Morgunblaðið - 24.02.1996, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
5 vígðir
til prests
BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, mun vígja fimm guðfræð-
inga til prestsþjónustu á morgun,
sunnudag. Vígslan fer fram í Dóm-
kirkjunni og hefst kl. 10.30.
Vígsluþegar eru Sveinn Valgeirs-
son, sem vígist til Tálknafjarðar-
prestakalls, Arnaldur Bárðarson, til
Raufarhafnarprestakalls, Eðvarð
Ingólfsson, til Skinnastaðapresta-
kalis, Brynhildur Óladóttir, til
Skeggjastaðaprestakalls, og Guð-
mundur Karl Brynjarsson, sem víg-
ist sem skólaprestur.
Vígsluvottar verða sr. Björn Jóns-
son prófastur, sr. Siguijón Einarsson
prófastur, sr. Örn Bárður Jónsson
fræðslustjóri og sr. Örn Friðriksson
prófastur, sem lýsir vígslu. Sr. Hjalti
Guðmundsson dómkirkjuprestur
þjónar fyrir altari ásamt biskupi.
Dómkórinn syngur. Organisti er
Marteinn H. Friðriksson.
♦ ♦ ♦----
Stióm BSRB
Takmörkun
á tjáning-
arfrelsi
STJÓRN Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja lítur mjög alvarlegum
augum þá takmörkun á tjáningar-
frelsi sem opinberum starfsmönn-
um hefur verið gert að sæta upp á
síðkastið, eins og segir í ályktun
frá stjórn BSRB sem samþykkt var
á fundi á Akureyri í gær. >
BSRB segir tollverði hafa fengið
tiltal fyrir það eitt að ræða ástand
mála vegna innflutnings á fíkniefn-
um og koma á framfæri ráðlegging-
um til úrbóta. í frumvarpi til laga
um lögreglumenn séu einnig áform
um að skerða tjáningarfrelsi þeirra.
Þá sé alvarlega vegið að rétti
slökkviliðsmanna þegar vakt var
meinað að sækja félagsfund Lands-
sambanda lögreglu- og slökkviliðs-
manna, á þeim forsendum að
sjónarmið þeirra gengju gegn sjón-
armiðum borgaryfírvalda og
Slökkviliðsins. Stjórn BSRB telji að
við slíka aðför verði ekki unað.
Vegið sé að grundvallarmannrétt-
indum hvers einstaklings svo og
mikilvægustu félagsréttindum opin-
berra starfsmanna eins og annarra
launamanna í landinu."
FRÉTTIR
Kjörsókn stúdenta var 47% þegar kosið var til Stúdentaráðs Háskólans
Röskva hélt meirihluta
RÖSKVA hélt meirihlutanum í kosningum til
Stúdentaráðs er fram fóru sl. fimmtudag.
Röskva, samtök félagshyggjufólks, fékk rúm
52% atkvæða og Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hlaut 40% atkvæða. Haki, félag öfga-
sinnaðra stúdenta, bauð nú fram í fyrsta sinn
og hlaut um 7% atkvæða, en töluvert vantaði
á að fyrsti maður á þeim lista næði kjöri. Kjör-
sókn var dræm, aðeins um 47%.
Samkvæmt nýjum kosningalögum til Stúd-
entaráðs verður fækkað um átta fulltrúa í
ráðinu á tveimur árum og fer tala stúdenta-
ráðsfulltrúa úr _30 í 22 eftir kosningar, sem
verða að ári. í kosningunum nú var þetta
skref stigið til hálfs. Fækkað var um fjóra
og verða fulltrúar í Stúdentaráði á árinu því
26 talsins.
Kosning til Stúdentaráðs fer fram á ári
hveiju og er kjörtímabilið tvö ár. Ekki er því
kosið nema um helming ráðsins hveiju sinni.
Að þessu sinni var kosið um ellefu fulltrúa^
níu til Stúdentaráðs og tvo til Háskólaráðs. I
Stúdentaráð fékk Röskva fimm menn kjörna
og Vaka fjóra. Báðar fylkingar fengu síðan
hvor um sig einn mann í Haskólaráð sem er
óbreytt staða frá því í fyrra. í síðustu kosning-
um fyrir ári unnu Röskvumenn átta menn á
móti fimm Vökumönnum.
Kjörsókn nú reyndist dræm. Alls kusu 2.719
manns, sem þýðir 47% kjörsókn, 6% minni kjör-
sókn en í fyrra. Röskva hlaut 1.320 atkvæði,
Vaka 1.018 atkvæði og Haki 188 atkvæði.
Auðir og ógildir seðlar voru 193 talsins. Stað-
an í ráðinu er því sú að afloknum kosningum
að Röskva er með fimmtán fulltrúa inni og
Vaka ellefu.
Stefnumálin sannfærandi
Guðmundur Steingrímsson, Röskvumaður
og fráfarandi formaður Stúdentaráðs, segist
vera himinlifandi og ánægður með úrslitin.
„Við höfum verið mjög sátt við starfíð í vetur,
frambjóðendur stóðu sig vel í kosningabarátt-
unni og stefnumálin voru sannfærandi. Við
höfum reynt að vera heilsteypt í okkar málefn-
um og gjörðum. Við náðum að koma því til
skila sem við vildum, að við höfum náð ár-
angri mjög víða án þess að því hafí verið
mótmælt á neinn sannfærandi hátt. M.a. höfum
við barist af einurð og festu fyrir breytingum
á lánasjóðslögunum og tel ég að sú vinna
muni skila sér á næstunni, en nú er verið að
vinna að endurskoðun Iaganna.“
Guðmundur segir dræma kjörsókn mega að
hluta til rekja til þess að margir virtust líta á
kosningarnar sem óspennandi. „Svo getur ver-
ið að okkar fólk hafi verið of sigurvisst miðað
við þann stórsigur, sem við unnum í fyrra.
Vaka hélt nú sínum hlut, en við misstum at-
kvæði. Mér sýnast þau atkvæði nánast jafn-
mörg og þau, sem ekki skiluðu sér nú miðað
við kjörsóknina í fyrra.“
Stefnum að
völdum næst
Birgir Tjörvi Pétursson, formaður Vöku,
segist vera nokkuð sáttur við niðurstöðurnar
þrátt fyrir að hafa vonast eftir betri úrslitum
fyrir hönd sinna manna. „Við höldum okkar
fylgi, sem við höfum verið að fá undanfarin
tvö ár, og vel það og segja má að þrátt fyrir
fækkun í Stúdentaráði, bætum við manni við,
hlutfallslega séð. Röskva er aftur á móti að
missa fylgi og ég tel að barátta okkar sé að
skila sér.“
Um lélega kjörsókn segir Birgir Tjörvi að
hún stafi fyrst og fremst af áhugaleysi stúd-
enta um stúdentapólitík. Fáir hafi áhuga á því
sem Stúdentaráð sé að gera og það verði að
skrifast á reikning núverandi meirihluta. „Þess
vegna situr fólk heima. Við viljum auka ná-
lægð Stúdentaráðs við stúdenta, en áhugaleysi
þeirra endurspeglast ekki síst í íjarlægð ráðs-
ins. í okkur er enginn uppgjafartónn. Við stefn-
um að því að ná völdum eftir næstu kosning-
ar,“ segir Birgir Tjörvi, en þess má geta að
Vaka vann síðast kosningar árið 1990.
Morgunblaðið/Kristinn
íslenskt efni
verði textað
HEIÐDÍS Dögg Eiríksdóttir
nemandi í Vesturhlíðarskóla,
túlkaði fyrir hönd unglingahóps
skólans þegar heyrnarskertir
nemendur afhentu forsvars-
mönnum innlendrar dagskrár-
deildar ríkissjónvarpsins mót-
mæli vegna þess að ekki er texti
með íslensku fræðsluefni eða
öðru íslensku efni í sónvarpinu.
Að sögn Sigurjónu Sigurbjörns-
dóttur kennara, hafa unglingarn-
ir m.a. verið að fjalla um vímu-
efni en misst af því sem fram
hefur komið í sjónvarpsþáttum,
t.d. unglingaþættinum O. í hópn-
um eru 14 krakkar á aldrinum
13-17 ára. Sagði Sigurjóna að
þeim hafi þótt þátturinn merki-
legur og fræðandi þegar hann
var túlkaður fyrir þau og gagn-
legt að fá að fylgjast með því sem
er að gerast í þjóðfélaginu.
> *
Alyktun stjórnar Vinnumálasambands Islands
Alþingi ber að selj a
samskiptareglur
ÞAÐ hefur lengi verið almenn skoð-
un að 'lögbundnar samskiptareglur
á vinnumarkaði, og þær samskiþta-
reglur sem aðilar vinnumarkaðar-
ins hafa sett í tímans rás, séu orðn-
ar úreitar og hindri að eðlilegur
árangur náist og jafnræðis sé gætt.
Nú hafa heildarsamtök á vinnu-
markaði fengið tækifæri, sem stað-
ið hefur á annað ár, til þess að ná
samkomulagi um nauðsynlegar
breytingar á samskiptareglum,
segir í ályktun Vinnumálasam-
bandsins.
Þá segir ennfremur: „Þó að nú
hafí komið bakslag í þessar viðræð-
ur treystir stjórn Vinnumálasam-
bandsins því að þessu starfi verði
haldið áfram og þess freistað á
næstu dögum og vikum að ná sátt
um þau atriði sem enn hafa ekki
verið að fullu rædd. En jafnframt
bendir stjórnin á að þótt rétt og
sjálfsagt hafi verið að gefa heildar-
samtökum á vinnumarkaði kost á
að hafa áhrif á breytingar á sam-
skiptareglunum er það Alþingi sem
ber að setja samfélaginu sam-
skiptareglur. Og ríkisstjórninni ber
að hafa frumkvæðið samkvæmt
stjórnarsáttmála.
Þess vegna og vegna þess hve
tvísýnt er að samkomulag um sam-
skiptareglur náist í tæka tíð milli
aðila vinnumarkaðarins leggur
stjórn Vinnumálasambandsins
áhersiu á að jafnhliða viðræðum
aðila vinnumarkaðarins verði á
vegum ríkisstjórnarinnar haldið
áfram undirbúningi að lagafrum-
varpi um þetta efni.
Forréttindi opinberra
starfsmanna
Stjórn Vinnumálasambandsins
fagnar framkomnum drögum að
breytingum á lögum um réttindi
og skyldur opinberra starfsmanna.
Það er löngu tímabært að afnema
sérréttindi opinberra starfsmanna,
þau sem þeir hafa umfram aðra
landsmenn, til dæmis um æviráðn-
ingu, biðlaunarétt, fyrirfram-
greiðslu launa, orlofsrétt og fieira.
Slík sérréttindi eru algjör tíma-
skekkja í nútímasamfélagi. Stjórn-
in væntir þess að ríkisstjórnin og
Alþingi standi fast á að ná þessum
breytingum fram.
Samkvæmt stjórnarsáttmála nú-
verandi ríkisstjórnar eiga fjárlög
næsta árs að vera hallalaus. Mikil-
vægt er að staðið verði við þetta
fyrirheit og í framhaldi af því verði
farið að vinna að lækkun ríkis-
skulda. Til þess að þetta náist þarf
að lækka kostnað á mörgum svið-
um. Það getur ekki gengið að jafn-
framt því að ráðuneyti og stofnan-
ir ríkisins standi í stríði við að skera
niður kostnað, semji ríkisvaldið
jafnharðan um meiri launahækkan-
ir til handa opinberum starfsmönn-
um en gert er á almenna vinnu-
markaðinum og geri árangurinn
að engu.
Hækkun launa opinberra starfs-
manna umfram aðra, og umfram
bættan árangur í starfi, bitnar á
öðrum landsmönnum í meiri skatt-
heimtu og er því öllum viðkom-
andi. Náist ekki hallalaus fjárlög
með ásættanlegum niðurskurði og
hagræðingu fer ekki hjá því að
skattbyrðin aukist.
Öfugþróun
Ríkisvaldið virðist í vaxandi
mæli farið að líta á hópuppsagnir
starfsmanna eins og um verkföll
væri að ræða. Oft virðist ekki tek-
ið á samningamálunum fyrr en
heilu hóparnir hafa sagt úpp störf-
um. Þá er farið að semja við þá
sem hafa sagt upp störfum. Þessa
þróun verður að stöðva og er hér
gerð krafa um það. Þegar starfs-
maður hefur sagt upp starfi sínu
er hann að hætta starfi og er ekki
samningsaðili um neitt, nema því
aðeins að vinnuveitandinn kjósi að
líta uppsögn á starfi sömu augum
og verkfallsboðun. Venjulegur
vinnuveitandi hlýtur eðli málsins
samkvæmt að gera strax ráðstaf-
anir til þess að ráða annan mann
í starfíð þegar starfsmaður segir
því upp.
Kröfur um launa-
hækkanir
Forystumenn einstakra laun-
þegasamtaka hafa að undanförnu
gefið til kynna að um næstu ára-
mót verði gerðar kröfur um stór-
felldar launahækkanir.
Stjórn Vinnumálasambandsins
vill taka það fram strax að við slík-
um kröfum er ekki hægt að verða
án þess að raska því efnahagsjafn-
vægi sem hér hefur skapast á síð-
ustu árum. í flestum tilfellum færu
launahækkanirnar beint út í verð-
lagið og yrðu launafólki því ekki
til hagsbóta, heldur færi verðbólg-
an af stað á nýjan leik. Það er
skoðun stjórnar Vinnumálasarn-
bandsins að ekki komi til greina
að semja á þeim grundvelli og hélt
raunar að flestum væri orðið ljóst
hvílíkur skaðváldur verðbólga er.
Þess í stað leggur stjórn Vinnu-
málasambandsins áherslu á að
samtök atvinnulífsins taki upp við-
ræður á svipuðum grunni og Vinnu-
málasambandið hefur áður lagt til
um leiðir til kjarajöfnunar, bættra
kjara í framtíðinni, samkeppnis-
stöðu atvinnulífsins og aðlögun að
breyttum samfélagsháttum.“
i
c
f
C
(
i
i
i
i