Morgunblaðið - 13.03.1996, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 13.03.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 19 Nýir hlut- hafar til liðs viðFáfni? ísafirði. Morgunblaðið. EIGENDUR Vísis hf., í Grindavík hafa að undanförnu átt í viðræðum um kaup á meirihluta hlutafjár í Fáfni hf. á Þingeyri, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Fáfnir hf., rekur frystihúsið á staðnum auk fiskimjölsverk- smiðju. Sigurður Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Fáfnis, vildi í sam- tali við blaðið ekkert segja um málið á þessari stundu en sagði að niðurstaða myndi liggja fyrir á næstu dögum. „Það getur vel ver- ið að í gangi hafi verið skoðun á N því hvernig mætti styrkja fyrir- tækið með nýjum hluthöfum en það er ekkert um þetta mál meira að segja í augnablikinu. Ef af ein- hveiju slíku verður getum við sagt frá því fljótlega, ég get ekkert sagt meira um málið á þessari stundu," sagði Sigurður. Hann sagði að menn þar á bæ væru að hugsa leiðir til að styrkja fyrirtækið til frekari átaka í sínu fagi en hvað yrði ofan á kæmi í ljós á næstu dögum. Sigurður sagði Fáfni hafa verið í fullum rekstri og stöðugri vinnu en upp- gjör síðasta árs lægi ekki fyrir sökum niðurröðunar hjá endur- skoðanda fyrirtækisins. „Eins og menn þekkja sem eru í fisk- vinnslu, þá er ekki mikil von á gróða en menn böslast áfram eins og þeir geta.“ VIÐSKIPTI Lært á LOUIS HÓPUR útlendinga var staddur hér á landi um síðustu helgi á vegum hugbúnaðarfyrirtækis- ins Softis hf. til að sækja nám- skeið í LOUIS-hugbúnaðinum. Um var að ræða starfsmenn og viðskiptavini fjölþjóðafyrirtæk- isins Acucobol Inc., sem hefur tekið að sér að selja LOUIS í umboðssölu fyrir Softis. Sig- urður Björnsson, framkvæmda- sljóri fyrirtækisins, segir að þátttakendur á námskeiðinu hafi verið um tíu talsins og annars vegar komið frá höfuð- stöðvum Acucobol í Evrópu, sem hefur aðsetur á írlandi, og hins vegar frá fyrirtækjum í Svíþjóð, sem hafi áhuga á að taka upp LOUIS-tæknina. Eitt þeirra fyrirtækja sé sænska fyrirtækið Bonnier, sem sé stærsta útgáfufyrirtæki á Norðurlöndum og gefur út dag- blöð, tímarit og fjölda bóka. Þetta er fyrsta námskeiðið, sem haldið er fyrir væntanlega er- lenda kaupendur hér á landi, en Sigurður segir að fleiri nám- skeið séu í undirbúningi, bæði hérlendis sem erlendis. A myndinni eru Anders Thorén, yfirmaður upplýsingadeildar Bonnier og Rolf Nylander frá Sydow Urgel Data. Fyrir aftan þá sést í John Cahill, yfirmann tæknideildar Acucobol í Evr- ópu. Almenna bókafélagið hætt rekstri Gjaldþrota- skipta krafist ALMENNA bókafélagið hf. hætti endanlega rekstri í síðustu viku og verður væntanlega úrskurðað gjald- þrota á næstu dögum að kröfu þriggja lánardrottna, þ.e. Heimilis- tækja hf., Sýslumannsins í Reykja- vík og Hugvers hf. Heildarskuldir félagsins eru áætlaðar kringum 1.00 milljónir króna. Friðrik Friðriksson, stjórnarfor- maður, sagði í samtali við Morgun- blaðið að útgáfa félagsins hefði verið sáralítil að undanförnu og starfsemin nánast eingöngu miðað að því að selja lager til að lækka skuldir. Starfsmenn hefðu einungis verið tveir síðustu mánuðina. „Það var von okkar forsvarsmanna fé- lagsins að það myndi duga til að forða því frá þroti, en það dugði ekki. Eg reyndi í raun óformlega nauðasamninga sem gengu víða en ekki alls staðar.“ Ráðist var í fjárhagslega endur- skipulagningu á Almenna bókafé- laginu árið 1992, en Friðrik segir að forsendur varðandi hlutafé og fleiri þætti hafi ekki gengið eftir. „Síðan hefur reksturinn á þessu félagi eins og mörgum öðrum bóka- forlögum verið þungur.“ Friðrik sagðist einnig vera hætt- ur afskiptum af Helgarpóstinum eins og annarri útgáfu. „Afskiptum mínum af útgáfumálum er lokið,“ sagði hann. OPIÐ UM HELGAR BIODROGA j i Líirænar | TIL KL. 21 j jurtasnyrtivörur f Engin auka ilmefni. Skólavörðustfg 8b. | BIODROGA J Opið virka daga 10.00-18.30 - Laugardaga 10.00-16.00 - Matvöruverslun 10.00-23.00 Betra Verð en áður í Borgarkrínglunni Gefðu þér tíma, líttu inn nuna miðvikudag • fimmtudag • föstudag • laugardag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.