
íslands verði komið á fót
I nefndaráliti um Umhverfisstofn-
un Háskóla íslands segir að við Há-
skóla íslands hafi verið stundaðar
rannsóknir og unnin verkefni á ýms-
um sviðum sem talist geti til um-
hverfismála. Innan skólans sé að
finna meiri breidd varðandi þekkingu
á umhverfismálum og tengdum svið-
um en í nokkurri annarri stofnun í
íslensku þjóðfélagi. „Þrátt fyrir þetta
hefur Háskóia íslands sem stofnun
ekki tekist að skapa sér stöðu sem
leiðandi afli við mótun stefnu og
rannsókna í umhverfismálum. Þegar
upp koma ágreiningsmál tengd um-
hverfismálum, eða umræður skapast
á þessum vettvangi, hefur lítið verið
leitað til Háskólans þrátt fyrir þá
miklu þekkingu sem þar er að finna
á þessu sviði,“ segir þar.
Aukning
rannsóknaverkefna
Að mati nefndarinnar er ein
ástæðan sú að formlegan aðila hefur
vantað innan skólans til að fara með
þessi mál. Úr þessu telur hún að
þurfi að bæta, sérstaklega í ljósi þess
að búast megi við mikilli aukningu
rannsóknarverkefna bæði hér innan-
lands og erlendis. „Slík rannsóknar-
verkefni eru oft mjög viðamikil og í
eðli sínu þverfagleg, og því nauðsyn-
legt, að formlegur aðili innan Háskól-
ans geti tengst þeim, sérstaklega með
tilliti til samvinnu við aðrar stofnanir
eða aðila innanlands og utan. Eins
má ætla, að umræður um umhverfís-
mál og fjöldi ágreininsmála tengdum
þeim aukist á næstu árum, t.d. vegna
breyttra áherslna með tilkomu laga
um mat á umhverifsáhrifum fram-
kvæmda," segir í nefndaráliti.
tölvur
■ Tölvunámskeið
Starfsmenntun:
- 64 klst tölvunám
- 84 klst. bókhaldstækni
Stutt námskeið:
- PC grunnnámskeið
- Windows 3.1 og Windows 95
- Word grunnur og framhald
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel grunnur og framhald
- Access grunnur
- PowerPoint
- Paradox fyrir Windows
- PageMaker fyrir Windows'
- Intemet námskeið
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Bamanám
- Unglinganám í Windows
- Unglinganám í Visual Basic
- Windows forritun
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
í síma 561 6699.
Tölvuskóli Reykiavíkur
IBorgartúni 28, sími 561 6699.
■ Umsjón tölvuneta:
Frábært 54 kennslustunda námskeið um
allt sem þarí að kunna til þess að sjá
um Novell net.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 568 8090.
StjórmmaifcUg
fsUnds
NÝHERJI
Viðskipta- og tölvuskólinn
■ Helgarnámskeið:
Grunnur, Windows og Internet. 18 klst.,
kr. 13.500.
Word og Excel. 18 klst., kr. 13.500.
Nánari upplýsingar í síma 569 7640.
■ Tölvuvetrarskólinn
fyrir 10-16 ára:
Grunnámskeið og forritunarnámskeið.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 568 8090.
■ Nútfma forritun:
Frábært 54 kennslustunda námskeið um
nútíma forritun með Visual Basic.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 568 8090.
Stjóraunarfélag
fslands
NÝHERJI
Viðskipta- og tölvuskólinn
■ Kvöldnámskeið:
Word 12 klst. kr. 9.000.
Internet 6 klst. kr. 4.500.
Excel 12 klst. kr. 9.000.
Windows 6 klst. kr. 4.500.
Power Point 6 klst. kr. 4Í500.
Nánari upplýsingar í síma 569 7640.
Tölvunámskeið
Windows, Word og Excel, 5.-9. febr.
kl. 16-19 eða 12.-16. febr. kl. 9-12.
Windows 95, 5.-6. febr. kl. 16-19
eða 12.-13. febr. kl. 13-16.
Internetið, 31. jan. - 1. febr. kl. 16-19
eða 7.-8. febr. kl. 16-19.
Word, 5.-8. febr. kl. 13-16.
Word framhaldsnámskeið, 12.-15.
febr. kl. 13-16.
Excel, 5.-9. febr. kl. 13-16.
Excel Visual Basic for Applications
fjölvagerð, 19.-22. febr. kl. 13-16.
Access gagnagrunnurinn, 12.-16.
febr. kl. 9-12.
Claris Work framhaldsnámskeið,
12.-16. febr. kl. 16-19.
FileMaker gagnagrunnurinn, 12.-16.
febr. kl. 16-19.
Macintosh og Claris Works, 5.-9.
febr. kl. 9-12 eða 6.-20. febr. kl.
19.30-22.30.
Quark Xpress, 5.-9. febr. kl. 13-16.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 568 8090.