Morgunblaðið - 13.03.1996, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Sérverslun við Laugaveg
Höfum í einkasölu sérverslun með gjafavörur og fram-
köllunarþjónustu. Verslunin er staðsett ofarlega við Laugaveg í
rúmgóðu húsnæði með góðum innréttingum. f boði eru góð
greiðslukjör fyrir traustan kaupanda.
Upplýsingar
fegí
3 fram- .
jgaveg í I
eru góð
eiOsiuKjor ryrir traustan Kaupanaa.
pplýsingar einungis á skrifstofunni.
Viðskiptaþjónustan,
Síðumúla 31, sími 568-9299. |
Morgunblaðið/Þorkell
Listasafn ASÍ
eignast Ásmundarsal
ARI Skúlason framkvæmda-
stjóri ASÍ, Benedikt Davíðsson
forseti ASÍ og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri hafa
undirritað kaupsamning um
kaup Listasafns ASÍ á Asmund-
arsal við Freyjugötu af Reykja-
víkurborg. Samningurinn var
undirritaður á áttugastaafmæl-
isdegi Alþýðusambands Islands.
Mun safnið leggja sérstaka
áherslu á að gera listkynningu
í nýju húsnæði aðgengilega fyrir
börn.
(t
FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
%
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
Veitingarekstur
Til sölu gott fyrirtæki í veitingarekstri á höfuðborgarsvæöinu.
Fyrirtækið er i fullum rekstri meö góð viðskiptasambönd og er
starfrækt I eigin húsnæði sem er um 650 fm að stærð og er
jafnframt til sölu.
Allar upplýsingar á skrifstofu.
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali. Ólafur Stefánsson, viösk.fr. og lögg. fasteignasali
%
ͧ1 FASTEIGNAMARKAÐURINNehf
Óöinsaötu 4. Símar 551-1540. 552-1700
J)
Ferðamannaþorp
Til sölu glæsilegt fyrirtæki með gistiaðstöðu í
sérhúsum og uppgerðum staðarhúsum. Sérhús
fyrir snyrtingu, fyrir tjaldstæði, hjólhýsastæði
og hestafólk. Glæsilegur veitingasalur. Ein besta
ferðamannaaðstaða landsins. Lóðir frágengnar.
Allt nýsmíðað og gegnumtekið. Heitt vatn á
staðnum og í hverju húsi. Staðsettning
IV2 klst frá Reykjavík í austur. Býður upp á alla
möguleika sem íslensk ferðaþjónusta býr yfir.
Húsnæðin jafnvel til sölu. Til ath. fyrir alla
þá, sem koma nálægt ferðamálum og almenn
félagasamtök. Gisti- og veitingaaðstaða fyrir um
50 manns. Ótrúlegt ævintýraland með endalaus-
um framtíðarmöguleikum. Ferðamenn á sumrin
og hópar og félagasamtök með helgarskemmt-
anir á veturna.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
s u
u
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
FRÉTTIR
Könnunarviðræðum íslands og Noregs
við Schengen-ríkin lokið að mestu
Akvörðun um Schengen-
aðild fyrir 18. apríl
ÍSLENZK stjómvöld þurfa að gera
upp hug sinn til þess hvort þau
taka boði um aðild íslands að
Schengen-vegabréfasamkomulag-
inu fyrir 18. apríl næstkomandi, en
þá verður haldinn sameiginlegur
ráðherrafundur Schengen-ríkjanna
og norrænu ríkjanna fímm. Könn-
unarviðræðum við Schengen-ríkin
er að mestu lokið og efnisinnihald
væntanlegs samstarfssamnings
liggur fyrir, þótt gerð hins formlega
samningstexta sé stutt á veg komin.
ísland og Noregur áttu fund með
miðstjóm Schengen í Brassel síð-
astliðinn fimmtudag. Þar var farið
í gegnum ýtarlega spurningalista
Schengen-ríkjanna og svöruðu full-
trúar íslands og Noregs flestum -
spumingum á þann veg, að niður-
staða Schengen-ríkjanna eftir fund-
inn varð sú að ekkert væri því til
fyrirstöðu að löndin tvö tækju að
sér gæzlu ytri landamæra sameig-
inlegs vegabréfasvæðis. Sama nið-
urstaða varð af svipuðum fundi með
Finnlandi og Svíþjóð síðastliðinn
miðvikudag, en sem aðildarríki Evr-
ópusambandsins munu þau fá fulla
aðild að Schengen.
Hægt að ná í land í
öllum málum
Hannes Hafstein, sendiherra ís-
lands í Brussel og aðalsamninga-
maður í viðræðunum við Schengen-
ríkin, segir í samtali við Morgun-
blaðið að þótt formlegur samningur
liggi ekki fyrir og ekki sé búið að
taka neinar ákvarðanir, sé hægt
að sjá hvernig samstarfssamningur
íslands við Schengen-ríkin geti litið
út. „Ég sé ekki betur en að hægt
sé að ná í land í öllum málum,“
segir Hannes.
Frekari samningafundir með
miðstjórn Schengen verða ekki
haldnir fyrir hinn sameiginlega ráð-
herrafund Schengen og Norður-
landa 18. apríl næstkomandi.
Schengen-ríkin vinna nú að því að
setja saman formlegt samningsum-
boð fyrir Holland, sem fer með for-
mennsku í Schengen-ráðinu. A
gmndvelli þess umboðs geta form-
legar samningaviðræður og gerð
samningstextans hafizt í apríl eða
maí. Hannes Hafstein segir að inn
í umboðið séu komin öll þáu atriði,
sem Island og Noregur hafí gert
kröfur um.
Boðin áheyrnaraðild á
ráðherrafundi í apríl
Á fundinum 18. apríl verður nor-
rænu ríkjunum að öllum líkindum
boðin áheyrnaraðild að Schengen-
samkomulaginu, sem gangi í gildi
1. maí. Á grundvelli aukaaðildar-
innar munu Norðurlöndin eiga full-
trúa á öllum fundum nefnda og
ráða innan Schengen. Síðan er
stefnt að fullri Schengen-aðild
ESB-ríkjanna Svíþjóðar, Finnlands
og Danmerkur; en gerð samstarfs-
samninga við Island og Noreg.
Vegna þess að ísland og Noreg-
ur standa utan ESB geta ríkin
ekki fengið fulla aðild að Scheng-
en. Þó hafa Schengen-ríkin þegar
fallizt á að löndin tvö fái fulla að-
ild að undirbúningi ákvarðana á
öllum stigum, þar á meðal að ráð-
herrafundum Schengen. Hannes
Hafstein segir að í hinn formlega
samstarfssamning verði væntan-
lega sett ákvæði um að Schengen-
ríkin nái fyrst samkomulagi um
ákvarðanir, en síðan verði Islandi
og Noregi boðið að samþykkja þá
ákvörðun eða synja henni. „Mein-
ingin er þó sú, að þetta sé einn
og sami fundurinn, þar sem allir
leysa málin í einlægni og friði,“
segir Hannes. „Formlega séð verða
auðvitað að vera í samningnum
ákvæði um að Island og Noregur
taki sjálfstæða ákvörðun um það
hvort ríkin vilji vera með eða ekki,
því að þau geta ekki orðið fullir
aðilar að Schengen. Ég get tæp-
lega ímyndað mér að nokkurn tím-
ann verði atkvæðagreiðsla, þótt
ráð sé fyrir því gert. Menn munu
leysa málin með samkomulagi."
Gildistaka
1998 eða 1999
Gangi allt eftir áætlun, er talið
að formlegur samstarfssamningur
við Schengen-ríkin geti legið fyrir
undir næstu áramót. Hann þarf síð-
an að hljóta samþykki þjóðþinga
allra samningsríkjanna. Áætlað er
að samstarfssamningurinn geti tek-
ið gildi seinni hluta árs 1998 eða í
ársbyijun 1999.
EIGNAMIÐLUNIN "/.
- Ábyrg jijónusta í áratugi.
Sími 588 9090 - Fax 588 9095
1
Síðumúli 21.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Eftirlit með fiski frá ríkjum utan EES
Gæti fælt Rússa
Laufásvegur. Mjög falleg
og bjðrt um 110 fm 4ra herb. íb. á
gbðum stað í Pingholtunum. Ib. er
mlklð endurn. fyrír sjö árum, m.a.
ðll gólfefm og eldhúoinnr. Verð 8,7
millj. 6063.
ÍlfÍRÓSKAST
2ja-3ja herb. óskast.
Góö 2ja-3ja herb. íb., með góðu
aögengi fyrir fatlaða, óskast strax,
helst miðsvæðis. Traustar og góðar
greiðslur í boði.
íbúðarhæð óskast. Hof-
um kaupanda að góðri, vandaðri
sérhæö í Reykjavík innan Elliðaáa.
Æskileg stærð um 150 fm. Bílskúr.
Traustur kaupandi.
Einbýli á Seltjarnar-
nesi óskast. Ákv. kaupandi
óskar nú þegar eftir 150—250 fm einb.
á Seltjarnarnesi. Góöar greiðslur í
boði. Uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
íbúð í Fossvogi ósk-
ast. Traustur kaupandi hefur beðið
okkur að útvega 2ja-3ja herb. íb. með
góðum bílskúr. Æskileg staðsetn.
Fossvogur, Smáíbúðahverfi eða
Háaleiti. Uppl. veitir Sverrir
Kristinsson.
Jarðhæð óskast (geng-
ið beint inn - félaga-
samtök). Traust félagasamtök
hafa beðið okkur að útvega 1000 fm
gott rými á jarðhæð meö góðu aðgen-
gi. Uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
Lagerpláss í Múla-
hverfi eða nágrenni
Óskast. Traustur kaupandi óskar
eftir 500-600 fm lagerplássi með góðri
lofthæð í Múlahverfi eöa nágrenni.
frá viðskiptum
LÍKUR eru taldar á því að ef settar
verða upp landamærastöðvar fyrir
fisk í nokkmm höfnum hér á landi
muni það fæla Rússa frá því að landa
hér fiski þar sem þeir myndu bera
kostnaðinn af því að koma við í
tveimur höfnum í stað einnar.
Jón Guðlaugur Magnússon fram-
kvæmdastjóri Marbakka sem hefur
verið í viðskiptum með Rússafisk
segir að allt aðrar forsendur séu hér
á landi heldur en t.d. í Noregi og
Danmörku þar sem fiskurinn sem
berst að landi er yfirleitt alltaf sett-
ur upp á bíl og fluttur heill til kaup-
anda jafnvel á Spáni eða Portúgal.
Hér á landi færi hann í hús sem öll
þyrftu að hafa viðurkenndar skoðun-
arstofur og það væri fyrst og fremst
kaupandinn sem mæti hvort hráefn-
ið væri í lagi.
Til ama og leiðinda fyrir alla
„Þarna þýðir þetta að skip þarf
að koma til hafnar á einum stað og
láta taka út fiskinn sem tekur 1-2
daga. Síðan þarf að sigla með hann
á aðra höfn. Þar með eru komin
tvenn hafnargjöld og a.m.k. dagur
aukalega. Það þarf ekki að spyrja
að því að það verður enginn feginn
að þurfa að gera þetta. Það er með
þetta eins og annað að þetta ræðst
bara af framboði og eftirspurn og
ef það er auðveldara að fara annað
á svipuðum verðum þá fara menn
það,“ sagði Jón Guðlaugur.
Aðspurður hvort hann teldi þetta
'geta fælt Rússa frá löndun hér á
landi sagði hann svo geta orðið ef
eftirpurn eftir fiskinum væri í þokka-
legu ástandi annars staðar.
„Ég held að það sé engin spurning
að þetta yrði til ama og leiðinda
fyrir alla. Ef skip kemur t.d. til
Norðíjarðar að vetrarlagi með fisk
þá þarf kaupandinn að koma þangað
því þá keyrir þú ekkert með fisk
þaðan t.d. til Þórshafnar. Það er
kaupandinn sem hefur síðasta orðið
um hvort hann tekur fiskinn. Það
er því engin spurning að þetta verð-
ur þyngra í vöfum og það verður
erfiðara og dýrara að fá skip hingað
þó ekki sé nema bara út af auka-
degi og tvöföldum hafnargjöldurn,"
sagði Jón Guðlaugur.
Ágæt aðstaða í frystihúsum
Jóhann A. Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar
sem keypt hefur fisk af fjölda rúss-
neskra skipa sagðist telja að það
yrði síður spennandi fyrir Rússa að
landa hér fiski ef þeir þyrftu fyrst
að koma inn til landamæraeftirlits.
Kostnaðurinn myndi væntanlega
lenda á þeim. Markaðsverð yrði
óbreytt burt séð frá kostnaði.
„Frystihús sem eru starfandi í dag
eru með öll leyfi til verkunar og
hafa ágæta aðstöðu til að taka sýni
og prufur af aflanum. Við sjáum
ekki í fljótu bragði neitt því til fyrir-
stöðu að við gerum þessa hluti hver
á sínum stað og erum mótfallnir því
að auka kostnað við þessa hluti. Ef
þetta bytjar svona þá veit engin
hvar þetta endar og hvenær þú þarft
að fara að tæma skipið í þessari
höfn og keyra með aflann. Þess
vegna er maður hræddur við þessa
þróun og finnst hún í fljótu bragði
ástæðulaus. Eg myndi því frekar
vera mótfallinn þessu og er hræddur
um að þetta vefji frekar upp á sig
og svo ráði menn ekkert við þetta,“
sagði Jóhann.