Morgunblaðið - 14.02.1996, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.02.1996, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Enn inn sjósetningarbúnað gúmmíbj örgunarbáta GREIN Sigmars er í stórum dráttum um- fjöllun um grein sem undirritaður skrifaði í desemberhefti frétta- bréfs LÍÚ. í grein sinni telur Sigmar upp þá þætti sem LÍÚ hefur óskað eftir að verði uppfylltir áður en bún- aðurinn verði lögskyld- aður, en minnist ekkert á þær röksemdir sem með fylgja, heldur slít- ur úr samhengi efni það sem vitnað er til og leggur út af því að eigin geðþótta. Eins og önnur skrif Sigmars einkennist grein hans af aðdróttun- um í garð þeirra sem lejrfa sér að hafa aðra skoðun á þessu máli en hann, og að þeir kæri sig kollótta um líf og limi sjómanna. Af þessu tilefni leyfí ég mér að birta megininntak þess efnis sem Sigmar vitnar til, ásamt.þeim rök- semdum sem við eiga. Jafnframt mun gerð grein fyrir athyglisverðum niðurstöðum skyndiskoðunar sem Siglingamála- stofnun gerði í nóvember sl. á ástandi sjósetningarbúnaðarins í nokkrum fiskiskipum. Athyglivert er að Sigmar skuli í grein sinni minnast á björgunarbáta sem skipt var út í skipi sem var verið að flytja til landsins. Bátarn- ir, sem um borð voru eru eins og allir gúmmíbjörgunarbátar sem hér eru notaðir, viðurkenndir skv. SOL- AS-kröfum. En fátt er svo fullkom- ið að ekki megi bæta. í kjölfar ýtar- legra prófana sem Siglingamála- stofnun (Sr.) gerði á veðurþoli gúmmíbáta voru gerðar sérstakar kröfur um frágang á þaki og inn- gönguopum bátanna, en gagnstætt því sem er um framleiðanda sleppi- búnaðarins þá fóru erlendir fram- leiðendur gúmmíbjörgunarbátanna eftir þeim kröfum sem settar voru. Ef svo hefði ekki verið sætum við uppi með verri gúmmíbjörgunar- báta en ella, eins og með sleppibún- aðinn. í margnefndu bréfi LÍÚ til sam- gönguráðuneytisins er þess farið á leit að gildistöku ákvæðis um sjó- setningarbúnað verði frestað þar til eftirtöldum skilyrðum er fullnægt: 1. Að minnsta kosti tveggja til þriggja ára reynsla hefur fengist á búnað- inn við eðlilegar að- stæður og sýnt þyki að hann uppfylli þær væntingar sem til hans eru gerðar. Röksemdir: Prófanir, sem viður- kenning sjósetningar- búnaðarins grundvall- ast á, eru ekki í neinu samræmi við þær kröf- ur sem Iðntæknistofn- un (ITÍ), í samvinnu við Sr., gerði tillögu um varðandi prófanir til að meta virkni og öryggi búnaðarins. Þessar til- lögnr byggjast á: • Kröfum Alþjóðasiglingamála- stofnunarinnar (IMO), resolution A.689/17. • Umsögnum Nordtest og siglinga- málastofnana á hinum Norður- löndunum. • Alþjóðlegum stöðlum um álags-, titrings-, tæringar- og rafbúnað- arprófanir. • Tilraunum með þeim búnaði sem fyrir var. í nóvember 1989 lá fyrir endan- leg tillaga að prófunaraðferð, þar sem skilgreind eru 11 prófunaratr- iði sem sjósetningarbúnaðurinn skuli undirgangast og standast til að hljóta viðurkenningu. Niðurstöð- ur prófana skal skrá í sérstaka próf- unarskýrslu fyrir viðkomandi bún- að. í samræmi við IMO resolution A.689 gerir ITÍ jafnframt tillögu um að framleiðandi hafi viðurkennt gæðakerfi á framleiðslu sinni. Samkvæmt prófunarskýrslu fyrir Sigmundsbúnaðinn hefur hann und- irgengist þijár af þessum prófunum og enga staðist athugasemdalaust. Þá hefur framleiðandinn upplýst að hann hafi ekki það gæðakerfi sem gerð er tillaga um og að aðeins ein gerð búnaðarins, þ.e. fyrir 12 manna báta, hafi verið „viður- kennd“. Venjan er að krefjast próf- ana á öllum gerðum. 2. Búnaðurinn hlotið alþjóðlega viðurkenningu skv. SOLAS. Það er, að búnaðurinn, framleiðslu- og prófunaraðferðir ásamt skoðunar- leiðbeiningum uppfylltu kröfur IMO. Röksemdir: Alþjóðlega er viður- kenning skilyrt því að búnaður standist kröfur IMO. Þessum kröf- um er ekki fullnægt skv. prófunar- skýrslu fyrir Sigmundsbúnaðinn. Ekki verður séð hvaða ástæða er til að gerðar séu minni kröfur til sjósetningarbúnaðarins en annars örj'ggisbúnaðar sem lögskyldaður er í skip. 3. Endurskoðuð hafa verið stærðarmörk þeirra skipa sem bún- aðurinn verður lögboðinn í. Röksemdir: Það eru skiptar skoð- anir um hvort tilefni er til að lög- leiða sjálfvirkan sjósetningarbúnað í skip lengri en 45 m (u.þ.b. 500 brl.). Þetta er atriði sem telja verð- ur fullkomlega eðlilegt að fjallað verði um og það metið af þar til dómbærum aðilum. Og ber ekki svo að skilja að lagst sé gegn því að búnaðurinn verði skyldaður í skip lengri en 45 m ef skynsamleg rök mæla með því. Þess er vænst að frest- urínn verði nýttur til að bæta úr því sem betur má fara, segir Guðfinnur G. Johnsen, í þessarí grein um sjósetningarbúnað gúmmíbj örgunarbáta. 4. Lokið hefur verið endurskoð- un íslenskra sérákvæða, umfram ákvæði ESB tilskipunar um öryggi fiskiskipa. Röksemdir: Á vettvangi ESB er unnið að setningu tilskipunar um öryggi fiskiskipa. Tilskipunin grundvallast á alþjóðasamþykktinni um öryggi fiskiskipa (Torremolinos 1993) auk sérákvæða sem siglinga- málastofnanir Norðurlandanna hafa komið sér saman um að skuli gilda fyrir hafsvæðið norðan 60°. Starfshópur skipaður fulltrúum FFSÍ, VSFÍ, SVFÍ, SSÍ og LÍÚ undir formennsku fulltrúa Sr. vinn- ur að mati á því hvaða sérkröfur, sem gilda hérlendis nú og ekki fást teknar með í umræddri tilskipun, skuli gilda áfram fyrir íslensk skip. Ákvæði um sjósetningarbúnaðinn er eitt þeirra íslensku sérákvæða sem taka þurfti afstöðu til og má geta þess að full samstaða er um það í hópnum að þessu ákvæði skuli haldið inni. Athyglisverðar niðurstöður skyndiskoðunar Sr. á ástandi sleppibúnaðar „Tíu búnaðir af Olsen gerð voru skoðaðir. Fór tunnan í níu tilraun- um út fyrir síðu skipsins, sem var án neins halla. í einum gálganum var gormur brotinn í 4 stykki, en ekki sjáanlegt að það hefði áhrif á virkni búnaðarins, [enda prófað við bryggju, enginn halli á skipinu né búnaðurinn ísaður]. Tíunda búnað- inn var ekki hægt að prófa vegna ytri aðstæðna, en við skoðun hans kom í ljós að gormur var margbrot- inn“. Niðurstaða: fimmti hver búnaður í ófullnægjandi ástandi. „Níu búnaðir voru skoðaðir af gerð Þór Vestm. Átta þeirra skiluðu tunnu út fyrir síðu skips, í þrem þeirra var loftfla,ska illa farin af ryði og tæringu. I þeim níunda var loftflaska tóm þegar að var komið.“ Niðurstaða: þriðji hver búnaður í ófullnægjandi ástandi (þar af einn alveg óvirkur). Yfirlýsingar talsmanna Sig- mundsbúnaðarins um yfirburði hans fram yfir Olsen búnaðinn hafa því ekki átt við rök að styðjast, heldur hið gagnstæða, eins og skyndiskoðunin staðfestir. Það er ótrúlegt að eftir 14 ár skuli öryggi þessa búnaðar ekki vera meira. Eftir ofangreindar skyndiskoðanir telur Sr. tilefni til að bæta enn einu ákvæði við fyrirliggjandi kröfur. En það er: Að búnaðurinn sé ekki lengra frá síðu en 0,5 m, nema báturinn falii í rennu eða annan búnað, sem tryggi að hann komist út fyrir síðu skips með 60° halla. Þetta sýnir best hversu vantrúað- ir starfsmenn Sr. eru á að búnaður- inn virki sem skyldi. Sigmari er sem umdæmisstjóra Sr. kunnugt um þessar niðurstöður, en kýs af ein- hveijum ástæðum að greina ekki frá þeim. Og svo ég noti hans eigin orð: „Sjómenn geta svo metið um- hyggjuna sem þessir menn hafa fyrir lífi þeirra." LIÚ ítrekar þá skoðun sína að það telji að sjósetningarbúnaður sá sem viðurkenndur hefur verið og Guðfinnur G. Johnsen fyrirhugað er að lögskylda, uppfylli ekki þær kröfur um áreiðanleika sem gera beri til slíks öryggisbún- aðar. Hafa niðurstöður ofan- greindra skyndiskoðana, sem sýndu einungis 67 til 80% áreiðanleika, staðfest það. Það er óviðunandi að stjórnvöld viðurkenni og lögskyldi notkun á búnaði sem staðfest er að reikna megi með að þriðji til fimmti hver virki ekki sem skyldi, þegar til hans á að taka á neyðar- stund. Lokaorð Eins og að framan greinir, lá fullmótuð tillaga að prófunaraðferð fyrir í nóvember 1989. Og ekki má gleyma því að þessi tillaga var unn- in í náinni samvinnu Sr. og ITÍ að teknu tilliti til fyrirliggjandi alþjóð- legra krafna á þessu sviði. Nú hefði mátt ætla að ekki yrði beðið boð- anna að senda þá sleppibúnaði, sem í framleiðslu voru, til formlegrar prófunar. En hvað gerist? Það ger- ist ekki neitt næstu fimm árin. En þá fara að heyrast raddir um að loksins, eftir margra ára baráttu, hafí Sigmundsbúnaðurinn nú hlotið fullnaðarviðurkenningu Siglinga- málastofnunar. Og i hveiju var nú þessi margra ára barátta fólgin? Jú, fyrst og fremst í því að koma því til leiðar að búnaðurinn yrði viður- kenndur án þess að hann uppfyllti þær kröfur um prófanir og fram- leiðslueftirlit sem gerð hafði verið tillaga um. Þá vekur afstaða SSÍ og FFSÍ sérstaka athygli. En hvor tveggja þessi samtök taka undir þessa máls- meðferð. Og í stað þess að þrýsta á að sjálfvirki sjósetningarbúnaður- inn undirgangist og standist þær prófanir sem eftir mikla vinnu og ítarlega umijöllun var gerð tillaga um, þá mæla þessir aðilar með að búnaðurinn verði lögskyldaður nú þegar, þrátt fyrir að hann sé nán- ast óbreyttur frá því sem hann var þegar skyldunotkun var afnumin, vegna þess að vafi lék á um áreiðan- leika hans, eins og niðurstöður fyrr- greindra skyndiskoðana staðfesta. Útgerðarmenn hafa alltaf verið og eru því fylgjandi að öryggi sjó- manna og skipa sé sem mest og best, en gera þá kröfu að tryggt sé að öryggisbúnaður, sem menn geta átt líf sitt undir, virki þegar á reynir. Þeir vænta þess að frestur sá sem nú hefur verið veittur á gild- istöku ákvæðis um sjósetningar- búnað verði nýttur til að bæta úr því sem betur má fara og að áhuga- menn um öryggismál sjómanna beiti sér fyrir því, svo að óska megi sjómönnum til hamingju með búnað sem þeir geta treyst á. Höfundur er starfsmaður LÍÚ. Gísli hafður fyrir rangri sök GJALDKERI Sund- sambands íslands (SSÍ) vegur ómaklega að Gísla Halldórssyni, heiðursfor- seta íþróttasambands Islands og heiðursform- anni Olympíunefndar (01), í grein í Morgun- blaðinu 7. febrúar. I greininni er samn- ingagerð OI og Reykja- víkurborgar vegna Smá- þjóðaleikanna á íslandi 1997 gagnrýnd. Það geri ég ekki athugasemdir við og skil reyndar mæta vel gremju sundforyst- unnar yfir því að runninn er úr greipum sá möguleiki að hér rísi 50 metra innisundlaug fyrir Smáþjóðaleikana er mæti þörfum sundmanna til að geta eflt íþrótt sína til framtíðar. Marggefin fyrir- heit forystumanna íþróttamála hjá Reykjavíkurborg fram til 1994 um slíka laug hafa reynst innantóm. Hins vegar eru þessar línur ritaðar til að bera blak af Gísla Halldórssyni Sem hafður er fyrir rangri sök í greininni. Þar á ég við þau ummæli, að „þrátt fyrir þá staðreynd" að reglu- gerð um Smáþjóða- leika kveði á að sund- keppni leikanna skyldi fara fram í 50 metra alþjóðlegri keppnisiaug hafí Gísli Halldórsson unnið „að því af miklum krafti, án samráðs við Sundsamband íslands, að sund- keppni [Smáþjóðajleikanna mætti fara fram í Sundhöll Reykjavíkur". í fyrsta lagi hafa reglur um Smáþjóðaleikanna aldrei kveðið á um laugarstærð. Ágúst Ásgeirsson Sundmenn standa í þakkarskuld við Gísla Halldórsson, segir * A Agúst Asgeirsson, því hann vildi leggja þeim lið við að hér risi 50 metra innilaug. í öðru lagi hefur Gísli Halldórs- son aldrei lagt til að sundkeppni leikanna 1997 færi fram í Sundhöll- inni. Líklega er hér verið að afflytja upplýsingar af fundi leiðtoga ólympíunefnda aðildarríkja Smá- þjóðaleikanna, sem haldinn var í Ístanbúl í Tyrklandi haustið 1991 samhliða þingi Evrópusambands ólympíunefnda. Þann fund sat ég ásamt Gísla. Á fundinum gerði Gísli óformlega grein fyrir því að Óí hefði rætt um að sækjast eftir leik- unum 1997. I því sambandi gat hann um íþróttamannvirki sem í boði væru. Greindi hann frá því hvers kyns veðurfari mætti alla jafnan búast við á þeim tíma sem ætla mætti að leikarnir færu fram og spurði þá m.a. hvort Miðjarðar- hafsþjóðimar myndu vilja keppa í sundi utanhúss eða inni. Svarið var einfalt, þjóðirnar kysu frekar að keppa í sundi innanhúss ef hér væri ekki nema 5-10 stiga hiti og vætuveður. Svaraði Gísli því til, að við ættum einungis 50 metra útilaug en innilaugar væru 25 metra, brautir fáar og salarkynni þröng. Skipti það engu, óskin um innanhússkeppni var afdráttarlaus. Tókum við reyndar fram, að fyrir lægju yfirlýsingar forystumanns íþróttamála hjá Reykjavíkurborg þess efnis að 50 metra innilaug yrði orðin að veruleika í tæka tíð fyrir 1997 og vonuðum auðvitað að við það yrði staðið. Þessi umræða gladdi fulltrúa Li- echtenstein, sem sögðust stefna að leikahaldi 1999 og tóku fram að þar í landi væri ekki að finna lengri laugar en 25 metra og ekki til land undir 50 metra Iaugar! Á fyrsta fundi stjórnar Óí eftir heimkomuna lögðum við fram skýrslu um fundina í Istanbúl. En að sérstakri ósk þáverandi for- manns Sundsambands íslands á fundinum felldum við fúslega út úr kaflanum um smáþjóðafundinn, að þjóðimar myndu sætta sig við að keppa í 25 metra innilaug og vildu það fremur en keppa í 50 metra útilaug við lítinn lofthita. Rök formanns SSÍ vom þau, að sambandið vildi nota leikahaldið til þess að beita sér fyrir byggingu fullkominnar 50 metra keppnis- laugar innanhúss fyrir Ieikana. Því bað hann að leynt yrði farið með málið og greinarnar felldar út. Af alkunnri sanngirni og velvilja í garð íþróttanna og íþróttamanna þótti Gísla sjálfsagt að verða við því. Engu er betur að treysta en orðum Gísla Halldórssonar. Mér vitanlega hefur hann aldrei haft afstöðuna, sem fram kom á fundinum í Istanb- úl, á orði utan stjórnar Óí, en af starfi formanns lét hann fyrir tveimur árum. Þess vegna er full- yrðing greinarhöfundar röng og ef eitthvað er standa sundmenn í þakkarskuld við Gísla. Hann vildi leggja þeim lið við að hér risi 50 metra innilaug. Sú barátta var al- farið á hendi Sundsambandsins. Höfundur situr í stjórn Ólympíu■ nefndar íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.