Morgunblaðið - 21.02.1996, Side 30

Morgunblaðið - 21.02.1996, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ -M t Móðurbróðir minn, SiGURÐUR ÁSGEIRSSON frá Eiði í Hestfirði, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði laugardaginn 17. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Högni Sturluson og vandamenn. t Systir okkar, UNA MARÍA ÞORGEIRSDÓTTIR, Flókagötu 64, Reykjavík, lést 28. janúar sl. Útförin hefur farið fram. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á deild 1A á Landakotsspítala fyrir góða umönnun. Þökkum auðsýnda samúð. Þórunn Þorgeirsdóttir, Guðrún Þorgeirsdóttir, Lára Þorgeirsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir, KARL MAGNÚSSON, Jökulgrunni 9, Reykjavík, er látinn. Útförin ferfram frá Áskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 15.00. Sigurborg Guðmundsdóttir, Sigrún Karlsdóttir. + Elskuleg dóttir mín, systir okkar og mágkona, JÓHANNA SVANDÍS ÓLAFSDÓTTIR, Réttarholtsvegi 39, Reykjavík, sem lést í Landspítalanum 13. febrúar sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 13.30. Ingibjörg Sturludóttir, Magnús Ólafsson, Herdís Heiðdal, Sigríður P. Ólafsdóttir, Ingimar Halldórsson. + Hjartkær eiginmaður minn, Kristján AGNAR ÓLAFSSON, Eiríksgötu 21, Reykjavík, sem andaðist 12. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 22. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið, heima- hlynningu. Fyrir hönd aðstandenda, Sigriður Eyja Pétursdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför TÓMASAR EMILS MAGNÚSSONAR frá ísafirði. Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki elli- og hjúkrunarheimiiisins Grundar fyrir umhyggju þeirra og vinsemd í hans garð. Ólafur I. Magnússon, Arnþrúður Aspelund, Halldór Magnússon, Jónas Magnússon, Kristin Högnadóttir. + Anna S. Thorst- ensen fæddist á Þverá í Öxnadal í Eyjafirði 8. júní 1918. Hún lést á Landspítalanum aðfaranótt 11. febrúar síðastlið- ins. Foreldrar hennar voru Svan- laugur Jónasson, f. 4.11.1882, d. 15.10. 1946, verkstjóri hjá Akureyrarbæ, og kona hans, Krisíjana Rósa Þorsteinsdóttir, f. 23.11. 1882, d. 20.2. 1957, hús- móðir. Systkini Önnu urðu 15 talsins, en sjö þeirra eru enn á Iífi. Þau eru Eva, f. 1.5. 1906, hjúkrunarkona, Ragnheiður, f. 15.5. 1907, hjúkrunarkona, Hjalti, f. 22.10. 1910, verka- maður, Hrefna, f. 7.12. 1912, húsmóðir, Hulda, f. 12.10. 1914, hjúkrunarkona, Þor- steinn, f. 6.8. 1920, fyrrv. starfsmaður bæjarfógeta á „ÞEGAR vinur þinn talar þá and- mælir þú honum óttalaus eða ert honum samþykkur af heilum hug. Og þegar hann þegir, skiljið þið hvor annan, því að í þögulli vináttu ykkar verða allar hugsanir, allar langanir og allar vonir ykkar til, og þeirra er notið í gleði, sem krefst einskis." Þessi orð um vináttuna úr bók- inni Spámaðurinn (Kahlil Gibran) eru mér efst í huga þegar ég kveð vinkonu mína, „fósturmóður" og fyrrverandi tengdamóður, Önnu Svanlaugsdóttur Thorstensen. Sterk og einlæg vinátta batt okkur böndum í tæplega þijátíu ár. Fljótlega eftir skilnað okkar Tryggva hringdi hún í mig, sem var ráðvillt að mörgu leyti og gerði mér grein fyrir því að mér þýddi ekkert að loka á sig og Tryggva tengdapabba því við værum tengdar gegnum Drífu Hjördísi dóttur mína Akureyri, Helga, f. 6.9. 1922, hjúkrunar- kona. Anna giftist 10.6. 1937 Tryggve D. Thorstensen, f. 11.10. 1914, d. 25.11. 1986, prentara. Hann var sonur Ole Thorstensen, skó- smiðs í Reykjavík, og konu hans, Anine Thorstensen, „hús- móður. Börn Önnu og Tryggve eru: 1) Sonja Helene, f. 9.5. 1938, afgreiðslust. í Reykjavík, maki Jón B. Skarp- héðinsson, f. 1.11. 1938, vörubíl- sljóri í Reykjavík, og eru börn þeirra: A) Erla,^ f. 11.9. 1968, sambýlismaður Asbjörn Arnar- son, B) Birgitta, f. 30.1. 1972. Stjúpdóttir Jóns er Elísabet Anna Cochran, f. 25.11. 1959, sambýlismaður Jón Örn Valsson. Börn Elísabetar eru Iris, f. 10.5. 1986, og Theo Daníel, f. 13.2. 1989. 2) Sigurður Ingvi, f. 3.12. og hún ætlaði að fylgjast með upp- vexti hennar. Mér létti og þannig hófst sú vinátta, sem raunverulega aldrei lýkur. Anna var mér sem móðir eftir að móðir mín dó, þessi fasti punkt- ur í tilverunni, skjólið sem hægt var að leita til undan stormi og áföllum h'fsins. Alltaf tók hún á móti mér, skammaði mig hæfilega og stapp- aði í mig stálinu. Ég minnist þess- ara heimsókna þar sem heitt kaffi eða te var á könnunni og hún sagði að það væri ekki sjón að sjá mig og ég ætti að passa mataræðið og fá mér meira af brauði og kökum. Og við þrefuðum um lífið og tilver- una og það nýjasta úr heimi stjórn- málanna og Tryggvi eldri skemmti sér yfir heitum umræðunum. Hún var miklu jarðbundnari en ég, það sé ég núna mörgum árum seinna, og ótrúlega vitur. Hún stóð við hlið mér í erfiðleikum og tók 1940, flugumferðarstjóri, maki Guðríður Vestmann Guðjóns- dóttir, hjúkrunarkona, og eru börn þeirra: A) Anna Margrét, f. 26.8. 1965, sambýlismaður, Ágúst Gunnarsson. Eiga þau einn son, Sigurð Ingva, f. 19.4. 1995. B) Tryggve Daníel, f. 18.11. 1967. C) Kristín, f. 12.7. 1972, sambýlismaður Vilhelm Gunnarsson. 3) Tryggve Daní- el, f. 20.12. 1945, vélatækni- fræðingur, og á hann eina dótt- ur, Drífu Hjördísi, f. 14.8.1971. Anna flutti með fjölskyldu sinni, þá tveggja ára, til Akur- eyrar og ólst þar upp fram á unglingsár. Á fimmtánda árinu fór hún til Reykjavíkur þar sem hún réð sig í vist. Hefur hún síðan verið búsett í Reykjavík. Anna hefur starfað við fram- reiðslu um áratugaskeið, fyrst á Hótel Skjaldbreið, auk þess sem hún yar aðstoðarþjónn á sumrin á Hótel Garði við Hringbraut. Hún varð aðstoð- arstúlka húsvarðar í ráðherra- bústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík 1950 og tók síðan við af húsverðinum er hann hætti, en því starfi gegndi hún í áratugi eða nokkuð fram yfir sjötugt. Anna dvaldi síðustu árin á Vistheimilinu Seljahlíð. Bálför Önnu fór fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. þátt í hamingju minni og fjölskyldu minnar. Hún hugsaði um börnin mín eins og sín eigin og sat yfir þeim er þau voru veik heima og ég þurfti að vinna. Þegar ég var matarlaus gaf hún okkur að borða. Barnabörnin mín kalla hana Önnu ömmu. Við skröfuðum margt, hlógum saman, þögðum saman og þrefuð- um um allt milli himins og jarðar. Hún var ótrúlega sterk kona, úr- ræðagóð með stórt hjarta á réttum stað. Þegar fór að líða að því að hún hætti sem húsvörður í ráðherrabú- staðnum hafði hún áhyggjur af því að sér myndi leiðast að hafa ekkert að gera. Það voru ástæðulausar áhyggjur. Þegar hún fluttist upp í Seljahlíð var yndislegt að fylgjast með því hvernig hún blómstraði í alls konar tómstundavinnu. Ég kom einu sinni og skoðaði vinnuaðstöð- una og þegar ég dáðist að þeim fallegu munum, sem hún hafði gert og mótað í leirinn, fór hún undan í flæmingi og sagðist hafa fengið aðstoð. Hún var ekki að miklast yfir hæfileikum sínum. Þessa fal- legu muni gaf hún okkur og prýða þeir heimili okkar í dag. En fyrir þessa athafnasömu konu var þessi vinna ekki nóg lífsfylling. Hún fór um langan tima tvisvar í viku niður á Flóamarkað Hjálpræð- ishersins og afgreiddi föt. Þar var hún í essinu sínu innan um fólkið af götunni. Þangað fór ég nokkrum sinnum er ég átti leið í höfuðborg- ina til að hitta hana, fá mér kaffi og kippa með mér flík og flík ef mig vantaði. Svo kom tími veikinda. Ég trúði því einlæglega að hún risi upp úr þeim veikindum sterk og hress eins og ævinlega og tækist á við lífið. Ég fór til hennar á sjúkrahúsið og hvatti hana til að gefast ekki upp. Þarna var eigingirni mín að tala. Ég var ekki að hugsa um það, hvort hún væri nú að ijúka sínu verki í þessari tilveru, ég var að hugsa um mig, sem myndi sakna hennar þeg- ar hún færi. Nú hefur hún kvatt og skilið eft- ir mikinn lærdóm handa okkur hin- um. Börnum hennar, tengdabörn- um, barnabörnum og barnabarna- börnum votta ég mína dýpstu sam- úð um leið og ég kveð mína kæru vinkonu og óska henni kærleika og friðar í nýjum heimkynnum. „Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það sem þér þykir vænst um í fari hans getur orðið þér ljósara í fjarveru hans eins og fjallgöngumaðurinn sér ijallið best af sléttunni." (Kahl- il Gibran) Hjördís Bergsdóttir. + Elskuleg móðir mín, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR fyrrverandi húsvörður í Húsmæðraskóla J ' r ' Reykjavíkur, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 22. febrúar kl. 13.30. H Jí. Marfa Sigurðardóttir. + Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar, ANNA RÓSA ÁRNADÓTTIR, Hringbraut 75, Hafnarfirði, varð bráðkvödd á heimili sínu þriðjudaginn 20. febrúar. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Ketill Eyjólfsson og börn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjalds- laust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi i númer 691181. Það eru vin- samleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinar- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir greinunum. ANNA SVAN- LAUGSDÓTTIR THORSTENSEN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.