Morgunblaðið - 21.02.1996, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Áhugi hjá HÍ
að leigja
Þjóðarbókhlöðu
Vilja
lengja
opnun-
artíma
ÓFORMLEG yfirlýsing þar
sem fram kemur vilji Háskóla
íslands til að leigja Þjóðarbók-
hlöðu um kvöld og helgar var
lögð fram á viðræðufundi
stjórnar Landsbókasafns Ís-
lands-Háskólabókasafns, les-
stofunefndar Háskólaráðs og
fulltrúar Stúdentaráðs HÍ fyrir
skömmu.
Tilgangur þessarar leigu
væri að lengja opnunartíma
safnsins í því skyni að veita
háskólanemum aðgang að les-
rými, að því er kemur fram í
seinasta Stúdentablaði.
Myndu greiða laun
Til fundarins mun hafa ver-
ið boðað í kjölfar tilboðs Stúd-
entaráðs um að ráðið sjái um
að halda safninu lengur opnu,
en í því skyni er hafín dósa-
og smápeningasöfnun á meðal
stúdenta og almennings. Stúd-
entablaðið kveðst hafa heim-
ildir fyrir að leiga yrði hugsan-
lega innt af hendi með þeim
hætti að Háskólinn borgaði
starfsmönnum laun kvöld og
helgar.
Ef Háskólinn leigði Þjóðar-
bókhlöðuna yrði það einungis
til bráðabirgða, að sögn Guð-
mundar Steingrímssonar for-
manns Stúdentaráðs HÍ, eða
þar til annað íjármagn fæst,
frá t.d. ríki. Þangað til yrði
aðstaðan eingöngu opin fyrir
háskólanema.
Hart deilt á Alþingi um frumvarpsdrög um vinnudeilur og réttindi launþega *
Fullyrðingar um stórfellda
réttindaskerðingu launþega .
ÞINGMENN stjómarandstöðunnar
fullyrtu á Alþingi í gær, að í frum-
varpsdrögum um sáttastörf í
vinnudeilum og réttindi og skyldur
opinberra starfsmanna felist stór-
felld réttindaskerðing og ríkis-
stjómin sé með þeim að blása til
óvinafagnaðar og stríðsástands á
vinnumarkaði.
En ráðhérrar sögðu að í frum-
varpsdrögunum fælist hvorki
afturvirk skerðing á lífeyrisréttind-
um opinberra starfsmanna né aft-
urvirk skerðing á réttindum laun-
þega og opinberra starfsmanna,
sem samið hefði verið um í kjara-
samningum, nema varðandi bið-
launarétt.
Um er að ræða frumvörp sem
enn hafa ekki verið lögð fram á
Alþingi, en hafa verið til meðferðar
hjá launþegasamtökum. Margrét
Frímannsdóttir, þingmaður Al-
þýðubandalagsins, tók málið upp
utan dagskrár á Alþingi í gær og
gagnrýndi að umrædd frumvarps-
drög væru komin fram í ljósi yfir-
lýsinga launþegasamtaka um að
þau hafi ekki verið höfð með í ráð-
um og væru drögunum gersamlega
andvíg.
Margrét spurði hvort þetta væru
merki um nýja samskiptahætti rík-
isvaldsins og verkalýðshreyfíngar-
innar og hvort ríkisstjómin væri
að segja verkalýðshreyfingunni
stríð á hendur. Þær breytingar sem
lagðar væru fram í sambandi við
vinnulöggjöfina fælu í sér verulega
takmörkun á sjálfsögðum réttind-
um launafólks og samkvæmt áliti
fræðimanna í vinnurétti stönguð-
ust þær á við stjórnarskrá, íslensk
lög og ýmsar alþjóðlegar sam-
þykktir.
„Hér er því um að ræða beinar
árásir á verkalýðshreyfinguna sem
Hraunbær - til sölu
giæsileg 3ja herb. íbúð ofarlega f Hraunbæ. Laus
strax. Hafið samband í síma 567 4144 eftir kl. 18.00.
Sérverslun í Kringlunni
i
L
Höfum í einkasölu þekkta sérverslun í eigin húsnæði
í Kringlunni 8—12. Um er að ræða fallega búð með góðum
innréttingum. I boði eru góð greiðslukjör fyrir traustan kaupanda.
Upplýsingar einungis á skrifstofunni, ekki í síma.
Viðskiptaþjónustan,
Síðumúla 31, sími 568-9299.
FASTEIGNA
IVIARKAÐURINNehf
%
ÓÐINSGÓTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
Sæbólsbraut - Kóp.
Glæsileg 86 fm íbúö á 1. hæö á góöum
útsýnisstað viö voginn. Vandaðar innrétt-
ingar og skápar frá HP. Parket og flísar á
gólfum. Áhv. byggingasjóður 1,8 millj.
Verð 6,9 millj. Laus strax.
jp Jón Guðmundsson. söiustjóri, lögg. fasteignasali, Ólafur Stefánsson, vi6sk.fr. og lögg. lasteignasali
I FASTEIGNAMARKAOURINNehfi
Óöinsqötu 4. Símar 551-1540, 552-1700
Margét
Frímannsdóttir
Davíð
Oddson
við hljótum að mótmæla kröftug-
lega,“ sagði Margrét.
Undir þetta tóku fleiri þingmenn
stjórnarandstöðuflokkanna. Og-
mundur Jónasson, þingmaður Al-
þýðubandalags og óháðra og for-
maður BSRB, sagði að til stæði
að afnema í einu vetfangi ýmis
grundvallarréttindi sem hefðu ver-
ið forsendur kjarasamninga um
langt skeið. Og Jóhanna Sigurðar-
dóttir þingmaður Þjóðvaka sagði
ijóst af þeim hugmyndum, sem
fram hefðu komið í fjölmiðlum um
málið, að verið væri að breyta sam-
skiptareglum á vinnumarkaði og
þrengja að réttindum í andstöðu
við launafólk.
Völd til launþega
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði þetta mál enn á umræðu-
stigi, því tillögudrögin væru enn á
umræðustigi, einmitt
við verkalýðshreyfing-
una. Um væri að ræða
nauðsynlega endur-
skoðun á gömlum
lagaramma um leik-
reglur í samskiptum
launþega og atvinnu-
rekenda og þeim gæti
enginn breytt nema
Alþingi.
Davíð sagðist sam-
mála því að óskynsam-
legt væri að breyta
þessum leikreglum án
náins samráðs við þá
sem í hlut ættu, enda
hefði slíkt samráð ver-
ið haft. Varðandi
frumvarp um sáttastörf í vinnudeil-
um hefði verið starfandi nefnd
aðila, sem hefði haldið 42 fundi.
Þá sagði Davíð það misskilning
að í drögunum væri verið að draga
úr rétti launþega. Ef það væri
uppi að draga úr völdum verkalýðs-
foringja, þá væri það aldrei gert
þannig að færa þau völd til vinnu-
veitenda eða ríkisins heldur ein-
göngu til launþeganna sjálfra.
„Eg trúi því ekki að formaður
Alþýðubandalagsins sé andvígur
því að auka rétt launþeganna
sjálfra. Ahrif þeirra á það hvort
boðað sé til vinnustöðvunar, áhrif
þeirra á það hvenær verkföllum
ljúki, o.s.frv.," sagði Davíð og
bætti við að dæmi væri um að
mjög fámennir fundir í verkalýðs-
félögum gætu sett allt á annan
endann í þjóðfélaginu og þar með
truflað störf þúsunda annarra
launþega sem kæmu þar hvergi
nærri. „Við verðum sem löggjafi
að vemda hagsmuni þessara laun-
þega,“ sagði Davíð.
Ekki sneitt að réttindum
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði frumvarpið um sátta-
störf á vinnumarkaði væri samið
á grundvelli áfangaskýrslu frá
samráðsnefnd sem fjallaði um
samskiptareglur á vinnumarkaði.
Hann sagði fjarstæðu að í frum-
varpinu væri sneitt að verkfalls-
réttinum og einnig væri fjarstæða
að halda því fram að frumvarpið
stangaðist á við stjórnarskrá eða
alþjóðasáttmála.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði að haft hefði verið
samráð við samtök opinberra
starfsmanna um frumvörp um Líf-
eyrissjóð ríkisstarfsmanna og rétt-
indi og skyldur ríkisstarfsmanna
sem nú væru í vinnslu hjá ríkis-
stjórninni.
Friðrik sagði frumvarpið um líf-
eyrissjóðinn ekki fela í sér skerð-
ingu á heildarréttindum ríkis-
starfsmanna heldur tilfærslu á
réttindum. I hinu frumvarpinu
væri ekki gert ráð fyrir að réttindi
starfsmanna, sem samið hefði ver-
ið um í kjaraspmningum, breytt-
ust. Og það væri ekki heldur gert
ráð fyrir því að réttindi þeirra
starfsmanna, sem ráðnir hefðu
verið fyrir gildistöku laganna,
breyttust að öðru leyti en því sem
sneri að biðlaunarétti, til að koma
í veg fyrir að fólk væri á tvöföldum
launum í 6-12 mánuði.
Kennarar skipa 6 menn í aðgerðarnefnd
Ráðherra skynjar
ekkí alvöru málsins
„ÉG SE ekki betur en
leiðir hafi skilið. Mér
skilst að ríki og sveitar-
félög ætli að halda
áfram að tala saman
miðað við fyrri forsend-
ur. Við teljum hins veg-
ar að forsendur séu
brostnar. Skipun að-
gerðarnefndar er liður í
að bregðast við því
ástandi," segir Eiríkur
Jónsson, formaður KÍ,
um skipun aðgerðar-
nefndar kennara.
Nefndina skipa, fyrir
hönd KÍ, Guðrún Ebba
Ólafsdóttir, Auður Stef-
Eiríkur Jónsson
ánsdóttir og Sigurður I. Andrésson
og fyrir hönd HÍK Már Vilhjálms-
son, Danfríður Skarphéðinsdóttir
og Eiríkur Brynjólfsson. Nefndar-
menn hafa enn ekki skipt með sér
verkum.
Eiríkur sagði að fordæmi væru
fyrir því að undirbúa rósturtíma
með því að byggja upp samskipta-
net kennara um allt land. „Hlutverk
aðgerðarnefndarinnar verður að
mynda tengsl við samskiptahópa
um landið allt. Með því móti eiga
samskiptahóparnir auðveldara með
að vera með í aðgerðum á vegum
félaganna. Mér sýnist margir, t.d.
fjármálaráðherra, ekki gera sér
grein fyrir alvöru málsins. Með
samkomulagi verkefnastjórnarinn-
ar féllust kennarar á að færa kjara-
samning sinn til annars vinnuveit-
enda gegn því að réttindi héldust
óbreytt. Með frum-
vörpum um lífeyris-
sjóð opinberra starfs-
manna og réttindi og
skyldur opinberra
starfsmanna eru for-
sendur hins vegar
brostnar og kennarar
geta ekki sætt sig við
að kjarasamningurinn
færist á milli vinnu-
veitenda,“ sagði Ei-
ríkur.
Hann sagði að af
tvennu illu vægi frum-
varp um lífeyrissjóð
opinberra starfs-
manna þyngra í af-
ur ekki ráð fyrir því að eftirlaun
væru miðuð við laun eftirmanns í
starfi heldur yrði tekin upp verðvísi-
tala. Hann sagði að þetta væri sá
veruleiki í lífeyrissjóðsmálum sem
blasti við þúsundum opinberra
starfsmanna.
Ekki fluttir eins
og búfénaður
stöðu kennara vegna flutningsins.
„Við erum hér að tala um umtals-
verða skerðingu á kjörum kenn-
ara,“ sagði Eiríkur og nefndi dæmi
af sjálfum sér máli sínu til stuð-
ings. „Ef ég ákvæði að vinna til
sextugs og greiða næstu 16 ár í
lífeyrissjóð opinberra starfsmanna,
eins og ég hef'gert í 24 ár, myndi
ég ekki afla mér neinna réttinda
samkvæmt nýja frumvarpinu en
16% miðað við núverandi lög. Veldi
ég hins vegar að hætta sjötugur
ætti ég eftir að greiða 26 ár í sjóð-
inn samkvæmt nýja frumvarpinu
en 8 ár miðað við núverandi lög.
Ég myndi því þurfa að greiða 18
árum lengur í sjóðinn og í raun
greiða sjálfur fyrir gulrótina sem
hugmyndin er að bjóða þeim sem
vinna til sjötugs,“ sagði Éiríkur og
tók fram að frumvarpið gerði held-
Eiríkur taldi engan vafa leika á
því að samningar kennara yrðu
iausir 1. ágúst ef frumvörpin tvö
yrðu að lögum. „Okkar mat er að
lögin um aðilaskipti á vinnumark-
aði, þar sem talað er um tilflutning
á kjarasamningum, eigi við í at-
vinnurekstri en ekki í starfsemi eins
og ríkisstarfsemi eins og rekstur
skóla. Að okkar mati er því alveg
ljóst að samningurinn flyst ekki á
milli gegn okkar vilja,“ sagði hann
og lagði áherslu á að kennarar
myndu aldrei láta bjóða sér að rétt-
indi yrðu hirt af þeim og þeir svo
lögþvingaðir til að vinna hjá öðrum
vinnuveitenda. Kennarar yrðu aldr-
ei fluttir á milli manna eins og
búpeningur.
Eiríkur sagði að kennarar yrðu
ekki lengi að móta kröfur sínar.
„Við eigum kröfur frá því í fyrra,
sem við náðum ekki fram, og erum
tiltölulega fljót að byggja ofan á.
Þar til viðbótar kæmu bætur fyrir
öll þau réttindi sem af okkur yrðu
hirt með lögurn," sagði hann og
játti því að kröfurnar yrðu nokkuð
háar, enda gerðu frumvörpin ráð
fyrir hárri skerðingu í prósentum.
I
í
I
I
I
I
I
i
i
■
I
f
i
i
c
(
«
l
i
e
c