Morgunblaðið - 14.02.1996, Síða 37

Morgunblaðið - 14.02.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 37 __________BREF TIL BLAÐSHMS i Opið bréf til vígslubiskups Frá Guðmundi Ágústssyni: Á SÍÐASTA sóknarnefndarfundi í I Langholtskirkju lá fyrir bréf frá Iyður þar sem þér m.a. óskið eftir því við sóknarnefnd að hún sam- I þykki ekki að boða til aukasafnað- arfundar til umræðu um þau deilu- mál sem verið hafa innan safnaðar- ins. Þau tilmæli yðar eru skiljanleg miðað við það sem á undan hefur gengið að hlífa söfnuðinum við því að fá upplýsingar og taka afstöðu til þeirra deilumála sem verið hafa innan safnaðarins. Hitt þykir mér j öllu verra og er tilefni til þess að j ég rita yður bréf þetta að þér skul- 'l ið sem einn af æðstu mönnum kirkj- I unnar ráðast á mjög svo ósmekkleg- an hátt og án nokkurs tilefnis að sóknarnefndinni með dylgjum og órökstuddum fullyrðingum. Frá upphafi þessara deilumála sem verið hafa innan sóknarinnar hefur sóknarnefnd valið þann kost að tjá sig sem allra minnst um ágreiningsefnin því það hefur verið J hennar vilji að málin verði leyst ■j innan kirkjunnar en ekki í fjölmiðl- . um. Óneitanlega hefur þessi þögn * verið óþægileg þegar menn eins og þér, herra vígslubiskup, og formað- ur Prestafélagsins komið fram með fullyrðingar eins og þær að deilan snúist einvörðungu um ósamkomu- lag prestsins og organistans og lausnin felist í því að sóknarnefndin segi organistanum upp störfum. Hefur sóknarnefndin látið fullyrð- I ingar af þessu tagi yfir sig ganga ;< í þeirri von að menn vitkist og sjón- i deildarhringur þeirra er halda slíku fram víkki með tímanum. Vitið þér jafnvel og ég að sú lausn sem þér hafið barist fyrir leysir engan vanda enda vandamálið stærra og flókn- ara en svo að ein uppsögn sé nægi- leg til lausnar. Að mínu viti er upp- sögn organistans betur til þess fall- in að magna upp óróann innan safn- , aðarins en róa hann niður þvi að * ágreiningur sóknarprests og organ- ( ista er frekar afleiðing þeirra deilu- | mála sem verið hafa innan safnað- arins en orsök þeirra. Um orsakir deilunnar ætla ég ekki að fjalla hér í smáatriðum enda bæði yður og mér þær vel kunnugar. Vil ég í því sambandi minna yður á sáttafund er við báðir sátum undir forystu prófasts, séra Jóns Dalbú Hró- bjartssonar, hinn 14. janúar 1994. , Voruð þér á þann fund komnir ' ásamt formanni Prestafélags ís- I lands, Geir Waage, að beiðni sókn- ( arprests honum til fulltingis vegna þess ágreinings sem þá var uppi á milli sóknarnefndar og sóknar- prests. Hafði sóknarnefnd þá leitað til prófasts vegna deilu sóknar- nefndar og sóknarprests um safn- aðarstarfið og uppbyggingu þess. í stað þess að miðla málum hélduð þér uppi kröftugum málflutningi fyrir sóknarprestinn sem og sá sem var með yður í för. Það var ekki að áeggjan yðar að sátt náðist í það skipti heldur vegna lipurðar og góðs vilja prófasts sem lagði sig fram um að leysa ágreininginn. Því miður entist sú sáttargjörð sem þá var gerð ekki lengi en til uppþota kom þó ekki því að sóknarprestur fékk námsleyfi og friður hélst um hríð. Með tilvitnuðu bréfi yðar sem þér augljóslega ritið að beiðni sóknar- prests eruð þér við sama heygarðs- hornið. í stað þess að bera klæði á vopnin eins og ætlast má til af manni í yðar stöðu ráðist þér með diguryrðum að sóknamefndinni á mjög svo ósmekklegan hátt. Get ég sem sóknarnefndarmaður ekki setið undir þessum ávirðingum yðar og frábið mér sendingar af þessu tagi i framtíðinni. Eftir þessa bréfa- sendingu er erfitt að taka yður al- varlega og leyfi ég mér að draga í efa vilja yðar til að finna lausn á deilu þessari. Það er rangt sem fram kemur í bréfi yðar að sóknarnefnd hafi gagnvart biskupi kastað rýrð á embættisheiður yðar. Slíkt hefur sóknarnefnd ekki gert. Því er hins vegar ekki að leyna að einstaka sóknarnefndarmönnum hefur fundist að yður sem vígslubiskup hefði í stað þess að taka málstað sóknarprests í einu og öllu borið skylda tl að leita leiða til að jafna þann ágreining sem verið hefur í sókninni. Kunna einhveijir þessara aðila að hafa tjáð biskupi þessa skoðun sína. Það er hins vegar rangt að sóknarnefnd hafi ályktað sérstaklega um yður eða embætti yðar. Um heilindi yðar til að ná sáttum verðið þér að eiga við sam- visku yðar en ekki hef ég orðið var við að þér hafið stuðlað að því beint að sættir mættu takast í sókninni. I bréfi yðar gefið þér sóknar- nefndinni heilræði, segið þér „ ... ætla ég enn að ráða ykkur heilt án allrar beiskju. Ráð mitt er í þessu fólgið að þið reynið ekki að grípa fram fyrir hendur þeirra, sem nú fjalla af aIvöru um málið, með því að halda slíkan fund, né með öðru móti.“ Ber að skilja orð yðar þann- ig að þau störf sem sóknarnefnd hefur unnið séu hálfkák og vitleysa og við sem í sóknarnefndina höfum verið kosin af söfnuðinum höfum ekki hundsvit á því hvað okkur ber að gera eða eigið þér við með orða- vali yðar vinsamleg tilmæli til sókn- arnefndar að hún haldi að sér hönd- um meðan biskup fjallar um málið? Hefði ég kosið að þér hefðuð átt við hið síðarnefnda en því miður verður ekki lesið annað úr bréfi yðar en þér teljið að í sóknarnefnd hafi valist hálfgerðir kjánar sem ekkert vit hafa á lögum eða kirkju- legi starfi. Kemur þetta viðhorf yðar enn betur í ljós síðar í bréfi yðar þegar þér segið: „Gerið ykkur nú ljóst, að þetta mál snýst ekki lengur um hver betur standi sig í köpuryrðum og persónulegum árás- um. Þetta mál varðar orðið alla kirkjuna, og er það ekki síst vegna þess hvernig sóknarnefndin hefur að því komið.“ í tilefni þessara síð- ustu orða í bréfi yðar leyfi ég mér að kreíjast þess af yður að þér standið fyrir máli yðar og rökstyðj- ið á hvern hátt sóknarnefndin hafi klúðrað málinu. Ég veit ekki betur en af hálfu sóknarnefndar hafi í einu og öllu verið farið að lögum og ekkert það aðhafst sem mátti verða til þess að magna upp deil- una. Hið sama verður því miður ekki sagt um marga aðra, þ. á m. yður og formann Prestafélagsins sem virðist ætla að nota þetta mál sem einhvers konar prófmál innan kirkjunnar. Efast ég því stórlega um að þér hafið nokkurn áhuga á því að mál þetta leysist með þeim hætti að friður komist á innan Langholtssafnaðar. Hvað eigið þér annars við með eftirfarandi setningu í bréfi yðar: „Nú er tvísýnt um málalok að því leyti, að erfitt er að átta sig á hvort það muni draga á eftir sér mála- færsludræsu eður ei.“ Er þetta hót- un gagnvart sóknarnefnd eða jafn- vel biskupi sem hyggst kveða upp úrskurð í deilumálum innan safnað- arins á næstu dögum? Hvað meinið þér annars með því að málið sé tvísýnt og fyrir hvern? Að svo komnu ætla ég ekki að óska frekari skýringa við bréf yðar en það skal upplýst að ég var þeirr- ar skoðunar eftir að hafa lesið bréf yðar á umræddum sóknarnefndar- fundi að sóknarnefnd ætti þá þegar að taka þá ákvörðun að boða til aukasafnaðarfundar. Hins vegar féll ég frá tillögu minni þegar mér varð hugsað til bréfs biskups þar sem hann fór þess vinsamlegast á leit að fundurinn yrði ekki haldinn fyrr en hann hefði kveðið upp sinn úrskurð. Að síðustu, herra vígslubiskup, leikur mér forvitni á að vita hvort sóknarprestar eru skipaðir af ráð- herra til þjónustu við guð eða til þjónustu við söfnuðina. GUÐMUNDUR ÁGÚSTSSON, lögmaður og í sóknar- nefnd Langholtssafnaðar. Kveðjur sunddeildar þakkaðar j Frá Bjarna Kjartanssyni: FYRIR hönd okkar í Sundhöllinni vil ég senda Arnari Birgissyni heils- hugar þakkir fyrir góð orð í garð vinnustaðar okkar, í grein hans í Morgunblaðinu þann 7.2. ’96. Þar lýsir hann Sundhöllinni sem ófærri, afdankaðri byggingu, þar sem aldeilis væri ekki hægt að ' keppa sér til nokkurs gagns, hvað I þá gamans. Þetta er afar gott að | vita fyrir næsta tímabil. Ég æski þess að hugur fylgi, eins og best er með íþróttamenn, sönnu hugsjón- inni um ræktun lýðs og lands. Trauðla vilja KR-ingar halda mót sin lengur hjá okkur, í laug byggðri fyrir 1937, heldur leggjast þeir þennan spotta til Vestmannaeyja að fornum sið vaskra kappa. Sund- , ráð Reykjavíkur þarf því síður að gera ráð fyrir æfingaplássi í höll- * inni fyrir KR-inga — því meir fyrir | hina. Ef hinn geðprúði og veltitlaði Arnar túlkar í grein sinni skoðanir stjórnar Sundsambands íslands er séð, að við getum snúið okkur nær eingöngu að þjónustu við almenna sundiðkendur í höllinni um helgar. Þetta hefur í för með sér klára byltingu í rekstri Sundhallarinnar, því að þótt að Arnar Rafn, orðvar og prúður, jafnvel settlegur í allri framsetningu málsins, telji mann- virkið hró og hjall ónothæfan með öllu, þá hefur almenningur komist á þá skoðun að blessunin hún Sund- höll sé afar þægileg til líkamsrækt- ar og styrkingar. Menn eru þar í 28 stiga hita á bökkunum, ungling- arnir leika sér á stökkbrettunum, börnin eru að leik í grunnu laug- inni, sem er um 33ja stiga heit búin leiktækjum, þannig að aðstæð- ur eru allar hinar ákjósanlegustu fyrir fjölskyldufólk til heilsubótar, — í öllum veðrum. Ekki þekki ég nægjanlega til al- þjóðlegra staðla um sundkeppni til að efast um ívitnaðar reglur en hitt þekki ég vel. Sundmenn hafa hing- að til kunnað að meta aðstöðuna hjá okkur, sérstaklega þegar kalt er úti eða rok. Það er því miður svo, að oft á við um kappsama menn, eða freka, orðatiltækið „gleymt er þá gleypt er“. Borgaryfirvöld hafa, á hverjum tíma, lagt sig í verulegar fjárskuld- bindingar til að létta íþróttamönn- um starfann, þvi er ómaklegt að senda helstu velgjörðamönnum sín- um tóninn. Affarasælla væri fyrir lítillátan formann sunddeildar KR og gjaldkera SSÍ, að leggjast á sveifina með íþróttafulltrúa Reykja- víkur og forstöðumönnum sund- lauga í Reykjavík til þess að fá fram breytingar á mannvirkjunum til hagsbóta fyrir sundmenn, jafnt keppendur sem aðra. Rætnum dylgjum- í garð for- . manna Ólympíunefndar, fyrrver- andi og núverandi, læt ég ósvarað enda aldeilis ekki verðar orða. Kærar óskir um gott gengi i heilnæmri íþrótt færi ég öllum KR-ingum. Megi menn þar á bæ róast vel og ná eðlilegum þroska þá tímar líða. BJARNl KJARTANSSON, forstöðumaður Sundhallar Reykjavíkur Hvad mundir þú gera ef þú ynnir 100 milljónir í kvöld? LOTT* Til mikils að vinna! íslensk <Getspá ;V XVÖFALDUR pOTTUR Víkingalottóinu! ö & & Alla miðvikudaga fyrirkL 17.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.