Morgunblaðið - 30.01.1996, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
INGUNN ELÍN BLÖNDAL,
sem andaðist í Phoenix, Arizona, 18. desember sl., verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 1. febrúar kl. 13.30.
Ólafur Kristjánsson, Elfsabet Auður Eyjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
HELGA PÁLSDÓTTIR,
Stórholti 30,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum aðfaranótt 27. janúar.
Jafrðarför verður auglýst síðar.
Kristfn Guðbjartsdóttir, Halldór Snorrason,
Magnús S. Halldórsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÓLAFUR GEIR SIGURJÓNSSON
frá Geirlandi,
Þykkvabæ 7,
lést á heimili sínu 27. janúar sl.
Áróra Tryggvadóttir,
Elliði N. Ólafsson, Auður M. Auðbergsdóttir,
Sigrún G. Ólafsdóttir,
Magnús Ólafsson, Laufey N. Stefánsdóttir,
Sunna Ólafsdóttir, Björn Ingi Rafnsson,
Kolbrún Ólafsdóttir, Marinó Guðmundsson,
Ásgeir N. Ólafsson, Kolbrún Karlsdóttir,
Sigurjón Ólafsson, Matthildur Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir minn, sonur okkar og bróðir,
JERRY ALLEN WOODS,
andaðist í Coconut Creek, Flórída, þann
26. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Ryan Woods,
John A. Woods,
Áslaug S. Woods,
EsterAllen, Christine J. Woods,
G. Susan Best, Michael S. Woods,
H. Irene Stephenson, Brian V. Woods,
Carol A. Smith, Joanne Firman.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
HILDIGUNNUR GUNNARSDÓTTIR
(Stella)
frá Helluvaði,
Jórufelli 10,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 1. febrúar kl. 13.30.
Gunnar Sigurjón Gunnarsson, Anna Jóhánna Jónsdóttir,
Kristinn Erlendur Gunnarsson,
Anna Friðrika Gunnarsdóttir, Jón Arnar Sigurjónsson,
Ásdfs Hildigunnur Gunnarsdóttir
og barnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
RAGNHILDUR ARONSDÓTTIR,
Neðstaleiti 1,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans
27. janúar.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
þriöjudaginn 6. febrúar kl. 13.30.
Haukur F. Leósson,
Inga Lára Hauksdóttir, Einar Ólafsson,
Hildur Hauksdóttir, Gylfi Sigfússon,
Aron Hauksson, Dagrún Mjöll Ágústsdóttir,
Leó Hauksson, Sif Jónsdóttir,
Haukur Már Hauksson
og barnabörn.
Brynhildur
Steingrímsdótt-
ir fæddist á Vé-
geirsstöðum í
Fnjóskadal 18. sept-
ember 1919. Hún
lést á Akureyri 20.
janúar síðastliðinn.
Brynhildur fluttist
með foreldrum sín-
um og systkinum til
Akureyrar árið
1921. Foreldrar
hennar voru Stein-
grímur Þorsteins-
son, bóndi og
kirkjuorganisti frá Lundi í
Fnjóskadal, og kona hans
Tómasína Tómasdóttir frá
Hróarsstöðum. Brynhildur var
næstyngst sex systkina. Þau
voru Þórhildur, f. 31. mars
1908, Tómas, f. 6. nóv. 1909,
Margrét, f. 27. mars 1912, d.
8. júlí 1995, Ingibjörg, f. 8.
okt. 1916, d. 29. sept. 1969, og
Ragnhildur, f. 11. júní 1927.
EKKI flögraði að neinum við jarð-
arför Möggu frænku okkar í sum-
ar að Binna systir hennar yrði
henni samferða svona fljótt. Engin
teikn voru á lofti um það þá, og
þótt sárt væri að sjá á eftir ann-
arri systurinni var þó bót í máli,
fannst manni, að nú gæti Binna
farið að njóta lífsins eins og hún
átti skilið, laus undan áhyggjum
undanfarinna ára. En meðan Binna
beitti lífsorku sinni í þágu annarra
hafði meinsemd búið um sig í lík-
ama hennar og þegar hún gat loks-
ins farið að sinna sjálfri sér var það
orðið of seint. Sjúkdómurinn heltók
hana og hrifsaði Binnu frá okkur
á hörmulega skömmum tíma.
Hún var sérlega blíð og nærgæt-
in kona, brosmild og alúðleg við
alla, aldrei sá maður hana skipta
skapi og rósemi hennar fór vel
saman við skapgerð Möggu, sem
var örari. Hún var fíngerð og lipur
kona, eins og allar systumar, og
ótrúlega ungleg. Jafnvel sjúkdóm-
urinn vann ekki á rótgróinni
æskufegurð sem einhvern. veginn
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
Brynhildur lauk
gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla
Akureyrar. Hún
stundaði ýmis versl-
unarstörf, þar á
meðal í bókaverslun
Þorsteins Thorlac-
ius, Markaðnum og
Hebu. Árið 1965
stofnsettu þær syst-
ur, Brynhildur og
Margrét, tískuversl-
unina Regínu sem
þær starfræktu til
ársins 1975. Síðustu
árin starfaði Brynhildur í
Fatadeild KEA.
Brynhildur starfaði mikið
með Leikfélagi Akureyrar á
sínum tíma. Ennfremur með
Kantötukórnum, Kirkjukór
Akureyrar og síðustu árin með
Kór aldraðra.
Útför Brynhildar fer fram
frá Akureyrarkirkju í dag, og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
eltist ekki af henni. Engill hékk
yfir sjúkrarúminu hennar þegar
við sáum hana seinast, og sjálf var
hún björt og fríð eins og engill.
Mannleg samskipti lágu vel fyrir
Binnu, það nýttist henni vel sem
verslunarstjóra tískuverslunarinnar
Regínu og seinna afgreiðsludömu
hjá KEA í Hafnarstræti. Prúð-
mennskan var svo ríkur þáttur í
daglegri hegðun hennar að manni
hætti til að gleyma að það voru líka
töggur í henni. Hún gerði það sem
þurfti, eins og sannaðist þegar hún
tók bflpróf komin yfír miðan aldur
og fór síðan allra sinna ferða um
Akureyri og nágrenni, og suður til
Reykjavíkur ef því var að skipta.
Greiðvikni bíleigandans nýja nutu
systur hennar Magga og Þórhildur
amma okkar.
Þegar tryggðatröllið Binna
kiknaði voru hjálparhendur aufús-
ar að styðja hana: Didda systir
hennar og Siggi hefðu víst svo
gjaman kosið að fá að bera hana
lengur á höndum sér.
Með söknuði kveðjum við góða
konu.
Jón Hallur og Hermann.
Móðursystir mín, Brynhildur
Steingrímsdóttir, lést að kvöldi 20.
janúar sl. Hún var þá á sjötugasta
og sjöunda aldursári. Andlát henn-
ar bar nokkuð brátt að. Hún hafði
hjúkrað móður minni síðustu
æviárin af mikilli ástúð og um-
hyggjusemi, án þess að vitað væri
um þann alvarlega sjúkdóm, sem
hún gekk með. Eg gerði því ráð
fýrir að hún ætti framundan all-
mörg léttari elliár. Nú fylgir hún
systur sinni aðeins rúmu hálfu ári
síðar.
Brynhildur stofnaði ekki eigið
heimili. Hún var hins vegar burðar-
ásinn í heimilislífí fjögurra kyn-
slóða. Hún hélt heimili fyrir for-
eldra sína og systur. Þar sem móð-
ir mín vann mestalla ævi sína við
eigin atvinnurekstur, sá Brynhild-
ur um uppeldi mitt ásamt móður
minni. Á heimilinu ríkti samheldni
og hlýja, sem Brynhildur átti ekki
síst þátt í að skapa. Hún tók einn-
ig mikinn þátt í uppeldi dætra
minna og þá einkum þegar þess
þurfti mest við. í augum þeirra
gegndi Brynhildur því í senn móð-
ur- og ömmuhlutverki. Nefndu
dætur mínar þær systurnar gjam-
an í sömu andrá og lögðu í það
ávarp sérstakan tón, til merkis um
að þar væri um að ræða einstakt
bandalag öryggis og ástúðar, sem
þær væru hluthafar í.
Brynhildur hlaut ekki mikla
menntun í skóla utan barnaskóla-
menntunar, enda tók hún ung við
heimilinu. Hún var hins vegar
menntuð kona af sjálfsdáðum, las
mikið og hafði góðan bókmennta-
smekk. Hún hafði yndi af tónlist
og leiklist, og gerði hvort tveggja
að syngja í kórum og leika á sviði.
Naut hún þess ekki síst á sviðinu
hve víðlesin hún var.
Þær systurnar ráku í rúman
áratug verslunina Regínu. Þótt
þær efnuðust ekki á þeim rekstri,
veitti hann þeim mikla ánægju og
lífsfyllingu. Þær nutu starfsins
báðar, höfðu ánægju af vönduðum
fatnaði og fatatísku og lögðu sig
fram um að veita viðskiptavinum
góða þjónustu. Eignuðust þær
stóran hóp traustra viðskiptavina
sem þær voru stoltar af og mátu
mikils.
Glaðværð, heiðríkja og trygg-
lyndi var aðalsmerki Brynhildar
Steingrímsdóttur. Eftir að sjúk-
dómurinn hafði bugað líkamann,
var gamansemin óbuguð. Þó var
það sem innst inni í þessari fín-
gerðu manneskju hvíldi skuggi frá
löngu liðnum atburðum sem drægi
stundum hulu yfír glaðværð henn-
ar og gerði hana hlédrægari og
dulari en lund hennar stóð til.
Þegar ljóst var að hverju stefndi,
fluttu þau Ragnhildur, systir Bryn-
hildar, og mágur, Sigurður Karls-
son, heim til hennar til að annast
hana uns yfir lyki. Hún naut einn-
ig aðhlynningar Heimahlynningar
salir og mjög
gód þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
IIÉTEL LtíFTLElDIR
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skfrnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Erfidrykkjur
Kiwanishúsið,
Engjateigi 11
s. 5884460
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
BRYNHILDUR
STEINGRÍMSDÓTTIR
Minnismerki úr steini
Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum
alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki.
Áralöng reynsla.
Bi S. HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 . SÍMI 557 6677
ÍEstfMiylMjj Safnaðarheimili Háteigskirkju 1 Sími; Af | 551 1399 ] JTj «r
ffaygiiitMflftit* - kjarni málsins!
#S
(S
C:
c
c
í
í
(
<
(
(
(
(
(
I