Morgunblaðið - 13.03.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 9
FRÉTTIR
Barnaheimili í Króatíu endurreist
SAMSTARFSNEFND trúfélaga
fyrir heimsfriði og Peace 2000
hafa tekið undir hjálparbeiðni
um að endurreisa barnaheimili í
Druis á svæðinu Krajina í Króat-
íu og stendur það verkefni frá
28. mars til 7. apríl. Farmur með
yfir 200 pokum af fötum og leik-
föngum og 'h tonn af málningu
frá Málningu hf. fór með ms.
Brúarfossi sl. miðvikudag í boði
Eimskips áleiðis til Króatíu.
Myndin var tekin við það tæki-
færi en það eru aðilar frá Sam-
starfsnefnd trúfélaga fyrir
heimsfriði og Peace 2000 sem á
henni eru við einn gáminn. Oll
fjárframlög, svo og málning og
málningaráhöld eru vel þegin og
þeir sem hafa áhuga á að styðja
þetta verkefni á einhvern hátt
eða hafa áhuga á sjálfboðavinnu
geta haft samband við Þorstein
Thorsteinsson, Þormar Jónsson
eða Marshall de Souza RYS co-
ordinator, 44 Lancaster Gate,
London W2 3NA.
Hollustuvernd kannar
kvörtun frá bökurum
STJÓRN bakarameistarafélags
íslands hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem varað er sérstaklega
við fjölgun leyfisveitinga á
sjálfsafgreiðslufyrirkomulagi til
stórmarkaða og bensínstöðva. Fé-
lagið bendir í því sambandi á slys
vegna salmonellusmits í ijómaboll-
um nýverið og segir það aðeins
ábendingu um það sem gæti gerst
með smiti á alvarlegri sjúkdómum.
Stjórn BMFÍ minnir á að ekki
eigi að selja óvarðar vörur og án
pakkninga, þar sem í ljós hafi
komið að smit geti borist á auð-
veldari hátt en áður var haldið.
Um er að ræða fremur nýlega
þjónustu á ýmsum sölustöðum, þar
sem fólk sækir sér brauð og kökur
í hillur verslana og stingur í poka.
Félagið lagði fram samsvarandi
ábendingar á fundi með fulltrúum
Hollustuverndar ríkisins og Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur í lok
janúar síðastliðins, en „þrátt fyrir
þessar ábendingar og aðvaranir
hefur leyfisveitingum fjölgað og
vill BMFÍ vara sérstaklega við
þessari þróun,“ segir í yfirlýsingu
stjórnar.
Leyfisveitingum
lítið fjölgað
Oddur Rúnar Hjartarsson, for-
stöðumaður Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, segir að um tíu stað-
ir hafi leyfi til sjálfsafgreiðslu á
borð við þá sem bakarameistarar
eru andsnúnir. Leyfisveitingum
hefur fjölgað sáralítið að hans
sögn og strangar kröfur eru gerð-
ar til sölustaða. Stofnunin hafi
ekki fundið neinar vísbendingar
um að þessi söluaðferð auki smit-
hættu og þyki ekki ástæða til að
agnúast út í sjálfsafgreiðslu, enda
sé hún innan ramma matvælalög-
gjafarinnar og ekki hættulegri en
annað sem hún leyfir. Engar
kvartanir hafi borist vegna skorts
á hreinlæti eða sýkingar.
Hermann Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Hollustuverndar
ríkisins, -segir að starfsmenn henn-
ar séu nú að kanna kvörtun bak-
arameistara og greinargerðir
málsaðila sem verði væntanléga
lagðar fyrir stjórnarfund 12. apríl
næstkomandi.
Alþýðubandalagið um ríkisbankana
Þingmál um samein-
ingu í undirbúningi
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ ætlar að
flytja þingmál um að sameina ríkis-
bankana tvo.
Svavar Gestsson þingmaður Al-
þýðubandalagsins boðaði þetta í
fyrirspurnartíma á Alþingi á mánu-
dag. Hann sagði sameiningu bank-
anna forsendu þess að til yrði sterk-
ur íslenskur banki í alþjóðlegu pen-
ingakerfi. Jafnframt væri sköpuð
leið til að taka á stjórnunarvanda
bankanna tveggja og þar með væri
hagsmunum eigendanna, þjóðar-
innar, best borgið.
Svavar vitnaði til greinargerðar
sem Björgvin Vilmundarson for-
maður bankastjórnar Landsbank-
ans kynnti á ársfundi bankans í
síðustu viku um fjárhagslegan
ávinning af sameiningu Lands-
banka og Búnaðarbanka. Spurði
Svavar Finn Ingólfsson viðskipta-
ráðherra hvort hann væri tilbúinn
að beita sér fyrir því að vinna
málið á þeim grundvelli í stað þess
að gera ríkisbankana að hlutafélög-
um eins og ríkisstjórnin stefnir að.
Finnur sagði að á vegum ríkis-
stjórnarinnar væri verið að und-
irbúa formbreytingu beggja ríkis-
bankanna og ynni nefnd að tillög-
um um það. Finnur sagðist sjálfur
þeirrar skoðunar að halda eigi við
þau áform að gera bankana hvorn
um sig að hlutafélagi í eigu ríkisins.
Finnur sagði að ekki stæði til
að selja eignarhlut ríkisins í um-
ræddum bönkum nema Alþingi
tæki ákvörðun um slíkt þótt eðli-
legt væri að heimila fleiri aðilum
að koma að til að auka hlutaféð í
bönkunum og styrkja eiginfjár-
stöðu þeirra í væntanlegri sam-
keppni við erlenda banka. Eftir
stæði að Eftirlitsstofnun EFTA
hefði gert athugasemdir við að hér
væru bæði ríkisbankar og hlutafé-
■ lagabankar á sama markaði og það
skekkti samkeppnisstöðu. Ut frá
þeirri forsendu væri nauðsynlegt
að gera ríkisviðskiptabankana að
hlutafélögum.
Formaður Blaðamannafélagsins
Tjáningarfrelsi fylgja
skyldur og ábyrgð
LUÐVIK Geirsson, formaður
Blaðamannafélags Íslands, segir að
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar-
lögmaður virðist ekki gera sér grein
fyrir að tjáningarfrelsi sé ekki bara
réttur heldur fylgi því einnig skyld-
ur og ábyrgð. Ragnar sagði í Morg-
unblaðinu í gær að svo virðist sem
blaðamenn hafi sett sig á móti tján-
ingarfrelsi með því að setja fram
kröfu um að hann biðjast afsökunar
á ummælum sínum í fjölmiðlum,
en Ragnar gaf til kynna að fjölmiðl-
ar flyttu vísvitandi rangar fréttir
af málefnum biskups Islands.
„Það er nokkuð einstakt þegar
sérfróður lögmaður um mannrétt-
indi forðast að nefna það lykilatriði
varðandi tjáningar- og málfrelsi,
að öllu frelsi fylgir ekki bara réttur
heldur líka skyldur og ábyrgð. Því
hafa blaðamenn ætíð gert sér grein
fyrir, en það virðist eitthvað vefjast
fyrir logmanninum. Annars átti ég
satt að segja von á málefnalegri
umræðu og svörum af hans hálfu,
en það er greinilegt af tilsvörum
hans að þetta er viðkvæmt mál,“
sagði Lúðvík.
Italskir, þunnir ullarjakkar
í 5 litum
kr. 12.900.
Beiðu saman vexti á íslenskum
ríkisbréfum og erlendum
RÍKISVERÐBREF NOKKURRA LANDA VERD- LÁNS- BOLGA TIMI ÁR VEXTIR í alþjóðlegum samanburði eru vextir á íslenskum ríkisbréfum mjög góðir
• Ríkisbréfin eru nú til 2ja og 5 ára.
• DANMÖRK 1.70% 5 6. 23% • Þau eru óverðtryggð með forvöxtum sem greiðast
fyrirfram.
♦ ÞÝSKALAND 1 . 6 0 % 5 5 . 08% • Ríkisbréf eru auðseljanleg fyrir gjalddaga.
• BANDARÍ K1N 2 . 6 0% 5 5 . 73%: • Einingar eru 100.000, 1.000.000 og 10.000.000 kr.
Útboð á ríkisbréfum 1 fer fram í dag kl. 14.00. |
• ÍSLAND 1.60% 5 9.9 2%
•
Hafðu samband við ráðgjafa
Þjónustumiðstöðvar rikisverðbréfa
og fáðu nánari upplýsingar.
Sími 562 6040.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068.
Eyddu í sparnað - sparaðu með áskrift að spariskírteinum