Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 1
72 SIÐUR B/C/D
61.TBL. 84.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kínverjar efna til heræfinga til að ógna Tævan
Herþotur æfa
/ •
sprengjuarasir
á Tævansundi
Peking. Reuter, The Daily Telegraph.
KÍNVERJAR héldu í gær áfram
að ógna Tævan og hófu heræfing-
ar á Tævansundi þar sem tíu her-
skip og jafnmargar herþotur æfðu
flugskeyta- og sprengjuárásir.
Kínverjar skutu einnig fjórðu eld-
flauginni á hafsvæði nálægt hafn-
arborginni Kaohsiung í gærkvöldi.
Varnarmálaráðuneytið á Tævan
sagði að heræfingarnar hefðu haf-
ist klukkan fjögur að íslenskum
tíma í fyrrinótt en þær hefðu farið
fram innan yfirráðasvæðis Kín-
verja. Æfingunum á að ljúka 20.
þessa mánaðar, eða þremur dögum
fyrir forsetakosningarnar á Tæ-
van.
Bandaríska flugvélamóðurskipið
Nimitz, kafbátur og sex önnur
herskip á Persaflóa hafa fengið
fyrirmæli um að fara á svæðið.
Þar eru fyrir flugvélamóðurskipið
Independence og herskip sem'
fylgja því. Winston Lord, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði að markmiðið með viðbúnaði
flotans væri að fullvissa Tævani
um að stjórnin í Washington teldi
það mikið hagsmunamál fyrir
Bandaríkin að friður héldist í þess-
um heimshluta.
„Villandi skilaboð“
Heræfingunum er ætlað að
hræða Tævani frá því að lýsa yfir
sjálfstæði, en tævanska stjórnin
segist aðeins vilja styrkja stöðu
landsins á alþjóðavettvangi í sam-
ræmi við efnahagslegt mikilvægi
þess. Shen Guofang, talsmaður
kínverska utanríkisráðuneytisins,
réð Bandaríkjastjórn frá því að
senda Tævönum villandi skilaboð
um að hún styddi sjálfstæðisvið-
leitni þeirra, með því að senda
herskip á svæðið. „Verði þessi
skilaboð send til Tævans myndi
það skapa alvarlega hættu,“ sagði
talsmaðurinn.
Heræfingarnar ollu mikilli
spennu á Tævan. Hermenn grófu
skotgrafir á tævanskri eyju
skammt frá strönd Kína og hundr-
uð manna bjuggu sig undir að flýja
Taipei af ótta við innrás Kínveija.
Lee Teng-hui, forseti Tævans,
sem er líklegur til að sigra í for-
setakosningunum, hefur ekki sagt
að hann vilji lýsa yfir sjálfstæði
landsins. Stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn, Lýðræðislegi
framfaraflokkurinn, er hins vegar
hlynntur sjálfstæðisyfirlýsingu.
Leiðtogi flokksins, Shih Ming-teh,
fór í bátsferð á hafsvæði þar sem
Kínveijar hafa skotið eldflaugum
í tilraunaskyni frá því á föstudag
og sagði að Tævanir myndu aldrei
láta undan hótunum Kínveija.
Reuter
HERMENN á tævönsku eyj-
unni Penghu, sem er skammt
frá strönd Kína.
Rússneskir hermenn beijast í Tsjetsjníju
Bæ gjöreytt að
ástæðulausu?
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKIR embættismenn
sögðu í gær að níu rússneskir her-
menn hefðu fallið fyrir tsjetsjensk-
um leyniskyttum í Grosní í fyrri-
nótt en skæruliðamir, sem héldu
stórum hluta borgarinnar í síðustu
viku, eru þó flestir flúnir. Rússar
hafa gjöreytt tsjetsjenskum bæ í
átökum við skæruliða, sem íbúarnir
segjast hvorki hafa heyrt til né séð.
Sergei Medvedev, blaðafulltrúi
Borís Jeltsíns, forseta Rússlands,
sagði á fréttamannafundi, að vegna
síðustu atburða í Grosní væri hugs-
anlegt, að ríkisstjórnin breytti
nokkuð áætlun sinni um friðsam-
lega lausn í Tsjetsjníju. Sagði hann
öryggisráðið mundu leggja fram
áætlunina í þessari viku.
„Hugsanlega verður brottflutn-
ingur hersins frá Tsjetsjníju tengd-
ur þeim árangri, sem kann að nást
í friðarsamningum. Ótímabær
Reuter
PALESTINSK kona hrópar vígorð til stuðnings Yasser Arafat, leiðtoga Palestinumanna, á útifundi
í Ramallah á Vesturbakkanum í gær. Þess var krafist að Israelsstjórn aflétti banni við umferð til
og frá sjálfsstjórnarsvæðunum sem sett var í kjölfar hryðjuverkanna að undanförnu.
Krafa leiðtoga Vesturveldanna á friðarfundinum í Egyptalandi
011 hryðjuverk verði fordæmd
Tel Aviv, Damaskus, Sharm el-Sheikh. Reuter.
ÞJÓÐARLEIÐTOGAR frá mörg-
um löndum eiga fund í Egypta-
landi í dag um friðarferlið í Mið-
austurlöndum og baráttuna gegn
hermdarverkum. Ljóst þykir að
Vesturveldin og ísrael leggi aðal-
áherslu á síðara atriðið. Sýrlenska
stjórnin hafnaði boði um þátttöku
en í yfirlýsingu var þrátt fyrir það
lýst yfir vilja til að semja frið við
Israel.
Vesturveldin krefjast þess að
öll hryðjuverk verði fordæmd skil-
yrðislaust og jafnframt segja
heimildarmenn að þau vilji ræða
leiðir til að hindra fjárstuðning við
samtök heittrúarmanna er staðið
hafa fyrir hryðjuverkunum. Sýr-
lenska útvarpið sagði að á fundin-
um yrði háð áróðursstríð þar sem
ísraelar myndu reyna að nota
hryðjuverkin undanfarnar vikur til
að draga sig út úr friðarviðræðum
og kenna aröbum um.
Arabaríkin vilja að fjallað verði
um-aðferðir til að tryggja áfram-
hald á friðarferlinu. Yasser Ara-
fat, leiðtogi Palestínumanna,
hyggst reyna að fá ísraelsstjórn
til að aflétta banni við ferðum til
og frá sjálfsstjórnarsvæðum Pal-
estínumanna sem veldur miklum
þrengingum þar.
Slakað á samskiptabanni
Palestínumenn vilja einnig fá
aukna fjárhagslega aðstoð til að
draga úr neyðinni sem léttir öfgas-
innum róðurinn í baráttu þeirra
brottflutningur gæti endað með
hreinu þjóðarmorði,“ sagði
Medvedev.
Skotið úr öllum áttum
Bærinn Sernovodsk þar sem áður
bjuggu 15.000 íbúar er nú rústir
einar eftir vikulanga stórskotahríð
en Rússar halda því fram, að skæru-
liðar hafi notað hann sem bæki-
stöð. Þeir íbúanna, sem sluppu lífs,
segja, að þar hafi aldrei verið nein-
ir skæruliðar.
Raisa Maasheva, einn íbúanna,
segir að árásin á bæinn hafi hafist
3. mars. „Það var skotið á okkur
úr öllum áttum í einu,“ sagði Maas-
heva en fólkið reyndi að leita skjóls
í kjöllurum. „Nú eru heimili okkar
í rústum vegna tilgangslausrar
skothríðar."
Önnur kona kvaðst hafa séð 30
lík á götum bæjarins.
gegn friðarsamningunum.
Arafat hefur látið handtaka um
600 liðsmenn öfgasamtaka sem
beijast gegn friðarsamningum og
lokað ýmsum stofnunum á vegum
þeirra. Talsmaður ísraelska hers-
ins gaf í skyn í gær að nokkuð
yrði slakað á samskiptabanninu
við sjálfsstjórnarsvæðin í dag og
bílum með matvæli frá Egypta-
landi leyft að fara til Gaza.
■ Efasemdir um árangur/29
Mannréttinda-
skýrsla um Kína
Gagnrýna
kúgun og
valdníðslu
Peking. Reuter.
GAGNGERAR efnahagslegar
umbætur í Kína hafa aukið
velmegun Kínveija, en kín-
versk yfirvöld stunda enn
skipulagðar ofsóknir á hendur
pólitískum andstæðingum, að
því er kemur fram í skýrslu,
sem mannréttindasamtökin
Amnesty International
kynntu í gær.
í skýrslunni, sem ber heitið
„Enginn er öruggur: Pólitísk
kúgun og valdníðsla á tíunda
áratugnum", segir að mann-
réttindabrot séu allsráðandi í
Kína. Kínverskir ráðamenn
hafi þó að mörgu leyti staðið
sig vel. Ekki sé auðvelt að
stuðla að framförum í landi
með 1,2 milljarða íbúa og
fjölda þjóðarbrota. Hins vegar
hafi harðneskjulegum aðferð-
um verið beitt til að beygja
menn undir reglur kínverska
kommúnistaflokksins og lög
og reglur vikið fyrir „pólitísk-
um markmiðum, þar á meðal
að sigra meinta pólitíska and-
stæðinga", segir í skýrslunni.
„Yfirvöld hafa hvað eftir ann-
að sýnt að þau eru reiðubúin
að nota hvaða leiðir, sem er,
hvort heldur löglegar eða
ólöglegar, til þess að verja
ríkjandi skipulag, sérstaklega
þegar gagnrýnin gerist há-
vær.“
Kínverska utanríkisráðu-
neytið sagði að gagnrýni
Amnesty International væri
ekki svara verð.