Morgunblaðið - 24.02.1996, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Mikilli mótavertíð að ljúka í Evrópu
Italir sigursælir
í stórmótunum
Brlds
Cap Volmac,
Macallan
ÞAÐ hefur verið stórmótavertíð
undanfarið í Evrópu. í lok janúar
voru haldin tvö tvímenningsmót,
annað í London kennt við Macall-
an og hitt í Haag í Hollandi kennt
við Cap Volmac, þar sem 16
heimsþekkt bridspör tóku þátt.
Þá er nýlokið Forbo-sveitakeppn-
inni í Scheveningen þar sem
margir af bestu spilurum heims
áttust við, og svo má ekki gleyma
Bridshátíð okkar íslendinga.
Þetta hafa verið ábatasamar
vikur fyrir ítölsku Evrópumeistar-
ana því þeir unnu bæði Bridshátíð
og Forbo-mótið, auk þess að lenda
í verðlaunasæti í báðum tvímenn-
ingunum.
En það voru norsku spilararnir
Tor Helness og Geir Helgemo sem
fóru með sigur af hólmi í Cap
Volmac. Þeim tókst að stela sigr-
inum frá Indónesíumönnunum
Henky Lasut og Eddy Manoppo,
sem höfðu leitt frá 1. umferð. I
3. sæti urðu heimamennirnir
Bauke Muller og Wubbo De Boer,
Zia Mahmood og Mikhael Rosen-
berg urðu 4. og ítalirnir Andrea
Buratti og Massimo Lanzarotti
fimmtu.
Efstu pörin tvö mættust í næst-
síðustu umferðinni og Norðmenn-
imir unnu nauman sigur. Þetta
spil var talsvert spennandi:
Vestur gefur, NS á hættu
Norður
♦ 2
¥K95
♦ DG76543
♦ 32
Austur
♦ K864
¥ Á63
♦ 2
♦ ÁK1097
Suður
♦ G1097
TDG4
♦ ÁK
+ DG85
Vestur Norður Austur Suður
Manoppo Helness Lasut Helgemo
pass pass 2 lauf pass
2 tíglar pass 2 spaðar pass
pass 3 tíglar dobl pass
4 spaðar pass pass dobl///
+300
Vestur
♦ ÁD53
¥ 10872
♦ 1098
♦ 64
Morgunblaðið/Amór
NORÐMENNIRNIR Geir Helgemo og Tor Helness hrósuðu
sigri í Cap Gemini mótinu í Hollandi, einu sterkasta tvímenn-
ingsmóti heims.
AV spila sterkt lauf og austur
opnaði á eðlilegum 2 laufum og
2 tíglar voru biðsögn. Þegar aust-
ur sýndi hámarksopnun með út-
tektardobli á 3 tígla taldi vestur
geimið reynandi en spilalegan var
ekki með þeim. 4 spaðar doblaðir
fóm tvo niður og Norðmennirnir
græddu því vel á spilinu.
Tvö ár í röð
í London unnu Bandaríkja-
mennirnir Jeff Meckstroth og Eric
Rodwell það afrek að vinna Mac-
allan-mótið tvö ár í röð. Það hefur
aldrei áður gerst í aldarfjórðungs
sögu þessa móts, sem áður var
kennt við Sunday Times.
í öðra sæti urðu ítalimir Alf-
redo Versace og Lorenzo Lauria
og heimamennimir Andy Robson
pg Tony Forrester urðu í 3. sæti.
í 4. sæti urðu Fred Gitelman og
George Mittelman frá Kanada og
í 5. sæti urðu heimsmeistarar
kvenna, Sabina Auken og Daniele
von Armin frá Þýskalandi.
Þegar mótsblöðum er flett virð-
ist sigur Bandaríkjamannanna
býsna ólíklegur því þar er sagt
frá fullt af spilum þar sem þeir
fóru í vonlausar slemmur eða fóra
marga niður í dobluðum spilum.
En það er aldrei nein lognmolla í
kringum Meckwell, eins og þeir
félagar era gjarnan kallaðir. í
næstsíðustu umferðinni spiluðu
þeir við Robson og Forrester og
auðvitað var allt í háalofti.
Norður ♦ Á652 ¥ Á7542
♦ K86
Vestur ♦ 10 Austur
♦ DG73 ♦ 8
¥ G986 ¥ K103
♦ D9 ♦ 10752
♦ G62 Suður ♦ K1094 ¥D ♦ ÁG43 ♦ D987 ♦ ÁK543
Vestur Norður Austur Suður
Meckst. Robson Rodwell Forrester
pass
pass 1 hjarta pass 1 spaði
pass 2 spaðar dobl pass
3 lauf 3 spaðar pass 4 spaðar
dobl pass pass
Vestur spilaði út tíguldrottn-
ingu sem Forrester tók heima.
Hann spilaði laufi og vestur stakk
upp gosa og spilaði meiri tígli á
gosa suðurs.
Nú trompaði Forrester lauf, tók
hjartaás og trompaði hjarta,
trompaði lauf og trompaði hjarta.
Þá spilaði hann laufadrottningu
og þegar Meckstroth valdi að
trompa með sjöunni yfirtrompaði
Forrester með ás og trompaði
hjarta heim með tíunni. Spaða-
kóngurinn var 10. slagurinn.
Guðm. Sv. Hermannsson
VISA styrkir nýja
norræna bikarkeppni
SKAK
S k á k m i ð s t ö ö i n
Faxafcni 1 2
REYKJAVÍKURSKÁK-
MÓTIÐ 2.-10. mars
Mótið er það fyrsta af fimm mótum
í VISA Nordic Grand Prix 1996-97,
- Bikarkeppni Norðurlanda i skák.
NORÐURLÖNDIN stórefla nú sam-
starf sitt á skáksviðinu með norrænu
bikarkeppninni, sem Einar S. Ein-
arsson, svæðisforseti FIDE á Norð-
urlöndum, hefur hleypt af stokkun-
um. Keppnin samanstendur af fimm
stærstu opnu mótunum á svæðinu
þar sem skákmenn geta unnið sér
rétt til keppni í úrslitamótinu síðla
árs 1997.
Þetta er gríðarlegur fengur fyrir
norræna skákmenn og eykur mögu-
leika þeirra til muna á að vera fylli-
lega samkeppnisfærir við keppi-
nauta þeirra frá Austur-Evrópu.
Hugmyndin er gömul, en varð
ekki að veraleika fyrr en eftir að
Einar S. Einarsson var kosinn svæð-
isforseti Norðurlandanna á sögulegu
FIDE þingi í Moskvu í desember
1994. Það sem gerði gæfumuninn
var að Einari tókst að fá VISA Int-
emational til að styrkja keppnina
um meira en þijár milljónir íslenskra
króna. Keppnin tekur því ekkert frá
þeirri starfsemi sem
þegar er sinnt í löndun-
um.
Eikrem
aðalhvatamaðurinn
Að sögn Einars er
hugmyndin upphaflega
sænsk, en aðalhvata-
maður keppninnar
lengst af var norski
skákmótahöldurinn
mikli Amold J. Eikrem,
sem nú er nýlátinn.
„Eftir að ég tók við
embætti svæðisforseta
FIDE á Norðurlöndum
í árslok 1994 gekk ég
fram í því fyrir áeggjan
vinar míns Eikrems að
hleypa skipulagslegum og fjárhags-
legum stoðum undir keppni þessa,
enda lít ég svo á að það sé ein af
mikilvægustu skyldum hvers um-
dæmisstjóra að efla skáklíf innan
síns svæðis eftir því sem aðstæður
leyfa en ekki bara að prýða embætt-
ið og sitja með hendur í skauti“,
segir Einar.
„Það tókst að útvega aðal-
styrktaraðila eða “magna“ keppn-
innar eins og Högni heitinn Torfason
vildi þýða orðið “sponsor". Með því
tókst að skapa fjárhagslegan grand-
völl fyrir því að hún færi fram.
Fyrsta mótið byijar í Reykjavík á
laugardaginn. Það
næsta verður mikið
mót í Kaupmannahöfn
í júní, en það er mjög
veglegt að þessu sinni
þar sem borgin er
menningarborg Evrópu
í ár. Það þriðja verður
í Noregi í ágúst, sem
hluti af Gausdal Open.
Sænska mótið verður
haldið síðla árs, annað-
hvort í Stokkhólmi eða
á Gotlandi og síðasta
opna mótið verður í
Finnlandi eða í Færeyj-
um snemma á næsta
ári. Lokamótið verður
svo væntanlega haldið
hér í Reykjavík haustið
1997.“
Keppendur safna punktum
Fyrir árangur sinn í hveiju móti
fá 15 efstu keppendur punkta eða
sérstök „NGP-stig“, mest 23 og niður
í 1. Auk þess geta keppendur fengið
aukapunkta eða „Bónus-stig“, sem
ráðast af skákstigum andstæðing-
anna (3-10 stig eftir styrkleika-
flokki). Einum keppanda frá hveiju
þeirra landa sem haldið hafa úrtöku-
mót er tryggt sæti í lokamótinu,
annars ráða stigin, nema í síðasta
sætið, sem er boðssæti. Aukaverð-
launasjóður í hvetju móti eru 5.000
Einar S. Einarsson,
svæðisforseti
Norðurlanda.
bandaríkjadalir, sem skiptast jafnt á
milli 10 efstu Norðurlandabúa í
hveiju móti. Koma verðlaun þessi til
viðbótar aðalverðlaunum hvers móts.
Er með þessu fyrirkomulagi verið að
örva keppendur til þátttöku í næsta
NGP-móti og svo koll af kolli. Verð-
laun í lokamótinu verða myndarleg,
a.m.k. 20.000 dalir, fyrstu verðlaun
5.000 og alls verða þar veitt sjö verð-
laun alls.
Keppnin er haldin undir stjórn
Einars, sem hefur sér til halds og
trausts ráðgjafanefnd skipaða þrem-
ur forsetum skáksambanda, Dan-
merkur: Sören Bech Hansen; Nor-
egs: Morten Sand; og Svíþjóðar:
Christer Wánéus. Eftirlits- og yfir-
dómari er Steen Juul Mortensen, rit-
ari Skáksambands Norðurlanda.
Keppninni vel tekið
Að vonum leggst keppnin vel í
norræna skákmenn. Flestir sterk-
ustu skákmenn Norðurlanda verða
þannig á meðal keppenda á Reykja-
víkurskákmótinu. Þá hafa mótshald-
arar sótt það fast að fá mót sín viður-
kennd sem hluta af bikarkeppninni,
en þar komast færri að en vilja,
aðeins eitt mót í hveiju landi.
Skákkeppni stofnana og
fyrirtækja
Keppninni lauk í vikunni. Í A-
flokki sigraði Búnaðarbanki íslands
annað árið í röð, en í B-flokki varð
Verkamannafélagið Dagsbrún hlut-
skarpast. Teflt var í ijögurra manna
sveitum, níu umferðir og var um-
hugsunartíminn 30 mínútur á skák-
ina.
Úrslit í A-flokki:
1. Búnaðarbanki íslands, A-sv. 25 v.
2. VISA ísland 24 v.
3. íslandsbanki, A-sveit 22 v.
4. RARIK 21 v.
5. Landflutningar 20 v.
6. Orator, A-sveit 19 '/2 v.
7. Iðnskólinn í Reykjavík 19 v.
8. Domus Medica 17 ’/« v.
9. -10. Landsbanki íslands og Húsnæðis-
stofnun ríkisins 16'A v. o.s.frv.
Keppnin var æsispennandi. VISA
ísland hafði þriggja vinninga forskot
fyrir síðasta kvöldið, en Búnað-
arbankinn saxaði sífellt á forskotið
og fyrir síðustu umferð voru sveitirn-
ar jafnar. Þá sigruðu bankamennirn-
ir kollega sína í Landsbankanum
3-1, en Domus Medica hélt jöfnu,
2-2, gegn VISA.
Fyrir sigursveit Búnaðarbankans
tefldu Margeir Pétursson, Karl Þor-
steins, Jón Garðar Viðarsson, Bragi
Þorfinnsson og Guðmundur Hall-
dórsson.
Úrslit í B-flokki:
1. Dagsbrún 27 v.
2. Búnaðarbankinn, B-sveit 24 'k v.
3. -4. Menntaskólinn í Kópavogi og SÁÁ
21 'h v.
5. KK blikk 19 v.
6. Verk- og kerflsfræðistofan 18 'h v.
7. -8. Markaðsmenn, A-sveit og Mark-
aðsmenn, B-sveit 15 'h v.
I sigursveit Dagsbrúnar voru Ró-
bert Harðarson, Árni H. Kristjáns-
son, Sverrir Sigurðsson og Birgir
Berndsen og Ellert Berndsen.
Hraðskákmót keppninnar fara
fram í næstu viku: í A-flokki á
þriðjudagskvöld kl. 20 í félagsheim-
ili TR, Faxafeni 12, en í B-flokki á
miðvikudagskvöld á sama stað og
tíma. Sveitir geta verið með í hrað-
skákinni þótt þær hafi ekki teflt í
aðalmótinu. Nýjar sveitir hefja
keppni í B-flokki.
Margeir Pétursson
W*.ÆkEÞAUGL YSINGAR
Skólinn sem kemur heim
Kynning á námsmöguleikum. Ódýrt og gott
heimanám.
Opið hús í dag frá kl. eitt til fimm.
Árshátíð
Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður í
Akoges-salnum, Sigtúni 3, laugardaginn 2.
mars kl. 19.15.
Forsala aðgöngumiða í Húnabúð 24. febrúar
kl. 12-15, 27. febrúar kl. 18-20 og 29. febrú-
ar kl. 17-19. Miðaverð kr. 3.500 fyrir matar-
gesti og kr. 500 eftir kl. 23.
Sólbakki
Myndlistarsýning
í Ráðhúsinu
dagana 24. febrúar til 4. mars. Listaverk
gefin til styrktar Sólbakka við Vatnsenda.