Morgunblaðið - 14.02.1996, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 14.02.1996, Qupperneq 48
Fáðu þér miða fyrir föstudag •ttYUNDJII Hátækni til framfara M Tæknival Skoifunni 17 • Sími 568-1665 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(S>CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Öhapp við loðnulöndun Þórshöfn. Morgnnblaðið. ÞAÐ óhapp henti við loðnulöndun ór Júpíter að um 150 tonn af loðnu fóru í höfnina. Orsökin er mannleg mistök því gleymst hafði að skrúfa fyrir þriggja tomma lögn en dælt er úr skipinu beint inn í frystihúsið. Verið var að landa loðnu til fryst- ingar beint inn í frystihúsið s.l. laug- ardag og mánudag en við þær land- anir urðu mistökin. Er nú unnið að hreinsun á höfninni. Að sögn hafnarvarðarins, Sigurð- ar Óskarssonar, gengur hreinsunin vel og í gær, þriðjudag, höfðu náðst 70 tonn úr höfninni. Við hreinsunina er notuð dæla og bjóst Sigurður við að verkinu lyki í dag, miðvikudag. Sigurður sagði, að allt magnið væri vigtað jafnóðum og það næðist upp og hreinsun yrði ekki hætt fyrr en höfnin væri orðin hrein af loðnu. Mengun hlytist því ekki af þessu óhappi. Góð veðurskilyrði auðvelda hreinsunarstarfíð. ----♦ ♦ «--- Tvöföldun rækjuafla MJÖG góð aflabrögð voru í janúar. Rúmlega 100.000 tonn bárust á land, en 37.000 tonn í sama mánuði í fyrra. Meira veiddist af nánast öllum teg- undum nú, en mestu munar um mik- inn loðnuafla, eða nærri 40.000 tonn. í janúar í fyrra veiddust aðeins 1.262 tonn ,af loðnu. Úthafsrækjuafli í janúar var 6.201 tonn, sem er rúmlega tvöföldun frá sama mánuði í fyrra og af innfjarða- rækju veiddust tæp 2.200 tonn, sem er þreföldun frá árinu áður. Þá veidd- ust 19.000 tonn af síld í janúar núna en aðeins 1.175 tonn í fyrra. Þorskafli í janúar varð nú alls 17.868 tonn en var 14.025 í fyrra. Hundrað þúsund tonn/Bl Kynjamyndir klettsins Margar sagnir eru um tröll, sem dagaði uppi og urðu að steini. Þannig hef- ur það líka verið um þenn- an steinkarl í Pottgili við Hrífunes í Vestur - Skafta- fellssýslu. En þegar litið er á hann lifnar hann við og breytist í það, sem í huga okkar býr. Viðræðurnar um þorskkvóta íslenzkra skipa í Barentshafi Þrjú j)úsund tonn ber í milli Islands og Noregs Norðmenn vilja endurgjald fyrir nærri helming- hugsanlegs kvóta --— ÞRJÚ þúsund tonnum munar á til- boði Noregs um þorskkvóta fyrir íslenzk skip í Barentshafi og á lág- markskröfu íslands um veiðiheim- ildir, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. íslendingar krefjast um 15.000 tonna kvóta en Norðmenn vilja ekki bjóða nema um 12.000. Auk þess vilja þeir að helmingur þeirra veiðiheimilda verði veittur gegn kvóta á íslandsrniðum eða annars konar endurgjaldi. I viðræðum Islands, Noregs og Rússlands um þorskveiðiheimildir íslenzkra skipa í Barentshafinu hafa samningamenn einkum reynt að ná grunnsamkomulagi um stærð kvótans en önnur atriði hugsan- legra samninga mætt afgangi. Norðmenn lýstu sig fyrst tilbúna til að bjóða Islandi kvóta í apríl síð- astliðnum en buðu þá ekki nema 8.000 tonn, sem íslenzk stjómvöld töldu fráleitt tilboð. Eftir að skriður komst á viðræð- ur að nýju síðastliðið haust hækk- uðu Norðmenn tilboð sitt og á samningafundi í Moskvu í október buðu þeir, samkvæmt upplýsingum Morgunbiaðsins, um tólf til þrettán þúsund tonna kvóta, en íslendingar höfðu þá lækkað sína kröfu niður í um 15.000 tonn. Rætt var um að hluti kvóta íslendinga yrði hugsan- lega veiddur í norskri lögsögu og jafnframt var rætt um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum. Helmingur kvótans gegn endurgjaldi Eftir fundinn í október ríkti nokk- ur bjartsýni um lausn deilunnar um veiðar í Smugunni, en fljótlega sló í bakseglin, ekki sízt vegna þess að Evrópusambandið krafðist aukinna veiðiheimilda af Norðmönnum, yrði samið við ísland. Heimildir Morgunblaðsins herma að á samningafundi ríkjanna þriggja í Moskvu í seinasta mánuði hafi norska viðræðunefndin lagt fram tilboð, sem var talsvert breytt frá októberfundinum. Norðmenn bjóða nú ekki nema sex til sjö þúsund tonn af þorski í Smugunni, þar sem íslenzk skip hafa veitt um 35.000 tonn síðastliðin tvö ár. Jafnframt býður Noregur stærri hlut en áður í norskri lögsögu, eða fimm til sex þúsund tonn. Norðmenn segjast vilja fá eitthvað í staðinn fýrir þann kvóta, en ekki mun vera fullkomlega ljóst hvert endurgjaldið á að vera. Rætt er um veiðiheimildir í íslenzkri lögsögu, en ekki hefur heldur komizt á hreint í viðræðunum að hve miklu leyti þær yrðu „papp- írskvóti", þ.e. fiskur, sem Norðmenn myndu ekki veiða eða sem er ekki jafnverðmætur og sá þorskafli sem íslendingar fengju. íslenzk stjórn- völd telja þetta tilboð óaðgengilegt og verra en tilboð Noregs í október. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er ekki ósennilegt að með þessari breytingu vilji Norðmenn leitast við að friða Evrópusamband- ið. Með því að íslenzk skip fengju stærri kvóta í norsku lögsögunni gæti hugsanlegur samningur við Island orðið líkari þeim fiskveiði- samningum, sem Noregur hefur t.d. nú þegar við Færeyjar, Grænland og ESB sjálft. Allir þessir samning- ar gera ráð fyrir veiðum viðkomandi lands í norskri lögsögu gegn veiði- heimildaskiptum og er í sumum til- fellum um „pappírskvóta" að ræða. íslenskir tómatar á markað Syðra-Langholti, Morgunblaðið íslenskir tómatar eru nú komnir á markað um tveimur mánuðum fyrr en venja hefur verið. Það eru hjón- in Helga Karlsdóttir og Guðjón Birgisson á Melum í Hrunamanna- hreppi sem eru farin að selja þessa uppskeru. Það sem gerir þetta mögulegt er sérstök raflýsing í gróðurltúsum en 900 fm af 3.060 fm garðyrkju- stöð hefur verið tekin til fram- leiðslunnar. Guðjón segir að þetta sé tilraunaverkefni að hluta til, sem margir aðilar komi að, s.s. raforkusalar, aðilar tengdir garð- yrkjuframleiðslunni, Atvinnuþró- unarsjóður Suðurlands og ýmsir fleiri. I garðyrkjustöðinni að Melum er verið að kanna hvort mögulegt sé að framleiða tómata með auk- inni lýsingu en þetta tilraunaverk- efni hófst haustið 1994. Þetta er eina garðyrkjustöðin á landinu þar sem þessi aðferð við tómatafram- leiðslu hefur verið reynd. Guðjón segir þennan ljósabúnað dýran en þarna sé um að ræða 600 watta lampa og eru 170 siíkir í gróður- húsinu þar sem tilraunin fer fram. Lýst er í 16 klst. á sólarhring en plönturnar þurfa að fá nótt í 8 klst. Einnig eru gerðar tilraunir með lýsingu í 12 klst. í hluta húss- ins til samanburðar. Raforkukostn- aður er eðlilega mikill við þessa ræktun, en rafmagnið er keypt eftir svokölluðum roftaxta. Rækt- unarjiúðinn er úr steinull en plönt- urnar fá næringu með vökvun. Engin lyf eru notuð við þessa rækt- un en sérstök flugutegund, sem garðyrkjumenn hafa tekið í þjón- ustu sína, sér um að útrýma skor- dýrum sem kynnu að leggjíist á plönturnar. Guðjón segir að með þessari ræktunaraðferð þurfi verð á tómötum eðlilega að vera hátt, en hann reiknar með að fljótlega geti hann selt um 1 tonn á viku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.