Morgunblaðið - 21.02.1996, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tveir flugmenn voru sviptir flugleyfi fyrir að snerta vatnsflöt með hjólunum
Telja aðferðina
öruggari við
nauðlendingu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest
úrskurð Fiugmálastjómar um leyfíssviptingu
tveggj a flugmanna vegna háskaflugs,
en flufflnennimir báru leyfíssviptinfflma
undir dóminn. Flugmönnunum er gefíð að
sök að hafa brotið gegn flugreglum með því
að láta hjól landflugvélar snerta vatnsflöt
og þar með skapa sjálfum sér hættu.
Þeir hafa áfrýjað málinu.
FYRIR Héraðsdómi báru flug-
mennimir, Örn Johnson og Magn-
ús Víkingur því við, að þeir hefðu
verið að æfa ákveðna tegund
nauðlendinga og þeir gætu sýnt
fram á það með eðlisfræðilegum
rökum að ekki væri um hættulegt
athæfi að ræða. Þau eðlisfræði-
legu lögmál hafa ekki verið til
. skoðunar hjá íslenskum flugmála-
yfirvöldum en samt féllst Héraðs-
dómur á það mat Flugmálastjórn-
ar að rétt hafí verið að svipta flug-
mennina til bráðabirgða rétti til
að starfa í loftfari.
Þeir Örn og Magnús sögðu í
samtali við Morgunblaðið að þeir
væru meðal þeirra einkaflug-
manna hér á landi sem væru með
hvað mesta flugreynslu, en Magn-
ús hefur verið með flugréttindi í
24 ár og Örn í 18 ár óhappalaust.
Þeir sögðu að þeim væri fullkunn-
ugt um að um allt flug giltu ein-
göngu eðlisfræðileg lögmál og
aðrir kraftar kæmu þar ekki nærri.
Athæfið sem þeir væru ásakaðir
um hefði verið stundað af mörgum
flugmönnum erlendis í mörg ár
og það sýnt á sýningum.
Eins og að snerta malbikaða
flugbraut
Þeir segja að við snertilendingu
af þessu tagi snerti hjól fiugvélar-
innar að örlitlu leyti vatnsyfirborð-
ið, og í þeim tilfellum sem þeir
hafí stundað þetta hefði hraði flug-
vélarinnar verið um 170 km á klst,
en þeir hafi eingöngu gert þetta
á spegilsléttu vatni.
„Þegar snertingin við vatnsyfír-
borðið á sér stað er þetta nákvæm-
lega eins og að snerta malbikaða
flugbraut. Massi vatnsins víkur
ekki undan hjólum flugvélarinnar
svo auðveldlega, auk þess sem
vélin er knúin áfram af aflmiklum
mótor. í kæru sem Flugmálastjórn
lagði fram lýsti yfírmaður flug-
slysarannsóknardeildar Flugmála-
stjórnar því yfír að ekki hefði
munað nema hársbreidd að flug-
vélin steyptist fram yfir sig í vatn-
ið. Þama gætir mikils misskilnings
sem byggist á miklum þekkingars-
korti á þessu fyrirbæri, og það er
alveg ljóst að Flugmálastjórn hef-
ur ekkert gert til að kynna sér
viðkomandi eðlisfræði, enda hefur
hún ekki mannskap til að kynna
sér eitt eða neitt í þessum efn-
um,“ sagði Örn.
Hann sagði bandarísku flug-
málastjórnina hafa gefíð út form-
úlu sem segi að hraðinn þegar
hjólin byija að fljóta á vatninu
miðað við vanalega útblásin dekk
sé níu sinnum kvaðratrótin af loft-
þrýstingnum í dekkjunum. Miðað
við flugvélar þeirra félaga þýði
þetta að hraðinn Sé 45 mílur á
klst. eða 75 km hraði.
„Formúlan segir að vélin muni
fljóta á vatninu þar til hraðinn sé
kominn niður fyrir þennan hraða.
Við erum því langt ofan við öll
hættumörk í þessu tilliti. Það er
gjörsamlega óskiljanlegt hvernig
hætta sé á að flugvélin steypist
skyndilega fram yfir sig ofan í
vatnið, eins og sagt er í kæru Flug-
JODELL-flugvél Magnúsar snertir yfirborð Vatnsdalsár sumarið 1994, en það er fyrsta
snertilending á vatni hér á landi.
ÖRN Johnson og Magnús Víkingur, sem sviptir hafa verið
flugréttindum til bráðabirgða vegna háskaflugs.
málastjórnar, og eru þeir kraftar
sem því myndu valda með öllu
óskýrðir. Að þessu samnlögðu telj-
um við því enga hættu hafa verið
skapaða hvorki fyrir flugvél, flug-
mann né farþega eins og var í
mínu tilfelli."
Áhugi á tilraunum í þessa átt
Magnús segist hafa fengið hug-
myndina að því að prófa snerti-
lendingu á vatni fyrst 1994 en þá
hafði hann gengið með þetta nokk-
urn tíma í maganum. Hann hefði
síðan reynt þetta einn síns liðs en
með áhorfendum að. Ástæðuna
segir hann vera löngun sem sprott-
in sé af sömu rótum og t.d. hjá
skíðamanni sem fari fram af
hengju eða hjá vélsleðamanni sem
aki sleða sínum yfir á.
„Hins vegar tel ég þá aðferð
sem notuð hefur verið hér á landi
við að kenna nauðlendingar á vatni
hafa í för með sér að vélin steyp-
ist á nefið í vatnið á 50-60 mílna
hraða og við það högg eru allar
líkur á því að flugmaðurinn rotist
eða slasist og drukkni jafnvel í
framhaldi af því. Flugmálastjórn
er með upplýsingar um að líkurnar
á því að sleppa úr svona slysi séu
allt að 80%, en það þýðir 20% lík-
ur á manntjóni. Við teljum að
okkar aðferð sé mun öruggari, en
við getum lent á vatninu nærri
landi á 100 mílna hraða og færum
okkur svo nær landi eftir því sem
hraðinn minnkar. Við höfum verið
að æfa nauðlendingu og teljum
mikið atriði að hafa vald á því
vegna þess að það er of seint að
byija að æfa það þegar maður
þarf skyndilega að grípa til þess
inni á reginfjöllum með fulla vél
af farþegum,“ sagði Magnús.
Örn sagði að bandaríska flug-
málastjórnin og flugmálastjórnir
fleiri landa hafi mikinn áhuga á
tilraunum í þessa átt og hann seg-
ist telja það eina gagnrýnisverða
við tilraunir hans og Magnúsar
að þeir hafí ekki sannað áður-
nefnda formúlu að fullu.
Þeir félagar segja Flugmála-
stjórn hafa lýst því yfir að stór
þáttur í því að stofnunin skipti sér
af athæfi þeirra sé fordæmisgildið
sem það hafi, en þeir telji ótta við
slíkt hins vegar ástæðulausan.
„Flugmálastjórn gaf flugmanni
á sínum tíma leyfí til að fljúga
með annan mann með sér í gegn-
um Dyrhólaey. Slíkt hefðum við
aldrei reynt þar sem við teljum
það hættulegt af því að þar er
hætta af fugli í björgunum. Við
vitum hins vagar ekki til þess að
nokkur maður hafi reynt að apa
þetta eftir. Sömuleiðis verðum við
aldrei varir við að þeir sem ekki
hafa vald á því reyni að líkja eftir
flugi listflugmanna,“ sagði Magn-
ús.
Sönnun þarf að byggjast á
eðlisfræðilegum rökum
Flugmálastjórn hefur lagt inn
kæru til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins vegna svokallaðs glæfraflugs
þeirra Arnar og Magnúsar, en í
kærunni kom fram að beitt yrði
lagaákvæðum um að svipta þá til
bráðabirgða skírteinum þeirra til
starfa í loftfari. í lögum segir að
bera megi þessa ákvörðun undir
dómara og það gerðu þeir og hef-
ur dómari kveðið upp þann úr-
skurð að sviptingin skuli standa.
„Dómarinn lýsir því yfir að
Flugmálastjórn hafi ekki skoðað
eðlisfræðina á bak við þetta, en
samt sem áður kemst hann að
þeirri niðurstöðu að sviptingin
skuli standa. Sönnunarbyrðin hvíl-
ir á ákærandanum, þ.e. Flugmála-
stjórn, eða nú þegar ríkissaksókn-
ari gefur út ákæru þá þarf hann
að sanna að þetta hafi verið hættu-
legt. Það er ekki okkar að afsanna
það eins og réttarhöldin vegna
leyfissviptingarinnar gengu út á.
Við höfum áfrýjað því máli til
Hæstaréttar þar sem við leggjum
þunga áherslu á að ákæruvaldið
verði að sanna að þetta sé hættu-
legt og þá þýðir ekkert huglægt
mat í þeim efnum heldur verður
sönnunin að byggjast á hreinni
eðlisfræði og eðlisfræðilegum rök-
um,“ segja þeir Örn og Magnús.
Félag Löggiltra Bifreidasauv
Fl B
BÍLATORG FUNAHÖFÐA I S: S87-77T7
Félag Löggiltra Bifreidasala
fZb
Mercedes Benz 260E árg. '88, brún-
sans., sjálfsk., ABS, sóllúga,
ek. 133 þús. km. Fallegt eintak,-
Verð kr. 2.400.000. Skipti á dýrari.
BMW 520i árg. '89, dökkgrásans.,
álfelgur, sóllúga, ek. 9é þúS. km.
Verð kr. 1.650.000. Skipti á dýrari.
Honda Civic GLi árg. ‘91, grænsans.
Fallegur bíll, ek. 25 þús. km.
Verð kr. 850.000.
Mercedes Benz 309D árg. '85, hvítur,
vsk. blll, nýtt lakk. Verö kr. 800.000.
Jeep Wagoneer LTD árg. '87, grár,
einn með öllu, ek. 140 þús km.
Verð kr. 1.390.000.
Ford Econoline 150 árg. '89. Feröabill
með öllum þægindum.
Verð kr. 2.850.000. Skipti, skuldabréf.
MIKIL SALA - UTVEGUM BILALAN TIL ALLT AÐ 5 ARA
Toyota Carina E LB árg. '93, hvítur,
ABS, ek. 70 þús. km.
Verð kr. 1.390.000. Skipti.
Suzuki Swift GL árg. '93, rauður, ek.
69 þús. km. Verð kr. 870.000.
Chevrolet Blazer árg. '91, blásans.,
sjálfsk., álfelgur, ABS. Gullfallegur bíll.
Verð kr. 2.180.000. Skipti á dýrari.
Ástandsskoðaður.
MMC Pajero árg. '88, silfurgrár, 32“
dekk, álfelgur. Mjög fallegt eintak.
Verð kr. 1.190.000. Skipti.
Jeep Grand Cherokee Laredo árg.
'93, grænsans, ek. 68 þús. km.
Gullfallegur bíll. Verð kr. 3.300.000.
Skipti, skuldabréf.
Subaru Legacy Artic árg. ‘92,.hvítur,
sjálfsk., álfelgur. Mjög fallegt eintak.
Verð kr. 1.590.000. Skipti á dýrari.
Ástandsskoðaður.