Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 27
Málum sem vísað er til
skólasálfræðinga hafa
tvöfaldast á undanförn-
um áratug, en fjöldi
starfsfólks hefur staðið
í stað. Hildur Friðriks-
dóttir komst að því að
sum böm verða að bíða
allt að tvo mánuði eftir
að komast í meðferð.
F
Nemendafjöldi í Reykjavík
Fjöldi mála hjá sálfræðideild
skóla í Reykjavík
MEÐ grunnskólalögunum 1974 var sett löggjöf um sálfræðiþjónustu
í skólum. Á fyrstu átta árunum var um 400 nemendum visað til
sálfræðideildar en upp úr því fjölgar þeim hratt Upp undir 1000
nemendur leituðu til sálfræðideildar árið 1991, en ári siðar eru þeir í
kringum 700. Ástæðan er talin sú að það ár voru þrjár sálfræði-
deildir sameinaðar á einn stað og raskaðist starfsemin verulega.
1980 1982 1984 1986 1988 1990 1992 1994
|JÖLDI nemenda, sem vísað
hefur verið til sálfræði-
deildar skóla hjá Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur,
hefur tvöfaldast á síðastliðnum tólf
árum. Á árunum 1975-83 voru
nemendur að jafnaði í kringum
400, en á undanförnum árum hefur
meðaltalið verið 800-900 nemend-
ur. Algengasta orsök vegna tilvís-
unar er vegna námsframmistöðu
nemenda eða hegðunarvandamála.
Þegar kafað er dýpra kemur í ljós
að grundvandamálin eru af mjög
mismunandi toga.
Flestar tilvísanir koma frá skól-
um eða 60-65% en aðrar koma frá
foreldrum eða stofnunum. Starfs-
mönnum sálfræðideilda skóla hefur
ekki fjölgað frá árinu 1975, þrátt
fyrir helmingsfjölgun mála, að sögn
Víðis Kristinssonar forstöðusál-
fræðings. Að undanförnu hefur
starfsmönnum fækkað ef eitthvað
er.
Ekki heimild til ráðninga
vegna forfalla nema að hluta
Með reglugerð frá 1980 var áætl-
aður einn sálfræðingur fyrir hveija
þúsund nemendur. Nú er engin
reglugerð í gildi og eru rúmlega
1.200 nemendur á sálfræðing nú.
Víðir segir að ekki hafi fengist
heimild til að ráða starfsfólk nema
að hluta vegna veikindaforfalla og
barnsburðarleyfa. „Stöðugildin eru
því heldur færri nú en þau ættu í
raun að vera,“ sagði
hann. Hann segir það
vera undarlegt í ljósi þess
að veikist kennari sé ekk-
ert mál að ráða annan í
hans stað, svo framarlega
sem hægt sé að finna
starfsmann. Viðkvæðið gagnvart
Fræðsluskrifstofu sé hins vegar að
stofnunin hafi ákveðinn fjárhags-
ramma. „Hér í Reykjavík hefur
hver króna verið nýtt þannig að
stofnunin hefur ekkert svigrúm,“
sagði hann.
Víðir segir að síðan umræðan um
SALINIOLAGI
Við reynum að
glíma við þá
sem eru verst
staddir
flutning grunnskólans til sveitarfé-
laga hófst fyrir nokkrum árum hafi
verið mikil kyrrstaða í málum sál-
fræðideildar. „Það hefur fengist
óskaplega lítið viðbótarfjármagn,
því menntamálaráðuneytið hefur
lítið viljað leggja í þennan málaflokk
og helst viljað þrengja að,“ sagði
hann.
Hann segir ljóst að ekki sé hægt
að sinna hveiju máli eins og æski-
legt væri. „Vandamálin aukast jafnt
og þétt og það er víðs íjarri að við
höfum lausn á þeim öllum. Við reyn-
um að klóra í bakkann og glíma
við að aðstoða þá nemendur sem
verst eru staddir."
Vinnuregla sálfræðideildar er sú
að reyna að líta á öll mál sem vísað
er til deildarinnar og flokka þau
síðan eftir forgangsröð. Þannig
getur bið eftir fyrstu greiningu ver-
ið tiltölulega stutt en síðan geta
jafnvel liðið upp undir tveir mánuð-
ir áður en hægt er að veita næsta
viðtal.
Einstök mál eru mjög miskrefj-
andi. Sum þeirra er hægt -að af-
greiða nokkuð fljótt en öðrum þarf
að sinna meira og minna alla skóla-
göngu barnsins, jafnvel
án þess að fullnægjandi
lausn finnist. „Það eru
mörg mál hjá okkur sem
ekki er hægt að segja að
komin séu á endapunkt
vegna þess að við vitum
heldur áfram að verða
Morgunblaðið/Sverrir
VIÐIR Kristinsson forstöðusálfræðingnr segir Sálfræðideild
skóla vera undirmannaða.
að þetta
vandamál."
- Hefur komið til tals að foreldr-
ar sem leita með börn sín til sál-
fræðinga utan skóla fái niður-
greiðslu á þvi gjaldi eins og gert
er með skólatannlækna?
„Nokkur tími er síðan Sálfræð-
ingafélag íslands barðist fyrir að
fá aðgang að Sjúkrasamlaginu
meðan það var við lýði og síðar
Tryggingastofnun, en ekki hefur
verið ljáð máls á því. Málið hefur
því legið nokkuð niðri að undan-
förnu. Hins vegar er þjónusta geð-
lækna niðurgreidd að hluta til. Sál-
fræðingar hafa heyrt undir mennta-
málaráðuneytið en nú hefur okkur
verið tilkynnt að framvegis munum
við heyra undir heilbrigðisráðneyti.
Ekki er að vita nema einhveijar
breytingar verði þar á í kjölfarið."
Of margar hliðarráðstafanir
Víðir gagnrýnir að alltof mörgum
hliðarráðstöfunum hafi verið komið
upp, sem jafnvel eigi sér ekki laga-
lega stoð. Hann segist heldur vilja
sjá eina öfluga stofnun sem sjái
alfarið um greiningar. Síðan þurfi
að skapa úrræði sem séu alls ekki
fýrir hendi nú. Hann nefnir sem
dæmi að Félagsmálastofnun hafi
reynt að vista börn úti á landi.
Skárst gangi með ung börn en ekk-
ert einkaheimili vilji taka
við unglingi sem þekktur
er af ýmiss konar vand-
kvæðum og hafi flosnað
upp úr skóla. „í slíkum
tilvikum vantar algjör úr-
ræði,“ sagði hann.
Spurður hvort sálfræðingar grípi
sjálfkrafa inn í þegar barn verður
fyrir foreldra- eða systkinamissi
segir Víðir að alltaf sé reynt að
sinna slíkum málum. „Það stendur
hvergi á blaði að slíkt eigi að gera,
en viti skólafólk af því að barn
hafi orðið fyrir slíkum missi er Iang-
líklegast að það biðji okkur um
aðstoð.“
Hann segir að fleiri en kennarar
séu farnir að hafa vakandi augu
með börnum og veiti athygli ef þau
eru vansæl. í þessu sambandi nefn-
ir hann til dæmis starfsmenn heils-
dagsskóla. Hann bendir á að þetta
sé skref í rétta átt, en ítrekar hins
vegar að ekkert ákveðið form sé
fyrir því að séu aðstæður svona eða
hinsegin eigi að leita til sálfræðings.
- Á síðustu misserum hefur í
auknum mæli verið rætt um áfalla-
hjálp og sorgarviðbrögð. Telur þú
réttmætt að Fræðsluskrifstofan eða
sá sem tekur við af henni ráði í
sína þjónustu til dæmis prest sem
sinni eingöngu sálgæslu. Eða með
öðrum orðum „litlu málunum" sem
þið getið væntanlega ekki sinnt
vegna mannfæðar?
„Eg veit ekki hvort slíkt myndi
nýtast til fullnustu inni á Fræðslu-
skrifstofu. Hitt er rétt að málin sem
við náum að afgreiða takmarkast
við starfsmannaijölda og þau úr-
ræði sem hægt er að bjóða upp á.
Við reynum að koma inn í slík mál
sé beðið um það. Málið er í sjálfu
sér nægilega stórt ef það veldur
því að barninu líður illa og þá er
ástæða til að grípa inn í. Því fyrr
sem gripið inn i þeim mun minni
verður vandi bamsins."
Undir hvað fellur
þjónustan?
Víðir tekur fram að með flutn-
ingi grunnskólans til sveitarfélaga
sé þessi málaflokkur ekki í föstum
skorðum. Þegar spurst var fyrir um
hvers vegna starfsemin væri ekki
betur skilgreind var tekið fram að
það væri til þess að hefta ekki
sjálfsforræði sveitarfélaganna. í
lögum er einungis tekið fram að
fræðsluumdæmunum beri að halda
uppi þjónustu sem sé ekki lakari
en sú sem verið hafi. „Þetta getur
þýtt að sálfræðiþjónustan verði með
hver með sínu mótinu í mismunandi
sveitarfélögum. Hún getur til dæm-
is fallið undir heilsugæslu í einhveij-
um tilvikum eða félagsmálastofnun
í öðrum. Þá er hætt við að eðli starf-
seminnar breytist."
í flestum löndum er verið að
vinna að aukinni sálfræði-og ráð-
gjafaþjónustu. í lang-
flestum þeirra eru mjög
náin tengsl við skóla,
jafnvel frekar en við heil-
brigðis- eða félagskerfið.
Röksemdafærslan fyrir
því er sú börnin eyða
megnið af vökutíma sínum í skóla
fyrir utan þann tíma sem þau eyða
á heimilum. „Mér hefur fundist ein-
kenna framkvæmdaþáttinn hér á
landi að ákvarðanir eru teknar á
pólitískum grunni en faglegu sjón-
armiðin hafa ekki verið látin ráða,“
sagði Víðir.
Ekkert einka-
heimili vill
taka við ungl-
ingi í vanda
Nettengingu grunnskóla
verði lokið um áramót
REIKNAÐ er með að allir grunn-
skólar í Reykjavík verði komnir með
víðnetstengingu í árslok og hafi þar
með tengst hver öðrum, Interneti
og ýmsum stofnunum borgarinnar,
að sögn Þórðar Kristjánssonar
rekstrarstjóra Skólaskrifstofu
Reykjavíkur. Skólarnir eru nú þegar
tengdir Interneti með upphringi-
sambandi.
Þórður segir að skólarnir séu
misjafnlega á veg komnir bæði hvað
varðar tölvuvæðingu og tölvunotk-
•un. „Við þurfum að halda áfram
að byggja upp staðarnetin í skólun-
um sjálfum svo að þeir geti nýtt
sér víðnetstenginguna."
Samkvæmt ákvörðun sem tekin
var í Skólamálaráði 1992 var stefnt
að því að tölvuvæða alla grunn-
skóla í Reykjavík á tveimur árum.
Var unnið að verkefninu á tvennan
hátt. í fyrsta lagi með því að koma
upp tölvustofum með nettengingu
og 12-14 tölvum í þeim skólum sem
höfðu unglingadeildir. I öðru lagi
með því að tölvuvæða skóla sem
höfðu einungis yngri bekki, en þar
var miðað við átta nýjar tölvur í
hvern skóla. Einnig var gert ráð
fyrir að eldri tölvur yrðu áfram
nýttar til kennslu eftir því sem hent-
aði.
Allar skólastofur
verði nettengdar
í beinu framhaldi var hannað á
vegum Skólaskrifstofu Reykjavíkur
lokað víðnetskerfi, sem eingöngu
er notað á skólakerfin í Reykjavík.
Þórður segir að langtímamarkmið
sé að nettengja allar kennslustofur
í skólum borgarinnar.
„Tilgangurinn er margþættur. I
fyrsta lagi má nefna kennslufræði-
legt gildi tölvunnar á upplýsingaöld.
í öðru lagi auðveldar nettengingin
allt skólastarf til muna, því skólam-
ir geta haft innbyrðis samskipti sín
á milli í áður óþekktum mæli. í
þriðja lagi fá allir skólarnir aðgang
að upplýsingum um safn bóka í
öllum stofnunum Reykjavíkurborg-
ar. Að síðustu má nefna að kerfið
veitir stjórnendum skólanna beinan
aðgang að viðeigandi hluta bók-
haldskerfis borgarinnar auk þess
sem það auðveldar öll samskipti
skólanna og Skólaskrifstofu," sagði
Þórður og tók fram að gagnaflutn-
ingur milli stofnana kæmi meðal
annars í veg fyrir tvíverknað.
Aðspurður hvort gert sé ráð fyr-
ir að endurnýja gamlan tölvukost
skólanna sagði Þórður að fjármunir
hefðu fram til þessa aðallega farið
í að halda áfram að byggja upp
tölvukostinn. „Því miður er engin
ákveðin stefna í endurnýjunarmál-
um. Eins og fyrr sagði var gert
myndarlegt átak 1992 og 1993 í
tölvukaupum. Um síðustu áramót
var lögð áhersla á að kaupa nýjar
tölvur fyrir stjórnendur og ritara
skólanna, því þessir þættir hafa
orðið nokkuð útundan. Og í ár verð-
ur lögð áhersla á að ljúka við innri
uppbyggingu skólanna."
Vivaldí
herraskór
Veró: 2.495,-
Tegund: 22827
Stærðir: 40-46
Litur: Svartur
Ath.: Úr mjúku leðri m/gúmmisóla
Póstsendum samdægurs
Toppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg,
sími 552 1212