Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ M Javier Solana, framkvæmdastj óri NATO, í viðtali við Morgunblaðið Markús Örn Antonsson, framkvæmdastj ór i útvarps Endurmeta þarf hlutverk RÚY í ljósi samkeppni MARKÚS ÖRN Antonsson, fram- kvæmdastjóri útvarps, telur nauð- synlegt að endurmeta hlutverk Ríkisútvarpsins með tilliti til þeirr- ar samkeppni, sem til staðar sé. Löggjafinn þurfi að skilgreina verkefni RÚV upp á nýtt. Sú skil- greining þurfi að fela í sér að sam- einuð verði ýmis þau verkefni, sem nú séu annars vegar unnin hjá útvarpi og hinsvegarhjá sjónvarpi. Hann nefnir fréttastofurnar tvær í þessu samhengi og segist blása á þau viðhorf, sem sumir af starfsmönnum Ríkisútvarpsins haldi á lofti, um að útvarp og sjón- varp séu svo ólíkir miðlar að nán- ast útilokað sé að fréttamenn þeirra geti unnið fyrir þá báða. „Það eru nokkur athygliverð dæmi frá nágrannalöndunum um opin- berar stofnanir, sem eru að mörgu leyti í svipaðri stöðu og Ríkisút- varpið í vaxandi fjölmiðlasam- keppni, þær hafa þurft að taka á sínum málum og stilla saman strengi. Að mínu mati er ekkert því til fyrirstöðu að fréttamenn á kvöldvöktum t.d. útbúi fréttir bæði fyrir útvarp og sjónvarp og komi fram í báðum þessum miðlum.“ Viðhorfsbreyt- ingu þarf til Sömuleiðis er það skoðun Mark- úsar Arnar að ríkissjónvarpið eigi ekki að vetja ómældu fé til að elt- ast við að fylla upp í sína dagskrá með erlendu efni í þeirri viðleitni að standast keppinautunum snún- ing varðandi dagskrárlengd eftir að keppinautarnir eru farnir að senda út frá hádegi og- langt fram á nætur. Það ætti heldur að leggja höfuðáherslu á framleiðslu á góðu íslensku sjónvarpsefni. Því samfara gerði það ekkert til þó svo að dag- skráin yrði stytt eilítið frá því sem nú er, en samkeppnisaðilunum látið eftir að sýna þetta erlenda efni á ýmsum afbrigðilegum tímum. „Sjónvarpið á fyrst og fremst að vera með íslenskt efni sem ég er sannfærður um að íslenskir sjón- varpsáhorfendur vilja mjög gjarn- an sjá þessa stofnun vinna að. Til þess að þetta megi lukkast, þarf að verða viðhorfsbreyting í stofn- uninni og brjóta þarf niður margs- konar múra.“ Sjónvarpsrekstur látin falla að húsnæðinu Markús Örn segir að frá sínum bæjardyrum séð, bæri tvímæla- laust að stefna að flutningi sjón- varpsins frá Laugavegi í Efstaleit- ið. Aukin aðgreining útvarps og sjónvarps, eins og drög að nýju ENN er ólokið 1. umræðu á Al- þingi um þrjú lagafrumvörp, sem öll miða að rýmkun reglna um eríenda fjárfestingu í sjávarútvegi. Mælt var fyrir frumvörpunum á mánudag en ekki tókst að ljúka umræðunni þá og átti að taka upp þráðinn að nýju í gær. Þá óskaði Steingrímur J. Sigfússon þing- maður Alþýðubandalags, og fleiri stjórnarandstöðuþingmenn, eftir því að oddvitar ríkisstjórnarflokk- anna yrðu viðstaddir umræðuna og skýrðu hvaða stefnu ríkis- stjórnin hefði í málinu, í ljósi þess að eitt frumvarpanna þriggja er lagt fram af fjórum sjálfstæðis- þingmönnum og gengur þvert á þá stefnu, sem mörkuð er í stjórn- arfrumvarpi um málið. útvarpslagafrumvarpi hafi gert ráð fyrir, sé algjör tímaskekkja. Aftur á móti þurfi að endurskoða hús- næðisþörfina upp á nýtt í ljósi fyr- irsjáanlegra þrengsla í Efstaleit- inu. Hann telur viðbyggingu við Útvarpshúsið, eins og rætt hafi verið um á sumum stigum máls- ins, fjarstæðu. Draga þurfi fremur úr umfangi sjónvarpsrekstursins þannig að hann falli að hús- næðinu, sem stendur uppsteypt í Efstaleitinu. í því sambandi finnst honum fyllilega koma til greina að leggja niður smíðaverkstæði fyrir leikmyndir og saumastofu og kaupa þá þjónustu á verkstæðum úti í bæ eftir atvikum hverju sinni. Eftir að hafa kannað málið var ákveðið að taka málin út af dag- skrá í bili. Ólafur G. Einarsson forseti Alþingis sagðist reikna með að málin yrðu tekin á dagskrá í dag og gerði hann ráð fyrir því að Davíð Oddsson forsætisráð- herra gæti þá verið viðstaddur umræðuna. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra var hins vegar í útlöndum í gær. í stjórnarfrumvarpinu er gert ráð fyrir að einungis verði heimiluð takmörkuð óbein erlend fjárfest- ing í sjávarútvegsfyrirtækjun. í frumvarpi sjálfstæðisþingmann- anna er gert ráð fyrir að heimila allt að 49% beina erlenda fjárfest- ingu í sjávarútvegsfyrirtækjum. Frumvörp um erlenda fjárfestingu Fyrstu umræðu enn ekki lokið Rithöfundur og forstöðumaður AF Barst af tilviljun til Islands Colette Fayard Allianee Francaise hefur starfað hér frá 1911. Utanrík- isráðuneytið franska ræð- ur því forstöðumann og greiðir laun hans. Með samningum við íslensk stjómvöld fyigir 6 klst. kennsluskylda við HÍ. Rit- höfundurinn Colette Fay- ard var ráðin forstöðumað- ur haustið 1994 og verður væntanlega í þeirri stöðu næstu 5 árin. En hvers- vegna lenti franskur rit- höfundur og leikhúsmann- eskja á íslandi? „Af tilviljun," svarar hún. „Ég ætlaði í frí til Páskaeyjar fyrir nokkrum áram. Á síðustu stundu brást það. Vinur minn sagði þá: Því ferðu ekki til íslands? Það er fallegt land. Það gerði ég. Kom í vikuferð og var svo heppin að fylgdarmaðurinn var sögukenn- ari, sem fræddi okkur mikið um sögu íslands. Mér fannst saga íslands enn stórkostlegri en landslagið. Ég var allt í einu gripin hrifningu á íslandi. Þegar ég kom til baka til Parísar hugð- ist ég að læra íslensku og byij- aði í Sorbonne. Ég hafði skrifað bréf til franska utanríkisráðu- neytisins og spurt hvort ekki væri eitthvert bókmenntastarf að fá á íslandi. Og einn góðan veðurdag fékk ég bréf. Þeir vildu fá mig til íslands sem forstöðu- mann Alliance Francaise. Fjórir höfðu sótt um stöðuna. Ekki veit ég af hverju þeir völdu mig, en geri ráð fyrir að ástæðan sé að ég er rithöfundur og var byijuð að læra íslensku." - Nú var skáldsaga þín „Par tous les temps“ að koma út í vasabókarbroti í haust. Eftir titl- inum mætti ætla að það sé vís- indaskáldsaga með tímaflakki? „Þessi skáldsaga kom út 1990 og nú í vasabókarbroti. Heitið er úr setningu eftir Arthur Rim- baud og getur táknað „á öllum tímum" eða „í öllum veðrum". Þetta er skáldsaga sem hallar út í vísindaskáldsögu. Fyrir mér er það hið sama. Það er saga persóna sem fara gegnum tím- ann.“ — Hlaust þú ekki vísinda- skáldsöguverðlaunin 1990 fyrir „Les chasseurs au bord de la nuit?“ „Þetta eru bókmenntaverð- launin sem nú heita Grand Prix du Imaginaire. Hver saga mín er um fólk í raunveruleikanum, sem ekki skilur allt sem gerist. Það er meira á ferð í veröldinni en augað sér. Þess vegna falla mér svo vel íslensku söguraar sem gefa meira skyn en við getum skilið. Það sem gerir bókmenntir svo áhugaverðar í mínum huga er að þar er maður að kanna eitthvað kynlegt." - Nú hafa sum leikrit þín verið sýnd á 'góðum stöðum og þú fengið Gilson verðlaunin fyrir eitt þeirra. Hafa þau verið þýdd á önnur mál? „Eitt þeirra var sýnt í mánuð í Comedie de Saint-Etienne, sem er hluti af þjóðleikhúsi Frakk- lands. Og annað var leiklesið í Petit Odeon í París. Útvarpsleik- rit hafa verið flutt á menningar- rásinni France Culture og í Rad- io Television Suisse Romande. Það var útvarpsleikrit sem hlaut ►Colette Fayard er franskur rithöfundur, hefur skrifað bæði um og fyrir leikhús svo Og skáldsögur. Hún hlaut bók- menntaverðlaunin Grand prix - de la Scienee-fiction francaise fyrir skáldsögu 1990. Colette er fædd í París og gekk þar í skóla, var m.a. í Ecole Nor- male Superieure. Sérgrein hennar eru klassísk mál, latína, gríska og franska. Hún starf- aði síðan við leikhús og kvik- myndir sem handritshöfundur og skrifaði bækúr uin leikhús. Haustið 1994 kom hún til ís- lands sem forstöðumaður AII- iance Francaise. í kvöld, mið- vikudagskvöld, flytur hún þar fyrirlestur um Páskaey. Prix Gilson, sem eru alþjóðleg verðlaun fyrir útvarpsleikrit. Og leikrit eftir mig hafa verið flutt í kanadíska útvarpinu. Nei, ekk- ert þýtt á íslensku, bara á norsku, því eitt var flutt þar í útvarpinu." - Er Colette Fayard að skrifa hér á íslandi? „Hér hefi ég of mikið að gera. Ég hefi aðeins skrifað smásögur og stutta texta. Ég skrifa í tíma- rit um leiklist, Theatre Science Imagination, og er farin að skrifa um Island í þeim. Sjáðu, hér er grein um Tjömina í Reykjavík og lagt út af texta eftir Albert Einstein." - Ogþama leiða hugleiðingar um brúðuleikhús þig til hins stór- kostlega leiksviðs á Þingvöllum. Og nú ætlarðu í kvöld að halda fyrirlestur hjá Alliance Francaise um Páskaey. Svo þú hefur þá komst þangað um síðir? „Já ég fór sl. sumar til Páska- eyjar í fylgd með vini mínum þaðan, sem er fomleifafræðingur og starfar þar. Það var stórkostleg ferð en svolítið tregablandin, því eyjaskeggjar áttu sér fram á 17. öld mikla menningu, sem Evrópumenn eyðilögðu svo að nú eiga þeir enga sögu og ekk- ert tungumál, andstætt við ís- lendinga. Enginn skilur lengur gömlu útskomu textana. Ég ætla að sýna myndir þaðan, af frægu styttunum auðvitað, en ekki síð- ur af fólkinu. Ég tala á frönsku, en Torfi Túliníus þýðir jafnóðum á íslensku. Síðan ég kom hingað hefi ég alltaf haft þýðanda á samkomum Alliance, svo að áhugafólk um F’rakkland, sem ekki er sterkt í málinu, geti líka notið efnisins." Höfundur er að kanna eitt- hvað kynlegt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.