Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Árni Helgason
NEMENDUR Grunnskólans leystu margvíslegar þrautir.
Heilsudagar í grunnskól-
anum í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Á undanförnum
árum hefur verið brotin upp
stundatafla nemenda grunnskóla
í nokkra daga á vetri. Þá er tekið
fyrir ákveðið viðfangsefni, þema,
og unnið með það.
Fyrir nokkru var boðið upp á
heilsudaga þar sem rætt var um
mikilvægi þess að hugsa vel um
heilsu sína því hún er grundvöllur
fyrir góðri líðan barnanna í fram-
tíðinni. Mikið var um heimsóknir
í skólann. Klæmint Antoníussen,
tannlæknir, ræddi við börnin um
tannhirðu og tannvernd. Ragn-
heiður Gunnarsdóttir, skólahjúkr-
unarfræðingur, ræddi við yngri
nemendur um mataræði og heilsu-
vernd. Þá kom Borghildur Sigur-
bergsdóttir, næringarráðgjafi, og
ræddi við eldri nemendur um
mataræði og eins hélt hún fund
með foreldrum. Hulda Hallsdóttir
var með dansnámskeið fyrir nem-
endur 4 ára og eldri og var vel
mætt í dansinn. Þá var boðið upp
á margs konar leiki og útivist.
Sumir nemendur fóru upp í Sau-
raskóg og léku sér þar og aðrir
fóru á skauta á Skjaldarvatni.
Heilsudagarnir tókust vel, að
sögn Gunnars Svanlaugssonar,
skólastjóra, og voru góð tilbreyt-
ing við skólastarfið og urðu von-
andi til þess að vekja nemendur
til umhugsunar um hvernig hægt
væri að bæta og fara vel með
heilsu sína.
Opinn
dagurá
heilsu-
gæslustöð
Björk, Mývatnssveit.
OPINN dagur var í heilsu-
gæslustöðinni Helluhrauni 17
í Mývatnssveit um helgina.
Starfsfólk heilsugæslustöðv-
arinnar og sjúkrahússins á
Húsavík boðaði til þessarar
samkomu og mætti hér. Kynnt
var starfsemi framangreindra
stofnana, boðið var upp á
ókeypis blóðfitu- og blóð-
þrýstimælingar og einnig voru
bornar fram rausnarlegar veit-
ingar.
Mývetningar voru búnir að
safna 200 þúsund krónum til
tækjakaupa vegna heilsu-
gæslustöðvarinnar. Agnes
Einarsdóttir afhenti þetta
söfnunarfé, Dagbjört Bjarna-
dóttir hjúkrunarfræðingur
meðtók það fyrir hönd heilsu-
gæslustöðvarinnar og færði
gefendum besta þakklæti fyr-
ir. Búið var að kaupa ung-
barnavog, bijóstamjaltavél,
eyrnaskoðunartæki og fleira.
Ennfremur verða keypt leik-
föng fyrir börn.
Um áratuga skeið hefur
verið opin heilsugæslustöð í
Reykjahlíð, einnig læknastofa
í Alftagerði og hafa læknar
komið frá Húsavík tvisvar í
viku. Fjöldi fólks lagði leið sína
í heilsugæslustöðina í Reykja-
hlíð á laugardaginn og átti þar
fróðlega stund.
Aðalfundur
íslandsbanka hf.
Aðalfundur íslandsbanka hf. 1996
verður haldinn í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 25. mars 1996 og hefst kl. 15.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við
10. grein samþykkta bankans.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Hluthafar sem vilja fá ákveðin mál tekin til meðferðar
á fundinum skulu gera skriflega kröfu um það
til bankaráðs, Kirkjusandi - 5. hæð, Reykjavík,
í síðasta lagi föstudaginn 15. mars næstkomandi.
Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út
miðvikudaginn 20. mars n.k. kl. 10 fyrir hádegi.
Framboðum skal skila til bankastjórnar.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra
í íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð,
20. mars frá kl. 12 -16 og 21. og 22. mars n.k.
frá kl. 915 -16 og á fundardegi frá kl. 915 -12.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins
fyrir árið 1995 verður hluthöfum til sýnis á sama stað
frá og með mánudeginum 18. mars 1996.
6. mars 1996
Bankaráð íslandsbanka hf.
ÍSLAN DSBANKI
Sölusýning á dönskum
bókum í verslun okkar
Austurstræti 18
frá 13. mars til 1. apríl nk.
Allt það nýjasta frá Gyldendal og Politiken
Hundruð titla
á sama verði og í Danmörku
Einstakt tækifæri til að kynnast því helsta sem er
að gerast í dönskum bókaheimi. VLRIÐ VELKOMIN
Eymundsson
** STOFNSETT 1872