Morgunblaðið - 14.02.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Benedikt Davíðsson
forseti Alþýðusambands Islands
Farið þvert á ábend-
ingar nefndar aðila
vinnumarkaðarins
BENEDIKT Davíðsson, forseti
Alþýðusambands íslands segir að
í þeim drögum að breytingum á
vinnulöggjöfinni sem nú er unnið
að í félagsmálaráðuneytinu sé að
sumu leyti farið þvert á ábending-
ar nefndar aðila vinnumarkaðarins
sem vinnur að tillögum sem miða
að því að draga úr átökum á vinnu-
markaði. „Að öðru leyti eru þama
mörg atriði, og kannski þau þýð-
ingarmestu, sem þarf að eiga sér
stað mikið meiri umræða innan
okkar hreyfingar áður en við get-
um tekið afstöðu tii þeirra þó þetta
sé komið fram sem hugmyndir
inni í nefndinni," sagði Benedikt
í samtali við Morgunblaðið.
Af hálfu verkaiýðshreyfingar-
innar eiga þeir Benedkikt Davíðs-
son og Ari Skúlason sæti í nefnd-
inni fyrir ASÍ, en Ari tók við af
Bryndísi Hlöðversdóttur þegar hún
tók sæti á Alþingi, og Ogmundur
Jónasson situr í nefndinni fyrir
BSRB. Benedikt sagði að nefndin
muni starfa áfram en næsti fundur
hennar hefur verið boðaður í dag.
Hann sagði að á fundi nefndarinn-
ar í fyrradag hafí fulltrúar ASI
gert grein fyrir ályktun formanna-
fundar landssambanda innan ASÍ
sem alfarið hafa hafnað þeim
drögum að breytingum á vinnu-
löggjöfínni sem eru til vinnslu í
félagsmálaráðuneytinu.
Benedikt Davíðsson segir að
drögin hefðu verið sett saman
þrátt fyrir ábendingar nefndarinn-
ar í áfangaskýrslu sem gefín vár
út í lok nóvember. Þar er áréttað
að hugmyndir í áfangaskýrslunni
þurfi að ræða frekar áður en þær
verði útfærðar nánar, enda þurfi
víðtæk umræða að eiga sér stað
um þetta efni. Auk þess hafi ýmis
atriði sem tengist hugmyndunum
ekki verið rædd til hlítar.
Ekki rétt tímasetning
Benedikt sagðist ekki telja það
rétta tímasetningu að búa til frum-
varp að lögum um breytingar á
vinnulöggjöfinni áður en nefnd
aðila vinnumarkaðarins hefði lokið
störfum.
„Ég held að svo sé ekki, en við
höfum allan tíman verið með þá
ábendingu kannski fyrst og fremst
að eðlilegast væri að þetta gerðist
með sama hætti og verið er að
leggja til að samskiptin verði
vegna tilskipananna frá Evrópska
efnahagssvæðinu, þ.e. að fyrst
verði leitað samkomulagsleiða
milli samningsaðilanna á vinnu-
markaðnum áður en farið sé að
leita lögsetningarleiða, og við
bendum á það í allri þessari um-
§öllun,“ sagði Benedikt.
OROBLU
KYNNING
AFSLÁTTUR
af öllum OROBLU sokkabuxum
fimmtudaginn, 15. febrúar
kl. 13.00-18.00.
■ BONJOUR 50
Nýjar frábærar lycra stuðnings/
nuddsokkabuxur - 50 den.
Venjulegt verð 467 kr. - kynningarverð 374 kr.
Ath. Ný sending af Shock UP sokkabuxum
IÐUNNAR APOTEK
Domus Medica - Sími 563 1020
Fóðurbíll
valt
BÍLSTJÓRI fóðurbíls slapp án
teljandi meiðsla þegar billinn
valt rétt fyrir hádegi í gær. Bíln-
um var ekið niður Artúnstrekku
og beygt til hægri inn á að-
rennslisbraut að Sæbraut. í
beygjunni missti ökumaður vald
á bílnum og hann valt. Ökumað-
urinn var fluttur með sjúkrabíl
á slysadeild en er ekki talinn
mikið meiddur.
Morgunblaðið/Sverrir
Sókn og sjókraliðar
mótmæla niðurskurði
hjá sjúkrahúsum
Attatus
binding-Janvnating
l/ Plasthúðun
- innbinding
✓ Allur vélbúnaður
- og efni
✓ Úrvals vara
- úrvals verð
l/l
J. flSTVfllDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavík, sími 552 3580
STJÓRN Starfsmannafélagsins
Sóknar hefur mótmælt harðlega
boðuðum niðurskurði í sjúkrahús-
um í Reykjavík og Framkvæmda-
stjórn Sjúkraliðafélags íslands hef-
ur einnig fjallaði á fundi um
ákvarðanir ríkisstjórnar og Alþing-
is um niðurskurð á fjárveitingum
til heilbrigðisþjónustu landsmanan
og mótmælt þeim harðlega
í fréttatilkynningu Sóknar er
því sérstaklega mótmælt að boðað-
ur niðurskurður skuli bitna mest á
þeim sem minnst mega sín, það
er öldruðum, fötluðum og geðsjúk-
um.
Fundurinn skorar á ríkisvaldið
að hætta við boðaðan niðurskurð
nú enda hefur reynsla af þeirri
aðferðafræði að beita flötum niður-
skurði reynst bæði óréttlát og
ómarkviss. Fundirinn beinir því
þeim tilmælum til ríkisvaldsins að
fram fari allsheijar úttekt á öllu
heilbrigðiskerfinu í landinu sem
Hjartans þakkir til ykkar, sem glöddu mig
meÖ gjöfum, skeytum og blómum á 100 ára
afmœli mínu 29. janúar síÖastliðinn.
Blessun GuÖs fylgi ykkur öllum.
Úlfar Karlsson.
Rauðalækur
Falleg 5 herb. íbúð á 3. hæð í fjórbýli 122 fm. íbúðin skiptist í 2
Irúmgóðar stofur með parketi, 3 svefnherb., eldhús með fallegri
Benson-innr., sérþvottahús og flísa lagt bað. 26 fm suðursvalir.
Fallegt útsýni. Húsið er nýtekið í gegn að utan. Verð 8,9 millj.
LSéreign - fasteignasala,
Skólavörðustíg 38A, sími 552 9077.
I
leiði til heilsteyptrar stefnu í heil-
brigðismálum og tæki til nokkurra
ára í senn í stað þess rótleysis sem
fylgir ómarkvissum niðurskurði.
Sú aðferð fjármálayfirvalda að
breyta árlega þeim hluta fjárlaga-
frumvarps er lýtur að heilbrigðis-
kerfinu hlýtur að útiloka alla raun-
hæfa stefnumörkun í jafn viðam-
iklum málaflokki og heilbrigðis-
kerfið er.
í fréttailkynningu frá Sjúkral-
iðafélagi Islands segir:
„Framkvæmdastjórn félagsins
mótmselir harðlega marg endur-
teknum niðurskurði á fjárveiting-
um til heilbrigðisþjónustunnar án
þess að fyrir liggi mótuð heildar-
stefna stjórnvalda varðandi bætta
eða breytta þjónustu við lands-
menn.
Krafa um aðstoð og jafnvel
áfallahjálp fyrir starfsmenn
sjúkrahúsanna segir allt um afleið-
ingar af markmiðslausum ogtilvilj-
unarkenndum kröfum um niður-
skurð starfseminnar. Mál er að
linni og hætt verði að nota Iaun-
þega aftur og aftur í þráskak
stjórnenda og stjórnrnálamanna til
að knýja hei'lbrigðisráðuneytið til
uppgjafar í markmiðs- og stefnu-
lausri aðför að heilbrigðisþjónustu
landsmanna.
A sama tíma og almenn launa-
fólk er notað sem fórnarpeð í vald-
beitingu stjórnenda sjúkrahúsanna
gegn fjarveitingavaldinu fjölgar
yfirmönnum eins og arfa á haug
og lagt er í gegndarlausan kostnað
við breytingar á húsnæði sjúkra-
húsanna. Þar gildir eitt í dag og
annað á morgun um hvað sé nauð-
syn og hvað ekki. Eftir stendur
stöðug fjölgun á silkihúfum, sem
hver um sig þarfnast síns snaga,
til að sinna sínum gæluverkefnum."
CIS
C I.S 10 b ¥ 8 I t M 8
■ CISCO er mest seldi netbúnaður
í heiminum í dag.
1 CISCO fyrir Samnetiö / ISDN,
Internetið og allar nettengingar.
Hátækni til framfara
Tæknival
Skeifunnt 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664