Morgunblaðið - 14.02.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 15
FRETTIR: EVROPA
Schengen í upp-
námi vegna deilu
Belgíu og Spánar
Madríd. Reuter.
SPÆNSKA ríkisstjórnin hefur far-
ið fram á neyðarfund í Schengen-
ráðinu 21. febrúar næstkomandi
til að ræða „baráttuna gegn
hryðjuverkum“ að því er segir í
yfirlýsingu frá spænska Evrópu-
málaráðherranum.
Tilefni fundarins er deila Spánar
við Belgíu, sem hófst í síðustu viku
með því að Belgar létu laus úr
haldi hjón, sem grunuð eru um
aðild að sprengjuárás Basknesku
föðurlands- og frelsissamtakanna
(Euskadi ta Askatasuna, ETA).
Lögreglumaður féll í árásinni og
annar særðist alvarlega. Belgískur
dómstóll vildi hins vegar ekki verða
við kröfum Spánar um að fólkið
yrði framselt til Spánar og úr-
skurðaði að það skyldi látið laust.
Spánveijar brugðust við með því
að lýsa yfir að þeir myndu ekki
virða tvær greinar Schengen-sátt-
málans, um framsal afbrotamanna
og samstarf dómstóla í aðildarríkj-
unum. Jafnframt ákváðu spænsk
stjórnvöld að bíða með framsal
tveggja grunaðra afbrotamanna,
sem Belgar hafa beðið um að yrðu
sendir til Belgíu.
Ottazt er að deila ríkjanna geti
komið Schengen-samkomulaginu
um afnám vegabréfaskoðunar á
landamærum aðildarríkja ESB í
enn meira uppnám en orðið er.
Frakkar hafa neitað að fylgja öll-
um reglum samkomulagsins og
hafa viðhaldið eftirliti á landamær-
um vegna ótta við hryðjuverka-
menn.
Wulf-Mathies um Norður-írland
Fjárstreymi frá
ESB haldi áfram
Brussel. Reuter.
MONIKA Wulf-Mathies, sem fer
með byggðamál og svæðaþróun í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, segir að afar mikilvægt
sé að staðið verði við áætlun sam-
bandsins um stuðning við friðar-
þróunina á Norður-írlandi og að
fjárstreymi frá sjóðum sambands-
ins haldi áfram.
Wulf-Mathies segist undrandi
og hneyksluð á sprengjuárás írska
lýðveldishersins í Docklands-hverf-
inu í London. Hún bendir hins veg-
ar á að góður árangur hafi nú
þegar náðst við að hrinda „friðar-
pakka“ þeim, sem framkvæmda-
stjórnin samþykkti á síðastá ári, í
framkvæmd á Norður-írlandi.
25 milijarðar í „friðarpakka"
Framkvæmdastjómin lagði þá
25 milljarða króna til þróunarverk-
efna, sem eiga að efla efnahagslíf-
ið og stuðla að friðsamlegri þróun
í héraðinu. Sérstök áherzla er lögð
á íjárfestingu og fjölgun starfa.
Mörg verkefnanna miða aukinheld-
ur að því að auka samvinnu og
tengsl á milli Norður-írlands og
írska lýðveldisins. Ríkisstjórnir ír-
lands og Bretlands hafa lofað að
bæta tæplega átta milljörðum
króna við aðstoð ESB.
„Viðbrögðin á Norður-írlandi og
í írsku landamærasýslunum sýna
að heimamenn vilja frið og sætt-
ir,“ segir Wulf-Mathies í yfirlýs-
ingu, sem gefin var út í Brussel.
„Nú þegar hefur góður árangur
náðst í þessum héruðum og mikil-
vægt er að halda fjárstreyminu
áfram til að stuðla að áframhaldi
þeirrar þróunar."
Talskona Wulf-Mathies, Heike
Gerstbrein, segir að engar breyt-
ingar verði gerðar á „friðarpakk-
anum“ þótt IRA hafi gripið til of-
beldisaðgerða á ný.
Páskaferð
til Benidorm
wk,39.930*
Heimsferðir kynna nú glæsileg ævintýri um páskana þar sem þú getur notið
þess að dvelja í yndislegu veðri á ströndinni í Cancun, á Kanarí eða
Benidorm. Við höfum sérvalið hótelin fyrir farþega okkar og bjóðum þér í
páskarispu í beinu flugi í sólina á frábæru verði, þar sem þú nýtur traustrar
þjónustu íslenskra fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Benidorm
Vinsælasti áfangastaður íslendinga á meginlandi Spánar. 25 hiti og val um frábæra gististaði
með fullri þjónustu og öllum aðbúnaði og að sjálfsögðu þjónustu reyndra fararstjóra Heimsferða
sem gjörþekkja staðinn.
Verð kr.
39.930*
Verð kr.
49.960
12 dagar/11 nætur.
Brottför 3. apríl.
Heimkoma 14. apríl.
Flug með nýjum Boeing 737þotum VIVA AIR flugfélagsins, sem er í eigu Iberia og er
eitt virtasta leiguflugfélag Spánar.
Vcrð p.mann m.v. hjón með 2 böm. Europa Center.
Vcrð m.v. 2 í íbúð. Europa Ccntcr. 3. apríl
Kanarí
Vinsælasta páskaferð Heimsferða sem hefur selst upp síðustu árin. Beint flug til Kanarí
með Boeing 757 3. apríl. Veðrið er hvergi betra um páskana, kominn góður hiti allan
sólarhringinn og fjöldi spennandi gistivalkosta í boði.
19 dagar/18 nætur.
Brottfor 3. apríl.
Heimkoma 21. apríl.
Verð kr.
59.832
Verð kr.
76.760
M.v. hjón með 2 böm. 2-14 ára. 3. aprfl, Sonncnland Club.
M.v. 2 í smáhýsi. Sonncnland Club.
Flug með nýjum Boeing 757þotumAIR EUROPA, stcersta leiguflugfélags Spánar með
23 Boeing þotur íþjónustu sinni.
Innifalið í verði:
Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn, skattar.
Forfallagjald er ekki innifalið, kr. 1.200. Austurstræti I 7, 2. hæð. Sími 562 4600.
Reuter
BERNARD Tapie situr undir
umræðum á Evrópuþinginu
um það hvort svipta eigi hann
þinghelgi.
Tapie heldur
þinghelgi
EVRÓPUÞINGIÐ hefur hafnað
beiðni fransks dómstóls um að
aflétta þinghelgi af franska
þingmanninum Bernard Tapie.
Dómurinn rannsakar nú meint
fjármálamisferli hjá íþróttafé-
laginu Marseilles, sem er í eigu
Tapies, og vill setja hann í far-
bann. Tapie situr einnig á
franska þinginu, sem hefur fjór-
um sinnum svipt hann þinghelgi
vegna rannsóknar á fjármálum
hans. Mikill meirihluti á Evrópu-
þinginu var hins vegar á móti
því að svipta Tapie helgi Evr-
ópuþingmanns.
Ekta leður á slitflötum og leðurlíki á grind.
Litir: Vínrautt - brúnt - grœnt - svart.
0
l
með innbyggðu rumi
Verðkr. 159.000
St.gr. kr. 143.000
U Ð U R L A N
B R A U
í M I
9511